Morgunblaðið - 14.12.2003, Side 17

Morgunblaðið - 14.12.2003, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2003 17 Styrkirnir verða veittir tónlistarfólki, 30 ára eða yngri, sem er að ljúka framhaldsnámi eða hefur nýlega lokið því. Styrkirnir eru ætlaðir til þess að auðvelda umsækjendum að hasla sér völl í listgrein sinni. Veittir verða allt að fjórir styrkir að fjárhæð 500 þúsund krónur hver. Upplýsingar um umsóknargögn og reglur má nálgast í afgreiðslu Íslandsbanka á Kirkju- sandi eða á vef Íslandsbanka á slóðinni www.isb.is/menningarsjodur. Umsóknarfrestur er til 15. janúar nk. og skal senda umsóknir á eftirfarandi heimilisfang: Menningarsjóður Íslandsbanka – Ungir tónlistarmenn, Kirkjusandi, 155 Reykjavík. MENNINGARSJÓÐUR ÍSLANDSBANKA FAGNAR 15 ÁRA AFMÆLI Á ÞESSU ÁRI. HANN ER EINN ÖFLUGASTI SJÓÐUR SINNAR TEGUNDAR HÉR Á LANDI OG ÁRLEGA NÝTUR FJÖLDI LISTAMANNA OG MENNINGARSTOFNANA STUÐNINGS HANS. MENNINGARSJÓÐUR ÍSLANDSBANKA AUGLÝSIR TIL UMSÓKNAR STYRKI TIL UNGRA HLJÓÐFÆRALEIKARA OG SÖNGVARA Styrkir fyrir efnilegt tónlistarfólk F í t o n F I 0 0 7 8 1 9 HÚSFYLLIR var á vel heppnaðri aðventuhátíð sem haldin var í Húsavíkurkirkju um síðustu helgi. Kirkju- bekkir voru þéttsetnir auk þess sem um 80 söngmenn sungu með kórum sínum. Kórarnir sem um ræðir eru Kirkjukór Húsavíkurkirkju og Karlakórinn Hreimur. Kórarnir sungu fyrst hvor um sig og síðan samein- uðust þeir í söngnum við góðar undirtektir kirkju- gesta. Um söngstjórn sáu þau Robert Faulkner, stjórnandi Hreims, og Judit Györgysem, sem stjórnar kirkjukórnum. Judit söng einnig einsöng með kór- unum sem og þeir Baldur Baldvinsson, Sigurður Þór- arinsson og Ásgeir Böðvarsson. Undirleikarar kór- anna voru þau Juliet Faulkner og Aladár Racz, þá léku þeir Guðni Bragason og Steingrímur Hall- grímsson á trompet í nokkrum lögum. Sigurbjörn Einarsson biskup flutti kirkjugestum hugvekju og aðventuhátíðinni lauk samkvæmt venju með því að allir viðstaddir sungu saman Heims um ból. Morgunblaðið/Hafþór Kirkjukór Húsavíkurkirkju og Karlakórinn Hreimur sungu saman í Húsavíkurkirkju á aðventuhátíð. Húsfyllir á aðventuhátíð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.