Morgunblaðið - 14.12.2003, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 14.12.2003, Blaðsíða 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2003 51 Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta. Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, ÁSGERÐUR RUNÓLFSDÓTTIR, Furugerði 9, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 16. desember kl. 15.00. Guðfinna Olbrys, Anthony Olbrys, Erik Georg Olbrys, Mitchell Davíð Olbrys, Clare Olbrys, Jennifer Ása Olbrys, Kim Sólveig Olbrys. Okkar kæra, STEINUNN HELGADÓTTIR frá Skutulsey, Efstalandi 4, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 7. desember, verður jarðsungin frá Háteigskirkju þriðjudaginn 16. desember kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Systkini hinnar látnu, Tómas Rögnvaldsson og fjölskylda. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON, Hlégerði 16, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 9. desember. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju þriðju- daginn 16. desember kl. 13.30. Ingibjörg Steingrímsdóttir, Gréta Björgvinsdóttir, Bjarni Jónsson, Guðmundur Jón Björgvinsson, Baldvin Björgvinsson, Rakel Tanja, Róbert Bjarni, Davíð Rúnar, Íris Andrea, Aníta Lena, Dagur Freyr og Tumi. Elskuleg systir okkar, mágkona, frænka og vinkona, ANNA SIGURBJÖRG HAFSTEINSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Dúfnahólum 4, Reykjavík, sem andaðist þriðjudaginn 2. desember, verð- ur jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 15. desember kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Landspítalann háskólasjúkrahús. Margrét Hafsteinsdóttir, Erla Hafsteinsdóttir, Stefán Hafsteinsson og aðrir aðstandendur. Systir okkar, mágkona og frænka, ÞORBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR, Seljahlíð, áður Freyjugötu 1, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 16. desember kl. 13.30. Magnús S. Magnússon, Kristín Þ. Gunnsteinsdóttir, Ársæll Magnússon, Guðrún Óskarsdóttir, Ingveldur H. Húbertsdóttir og frændfólk. mikil því þú varst virk í ýmsu fé- lagsstarfi svo sem Slysavarnafélag- inu og nú seinni ár varstu virkur þátttakandi í félagstarfi Blindra- félagsins og Bergmáli. Það var hefð að við færum saman í bíltúra um jólin til að skoða jóla- skreytingarnar á höfuðborgar- svæðinu. Þá var Hafnarfjarðar- rúnturinn á sumrin ómissandi fyrir þig enda var þá farið á æskuslóðir þínar sem þú unnir svo mjög. Þær voru ófáar sögurnar um æsku þína í hrauninu í Hafnarfirði, sem þú sagðir okkur í þessum ferðum. Ferðin okkar mömmu með þér upp í Borgarnes 25. okt. sl. á eftir að vera mér lengi minnisstæð því þú varst svo hress og kát í henni. Mjög gaman var að sitja með þér og ræða landsins gagn og nauð- synjar því þú varst vel að þér í flestum málum og fylgdist vel með því sem var að gerast og það var sjaldan komið að tómum kofunum hjá þér enda hafðir þú ákveðnar skoðanir og varst ófeimin við að láta þær í ljós. Þótt þú hafir verið orðin þetta fullorðin kom andlát þitt okkur á óvart því heilsuhraust hefur þú allt- af verið. Það er svo erfitt að átta sig á því að þú ert ekki hér lengur með okkur, tilbúin með kaffið á könnunni þegar við komum upp til þín, mömmu og pabba í smáspjall. Hvíl í friði. Valgerður Birna Lýðsdóttir. Día var mín gamla og góða frænka og er margs að minnast þegar hugurinn reikar um farinn veg. Bernskuminningarnar streyma fram og er mér þá efst í huga sameiginlegt jólahald þeirra systra, móður minnar Ásdísar og Díu á heimili hennar og Óskars á Njálsgötunni. En þar áttum við fjölskyldurnar margar gleðiríkar stundir saman. Día var aðeins 58 ára að aldri þegar Óskar féll frá en þau Óskar eignuðust tvö mannvænleg börn, þau Guðbjörgu og Kristján Vídalín, sem bæði eru á lífi. Día og Óskar byggðu sér hús í Safamýrinni nokkrum árum áður en Óskar lést. Þetta var fjölskylduhús því Guð- björg dóttir þeirra og maður henn- ar Lýður Björnsson sagnfræðingur byggðu þar líka. Þar bjó hún í 36 ár og leið vel. Díu frænku minni verður ekki lýst með fáum orðum en ung var hún að árum er hún varð fyrir þeirri sorg að missa föður sinn í sjóinn. Stóð þá Guðbjörg móðir hennar ein uppi með fimm börn, sem sum voru komin nokkuð á legg. Þetta voru erfiðir tímar, kreppa og atvinnuleysi og bjuggu þau við þröngan kost eins og flestir á þeim árum. Kreppuárin voru hörð fyrir ein- stæða alþýðukonu í þá daga, því var lífið oft harðneskjulegt og óblítt. Día og þau systkinin öll fóru snemma að vinna við að draga björg í bú og komst Día sterk í gegnum þessi ár. Þetta var mikill og harður skóli en að sama skapi þroskavænlegur. Það var svo margt sem prýddi hana Díu fræknu mína. Eitt af því var glaðværð og hæfileikinn til að slá á léttari strengi tilverunnar. Hafði hún glöggt auga fyrir hinu broslega og skemmtilega í lífinu og gerði sér far um að njóta líðandi stundar. Söngelsk var hún og hafði mikið yndi af tónlist. Hún sagði vel og skemmtilega frá og var alveg stálminnug, einkum á gömlu tím- ana, og sagði hún mér oft sögur af sjálfri mér þegar ég var barn. Við Día áttum það sameiginlegt að hafa áhuga á draumum og var hún afar draumspök kona. Greind var hún og fróð þó ekki hafi hún átt völ á langri skólagöngu. Hin seinni ár fór sjón hennar ört hnignandi og varð hún að lokum blind. Gekk hún þá í Blindrafélagið og sótti þar reglulega félagsstarf sem og hjá líknarfélaginu Berg- máli. Þar eignaðist hún tryggan og góðan vinahóp sem hún mat mikils. Varð það henni mikil hvatning og hjálp við að takast á við lífið á nýj- um og breyttum forsendum. Það tókst henni vel þó mikið hafi tekið á andlegt og líkamlegt þrek hennar. Elsku Día frænka, nú er komið að leiðarlokum að sinni. Þú gróð- ursettir svo mörg frækorn gleði, vináttu og frændsemi á lífsleiðinni sem halda áfram að lifa í ættingjum og vinum bæði í tímanlegum og andlegum skilningi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Blessuð sé minning þín. Elínborg Lárusdóttir. Við þessa frétt að þú sért dáin er ekki annað hægt að segja en að ég hafi lamast í smástund. Aldrei bjóst ég við að þessi veikindi þín myndu hafa þessar afleiðingar. Þegar mér var sagt að þú hefðir dáið að morgni 29. nóvember sl. hrönnuðust upp minningarnar. Strætóferðirnar niður í bæ, sögurn- ar sem þú sagðir mér í þeim ferð- um, flestar ef ekki allar búnar til á staðnum. Þó þú værir 68 árum eldri en ég náðum við ótrúlega vel saman. Það að þú hefur fylgst svona vel með öllu sem var að gerast í heiminum og minn áhugi á sögu hafa haft mikið að segja þar. Sama hvað um- ræðuefnið var þá hafðir þú skoðun á því hvort sem rætt var um pólitík eða rokktónlist. Oft held ég reynd- ar að þú hafir tekið þér öndverða skoðun við mína bara til að vera ósammála, þar sem rökræður voru í miklu uppáhaldi hjá þér. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, – hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við Guð um þúsund ár. Hvað jafnast á við andardráttinn þinn? Hve öll sú gleði’ er fyrr naut hugur minn er orðin hljómlaus utangátta’ og tóm hjá undrinu að heyra þennan róm. (Halldór Kiljan Laxness.) Þakka þér fyrir öll þessi ár sem við áttum saman. Elsku langamma, nú hefur þú fengið hvíldina miklu. Minning þín lifir að eilífu. Lýður Óskar Haraldsson Þegar við erum ung er eins og allt sé eilíft. Minningarnar úr æsku gerðust þannig á björtum sumardög- um og fólkið sem er hluti af þess- um minningum er brosandi og kátt. Þannig eru líka mínar fyrstu minn- ÞORLÁKUR RUNÓLFSSON ✝ Þorlákur Run-ólfsson fæddist á Vesturgötu 44 í Reykjavík 2. mars 1929. Hann lést í Landspítalanum, Fossvogi, 29. nóvem- ber síðastliðinn og var útför hans gerð frá Bústaðakirkju 8. desember. ingar um Þorlák Run- ólfsson og þannig mun ég minnast hans. Þetta mikla gæðablóð var giftur föðursystur minni, Magneu, og hittust fjölskyldurnar því oft við hátíðleg tækifæri. Þar var Láki einn af föstu punktunum, hann og Magga með krakkana sína fjóra, og oft var þá líf í tuskunum. Hann taldi það þó aldrei eftir sér að gefa sér tíma til þess að tala við okkur krakkana, sem öll litu á hann, lögreglumanninn, með mikilli lotningu. Og eftir því sem við urðum eldri þá breyttust kannski umræðuefnin, en alltaf gaf hann sér tíma til að ræða málin. En Láki var svo miklu meira en það. Hann var ótrúlega mikið ljúf- menni, meira en flestir aðrir sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Hann gat verið góðlátlega stríðinn en aldrei sá ég hann skipta skapi. Láki og Magga bjuggu sér fallegt heimili í Langagerðinu, þar sem þau bjuggu í tæp 50 ár, og þar var alltaf gott að koma. Ekki síst var vinátta þeirra hjóna við móður mína, eftir að faðir minn lést, ómetanleg. Í huga mínum var sam- band þeirra hjóna einstakt og það var aðdáunarvert að sjá hversu Magga lagði mikið á sig til þess að gera honum lífið bærilegra eftir að heilsu hans fór að hraka. Nú er komið að leiðarlokum, ég vill þakka fyrir góðar minningar sem ég á um ljúfan dreng. Blessuð sé minning hans. Anna Kristinsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.