Morgunblaðið - 14.12.2003, Page 58
58 SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Lukku Láki
Bubbi og Billi
framhald ...
EN HVAR Í
ÓSKÖPUNUM
ERU FÖTIN
MÍN?
HVAÐ ER AÐ
SJÁ YKKUR!!
© DARGAUD
© DARGAUD
HVA? ÞAU ERU ÚTI
Á GÖTU ... EN ÁN
MÍN ...!
EFTIR RÖDDINNI AÐ
DÆMA ERTU TAUGA-
ÓSTYRKUR KÚREKI
ÉG VONA AÐ ÉG NÁI!
EKKI SEGJA MÉR AÐ ÞIÐ ÆTLIÐ
AÐ SITJA HÉRNA OG HORFA Á
SJÓNVARPIÐ MEÐAN SÓLIN
SKÍN ÚTI
ÚT MEÐ YKKUR! UNGT
OG HRAUST FÓLK Á AÐ
VERA ÚTI AÐ LEIKA SÉR Í
SVONA VEÐRI!!
JÁ,JÁ ÉG
FER EINS
HRATT OG ÉG
GET!
STUNA
STUNA
STUNA
HEYRÐU! ...
BSSSSSS .....
JÁ ALLT Í LAGI
... BSSSS ...
STUNA
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÞAÐ GERIR mig reiðan, já ofsa-
lega reiðan að sjá ráðamenn lands-
ins og stjórnendur fyrirtækja hvað
eftir annað hunsa og traðka á vilja
þjóðarinnar með heimskulegum eig-
ingjörnum geðþóttaákvörðunum,
sem gefur örfáum milljónir og millj-
arða til að leika sér með, þeir eru
teknir af sameiginlegum auðlindum
þjóðarinnar, þeir eru fengnir með
samráðum fyrirtækja, sem hafa
bundist böndum í því að arðræna
lýðinn, þeir eru fengnir með fjöl-
skyldu-, vina-, hagsmuna-, flokks-
og klíkutengslum, af mönnum sem
telja sig eiga skilið allt það besta í
lífinu vegna þess að þeir eru betri
en annað fólk; það telur sig eiga að
ákveða laun sín sjálft, því það telur
engan annan geta metið það, hættan
á því að vera ekki metinn af verð-
leikum er mikil þegar aðrir misvitrir
menn fá slíka ábyrgð. Blindaðir af of
mikilli umgengni við milljarðamær-
inga erlendis og lúxushótelherbergi
og dýrindis máltíðir skammta þeir
sér lúxuslaun og eftirlaun svo þeir
geti haldið standardinum um aldur
og ævi og þurfi ekki að lifa eins og
almúginn. Þeir gefa skít í þig enda
ert þú bara leiguþý og værir ekkert
ef þeirra nyti ekki við. Þeir töldu sig
óhulta enda búnir að borga vernd-
artolla til sinna manna, hafa gefið
þeim auðlindinna okkar og bundist
vina- og fjölskylduböndum sem
vernda þá, en margur verður af aur-
um api eins og þar segir. Hvað eftir
annað hafa þeir farið á móti vilja
fólksins, við vildum ekki Írakstríðið,
við vildum ekki traðka á öryrkjum,
við vildum ekki hærri skatta, við
viljum ekki lægri atvinnuleysisbæt-
ur, við viljum ekki að þeir hækki
laun sín, við vildum ekki kvótakerf-
ið, við vildum ekki útlenskt þræla-
fyrirtæki, við viljum ekki skrifa upp
á tuttugu milljarða króna banka-
ábyrgð, við vildum ekki fátækt á Ís-
landi, við viljum ekki að helmingur
Íslendinga lifi á geðlyfum til að tóra
í gegnum lífið, við viljum ekki aukn-
ingu á hörðum glæpum og fíkniefn-
um vegna þess að sumir hafa allt og
aðrir ekkert, við viljum ekki svikin
kosningaloforð, við viljum ekki að
gamla fólkið okkar lifi í fátækt og
einangrað bíðandi á biðlista til að fá
bót meina sinna og að lokum viljum
við ekki að stjórnendur og ráða-
menn Íslands lifi í fílabeinsturni,
allavega ekki án símasambands við
fólkið í landinu.
Virðingarfyllst,
KONRÁÐ RAGNARSSON,
Leirubakka 24,
109 Reykjavík.
Heimskir hvítir
(íslenskir) stjórn-
endur og ráðamenn!
Frá Konráð Ragnarssyni
GILDI íþrótta er óþarfi að ræða.
Eða hvað? Eru fremstu íþróttamenn
þjóðarinnar góð fyrirmynd? Flestir
eru það að mínu mati. En hvernig
starfa stjórnir stærsta sérsam-
bandsins innan ÍSÍ, þ.e. KSÍ?
Árangur knattspyrnulandsliðsins
hefur verið frábær eftir að Ásgeir og
Logi tóku við og tel ég ráðningu
þeirra hafa verið mikið gæfuspor
fyrir íslenska landsliðið. Þess vegna
þótti mér afar sárt að sjá heimild-
armynd um ferð landsliðsins til
Bandaríkjanna nú nýverið.
Efni skrifa minna tengist síauk-
inni og viðurkenndri, já ég segi við-
urkenndri munntóbaksnotkun liðs-
manna íslenska landsliðsins í
knattspyrnu. ,,Hvernig geturðu sagt
þetta?“
Eftir frækilegt jafntefli gegn
Mexíkó voru nýliðar í landsliðinu
heiðraðir sem venja er. Mér brá því í
brún að sjá á Sýn síðastliðið laug-
ardagskvöld að forsvarsmaður KSÍ
heiðraði einn þeirra fyrir framan
sjónvarpsmyndavélarnar með út-
troðna vör.
Í gegnum tíðina hafa komið upp
ýmis agavandamál sem KSÍ hefur
reynt að leysa úr til að ímynd liðsins
biði ekki hnekki. Nú er mér nóg boð-
ið og vil fá svör.
Er það leyfilegt að leikmenn ís-
lenska landsliðsins noti tóbak inni í
búningsklefum, og þá kannski fyrir
leiki líka?
Er KSÍ og þjálfurum liðsins ekki
annt um ímynd knattspyrnunnar og
ímynd íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu?
Hvaða áhrif hefur það á áhorfend-
ur að sjá landsliðsmenn með út-
troðna vör í beinum tengslum við
keppni?
Er búið að skipta út nammipoka
Gauja fyrir „eina sprautu“ þegar
skorað er og eru leikmenn verðlaun-
aðir með munntóbaki þegar þeim er
skipt út af?
Lítið vandamál en geigvænleg
áhrif. Forvarnarfulltrúar geta hætt
sinni baráttu ef þetta á að líðast því
það eru alltaf fyrirmyndirnar sem
ungviðið tekur mest eftir.
Ég er stoltur af íslenska landslið-
inu og árangri þess og vona að leik-
menn muni í framtíðinni sjá sóma
sinn í því nota ekki tóbak í tengslum
við æfingar og keppni. Þið eruð að
keppa fyrir hönd íslensku þjóðarinn-
ar. Sýnið sjálfir ábyrgð ef KSÍ eða
þjálfarar treysta sér ekki að setja
reglur. Er til of mikil mælst?
Ég óska KSÍ og leikmönnum góðs
gengis í baráttunni við tóbakið.
ELMAR SINDRI EIRÍKSSON,
Sunnubraut 10,
Dalvík.
Opið bréf til KSÍ
Frá Elmari Sindra Eiríkssyni,
áhugamanni um góða ímynd ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu
email: elmare@simnet.is