Morgunblaðið - 08.01.2004, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004 9
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Ú t sa la
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00,
laugardaga frá kl. 10.00–16.00.
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Stórútsalan
í fullum gangi
40-70% afsláttur
Nýtt kortatímabil
Útsala
útsala
Seltjarnarnesi, sími 561 1680
Kringlunni, sími 588 1680.
iðunn
tískuverslun
Tilboð
Náttföt - peysur - úlpur - skyrtur
Laugavegi 34, sími 551 4301.
Opnum
kl. 9.00
virka daga
Mikið úrval - gott verð
Hallveigarstíg 1
s. 588-4848
Allar vörur á útsölu
Útsala
Útsala
hefst í dag
kl. 10.
Laugavegi 51,
s. 552-2201
Laugavegi 63
(Vitastígsmegin)
sími 551 2040
Útsala
50% afsláttur
af jólavöru
og afskornum
blómum
Mjög góð vetrarútsala
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Á ÞRETTÁNDANUM var vígð ný
heilsugæslustöð að Búðareyri 8 á
Reyðarfirði. Húsið er 208 fermetr-
ar, teiknað af Birni Kristleifssyni,
arkitekt á Egilsstöðum, og byggt
af byggingarfyrirtækinu Byggðar-
holti ehf. á Eskifirði.
Við afhendingu hússins blessaði
séra Davíð Baldursson prófastur
húsið og Jón Kristjánsson rakti að-
draganda byggingar þess. Í ávarpi
hans kom m.a. fram að sú óánægja
sem upp hafi komið meðal Reyð-
firðinga um heilsugæslumál á
staðnum og stærð hússins væri á
misskilningi byggð og höggva hefði
þurft á þann hnút. Auðvelt væri að
stækka húsið ef þörf yrði á.
Afhenti hann síðan Hannesi Sig-
marssyni heilsugæslulækni lykla-
völd að húsinu.
Vantar bæði lækni
og hjúkrunarfræðing
Í máli Hannesar kom fram að
frá því hann tók til starfa í lækn-
ishéraðinu árið 1998 væri þetta í
þriðja skipti sem starfsemin flytti
milli húsa. Mikið álag er á starfs-
fólki heilsugæslustöðvarinnar og
vantar bæði lækni og hjúkrunar-
fræðing til starfa nú þegar. Sagði
hann að fram færi mikil teymi-
vinna meðal starfsfólks og afköst
væru mikil miðað við starfsað-
stöðu. Þá sagði hann að gott sam-
starf væri við félagsmálasvið
Fjarðabyggðar.
Bindur Hannes miklar vonir við
góða aðstöðu og tækjabúnað í hús-
inu.
Fjóla Jónsdóttir, formaður
Kvenfélags Reyðarfjarðar, afhenti
heilsugæslulækninum rúmar 200
þúsund krónur til tækjakaupa á
nýju stöðina.
Rúmlega eitt hundrað manns
komu til að skoða nýju heilsu-
gæsluaðstöðuna, en starfsemi
hennar hefst eftir miðjan janúar.
Mun þá Heilbrigðisstofnun Aust-
urlands flytja aðsetur sitt aftur að
Austurvegi 20 á Reyðarfirði.
Helstu framkvæmdir á vegum
Heilbrigðisstofnunar Austurlands
árið 2004 verða endurbætur á
gamla hluta Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Norðfirði. Í þessum hluta
hússins er sjúkraþjálfun og end-
urhæfing, öldrunardeild fyrir 12
manns, eldhús og skrifstofur.
Reiknað er með að endurbæturnar
verði boðnar út með vorinu og
áætlað er að þær taki um tvö ár og
kosti rúmlega 100 milljónir króna.
Ný heilsugæslustöð á Reyðarfirði
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
Ný heilsugæslustöð: Reyðfirðingar ánægðir en þykir húsið furðanlega lítið af nýbyggingu að vera.
Reyðarfjörður. Morgunblaðið.
DILBERT
mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111