Morgunblaðið - 08.01.2004, Side 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HEGÐUN einstaklinga er full af
endurteknum og reglulegum
munstrum. „Það sem ég geri er að
reyna að finna þessi endurteknu
huldu munstur í okkar atferli. Þetta
eru mynstur í tíma; endurtekin tíma-
munstur,“ segir Magnús S. Magn-
ússon, vísindamaður og for-
stöðumaður Rannsóknarstofu um
mannlegt atferli við Háskóla Ís-
lands. Nýverið seldi hann hugbúnað
til bandarísku leyniþjónustunnar,
CIA, sem notaður er til að finna
þessi huldu munstur í atferli manna.
„Ég hef þróað líkan um hvernig
atferli og þá sérstaklega sam-
skiptaatferli er skipulagt í tíma sem
endurtekin munstur. Það er m.a.
einkennandi fyrir þessi munstur að
við erum gjarnan blind á þau og
sjáum þau ekki,“ segir Magnús þeg-
ar hann er beðinn að lýsa hugbún-
aðinum. Til að einfalda málið og út-
skýra rannsóknir sínar betur tekur
hann sem dæmi að mannkynið hafi
talað í tugþúsundir ára. Hins vegar
sé tiltölulega stutt síðan einhverjum
datt í hug að það væri til eitthvað
sem heitir málfræði og það væri
regla í þessu öllu saman. „Fólk bara
talaði eins og við göngum um í dag.
Svo kemur í ljós að hegðun okkar er
full af endurteknum og reglulegum
munstrum,“ segir Magnús.
Fylgst með fólki
Aðspurður hvernig þessi munstur
finnist segir hann að rannsakandinn
fylgist með viðfangsefninu og skrái
tilteknar einingar eða hegðun niður.
Það væri t.d. hægt að skrá niður
hvenær tiltekinn bókstafur kemur
fyrir í talmáli eða hvenær einhver
sest niður, brosir, bendir eða spyr
spurningar. „Síðan eru þessar upp-
lýsingar allar skráðar inn í hugbún-
aðinn, sem byggist á líkaninu, og
leitar hann að huldum munstrum af
þessu ákveðna tagi í atferlinu. Það
er dæmigert að mikið er af mjög
reglulegum og endurteknum tíma-
munstrum, sem fara algjörlega
framhjá fólki. Hefðbundnar töl-
fræðiaðferðir eru ekki heldur gerð-
ar til að finna svona munstur enda
forsendan fyrir því að þau hafi áður
verið skilgreind. Það hefur verið
mitt ævistarf, enda verið í þessu í
meira en 30 ár,“ segir Magnús.
Eftir að hafa skilgreint þessa
munsturgerð, sem hann kallar t-
munstur, hefur hann búið til aðferð-
ir til að finna þau og hugbúnað til að
framkvæma sjálfa leitina. Hefur
hugbúnaðurinn fengið nafnið
Theme. Fyrsta útgáfan af þessum
hugbúnaði var keyrð árið 1981 þeg-
ar Magnús var í doktorsnámi. Form-
lega er hann menntaður sálfræð-
ingur en hefur einnig starfað lengi
við rannsóknir á skyldum sviðum og
birt greinar í sálarfræði, atferl-
islíffræði, tölfræði og mannfræði.
Þar að auki hefur hann þróað og
skrifað allan hugbúnaðinn sjálfur og
var sú vinna metin fyrir nokkrum
árum til 50 mannára vinnu þó sjálfur
sé Magnús 54 ára gamall. „Ég hef
setið vel við,“ segir hann aðspurður
um afköstin á lífsleiðinni.
Samstarf við erlenda háskóla
Nýlega var endurnýjaður samn-
ingur milli H.Í. og sex annarra há-
skóla í Evrópu um rannsóknir sem
byggjast á líkani og aðferðum Magn-
úsar. Sýnir það að áratuga löng þró-
unarvinna er að bera árangur. Fyr-
irtækið Atferlisgreining ehf hefur
nú verið stofnað til að halda utan um
áframhaldandi þróun sjálfs hugbún-
aðarins í samstarfi við Magnús, en
hollenskt fyrirtæki sér um sölu hug-
búnaðarins og þangað leitaði leyni-
þjónusta Bandaríkjanna í sínum við-
skiptum. Magnús segir að það hafi
tekið nokkurn tíma að þjálfa starfs-
fólk umboðssalans til að kynna hug-
búnaðinn. Og það eru fleiri verkefni
í gangi.
„Við erum núna t.d. að vinna með
bandarísku flugumferðarþjónust-
unni í sambandi við rannsóknir á
flugumferðarstjórn. Einnig erum
við í samvinnu við aðila í Cambridge
sem nota hugbúnaðinn til að finna
munstur í tauganetum; það er í sam-
skiptum taugafrumna,“ nefnir hann
sem dæmi.
Í fyrri rannsókninni er gögnum
um hvað flugumferðarstjórarnir
gera safnað saman, hvaða upplýs-
ingar þeir fá og viðbrögð þeirra við
þeim. „Þeir eru að reyna að bæta
tölvukerfi sín til að þjónusta flug-
umferðarstjórana og til þess þurfa
þeir að átta sig á því hvað sé yfirleitt
að gerast. Í þessu eins og mörgu
öðru eru allar líkur á að mikið sé af
endurteknum munstrum sem fólk
gerir sér enga grein fyrir og enginn
hefur tekið eftir,“ útskýrir Magnús.
Þá er nákvæmlega skrifað niður
hvenær tiltekinn atburður gerist og
það sett inn í forritið til úrvinnslu.
Þá kemur í ljós hvort munstur finnst
sem búið er að skilgreina og Magnús
segir mjög algengt í öllu atferli
manna og dýra.
Í þýskum fjölmiðlum var líka ný-
lega sagt frá rannsóknum á hegðun
fólks þegar það horfir á sjónvarp og
á flugvöllum, þar sem notast er við
atferlishugbúnað Magnúsar. Einnig
segir hann Theme hafa verið notað
lengi við rannsóknir á einhverfum
börnum og samskiptum þeirra.
Eykur skilning okkar
Aðspurður hvort tiltekin munstur
í hegðun fólks séu ekki óteljandi og
ómögulegt að skilgreina þau segir
Magnús mannfólkið ekki komast
yfir nema viss verkefni á hverjum
degi. Ekki er heldur um að ræða að
finna öll mynstur heldur einungis
þau sem mynduð eru og endurtekin
innan þess tímabils sem skoðað er.
Mynstrin sjálf eru ekki skilgreind
fyrirfram heldur formgerð þeirra.
Aftur tekur hann tungumálið sem
dæmi til útskýringar. Þó fólk noti
mismunandi orð við að tjá sig geti
það notað sömu málfræðina. Sam-
kvæmt aðferðum Magnúsar þarf
rannsakandinn þó ekki að skilja
tungumálið til að finna þessi munst-
ur né greina orð. Að finna mynstrin
sé samt afgerandi skref í átt að
skilningi á merkingu eða virkni
þeirra rétt eins og við greiningu á
mynstrum í erfðaefni en tilraunir til
notkunar Theme á því sviði eru
einnig í gangi.
Bandaríska leyniþjónustan notar íslenskan hugbúnað til að skrá atferli manna
Hegðun fólks er full af
reglulegum munstrum
Getur verið að við
hreyfum okkur og
framkvæmum hluti
eftir ákveðnu ferli aft-
ur og aftur? Magnús
S. Magnússon hefur í
yfir 20 ár unnið við að
skilgreina hulin
munstur sem hann
segir felast í atferli
fólks en enginn sjái.
Morgunblaðið/Golli
„Það er m.a. einkennandi fyrir þessi munstur er að við erum gjarnan blind
á þau og sjáum þau ekki," ,“ segir Magnús S. Magnússon. Hann hefur hann-
að hugbúnað til að finna þessi munstur sem er notaður víða um heim.
ánægjulegt að lesa frá-
sögn í Morgunblaðinu á
þriðjudag um lotukerf-
ið í skólanum, sem er
fyrsti hefðbundni fram-
haldsskólinn til að taka
þessa námsskipan upp.
Tilraunin sé til marks
um framsýni stjórn-
enda framhaldsskól-
anna og að mikil gerjun
sé í þeirra forystusveit.
„Það er mjög já-
kvætt þegar forstöðu-
menn framhaldsskóla
taka upp hjá sjálfum
sér, innan þeirra
ramma sem þeir hafa,
nýbreytni í skólastarfi.
Mér finnst þetta bera vott um mikla
framsækni,“ segir Þorgerður.
Menntamálaráðherra telur mjög
líklegt að auk ráðuneytisins muni
ÉG tel að það sem verið
er að gera á Norður-
landi vestra sé afar at-
hyglisvert og ég vona
að þessu verði fylgt eft-
ir. Nýbreytni í skóla-
starfi getur haft já-
kvæðar afleiðingar
fyrir alla aðra. Sem
betur fer erum við ekki
að festa alla skóla í
sama farinu,“ segir
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra, sem
fagnar nýrri námsskip-
an Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á
Sauðárkróki (FNV) um
að hafa fjórar lotur í skólaárinu, tvær
nú á vorönn og tvær næsta haust, og
hafa próf eftir hverja kennslulotu.
Þorgerður segir það hafa verið
þeir starfshópar sem eru að skoða
styttingu náms til stúdentsprófs
fylgjast náið með því hvernig til tak-
ist hjá FNV með lotukerfið. Það geti
haft einhver áhrif á niðurstöðu í því
viðamikla verkefni. Ef reynslan af
kerfinu verði til þess að auðvelda það
verkefni að stytta námstíma til stúd-
entsprófs þá sé það af hinu góða.
Eins og fram kom í blaðinu á
þriðjudag er markmiðið með lotu-
kerfinu m.a. það að bæta námsár-
angur nemenda, auka vinnuaga
þeirra og ástundun, örva sjálfsaga og
minnka brottfall úr skólanum. FNV
tekur mið af reynslu Finna, en þeir
hafa sex lotur í sínu skólaári.
Þorgerður segir markmiðin
greinilega vera skýr hjá skólanum og
þó að ekki sé verið að finna upp hjólið
sé gott að líta til reynslu annarra
landa. Finnar hafi náð gríðarmiklum
árangri í alþjóðlegum rannsóknum.
Nýr menntamálaráðherra fagnar lotukerfinu hjá FNV
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Jákvætt og ber vott
um mikla framsækni
FRÁ því í júní 2003 hefur stuðningur
við ríkisstjórnina minnkað um 9% og
nýtur hún nú stuðnings 53% lands-
manna samkvæmt þjóðarpúlsi Gall-
up. Er það svipað hlutfall og fyrir
síðustu Alþingiskosningarnar í maí.
Í sömu könnun kemur fram að
fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar
um fjögur prósent frá því í nóvember
2003. Nýtur flokkurinn stuðnings
35% landsmanna, en fylgið fór hæst í
39% í október á síðasta ári.
Samfylkingin stendur í stað og
nýtur stuðnings 28% landsmanna.
Fylgi Framsóknarflokksins hefur
verið nokkuð stöðugt frá kosningum
og er 16%. Vinstri-grænir nutu
lengst af eftir kosningar í fyrra
stuðnings 10% landsmanna en fylgið
jókst í 14% í nóvember og heldur
flokkurinn því núna. Frjálslyndi
flokkurinn bætir við sig fylgi og fer
úr 5% og í 7% á milli kannana.
Stuðningur
við ríkis-
stjórnina
minnkar
ÞÓTT snjórinn sé að láta undan
er enn hægt að klifra upp á
klakahröngl og reyna að haldast
þar uppi eins og þessi drengir
gerðu við Langholtsskóla þótt
menn séu kannski ekki beint fót-
vissir. Þessi möguleiki er líka á
undanhaldi með hláku og rign-
ingu, að minnsta kosti sunnan
lands.
Morgunblaðið/Ásdís
Klifrað á klakanum
♦♦♦
FÍA andvígt
vopnuðum
vörðum í
flugvélum
STJÓRN Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna hefur sent frá sér yf-
irlýsingu þar sem lýst er yfir and-
stöðu við að settir verði vopnaðir
verðir um borð í flugvélar eins og
bandarísk stjórnvöld hafa lýst yfir
að gerð verði krafa um ef vísbend-
ingar hefðu borist um að hryðju-
verkamenn gætu verið í umræddri
vél.
Það sé skoðun FÍA, að ef hryðju-
verkaógn sé talin steðja að ákveð-
inni flugferð, sé nærtækara að fella
ferðina niður en að setja vopnaða
verði til höfuðs meintum hryðju-
verkamönnum.
Ekki neyddir til að
fljúga með vopnaða verði
Fram kemur að það er mat
stjórnar FÍA, að flugmenn verði
ekki neyddir til að fljúga með
vopnaða verði. Til standi að halda
fund um málið í Alþjóðasamtökum
flugmannafélaga sem FÍA er aðili
að, og munu fulltrúar FÍA sækja
fundinn.