Morgunblaðið - 08.01.2004, Side 68

Morgunblaðið - 08.01.2004, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Sími 588 1200 Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga SALA á léttvínum og bjór jókst í fyrra borið saman við árið á undan og sala á brenndum drykkjum dróst saman skv. tölum ÁTVR yfir áfengissölu árið 2003. Áfengissala nam 11,6 milljörðum króna með virðis- aukaskatti borið sam- an við 11,3 milljarða árið 2002. Í lítrum tal- ið jókst sala á áfengi um 4,08%, fór úr 14.190.891 lítra árið 2002 í 14.769.626 lítra í fyrra. Breytingin nemur 1,17 prósent- um í alkóhóllítrum. Samkvæmt tölum fyrir desember síðast- liðinn jókst áfengissala um 6,4% í lítrum tal- ið borið saman við desember 2002 og var 1.679.421 lítri. Í alkóhóllítrum nam aukn- ingin 4,56%. Meiri aukning í hvítvínsdrykkju Sala á rauðvíni jókst um tæp 11% á síð- asta ári en af því voru alls seldir 1.468.450 lítrar. Sala á hvítvíni jókst eilítið meir, um 12,6%, en af því voru seldir 511.454 lítrar. Sala á lagerbjór jókst um 3,68% í lítrum tal- ið á síðasta ári en alls innbyrtu landsmenn 11.294.418 lítra af miði og auk rúmlega 100 þúsund lítra af öli og öðrum bjórtegundum. Sala á brenndum drykkjum dróst saman í öllum tegundum. Sala á viskíi dróst saman í lítrum talið um 9,21%, gini og sénever um 9,88% og ókrydduðu brennivíni og vodka um 11,85% og rommi um 12,07%. Að sögn Ágústar Hafberg, framkvæmda- stjóra ÁTVR, kemur aukin sala á léttum vínum á kostnað brenndra vína forsvars- mönnum fyrirtækisins ekki á óvart. 4% neyslu- aukning milli ára Sala á áfengi nam 11,6 milljörðum króna =&! #> "  ? , .6. "   - 8"!#> "  ? 8" 8"!#> "  ? ;&!!#8"!#> ? ;*.##% #> ? $    ( =&! #> "  ? , .6. "   FGH F FH @ F HI@ JH @ FKHL@ FIHG@ FGHI@  $ "  K /    KENNSLA hófst í Náttúrufræða- húsi Háskóla Íslands í gær en hús- ið verður formlega opnað í lok febrúar. Rými er fyrir um 500 nemendur í kennslu samtímis í húsinu auk þess sem um 200 starfsmenn og framhaldsnemar stunda þar vinnu. Bygging Náttúrufræðahússins hófst í ársbyrjun 1996 eða fyrir um átta árum. Páll Skúlason, rektor HÍ, lagði hornstein að hús- inu 29. nóvember síðastliðinn en það verður formlega vígt 27. febr- úar. Um 1.400 tillögur hafa borist inn á vef HÍ, www.hi.is, í sam- keppni um nafn á húsið, en skila- frestur er til 15. janúar. Húsið er um 8.000 fermetrar og í því verður rými fyrir um 500 nemendur í kennslu samtímis í sjö misstórum kennslustofum og sjö rannsóknarstofum ætluðum til kennslu. Auk þess er skrifstofuað- staða og aðstaða til rannsókna fyrir prófessora og kennara í hús- inu. Í húsinu verður einnig að- staða fyrir nemendur, útibú frá Landsbókasafni – Háskóla- bókasafni og kaffistofa með út- sýni yfir friðlandið og Tjörnina. Í Náttúrufræðahúsinu fá líf- fræðiskor og líffræðistofnun, jarð- og landfræðiskor, jarðvís- indahluti Raunvísindastofnunar og Norræna eldfjallastöðin að- stöðu, en þessi starfsemi hefur farið fram á sjö mismunandi stöð- um á háskólasvæðinu og víðs- vegar um Reykjavík. Morgunblaðið/Ásdís Kennsla hafin í nýju Náttúrufræðahúsi HÍ Ólöglegar fiskveiðar, svokallaðar sjóræningjaveiðar, eru stundaðar á nánast öllum hafsvæðum þar sem viðhöfð er fiskveiðistjórnun af ein- hverju tagi, og beinast gjarnan að fiskistofnum sem eru fullnýttir eða ofveiddir. Íslendingar hafa þurft að glíma með beinum hætti við sjóræn- ingjaveiðar á Reykjaneshrygg, þar sem talsverður fjöldi skipa stundar karfaveiðar með ólöglegum hætti. Talið er að þessi skip veiði um 30 þúsund tonn af karfa á ári en sumir telja að afli þeirra sé enn meiri eða allt að 50 þúsund tonn. Hafa íslensk stjórnvöld, í samvinnu við Lands- samband íslenskra útvegsmanna, beitt sér fyrir því að lokað verði fyr- ir viðskipti við þessi skip með upp- lýsingagjöf. Þannig hefur Norð- austur-Atlantshafsfiskveiðinefndin, NEAFC, meðal annars samþykkt að þau skip sem veiða karfa á Reykjaneshrygg þurfi að sýna fram á það með beinum hætti að þau hafi heimild til veiðanna til að fá að landa afla sínum í einhverju aðildarríkj- anna. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, segir að það sé eitt brýnasta viðfangsefni Íslend- inga varðandi fiskveiðistjórnun að koma í veg fyrir þessar veiðar, enda hafi þær mikil áhrif á karfastofnana, sem og á markaðina fyrir afurðirn- ar. Sjóræningjar veiða árlega 30 þúsund tonn á Reykjaneshrygg Verðmætið 2 milljarðar  Sjórán/Úr verinu SKIP sem stunda ólöglegar karfaveiðar á Reykjaneshrygg eru tal- in veiða um 30–50 þúsund tonn á ári eða allt að þriðjungi þess afla sem heimilt er að veiða þar árlega. Ætla má að verðmæti 30 þúsund tonna af úthafskarfa upp úr sjó sé hátt í 2 milljarðar króna. Íslensk skip veiddu á síðasta ári rúm 48 þúsund tonn af úthafskarfa. Morgunblaðið/Kristján Jónsson FASTEIGNAMAT hækkaði að meðaltali um 10,7% um áramótin frá árinu áður og gildir matið á árinu 2004. Mat á íbúðarhúsnæði hækkar mun meira en mat á atvinnuhúsnæði eða um 12,5% samanborið við 6,9% hækkun á mati á atvinnuhúsnæði, samkvæmt upplýsingum Fasteigna- mats ríkisins. Við nýja matið hækk- ar verð á fasteignum í landinu um tæpa 200 milljarða króna, úr 1.760 milljörðum króna í fyrra í 1.947 milljarða króna í ár. Hækkun fasteignamatsins nú stafar fyrst og fremst af verðhækk- un á fasteignum á undanförnum mánuðum. Það er nokkuð mismun- andi eftir bæjarfélögum. Þannig hækkar mat íbúðarhúsnæðis mest í Hveragerði, á Egilsstöðum og í Fjarðabyggð eða um 20% og um 15% á Seltjarnarnesi, Reykja- nesbæ, Grindavík, Sandgerði, Vog- um, Akranesi, Stykkishólmi, Ólafs- firði, Dalvík, Akureyri, Fellahreppi, Búðahreppi, Hvolsvelli, Hellu, Eyr- arbakka, Stokkseyri, Selfossi og Þorlákshöfn. Hækkunin í Reykjavík, Kópa- vogi, Hafnarfirði, Ísafirði og Höfn er 10% og sama gildir um sumarhús og sumarhúsalóðir. Hins vegar er minni hækkun eða 5% á sérbýli og sérbýlishúsalóðum í Hafnarfirði og 5% hækkun er einnig á íbúðarhús- næði í Garðinum og í Grundarfirði. 5% lækkun á Siglufirði Í einu byggðarlagi er um að ræða lækkun á fasteignamatinu á milli ára nú. Það er á Siglufirði þar sem fasteignamat lækkar um 5%. Á Seyðisfirði er matið óbreytt milli ára. Bújarðir og íbúðar- og útihús á þeim hækka um 10% ef undan eru skilin Vestfjarðakjálkinn og norð- austurhluti landsins þar sem fast- eignamatið er óbreytt milli ára. Hækkun á atvinnuhúsnæði er mun minni eða 5% á höfuðborgar- svæðinu, en matið er óbreytt utan höfuðborgarsvæðisins. Fasteignamatið er grundvöllur fasteignagjalda. Stærstur hluti fast- eignagjaldanna er fasteignaskattur og nam hann um 9,5 milljörðum kr. á árinu 2002. Verðmæti fasteigna hækk- ar um tæpa 200 milljarða Nýtt fasteignamat hækkaði um nýliðin áramót að meðaltali um 10,7% Morgunblaðið/Kristján ÍTARLEGAR viðræður hafa átt sér stað við tvo aðila um hugsan- lega aðkomu þeirra sem hluthafa að lággjaldaflugfélaginu Iceland Ex- press. „Það hafa nokkrir aðilar sýnt áhuga á að kaupa hlutafé í félaginu og alvarlegar og ítarlegar umræður hafa átt sér stað við tvo aðila. Við erum þó ekkert að flýta okkur og horfum á það sem svo að aukið hlutafé myndi fyrst og fremst nýt- ast til að jafna sveiflur sem óhjá- kvæmilega verða í þessum rekstri,“ segir Ólafur Hauksson, forstöðu- maður almannatengsla Iceland Ex- press. Hann sagði að niðurstaða í málinu gæti legið fyrir á næstu vik- um eða mánuðum. Ólafur segir að rekstrarniður- staða félagsins á fyrsta rekstrar- árinu, sem var í fyrra, hafi verið viðunandi. „Ljóst er að mikil und- irboð Icelandair á samkeppnisleið- unum hafa höggvið skarð í hagnað Iceland Express. Á móti vegur að kostnaður við rekstur fyrirtækisins var lægri en áætlanir gerðu ráð fyr- ir.“ Viðræður um aukið hlutafé  Iceland/Viðskipti GREININGARDEILDIR viðskipta- bankanna þriggja spá að meðaltali 32% aukningu hagnaðar fyrirtækja sem mynda Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands. Alls er fyrirtækjunum fimm- tán spáð tæplega 35 milljarða króna hagnaði á síðasta ári, en hagnaður árs- ins 2002 var rúmir 26 milljarðar króna. Í krónum talið er KB banka spáð mestri hagnaðaraukningu, tæpum 4,6 milljörðum króna, og líka mestum hagnaði, tæpum 7,7 milljörðum króna. Hlutfallslega er mestum bata spáð hjá Straumi fjárfestingarbanka, eða um 245% aukningu hagnaðar milli ár- anna 2002 og 2003. Eimskipafélagi Íslands er spáð mestum samdrætti hagnaðar í krón- um talið, rúmum, 2,1 milljarði króna, en hlutfallslega er mestum samdrætti spáð hjá Össuri, eða 86%. KB banka spáð 7,7 millj- arða hagnaði  Greiningardeildir/Viðskipti MAÐUR á þrítugsaldri liggur nú á gjör- gæsludeild LSH við Hringbraut vegna súr- efnisskorts eftir að hafa misst meðvitund í Sundlaug Breiðholts í gær. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var maðurinn enn í lífshættu þegar blaðið fór í prentun. Slys í Breið- holtslaug

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.