Morgunblaðið - 21.01.2004, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NORÐMAÐURINN Ole Gunnar Sol-
skjær, leikmaður Englandsmeistara
Manchester United, gæti þurft að
bíða í þrjá mánuði til viðbótar eftir
því að komast í slaginn að nýju en sá
norski hefur verið frá undanfarna
mánuði vegna hnémeiðsla. Jim Sol-
bakken umboðsmaður Solskjærs
segir meiðslin alvarlegs eðlis og ekki
ósvipuð og hentu Alf Inge Håland en
hann neyddist til þess að leggja
skóna á hilluna fyrir tveimur árum.
„Þetta eru mjög alvarleg meiðsli
sem Ole er að glíma við og hann
verður að sýna þolinmæði. Þessum
hnémeiðslum svipar mjög til þeirra
sem voru að plaga Håland og ég
gæti trúað að það tæki Ole þrjá mán-
uði að ná sér alveg af þeim,“ segir
Solbakken við norska blaðið Verd-
ens Gang.
Endurkomu Solskjærs hefur tví-
vegis verið slegið á frest. Til stóð að
hann spilaði með varaliði United í
síðustu viku en hætt var við það á
síðustu stundu og þá er ljóst að hann
spilar ekki með varaliðinu síðar í
vikunni eins og til stóð.
Sir Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri United, er hins vegar
vongóður um að Norðmaðurinn
verði kominn á ferðina fljótlega.
„Ole fór aðeins of geyst á æfingu
fyrir nokkru og það var ákveðið að
hann tæki sér lengri hvíld. Ég von-
ast til að hann byrji að æfa síðar í
vikunni og vonandi fer hann að spila
með okkur fljótlega.“
Alvarleg meiðsli hjá
Ole Gunnar Solskjær
FÓLK
ÓLAFUR Stígsson, landsliðsmaður
í knattspyrnu, er kominn með leik-
heimild með Fylki en hann er kominn
þangað á ný frá Molde í Noregi. Ólaf-
ur getur því leikið með Árbæjarliðinu
gegn Víkingi í Reykjavíkurmótinu
um næstu helgi en hann missti af
fyrsta leik liðsins í mótinu.
FULHAM er nú byrjað að leita eftir
eftirmanni Louis Saha og er talið að
liðið muni bjóða Tottenham sjö millj.
sterlingspunda, af tólf sem liðið fær
frá Manchester United fyrir Saha, í
Robbie Keane. David Pleat, starfandi
knattspyrnustjóri Tottenham, segir
að Keane sé ekki til sölu.
FULHAM keypti í gær tvo leik-
menn. Ian Pearce kom frá West Ham
og fór Andy Melville í staðinn frá Ful-
ham til West Ham, sem hluti kaup-
verðsins. Þá fékk Fulham til sín
bandaríska sóknarmanninn Brian
McBride frá Columbus Crew.
BJARNI Guðjónsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, segir á vef Cov-
entry að hann sé ánægður að vera
kominn til félagsins, en Bochum hef-
ur lánað hann til enska liðsins út tíma-
bilið. Bjarni horfði á Coventry vinna
stórsigur á Walsall um sl. helgi á úti-
velli, 6:1. „Liðið lék mjög vel og ég
verð að leggja hart að mér til að vinna
mér sæti í því, þar sem það er erfitt að
breyta liði eftir svo góðan leik.“
ARSENAL hefur áhuga á að
tryggja sér sóknarmanninn Robin
van Persie frá Feyenoord og er sagt
á vef hollenska liðsins að Van Persie,
20 ára, vonist eftir að hann verði orð-
inn leikmaður Arsenal fyrir jan-
úarlok. Van Persie hefur leikið 46
leiki fyrir Feyenoord og skorað 13
mörk – þar af 5 í vetur. Feyenoord
hefur hafnað tilboði frá Arsenal, en
reikar með nýju á næstunni.
ÞÝSKI leikmaðurinn Dietmar
Hamann hjá Liverpool, sagði í gær að
hann fari á ný til Þýskalands ef Liver-
pool bjóði honum ekki nýjan samning
fyrir sumarið 2005. Hamann sagði við
fjölmiðla í Þýskalandi, að hann myndi
ræða fyrst við Liverpool – síðan við
þýsk lið, en þar séu Stuttgart og
Schalke efst á blaði.
JOHN Toshack, fyrrverandi leik-
maður Liverpool og landsliðsmaður
Wales, hefur tekið við stjórninni hjá
Real Murcia á Spáni, eftir að Joaquin
Peiro var látinn taka poka sinn sem
þjálfari liðsins á mánudagskvöld. Jes-
us Samper, forseti liðsins, segir að
kallað hafi verið á Toshack til að
reyna bjarga liðinu frá falli í 2. deild,
en liðið er á botni 1. deildar með að-
eins einn sigur í 20 leikjum.
SÆNSKI leikmaðurinn Henrik
Larsson, miðherji Celtic, segist ekki
vera á leið til Barcelona. Larsson
sagði í gær við sænska blaðið Ex-
pressen að hann leggi skóna á hilluna
eftir keppnistímabilið og haldi heim
til Helsingborgar. Larsson hefur
skorað ekki færri en 220 fyrir Celtic
síðan hann kom til Parkhead 1997.
Tiselj segir að allur undirbúningurlandsliðsins hafi gengið sam-
kvæmt áætlun, ekkert hafi farið úr-
skeiðis og hann líti
því bjartsýnn fram á
veginn og til komandi
daga í átökum við Ís-
lendinga, Ungverja
og Tékka. „Vissulega er ekki allt
klappað og klárt en ég tel að síðustu
dagar fram að keppni nægi okkur til
þess að slípa þá vankanta sem sáust í
leik okkar gegn Pólverjum síðasta
sunnudag,“ segir Tiselj sem undir-
strikar að allir leikir Slóvena í riðla-
keppninni verði mjög erfiðir, ekkert
sé fyrirfram gefið þar sem andstæð-
ingarnir hafa allir á að skipa afar góð-
um liðum. Hann vill hins vegar lítið
gefa út á andstæðinga sína að öðru
leyti.
„Lykillinn að árangri á EM felst í
sterkum varnarleik,“ segir Tiselj. „Á
síðustu vikum höfum við leikið fjóra
vináttulandsleiki, tvö gegn Makedón-
íu og tvo við Pólverja. Í þremur þess-
ara leikja hefur varnarleikur okkar
verið afbragðsgóður. Í síðari leiknum
við Pólverja var vörnin lengst af all-
góð en hrundi alveg undir lokin. Þá
komu upp atriði sem ég tel að við get-
um bætt úr. Takist það hef ég ekki
miklar áhyggjur af því að lið mitt
standi sig ekki þegar á hólminn verð-
ur komið, varnarleikurinn er höfuð-
málið og þar tel ég okkur standa vel
að vígi,“ segir Tiselj.
Leikstjórnandinn Jure Natek og
markvörðurinn Miladin Kozlina, sem
báðir leika með heimaliðinu hér í
Celje, Celje Pivovarna Lasko, eiga í
lítilsháttar meiðslum sem Tiselj segir
enga ástæðu til að gera of mikið úr,
þeir verði eins og hinir leikmennirnir
klárir í slaginn þegar á þarf að halda.
Enginn er öruggur í C-riðli
Íþróttablaðið EKIPA í Slóveníu
veltir andstæðingum heimamanna
fyrir sér í viðamikilli grein á síðum
blaðsins í gær. Þar segir m.a. að
margir reikni með að íslenska lands-
liðið sé það sterkasta í riðlinum og
verði í keppni við heimamenn um
efsta sætið, enginn megi þó gleyma
Ungverjum sem hafi hreppt fimmta
sæti á HM í fyrra og skotið bæði Ís-
lendingum og Slóvenum aftur fyrir
sig. Þá séu Tékkar á uppleið í hand-
knattleiknum á ný eftir nokkurra ára
lægð. Ljóst sé að keppnin í C-riðli
verði einstaklega hörð og í raun sé
engin þjóð örugg um að komast áfram
í milliriðla, Slóvenar, Íslendingar,
Ungverjar og Tékkar geti allir átt von
á því að þurfa að halda heim með
„skottið“ milli lappanna eftir helgi.
Í umsögn um íslenska landsliðið er
tekið fram að það hafi staðið sig afar
vel á EM í Svíþjóð og náð fjórða sæti.
Þá hafi það tryggt sér ólympíufarseðil
til Aþenu á HM í fyrra. Guðmundur
Guðmundsson, landsliðsþjálfari, hafi
tekið við þjálfun þess vorið 2001 eftir
að það hafi ekki náð sér á strik á EM
2000 í Króatíu og árið eftir á HM.
Guðmundur hafi sjálfur leikið með
landsliðinu árum saman og eigi að
baki 238 landsleiki. Eftir að hann tók
við þjálfun landsliðsins hafi árangur
þess batnað til muna. Guðmundi hafi
tekist að bæta leik liðsins og efla liðs-
andann til mikilla muna. Einnig skipti
það miklu máli að leikmenn íslenska
landsliðsins leiki nær allir utan
heimalandsins sem atvinnumenn.
Þá er greint frá því að Ólafur Stef-
ánsson sé helsta tromp íslenska
landsliðsins, hann sé í allra fremstu
röð handknattleiksmanna í heimin-
um. Sigfús Sigurðsson er einnig
nefndur til sögunnar og greint frá því
að hann leiki afar þýðingarmikið hlut-
verk, jafnt í vörn sem sókn, sterkur
maður sem leikur með Magdeburg í
Þýskalandi. Róberts Sighvatssonar
er einnig getið, svo og hins reynda
markvarðar Guðmundar Hrafnkels-
sonar og hins sterka leikmanns Pat-
reks Jóhannessonar.
Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar er
sérstaklega getið úr hópi yngri og
efnilegri leikmanna. Segir blaðið að
Ásgeir hafi vakið gríðarlega athygli
með afar góðri frammistöðu á EM 19
ára landsliða síðastliðið sumar í Slóv-
akíu þar sem hann hafi leikið eitt
meginhlutverkið í keppni þar sem Ís-
land hefði staðið uppi sem sigurveg-
ari. Fyrir vikið hafi Ásgeir lent undir
smásjánni hjá helstu stórliðum Evr-
ópu í handknattleik. Hann sé upp-
rennandi arftaki Ólafs Stefánssonar í
íslenska landsliðinu og kannski á fleiri
sviðum handknattleiksins.
Slóvenar halda sig
fjarri andstæðingunum
Slóvenska landsliðið heldur áfram
leynilegum undirbúningi sínum fyrir
Evrópumeistaramótið, en fram til
þessa hefur liðið farið nokkuð leynt
við undirbúning sinn. Slóvenar tóku
þann kostinn að hafa lið sitt ekki á
hóteli í Lasko, 10 km sunnan við
Celje, þar sem hinar leikmenn hinna
þjóðanna þriggja, Íslendingar, Ung-
verjar og Tékkar búa, heldur í öðrum
smábæ, Zrece. Sá bær er um 25 km
norðan við Celje. Þar æfir liðið í
íþróttahúsi bæjarins síðustu þrjá dag-
ana áður en það stígur fram á sviðið í
íþróttahöllinni í Celje og fimmtudags-
kvöld og leikur upphafsleik sinni í
keppninni við Íslendinga. Ekkert á
raska ró Slóvena á lokasprettinum áð-
ur en keppnin hefst og menn eiga ekki
að hitta andstæðinga sína fyrr en þeir
mætast á handknattleiksvellinum.
Með því að æfa í Zrece þá er einnig
betur hægt að koma í veg fyrir að
„njósnarar“ reki inn nefið á æfingar
liðsins sem ætlar sér stóra hluti á
Evrópumótinu á eigin heimavelli.
Morgunblaðið/Sverrir
Landsliðið í handknattleik kom til Celje í Slóveníu í gærkvöldi. Guðmundur Þ. Guðmundsson, Ein-
ar Þorvarðarson, Ragnar Óskarsson og Sigfús Sigurðsson eru hér að innrita sig á hótelið.
Tone Tiselj, landsliðsþjálfari Slóvena í handknattleik
Varnarleikur er lykill
að árangri á EM
TONE Tiselj, landsliðsþjálfari Slóvena, gefur ekkert upp hvaða leik-
mönnum hann hyggst tefla fram á Evrópumeistaramótinu í hand-
knattleik fyrr en í kvöld. Þá hyggst hann velja 15 leikmenn og skilja
eftir eitt laust sæti, líkt og Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðs-
þjálfari Íslendinga. Tiselj hefur verið með 21 leikmann við æfingar
síðustu vikur og sagði í viðtali við íþróttablaðið EKIPA í gær að hann
vildi halda leikmönnum sínum á tánum fram á síðustu stundu. Eng-
inn leikmaður í hinum 21 manns hópi ætti víst sæti í landsliðinu
þegar það yrði tilkynnt.
Ívar
Benediktsson
skrifar frá
Celje
KEVIN Keegan, knatt-
spyrnustjóri Manchester City,
mun tefla Árna Gauti Arasyni
fram í bikarleik liðsins gegn
Tottenham á sunnudaginn í
Manchester. Árni Gautur mun
taka stöðu enska landsliðs-
markvarðarins David James,
sem getur ekki leikið með City
í bikarkeppninni, þar sem hann
hefur leikið með West Ham í
keppninni. Árni Gautur skrif-
aði í sl. viku undir samning við
City út keppnistímabilið.
Árni Gautur
með Man.
City gegn
Tottenham