Morgunblaðið - 08.02.2004, Blaðsíða 65
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 65
TÓNLEIKAHALDARINN Ísleifur
Þórhallsson, sem stendur ásamt
fleiri fyrir komu kvennahljómsveit-
arinnar Sugababes til landsins þar
sem hún munu halda tónleika í
Laugardalshöllinni, segir það mikið
gleðiefni að hljóða– og ljósatækja-
leigan Exton hljóð ehf. á Íslandi
skuli vera búin að fjárfesta í einu
fullkomnasta og dýrasta hátal-
arakerfi sem völ er á í heiminum.
Kemur kerfið hingað í þessum mán-
uði og verður notað í fyrsta skipti á
Íslandi á Sugababes-tónleikunum.
Sami styrkur fremst og aftast
„Þetta mega-fyrirbæri kallast
Meyer-hljóðkerfi og Sugababes-
stelpunum væntanlega til mikillar
ánægju hefur hljóðsérfræðingur
Noruh Jones t.d. látið þau orð falla
að þetta kerfi henti kvenröddum
sérstaklega vel og einnig hefur
tæknimaður Kylie Minogue hrósað
því í hástert eftir tónleikatúr. En
vert er að taka fram að kerfið er
jafnvígt á miðlun rokktónlistar og
klassískrar tónlistar,“ segir Ísleifur
En mestan mun á þessu nýja
Meyer-hljóðkerfi og þeim sem áður
hafa verið í notkun segir Ísleifur
liggja bæði í krafti og gæðum.
„Hljóðið verður jafnsterkt alls stað-
ar, bæði aftast og fremst, sem
skiptir miklu máli því það hafa allt-
af verið þessi vandamálasvæði þar
sem hljóðið hefur verið misgott eft-
ir því hvar fólk er statt í salnum. Og
þar sem Heilbrigðiseftirlitið fylgist
auðvitað vel með hljóðstyrk og
áreiti á ung eyru á tónleikum þá
getur það svo sannarlega líka
glaðst, því nú er hægt að halda tón-
leika án þess að æra þá sem standa
fremst en bjóða samt sem áður
þeim sem eru aftast upp á alveg
jafnmikil hljóðgæði.“
Einnig hugsað fyrir Egilshöll
Ísleifur segir að miklu minna fari
fyrir Meyers-hljóðkerfinu en þeim
gömlu og því sé ekkert mál að flytja
það milli staða og nota hvar sem er.
„Enda var tilgangurinn hjá Ex-
ton ehf. með því að fara út í þessa
30 milljóna króna fjárfestingu m.a.
sá að geta græjað upp Egilshöllina
sem er risastór og rúmar helmingi
fleira fólk en Laugardalshöllin, eða
um 12 þúsund manns. Þá fyrst
verður hægt að halda alvöru risa-
tónleika þar. Enda er það ekkert
leyndarmál að það er von á góðum
alvöru böndum hingað til lands með
tónleika, því nú geta þau treyst á
toppgæði og finna að tónleikahald
er orðinn alvöru bissness hér-
lendis.“
Tónleikar Sugababes verða í
Laugardalshöllinni 8. apríl.
Eitt besta hljóðkerfi í heimi vígt á Íslandi
Reuters
Það dugir sko ekkert minna en réttu græjurnar þegar Sugababes spila!
Sugababes í
nýjum græjum
khk@mbl.is
ALMENNINGUR í Bretlandi hef-
ur valið „We Will Rock You“ með
Queen besta „rokkslagara“ allra
tíma. Ekki nóg með það heldur á
Queen líka lagið sem þótti næst-
best, „Bohemian Rhapsody“. Í
þriðja sæti hafnaði „Smells Like
Teen Spirit“ með Nirvana en ekki
Milljónamæringunum, í fjórða
sænski Volvo-rokkarinn „Final Co-
untdown“ með Europe og iðn-
aðarrokkið náði sínum fulltrúa í
fimmta sætið með Bon Jovi-laginu
„Livin’ On A Prayer“ Nýjasta lagið
á listanum er með Darkness, „I
Believe in A Thing Called Love“,
sem varð í 19. sæti. …
Britney Spears hefur enn ekki
sagt skilið við fyrrverandi eig-
inmann sinn Jason Alexander, en
þau giftu sig í Las Vegas í upphafi
árs. Tæpum tveimur sólarhringum
síðar höfðu þau skilið. Britney er
hins vegar enn með silfurhring sem
Jason gaf henni, að sögn Sun. Þar
kemur einnig fram að þau séu í
nánum samskiptum og íhugi að
gifta sig að nýju.
Haft er eftir Jared Prescott, vini
Jason, að skötuhjúin hafi ekki vilj-
að skilja, en fjöl-
skylda söngkon-
unnar hafi
krafist þess að
þau kynntust
betur og færu á
nokkur stefnu-
mót áður en
lengra væri hald-
ið …
FÓLK Ífréttum
ÍRSKA söngvaskáldið Damien Rice
er á leiðinni til landsins og mun spila á
skemmtistaðnum NASA við Austur-
völl 19. mars næstkomandi.
Vafalaust mun aðdáendum rólegr-
ar, melódískrar og tilfinningaríkrar
tónlistar þykja mikill fengur í komu
Rice, en þannig hefur tónsmíðum
hans gjarnan verið lýst í umsögnum
um plötuna O, sem kom út árið 2002.
Rice, sem er rúmlega þrítugur, hef-
ur notið sívaxandi hylli að undanförnu
og meðal annars hlotið hin banda-
rísku Mercury-verðlaun, Shortlist
Music Price. Nýlega var hann til-
nefndur til verðlauna breska tónlist-
arblaðsins NME, sem besti einherj-
inn, ásamt Ryan Adams, Har Mar
Superstar, Justin Timberlake og
Pink.
Honum til aðstoðar, á tónleikum og
í hljóðveri, er sönggyðjan Lisa Hann-
igan, sem þykir ljá tónlistinni mjúkan
og hlýjan blæ. Samstarf þeirra þykir
með eindæmum vel heppnað og nýtur
hún ekki síður hylli áhorfenda en
lagahöfundurinn sjálfur.
Uppgötvaður af David Arnold
Damien Rice er skjólstæðingur
tónskáldsins Davids Arnolds, sem Ís-
lendingar þekkja e.t.v. af samstarfi
við Björk í laginu „Play Dead“. Arn-
old heyrði prufuupptöku frá Rice árið
2001 og varð gríðarlega hrifinn. Þeir
fóru saman í hljóðver og tóku upp lag-
ið „Blower’s Daughter“, sem kom út
sem smáskífa þá um haustið. O kom
svo út í febrúar 2002 og hefur smám
saman fallið í kramið meðal almenn-
ings og ekki síst annarra tónlistar-
manna.
Damien Rice spilar á NASA 19. mars
Heimsókn frá
eyjunni grænu
Damien Rice og Lisa Hannigan hafa
náð vel saman, á sviði og í hljóðveri.
Miðasala hefst í verslun
Skífunnar á Laugavegi 26
miðvikudaginn 10. mars.
Miðaverð 2.900 kr.