Morgunblaðið - 08.02.2004, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.02.2004, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 29 verið bent á mikilvægi þess að gera öðrum minnihlutahópum í landinu hærra undir höfði. Treysta illa her og lögreglu Vantraust á lögreglu og hernum á sér mjög djúpar rætur meðal Albana, en í gegnum tíðina voru nær ein- göngu Makedóníumenn í lögregl- unni. Spilling er sömuleiðis mjög al- geng á þessum slóðum, einnig meðal valdastétta. Albanar upplifðu lög- regluna því oft eins og vald að ofan, en ekki sem eitthvað sem þeir gætu treyst eða leitað til. Það sama má segja um herinn. Albanar eiga margir hverjir enn erf- itt með að treysta makedónska hern- um, sem er kannski heldur ekki að furða, þar sem aðeins eru rúm tvö ár frá því að sprengjum var varpað á albönsk þorp úr skriðdrekum og her- flugvélum stjórnarhersins. Þannig má búast við því að það taki mörg ár, ef ekki áratugi að byggja upp traust allra íbúa landsins á her og lögreglu landsins. Makedónía gerir sér vonir um að ganga í Atlantshafsbandalagið (NATO) á næstu árum og er nú unnið að því að nútímavæða herinn. Þannig stendur til að fækka atvinnuher- mönnum og á sama tíma á að fjölga Albönum. Meðallaunin um 16.000 krónur Atvinnuleysi í Makedóníu er gríð- arlegt eða um 40% og meðallaunin aðeins um 180 evrur, eða um 16.000 íslenskar krónur á mánuði. Umsvif ríkisins eru að auki talin allt of mikil og því standa stjórnvöld í Makedóníu frammi fyrir erfiðu verkefni. Að þurfa að fjölga Albönum og starfs- mönnum sem tilheyra öðrum minni- hlutahópum, og á sama tíma skera niður ríkisbáknið. Á sama tíma svíð- ur ungum Makedóníumönnum eðli- lega að þeir hafi minni möguleika á að komast í störf innan stjórnsýsl- unnar, lögreglu og hersins. Fátækt er mjög útbreidd í Make- dóníu, sem kemur kannski ekki á óvart þegar 40% eru atvinnulaus og meðalmánaðarlaun undir 20 þúsund krónum. Margir rækta ýmsar mat- jurtir í garðinum og ekki er óalgeng sjón að sjá geitur og hross á gangi í hverfum höfuðborgarinnar Skopje, en það er óskiljanlegt hvernig fólk nær að draga fram lífið á þessum launum. Kannski gerir fólk það ein- mitt ekki. Glæpum sagt stríð á hendur Á götum höfuðborgarinnar má sjá nýja og rándýra bíla innan um Lödur og Yugo-bíla, sem eru komnir til ára sinna. Það má að hluta til skýra með því að margir, einkum Albanar, hafa flutt til landa í Mið-Evrópu, einkum Sviss, Þýskalands og Ítalíu, vinna þar stóran hluta ársins, senda fjár- muni heim til Makedóníu og eyða sumrinu þar. Makedónar hafa sest víða að sömuleiðis, t.d. í Svíþjóð og Bandaríkjunum. Öfgarnar sem blasa við milli fá- tæktar og ríkidæmis má að einhverju leyti skýra með því hversu útbreiddir glæpir og spilling ýmiskonar eru í Makedóníu. Mansal, vændi og smygl hvers konar, allt eru þetta stór vandamál á Balkanskaganum. Víða má kaupa falsaða geisladiska og DVD diska, falsaða merkjavöru á borð við fatnað og ýmsa fylgihluti – í raun er auðveldara að kaupa falsaða hluti en þá upprunalegu. Þá eru kon- ur fluttar nauðugar frá Rúmeníu t.d. eða fyrrverandi lýðveldum Sovétríkj- anna í gegnum Makedóníu og er eit- urlyfjum smyglað þar í gegn sömu- leiðis. Eitt af hlutverkum lögreglumannanna sem starfa nú í Makedóníu á vegum Evrópusam- bandsins, er einmitt að hjálpa lög- reglunni að berjast við þessi vanda- mál. Stór-Albanía? Í fyrrasumar reikuðu hópar vopn- aðra og svartklæddra albanskra öfgamanna um fjöllin í norðvestur- hluta Makedóníu og létu illa. Rændu þeir t.d. tveimur lögreglumönnum og hótuðu öllu illu. Fór svo að herinn gerði árás á þessa hópa í september síðastliðnum. Mennirnir, sem flestir voru mjög ungir, sögðust vera að berjast fyrir auknum réttindum Alb- ana og jafnvel fyrir stofnun einhvers konar „Stór-Albaníu“, sem myndi ná til norðvesturhluta Makedóníu, suð- urhluta Kosvovo og Albaníu. Þótt Albanar sem búa í Makedóníu líti fyrst og fremst á sig sem Albana og dragi t.d. albanska fánann, en ekki þann makedónska, að hún fyrir utan híbýli sín, er þó ljóst að meirihluti Albana sem búa í Makedóníu vilja ekki tilheyra slíku ríki og nutu um- ræddir öfgamenn því ekki stuðnings meirihluta Albana síðasta sumar. Albanía er mun fátækari en Make- dónía, og að auki stefnir landið á inn- göngu í Evrópusambandið þar sem margar ólíkar þjóðir búa saman. Margir trúa því einmitt að lausnin fyrir Makedóníu, sé að gerast aðili að ESB, þar sem skipting makedónsku þjóðarinnar í þjóðfélagshópa myndi þá ekki skipta jafnmiklu máli. Íbúar Makedóníu eru einnig byrj- aðir að gera sér grein fyrir mikilvægi þess að efla áhuga erlendra fjárfesta á landinu til að auka hagvöxt. Ná- grannar þeirra, Búlgarar, hafa t.d. fengið verulegt fjármagn inn í landið á þann hátt. Íslendingar hafa verið meðal þeirra sem fjárfest hafa í Búlgaríu, t.d. í lyfjafyrirtækinu Balk- anPharma og nú nýlega í búlgarska landssímanum. Þeir vita að mikil- vægt er að stöðugleiki ríki í landinu svo erlendir aðilar vilji koma með fjármagn inn í landið og eins til að efla ferðamennsku. Ástandið í Make- dóníu hefur því smám saman verið að færast til betri vegar, þótt enn sé á brattann að sækja. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) hefur unnið að því að byggja upp lögregluna í Makedóníu síðustu ár. Hér fer fram útskrift ungra lögreglumanna úr öllum hópum þjóðfélagsins, en stefnt er að því að fjölga Albönum og öðrum fulltrúum minnihlutahópa innan lögreglunnar og hersins. nina@mbl.is Nemendaþjónustan sf. Álfabakka 12, Mjódd Stærðfræði - íslenska - danska - enska - náttúrufræði - íslenskar rannsóknir sýna að nemendur sem eru fyrir neðan 6 á samræmdu prófunum eiga í erfiðleikum með framhaldsnámið. - það er ennþá tækifæri til að styrkja stöðu sína fyrir vorið. - hjá okkur starfa kennarar sem náð hafa mjög góðum árangri með nemendur á samræmdum prófum. Einnig námsaðstoð við nemendur framhalds- og háskóla Innritun í síma 557 9233 frá kl. 17-19 virka daga og á vef okkar www.namsadstod.is NÁMSAÐSTOÐ fyrir samræmdu prófin í 10. bekk SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR Augnháralitur og augnabrúnalitur Tana® Cosmetic Augnháralitur og augnabrúnalitur sem fagaðilar nota. Auðveldur í notkun. Allt sem þarf í einum kassa - þægilegra getur það ekki verið. NÝTT GlernaglaþjölProfessional Glass Nail file Glerþjölin sem eyðist aldrei! Fíngerðasta þjölin sem þú getur fundið, fer sérlega vel með neglur og hindrar að þær klofni eða brotni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.