Morgunblaðið - 08.02.2004, Blaðsíða 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 35
INFORMATION MEETING IN ICELAND
Date: Monday, February 9
Time: 18.00 – 19.30: MBA (Executive MBA)
19.30 – 20.15: Master of Science (BScB)
Venue: Radisson SAS Saga Hotel Reykjavik, Hagatorg
BI Norwegian School of Management, one of the leading private business schools in Europe, will be holding
an information meeting in Iceland to present its graduate programs: MSc and MBA. Icelandic BI alumni will
be present to answer your questions. For those interested, information about the international full time
Bachelor of Science in Business(BScB) and part time Executive MBA program will also be available.
MASTER OF SCIENCE – TWO YEARS FULL TIME
- state of the art knowledge based on cutting edge research
(MSc in Business, Financial Economics, Marketing, Organizational Psychology, Business &
Economic History)
MBA- 11 MONTHS FULL TIME
- strategic leadership through international group work
(General management MBA with a focus on Leadership, Strategy, Corporate Finance
and group work)
More information: www.bi.edu study@bi.no Telephone: + 47 22 98 50 50
Dagskrá Listasafns Íslandsnæstu mánuði verðurbæði fjölbreytt og spenn-andi, að
sögn Ólafs Kvaran
safnstjóra. Um síðustu
helgi var opnuð sýning
á verkum Flúxuslista-
manna úr einkasafni
Þjóðverjans René
Block, en hann er sýn-
ingarstjóri ásamt Gabr-
iele Knapstein. Meðal
listamannanna sem
eiga verk á sýningunni
eru Joseph Beuys,
George Brecht, John
Cage, Arthur Köpcke,
Manfred Leve, George
Maciunas, Benjamin
Patterson, Robert Reh-
feldt, Dieter Roth og
Wolf Vostell.
Flúxushreyfingin hefur mótað al-
þjóðlegt listalíf allt frá sjöunda ára-
tugnum og ekki síst haft mikil áhrif
á Íslandi. Það var ekki síst vegna ná-
inna tengsla Dieters Roth við ís-
lenska listsamfélagið að íslenskir
listamenn kynntust mörgum Flúx-
uslistamönnum sem margir sýndu
hérlendis. Hluti Flúxussýning-
arinnar er einmitt helgaður þessum
tengslum og þeim gerð góð skil.
Sýningin hefur að leiðarljósi að sýna
tengslin við Flúxushreyfinguna og
hvernig flúxusáhrifa gætir enn í
verkum starfandi listamanna í dag. Í
þessum hluta Flúxussýningarinnar
eru verk eftir Magnús Pálsson, Jón
Gunnar Árnason, Kristján Guð-
mundsson, Sigurð Guðmundsson,
Sólveigu Aðalsteinsdóttur, Kristin
G. Harðarson, Eygló Harðardóttur,
Margréti H. Blöndal og fleiri.
Í lok mars verður opnuð sýning
sem nefnist Íslensk myndlist 1900–
1930, en að sögn Ólafs Kvaran er
hún framhald af tímabilasýningum
Listasafnsins sem fjalla um íslenska
listasögu. „Húsnæði okkar leyfir
ekki stórar yfirlitssýningar, og okk-
ar aðferð til að fjalla um íslenska
listasögu er að skipa henni í ákveðin
tímabil. Þessi tími er gífurlega
spennandi; þetta er tími frumherj-
anna í íslenskri myndlist, þegar ís-
lensk myndlist er að skilgreina sjálfa
sig og sitt samband við samfélagið.“
Sýningin veitir yfirlit yfir þau
margvíslegu viðfangsefni sem ís-
lenskir listamenn fengust við fyrstu
þrjá áratugi 20. aldar bæði í málara-
og höggmyndalist. Landslag, þjóð-
sögur, mannamyndir, goðsögur og
uppstillingar voru allt
áleitin myndefni á
þessu tímabili. Þarna
verða sýnd verk eftir
Þórarin B. Þorláksson,
Ásgrím Jónsson, Jó-
hannes Kjarval, Jón
Stefánsson, Júlíönu
Sveinsdóttur, Kristínu
Jónsdóttur, Finn Jóns-
son, Gunnlaug Blön-
dal, Einar Jónsson og
fleiri.
Framlag Listasafns
Íslands til Listahátíðar
verður sérstaklega
glæsilegt, en það er
sýning unnin í sam-
vinnu við Astrup Fe-
arnley-listasafnið í
Ósló. Á síðustu árum hefur Lista-
safnið markvisst byggt upp erlend
tengsl og samstarf við söfn erlendis,
og Listahátíðarsýningin er liður í
þess konar samstarfi. Að sögn Ólafs
verður uppistaða þessarar sýningar
bandarísk samtímalist. „Astrup Fe-
arnley-safnið hefur á margan hátt
mikla sérstöðu í samanburði við evr-
ópsk söfn, því það hefur haft tök á
því að kaupa mörg þeirra dýru am-
erísku verka sem önnur söfn hafa
ekki getað eignast. Þarna gefst því
einstakt tækifæri til að draga saman
í eina sýningu þá listamenn sem
hæst hefur borið á alþjóðlegum vett-
vangi á síðustu tuttugu árum. Þetta
eru stóru stjörnurnar sem hafa sett
mark sitt á alþjóðlegt listalíf.“
Þetta póst-móderníska tímabil
einkennist mjög af tileinkun og end-
urvinnslu á mörgum listhugtökum
sem fyrir eru, fyrirmyndum þeirra
og þeim hlutum sem einkenna þau.
Um leið endurspeglar listin goð-
sagnir hversdagsins á mjög auðskil-
inn og áþreifanlegan hátt. Lista-
menn sem eiga verk á sýningunni
eru Jeff Koons, Sherrie Levine,
Bruce Nauman, Cindy Sherman,
Andy Warhol, Robert Gober, Felix
Gonzalez-Torres, Duane Hanson,
Louise Lawler, Richard Prince og
Charles Ray. „Þetta verður mjög
spennandi sýning, því þarna er teflt
fram þeim listamönnum sem hafa
verið mjög áberandi í alþjóðlega
listalífinu og þeim margvíslegu
spurningum sem verk þeirra vekja,“
segir Ólafur, en sýningin verður
opnuð við opnun Listahátíðar, 15.
maí.
Sumarverkin
spanna heila öld
Sumarsýning safnsins hefur yf-
irskriftina Umhverfi og náttúra í ís-
lenskri myndlist á 20. öld. Fjölmarg-
ir listamenn munu eiga verk á
sýningunni, má nefna Þórarin B.
Þorláksson, Ásgrím Jónsson, Jón
Stefánsson, Jóhannes Kjarval, Júl-
íönu Sveinsdóttur, Svavar Guðna-
son, Nínu Tryggvadóttur, Kristján
Davíðsson, Sigurð Guðmundsson,
Helga Þorgils, Georg Guðna, Bryn-
hildi Þorgeirsdóttur, Sigurð Árna
Sigurðsson, Hrafnkel Sigurðsson,
Spessa, Guðrúnu Einarsdóttur,
Daníel Magnússon, Ólaf Elíasson,
Olgu Bergmann og Hlyn Hallsson.
Ólafur Kvaran segir að markhóp-
ur sýningarinnar sé ekki síst erlend-
ir ferðamenn. „Verkin spanna allt
frá rómantískri upphafningu lands-
ins í verkum listamannanna frá alda-
mótunum 1900 fram til þeirrar
myndlistar sem við eigum frá síð-
ustu árum, sem fjallar meira um
samband náttúru og menningar og
vekur gjarnan spurningar um af-
stöðu okkar til náttúrunnar.“
Yfirlitssýning á verkum Guð-
mundu Andrésdóttur verður opnuð í
Listasafni Íslands í september, en
Guðmunda var einn helsti fulltrúi
abstraktlistarinnar í íslenskri mál-
aralist á 20. öldinni. Stíll Guðmundu
þróaðist frá geómetrískri ab-
straktlist í flóknari myndbyggingu
ljóðrænna verka þar sem hreyfingin
á myndfletinum varð Guðmundu
hugleikið rannsóknarefni. Guð-
munda arfleiddi Listasafn Íslands að
hluta þeirra verka sem hún lét eftir
sig, svo og að öllum teikningum sín-
um og skissum. „Það er ekki síst
vegna þessarar höfðinglegu gjafar
sem efnt er til þessarar sýningar, því
með henni opnuðust möguleikar á að
skoða hennar myndlist á nýjan
máta.“
Sýning á helstu þáttum
forvörslu
Í tilefni af 120 ára afmæli Lista-
safnsins verður í september opnuð
sýning á forvörslu listaverka. Hún
lýtur að helstu þáttum varðveislu,
viðgerða og rannsókna á þeim menn-
ingarverðmætum sem tilheyra safn-
eign Listasafns Íslands og unnin eru
á forvörsludeild safnsins. Í eigu
safnsins eru nú um tíu þúsund verk
og varpar sýningin ljósi á þennan
mikilvæga þátt í starfi safnsins.
Í nóvember verður opnuð sýning
sem hlotið hefur nafnið Frumraun,
en þar verða viðfangsefni yngstu
kynslóðarinnar í íslenskri myndlist
könnuð. Hvernig er upplifun þeirra
á umhverfinu og hvernig end-
urspeglast hún í listinni? Hvaða
skilaboð kristallast í verkum þeirra?
„Aðstaða þessarar kynslóðar lista-
manna til að koma verkum sínum á
framfæri er mjög fátækleg, þannig
að okkur finnst það mjög forvitnilegt
og spennandi verkefni að lyfta þeim
fram.“
Sjónarhorni Listasafnsins hefur
verið vel tekið af gestum þess, að
sögn Ólafs, en markmið þess er að
sýna verk starfandi listamanna. Í
apríl verður Ragna St. Ingadóttir,
sem býr og starfar í París, með
ljósmyndainnsetningu og víd-
eóverk í Sjónarhorni, en bæði
verkin vinnur hún sér-
staklega fyrir sýninguna.
„Ragna er nær óþekkt á Ís-
landi, því hún hefur verið
búsett í Noregi og í París
nær allan sinn listferil.“
Ólafur Kvaran segir að í
öllu sýningarstarfi
Listasafns Íslands
sé lögð mikil
áhersla á að skapa
hinn virka áhorfanda. „Í tengslum
við sýningarnar vinnum við ýmiss
konar upplýsingar um verkin og
listamennina, þannig að upplifun
áhorfandans sem hingað kemur
verði sem mest og best,“ segir Ólaf-
ur Kvaran.
Listasafn Íslands kynnir sýningar sínar næsta árið
Michael Jackson og
Bubbles á Listahátíð
Flúxussýning, Flúxus-píanó-Lithá-
en „Til heiðurs Maciunas“, Wolf
Vostell,1994.
Sumarsýning, Skógarhöllin, Jó-
hannes S. Kjarval, 1918 olía LÍ 162
Sumarsýningin Umhverfi og náttúra, Hugi og Lóa Aðalheiður í Bjarnar-
flagi, Hlynur Hallsson 2003,
Yfirlitssýning á verkum Guðmundu
Andrésdóttur, Átrúnaður, 1971 Ol-
ía LÍ 1605
Ólafur Kvaran safn-
stjóri Listasafns Íslands
Ljósmynd 1/3 LÍ 6316
Bandarísk samtíma-
list á Listahátíð,
Michael Jackson
and Bubbles, Jeff
Koons, 1988 Postu-
lín og keramik