Morgunblaðið - 08.02.2004, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ásta Þorleifsdóttir
Dr. Þorlákur Karlsson
Eggert Claessen
Guðjón K. Reynisson
Ráðstefnustjóri: Eggert Claessen, stjórnarformaður Tölvumiðlunar hf.
Dagskrá:
14:15-14:35 Samræmdir mælikvarðar og stjórnunarlíkön. Kynning á norræna verkefninu „Puttinc IC into Practice“,
Ásta Þorleifsdóttir, verkefnastjóri.
14:35-14:55 Lesið í tölurnar - Dr. Þorlákur Karlsson, framkvæmdastjóri rannsókna og upplýsinga IMG.
Kaffihlé
15:10-15:25 Fjárhagslegur ávinningur með hjálp Balanced Scorecard, Guðjón K. Reynisson, framkvæmdastjóri 10-11.
15:25-16:30 „Linking IC disclosure to value creation“, Prófessor Göran Roos, Cranfield University.
16:30-17:00 Umræður og fyrirspurnir með þátttöku fyrirlesara.
Skráning er á heimasíðunni:
www.stjornvisi.is
Verð fyrir félagsmenn er 5.500 kr., en 7.500 kr. fyrir aðra. Námsmenn fá sérstakan afslátt.
Stjórnvísi, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík, s. 533 5666
Hagnaður af þekkingarverðmætum
mánudaginn 16. febrúar kl. 14:00 - 17:00 í Sal F & G Nordica Hóteli
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Göran Roos, prófessor við Cranfield-háskóla í Bretlandi. Roos hefur verið ráðgjafi
fjölmargra fyrirtækja í opinberum rekstri og einkarekstri í yfir 40 löndum. Göran Roos er einn af frumkvöðlum
fræðimennsku í mati á þekkingarverðmætum (Intellectual capital) og hefur gefið út bækur og birt greinar um það efni.
Á ÁRUNUM 1957–1963rákum við Haraldurbróðir minn búskap aðÁlftanesi á Mýrum, þarsem afasystir okkar
Marta Níelsdóttir (1858–1941) hafði
búið með eiginmönnum sínum, Jóni
Oddssyni (1857–1895) og seinni
manni sínum Haraldi Bjarnasyni
(1874–1964). Nú er það sumarið
1958, að snún-
ingastrákur, sem
hjá okkur var,
finnur flösku-
skeyti á Álftanes-
fjörum og inni í
flöskunni var
bæklingur frá öl-
gerðinni Guin-
ness. Í bæklingi
þeirra var hið
fræga slagorð:
„Guinness is good for you“. Ég sendi
ölgerðinni nafn og heimilisfang finn-
andans á meðfylgjandi eyðublaði og
fékk hann silfurskeið senda til baka,
svo sem lofað var í skeytinu. Höf-
uðstöðvar Guinness minnir mig, að
þá hafi verið í Liverpool. Þangað vél-
rita ég bréf í A-4 stærð og segist
ekki geta tekið undir slagorð þeirra
„Guinness is good for you“, því fram
til þessa hafi mér alltaf þótt Carls-
berg betri (Hitherto I have always
felt, that Carlsberg was even better
for me).
II.
Ekki stóð á svari frá flöskuskeyt-
armönnum, sjálfur forstjórinn sendi
mér tveggja síðna langt bréf, sem
hófst þannig: „Síðan við hófum að
kasta flöskuskeytum í hin ýmsu höf,
hafa okkur borist þúsundir svara, en
ekkert þeirra hefur glatt okkur
meira en bréf þitt, sem okkur barst í
gær. En þú misskilur eðli öls, Guinn-
ness er „stout“, en Carlsberg fram-
leiðir aðeins „lager“. Stout er dökk-
ur bjór, en lager ljós.“ Ég bauð þeim
að senda mér einn kassa (24 flöskur)
af Guinness til að fullvissa mig um,
að þrátt fyrir allt bæri Guinness af
Carlsberg. En í svari forstjórans
kom í ljós sú furðulega staðreynd, að
Ísland var þá eina land í heiminum,
þar sem lög leyfðu ekki innflutning á
bjór. Forstjórinn harmaði mjög
þetta bann, en sendi mér í staðinn
metabók Guinness (Guinness book
of records), 1955, þar sem margt
fróðlegt var að finna. Um fjölkvæni
stóð m.a. þetta: „Frú Vaughan var
gift 61 sinni á 5 árum, en karlametið
er 72 sinnum (a male record has
been noted of 72 times). Frúin var
24 ára.
III.
Nú voru lögð fram á Alþingi mörg
bjórfrumvörp, en dagaði öll uppi í
þingsölum. Loks fór svo, að bjór-
frumvarp var samþykkt á Alþingi
1988 og sala á honum leyfð frá 1.
mars 1989. Lauk þá bjórbanni, sem í
gildi hafði verið frá 1. janúar 1915.
Hugðist ég nú rita til Guinness-
manna, að nú væri lag, því enn átti
ég bréfin góðu. Vinur minn úr
læknastétt bað mig samt að bíða í
eitt ár með birtingu og nú finn ég
bréfin hvergi. Hugga ég mig við
setningu Beru Nordal: „Afi (Sigurð-
ur Nordal) sagði, að huldufólkið
fengi þetta stundum lánað, en það
skilaði því alltaf aftur.“
Enn eru þó bréfin ófundin, svo ég
byggi þessi skrif á minni. Ölgerð
Egils Skallagrímssonar hf. hefur
umboð fyrir Guinness og skora ég
hér með á forstöðumenn þess ágæta
fyrirtækis að hafa samband við Gu-
inness-menn og fletta upp á þessum
46 ára gömlu bréfaskriftum og
senda mér kassann góða, sem ég
hefi beðið eftir í 46 ár. Höskuldur,
forstjóri ÁTVR, hefur mikinn áhuga
á lyktum þessa máls, svo það ætti að
flýta fyrir.
Ölgerð Egils Skallagríms-
sonar hf. hefur umboð
fyrir Guinness segir Leif-
ur Sveinsson, og skora ég
hér með á forstöðumenn
þess ágæta fyrirtækis að
hafa samband við Guinn-
essmenn og fletta upp á
þessum 46 ára gömlu
bréfaskriftum og senda
mér kassann góða.
Morgunblaðið/Agnes Jóhannsdóttir
Morgunblaðið/Þorkell
Leifur Sveinsson
Kúaldarey undan Mýrum.
Bókin sem forstjóri Guinness sendi
Leifi Sveinssyni eftir bréfaskiftin sem
hófust með flöskuskeytinu og fjallað
er um í greininni.
Flöskuskeytið