Morgunblaðið - 08.02.2004, Blaðsíða 63
FORSETI Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, er mjög
ósáttur við að hafa ekki verið
látinn vita af fundi í ríkisráði
sem haldinn var 1. febrúar en
þá voru liðin 100 ár frá því
Íslendingar fengu
heimastjórn. Forsetinn var í
útlöndum þegar fundurinn var
boðaður og þess vegna sat
Halldór Blöndal, forseti
Alþingis, fundinn í stað hans.
Davíð Oddsson
forsætisráðherra sagði á
Alþingi í vikunni að umræðan
um ríkisráðsfundinn væri
upphlaup og algjörlega út í
himinblámann. Hann sagði
að frekar ætti að spyrja hvers
vegna forseti Íslands hefði
ákveðið að vera í
einkaerindum í útlöndum á
eitt hundrað ára afmæli
lýðveldisins.
Ólafur Ragnar, forseti
Íslands, segir að í tengslum
við merkisafmæli í
Íslandssögunni hafi forsetinn
alltaf verið hafður með í
ráðum. En þegar kom að 100
ára afmæli heimastjornar
voru tekin upp önnur
vinnubrögð og dagskráin
undirbúin án þess að hafa
samráð við embætti forseta
Íslands. Ólafur segist hafa
ályktað að þátttöku sinnar í
hátíðarhöldunum, sem
standa næstu mánuði, væri
ekki óskað.
Ólafur segir að boðað hafi
verið til fundar í ríkisráði með
mjög stuttum fyrirvara, en
Davíð segir aftur á móti að
fyrirvarinn hafi verið eðlilegur.
Deilur um fund í ríkisráði
Morgunblaðið/Sverrir
Halldór Blöndal stjórnaði fundinum í ríkisráði síðastliðinn sunnudag .
AUÐLESIÐ EFNI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 63
KEVIN Keegan, knatt-
spyrnustjóri Manchester
City, segir að markvarsla
Árna Gauts Arasonar í síðari
hálfleik, þegar hann varði
glæsilega aukaspyrnu
Þjóðverjans Christians
Ziege og í kjölfarið skalla
Úrúgvæans Gustavo Poyet,
hafi verið vendipunktur
leiksins þegar liðið vann
bikarleikinn gegn Tottenham,
4:3, eftir að hafa lent 3:0
undir.
Leikmenn City voru einum
færri þegar þeir unnu upp
forskotið, þar sem einum
þeirra var vísað af leikvelli.
„Árni var frábær fyrir
okkur og þvílík eldskírn sem
hann fékk. Hann gat lítið
gert í mörkunum þremur
sem hann fékk á sig og ekki
hjálpaði vörnin honum, svo
mikið er víst. Þegar maður
lítur til baka þá er ég ekki í
nokkrum vafa um að frábær
markvarsla Árna þegar hann
fyrst varði spyrnu Ziege og
tók svo skallann frá Poyet af
marklínunni hafi verið
vendipunktur leiksins og
hann á hrós skilið,“ sagði
Keegan á heimasíðu
Manchester City.
„Þessum leik kem ég
aldrei til með að gleyma.
Það var magnað að okkur
skyldi takast að snúa
leiknum okkur í vil en mann
óraði ekki fyrir því þegar
maður gekk út af eftir fyrri
hálfleikinn að við ættum
eftir að fara fagnandi af
vellinum í leikslok,“ sagði
Árni Gautur,
landsliðsmarkvörður í
knattspyrnu í viðtali við
Morgunblaðið.
Landsliðsmarkvörðurinn
lék sinn fyrsta leik fyrir
Manchester City.
Kevin Keegan sagði að
markvarsla þín í seinni
hálfleik þegar þú varðir
skotið frá Ziege og tókst svo
frákastið hjá Poyet hefði
verið vendipunktur leiksins.
Ert þú samþykkur því?
„Það kom ekki til greina
að láta Ziege skora tvisvar.
Ég náði sem betur fer að
krafla í boltann og var fljótur
upp svo mér tókst að ná
frákastinu frá Poyet. Þegar
ég lá með boltann í fanginu
hélt ég að boltinn færi fyrir
innan línuna en sem betur
fer var það ekki. Ég veit ekki
hvort þetta hafi verið einhver
vendipunktur en vissulega
hefði staðan versnað ef við
hefðum fengið á okkur
fjórða markið. Það er gaman
að Keegan skyldi segja
þetta og eftir á að hyggja
voru þetta mikilvægar
markvörslur hjá mér,“ sagði
Árni Gautur.
Reuters
Árni Gautur Arason sést hér verja í leiknum gegn Tottenham.
TUGIR manna týndu lífi í
sprengingu í Rússlandi á
föstudag. Þá sprakk sprengja
á lestarstöð í Moskvu. Talið
er að hryðjuverkamenn hafi
verið að verki.
Sprengingin varð í vagni í
neðanjarðarlest snemma á
föstudag. Lestin var á
Paveletskaía-stöðinni í
Moskvu, höfuðborg
Rússlands. Ofsahræðsla
greip um sig. Ringulreið ríkti.
Sjónarvottar sögðu ekki hægt
að lýsa því sem fyrir augu bar.
Alls fórust 39 farþegar í
tilræðinu. Um 100 manns
særðust.
Talið er að skæruliðar frá
Tétsníu hafi sprengt
sprengjuna. Tétsnía er í
Rússlandi. Skæruliðar vilja
stofna sjálfstætt ríki. Þeir
hafa margoft framið
hryðjuverk í Rússlandi.
Fjöldamorð
í Moskvu
Reuters
Særður maður fluttur á brott frá sprengjustaðnum í Moskvu.
BANDARÍSKA þungarokks-
hljómsveitin Korn mun halda
tónleika í Laugardalshöll í
maí. Hljómsveitin er ein sú
vinsælasta í heimi. Hún var
stofnuð í Kaliforníu árið 1992
og fljótlega varð hún
aðalhljómsveitin í því sem er
kallað nýþungarokk.
Korn gáfu út 6. plötu sína
fyrir jól. Hún heitir Take a
Look In the Mirror.
Tónleikarnir á Íslandi verða
fyrstu tónleikarnir á löngu
ferðalagi sem sveitin er að
fara í um Evrópu.
Plötur Korn hafa selst í
milljónum eintaka. Síðasta
plata, sem heitir
Untouchables, er sögð vera
dýrasta rokkplata sem gerð
hefur verið.
Miðasala á tónleikana
hefst í verslunum Skífunnar á
Laugavegi 26, Smáralind og
Kringlunni sunnudaginn 29.
febrúar klukkan 21.00.
Rokksveit-
in Korn
til Íslands
Árni Gautur hetja Manchester City
Netfang: auefni@mbl.is