Morgunblaðið - 08.02.2004, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 300 KR. MEÐ VSK.
Smáauglýsingar á
ÍSLENSK samgönguyfirvöld geta ekki
boðið lággjaldaflugfélaginu Ryanair upp á
niðurfellingu flugvallarskatta vegna notk-
unar á Keflavíkurflugvelli utan annatíma
gegn því að flugfélagið fljúgi með 250–
300.000 farþega á ári til landsins. Þetta er
niðurstaða skýrslu Hagfræðistofnunar Ís-
lands, „Flug- og ferðaþjónusta á Íslandi:
Umfjöllun í tilefni af beiðni Ryanair um
lækkun gjalda á Keflavíkurflugvelli“, sem
unnin var fyrir vinnuhóp samgönguráð-
herra.
Ásgeir Jónsson, hagfræðingur á Hag-
fræðistofnun, sagði nýlegan dóm, þar sem
Ryanair var gert að endurgreiða niður-
greiðslur vegna notkunar á flugvellinum í
Charleroi í Belgíu, í raun renna frekari
stoðum undir niðurstöður skýrslunnar.
„Það er ómögulegt að mismuna félögum á
þennan hátt,“ segir Ásgeir, en bendir á að
alls ekki sé út úr myndinni að lækka flug-
vallarskatta og minnka gjöld utan háanna-
tíma fyrir öll flugfélög.
Mögulegt
að lækka
gjöld til allra
flugfélaga
Ekki hægt/8
SKRIFAÐ hefur verið undir samninga við
hraðflutningafyrirtækið United Parcel Servi-
ces (UPS) um kaup flugfélagsins Atlanta á
írska viðhaldsfyrirtækinu Shannon MRO Ltd,
sem er við flugvöllinn í Shannon á vesturströnd
Írlands. Kaupverð fæst ekki uppgefið en velta
fyrirtækisins á síðasta ári var um einn millj-
arður króna og starfsmenn rúmlega 150. Auka
á veltuna með því að fá leyfi til að skoða fleiri
og stærri flugvélar. Einnig var samið við UPS
um áframhaldandi viðhald og skoðanir fyrir
flugvélar félagsins.
Kaupin fengu í lok janúar samþykki Þróun-
arsjóðs sveitarfélagsins Shannon en viðhalds-
fyrirtækið hefur notið styrkja úr sjóðnum í
mörg ár. Hefur Atlanta einnig gengið frá
samningum við sjóðinn um nýja styrki. Eru
styrkirnir aðallega ætlaðir til þess að skapa ný
störf eða nýja verkkunnáttu. Þannig hafa eig-
endur Shannon MRO verið gerðir ábyrgir fyrir
endurgreiðslu styrkja ef starfsmönnum fækk-
ar. Tóku eigendur Atlanta yfir skuldbindingar
UPS við þróunarsjóðinn, sem falla svo niður að
fullu árið 2007.
Ætlunin er að breyta nafni fyrirtækisins í
Air Atlanta Engineering Ltd með viðhöfn á
Shannon-flugvelli í vor. Stjórn félagsins skipa
Magnús Þorsteinsson, aðaleigandi Atlanta,
Hafþór Hafsteinsson, forstjóri Atlanta, og Þor-
steinn Ólafur Þorsteinsson, aðstoðarmaður for-
stjóra.
John O’Loughlin, framkvæmdastjóri Shann-
on MRO, fagnar nýjum eigendum í viðtali við
Morgunblaðið og fer fögrum orðum um þá.
„Þeir kunna greinilega til verka og við fögnum
kaupum þeirra. Þetta á eftir að verða jákvætt
fyrir báða aðila. Atlanta er framarlega á sínu
sviði og vel þekkt í hinum alþjóðlega flugheimi.
Ég hefði ekki samþykkt að halda áfram hjá
fyrirtækinu nema hafa tröllatrú á nýjum eig-
endum. Ég sé Atlanta fyrir mér í „úrvalsdeild“
flugfélaga eftir tíu ár,“ segir hann.
Þjóna þarf 32 flugvélum
Dótturfélög Atlanta á Bretlandseyjum eru
nú orðin tvö en frá árinu 1999 hefur félagið átt
viðhaldsfyrirtækið Avia Services Ltd. í Manst-
on á suðurhluta Englands. Þar starfa hátt í 60
manns undir stjórn Íslendingsins Þóris Krist-
inssonar. Auk tæknideildar Atlanta á Íslandi
þjóna þessi fyrirtæki stórum flota flugfélags-
ins, sem telur nú alls 32 Boeing-vélar.
Búið að semja um fjár-
festingu Atlanta á Írlandi
Atlanta/12–13
GULLFOSS er ekki síður tignarlegur á vet-
urna en sumrin, íklæddur vetrarskrúða og
klakaböndum. Flestir líta fossinn augum á
sumrin, þegar vatnið fellur frjálst ferða sinna
niður bergið. Færri hafa séð Gullfoss um há-
vetur, þegar vatnið fellur undir þykkum ís,
nokkurs konar klakabrynju. Þó eru nokkrir
sem leggja leið sína að fossinum og njóta þess
að horfa á þennan höfðingja íslenskra fossa.
Morgunblaðið/RAX
Gullfoss í vetrarskrúða og klakaböndum
GERA má ráð fyrir að allt að sex
ferðir verði daglega milli Keflavíkur
og Kaupmannahafnar næsta sumar,
sem er meira framboð en áður hefur
verið. Þá fjölga Flugleiðir áfanga-
stöðum og Iceland Express flýgur
tvisvar á dag til London og Kaup-
mannahafnar í sumar, auk þess sem
önnur flugfélög auka sætaframboð
sitt um 10–15%.
Þetta kemur fram í frétt frá Sam-
tökum ferðaþjónustunnar, en þar
segir meðal annars að margfaldur
vöxtur hafi verið í einstaklings-
ferðum hingað til lands umfram ferð-
ir skipulagðra hópa og láti nærri að
munurinn sé allt að fjórfaldur. Þá
segir að gera megi ráð fyrir að á
fjórða þúsund bílaleigubílar verði á
ferðinni hér á landi næsta sumar.
350 þúsund ferðamenn í ár
Fram kemur einnig að nokkur
bjartsýni ríki hvað varðar ferðamenn
hingað til lands næsta sumar. Bók-
unarstaða fyrirtækja í ferðaþjónustu
virðist góð og stefni í að aukning geti
orðið um 10% milli ára nema ytri að-
stæður verði óhagstæðar. Gangi það
eftir verði ferðamenn til landsins í ár
350 þúsund talsins, fleiri en nokkru
sinni áður, en 320 þúsund ferðamenn
hafi komið hingað til lands á síðasta
ári.
Sex ferðir
daglega til
Kaupmanna-
hafnar
Gert er ráð fyrir mikilli fjölgun
ferðamanna hingað til lands í sumar.
KRISTJÁN Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, gagnrýnir
Landsbanka Íslands í samtali við
Morgunblaðið í dag, vegna þess
hvernig bankinn stóð að sölunni á
Útgerðarfélagi Akureyringa á
dögunum. Bæjarstjórinn gagnrýn-
ir raunar viðskiptabankana mjög,
segir umhugsunarvert hvernig
þeir hafi aukið ítök sín í atvinnulíf-
inu undanfarið og telur óeðlilegt að
ein atvinnugrein sé í „bullandi
gróða“ á meðan aðrar eigi undir
högg að sækja. „Það liggur
kannski í því að í þessari atvinnu-
grein geti menn lagt byrðar yfir á
aðra og látið almenning standa
undir þessu.“
Gagnrýnir aðallega bankana
Kristján segir því hafa ranglega
verið haldið fram að hann væri á
móti því að eigendur Tjalds eign-
uðust ÚA á dögunum. „Ég hef frá
fyrstu stundu fagnað komu þeirra;
að menn sem hafa vit á útgerð og
fiskvinnslu eigi þetta fyrirtæki,“
segir hann. „Gagnrýni mín beindist
fyrst og fremst að viðskiptabank-
anum, Landsbanka Íslands.“ Hann
segir mjög umhugsunarvert
hvernig viðskiptabankarnir hafi
undanfarin misseri aukið tök sín í
atvinnulífi landsmanna og vekur
athygli á því hvernig verðmætin –
og segir orðið verðmæti þarna vera
innan gæsalappa – verða til í sam-
bandi við sölu eins og á Útgerð-
arfélagi Akureyringa.
„Þegar horft er á heildarmynd-
ina þá hefja eigendur bankans
þessi viðskipti í atvinnulífinu, sitja
svo allan hringinn í kringum borðið
og enda á því að óska sjálfum sér til
hamingju með góða sölu! Þetta er
orðið mjög einkennilegt og ég hef
gagnrýnt að fjármálastofnanirnar
séu í rauninni að taka til sín fjár-
muni út úr atvinnurekstri í landinu
með þessum hætti.“
Ítök banka í atvinnulífi
eru umhugsunarverð
Bæjarstjórinn á Akureyri óhress
með þátt Landsbankans í sölu ÚA
Arð á að nota/10