Morgunblaðið - 08.02.2004, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 13
ÚTSALAN ER Í
VEIÐIHORNINU
ÚTSÖLULOK Í DAG – OPIÐ FRÁ KL. 13-17
ALLT Í SKOTVEIÐINA
Byssuskápar (væntanlegir á frábæru verði - sjá www.veidihornid.is)
Frábær tilboð á rifflum - góðir byrjendapakkar:
Norinco 22 cal, boltalás, 5 skota magasín, 6x40 sjónauki, festingar,
hörð byssutaska og 100 skot. Aðeins kr. 29.990 fyrir allt þetta.
Norinco 22 cal, griplás, 15 skota, 6x40 sjónauki, festingar, hörð
byssutaska og 100 skot. Aðeins kr. 34.990 fyrir allt þetta.
Norinco pumpa, 12 ga, 3", 28" hlaup, 3 þrengingar. Aðeins kr. 27.995.
Felugallar (jakki og smekkbuxur), verð frá kr. 15.996.
250 Sellier & Bellot skeetskot og 150 leirdúfur kr. 3.990.
Mikið úrval af riffilskotum - Hvergi betra verð
ALLT Í STANGAVEIÐINA
Ron Thompson neopren vöðlur. Frábært verð - aðeins frá kr. 7.999.
Flugustangir frá kr. 6.900, mikið úrval.
Sérstakt tilboð á Sage flugustöngum meðan á útsölu stendur.
Ron Thompson Avalon fluguhjól með diskabremsu, aðeins kr. 4.999.
Sérhannaðar vöðlutöskur aðeins kr. 2.995. Mikið úrval af töskum.
Flugulínur, taumar og taumaefni með 50% afslætti.
10 spúnar kr. 1.750. 20 spúnar kr. 3.000.
20 laxaflugur í boxi kr. 3.900 (fullt verð 7.595).
15 laxatúpur kr. 3.375 (fullt verð kr. 6.750).
ALLT FYRIR FLUGUHNÝTARANN
Landsins mesta úrval af hnýtingarefni og verkfærum
15% afsláttur meðan á útsölu stendur
OPIÐ Í DAG FRÁ KL. 13-17 - LOKADAGUR
Veiðihornið Hafnarstræti 5 - sími 551 6760
Veiðihornið Síðumúla 8 - sími 568 8410
Sjá upplýsingar á www.veidihornid.is
Munið gjafabréfin – Sendum samdægurs
vélar en með eignarhaldi Atlanta
verður bætt við leyfum fyrir stærri
skoðanir á Boeing 747, 757 og 767
vélum. Binda forráðamenn Atlanta
vonir við að þessi leyfi verði komin í
hús síðsumars eða í haust.
Shannon MRO er á góðum stað við
flugvöllinn og flutti í nýjar og glæsi-
legar höfuðstöðvar fyrir einu og
hálfu ári síðan. Flugskýlið er stórt og
mikið, einir 60 þúsund fermetrar að
flatarmáli og getur tekið inn í einu
Boeing 747 vél eða 2–3 minni vélar.
Fyrri eigendur, hraðflutningafyrir-
tækið UPS, gerðu ekki mikið í því að
ná viðskiptum við utanaðkomandi
aðila og hugsuðu mest um að þjón-
usta sinn eigin flugflota þó að af-
kastageta flugskýlisins væri mun
meiri. Lætur nærri að 90% verkefn-
anna hafi verið fyrir UPS.
Hafþór Hafsteinsson segir að
þarna sjái eigendur Atlanta sóknar-
færin með þessari fjárfestingu. Auk
þess að þjóna Atlanta, Air Atlanta
Europe, Íslandsflugi og UPS er svig-
rúm talið vera gott til að þjónusta
fleiri flugfélög og gera rekstraráætl-
anir ráð fyrir auknum umsvifum og
hagnaði öll árin 2004, 2005 og 2006.
Þannig er talið að tvöföldun verði á
útseldum vinnutímum árið 2006,
miðað við síðasta ár, en flugskýlið á
að geta annað allt að 400 þúsund út-
seldum vinnutímum á ári. Í raun er
litið á alla Evrópu sem markaðs-
svæði, auk tækifæra sem gefast hjá
flugfélögum úr öðrum heimsálfum.
Rótgróið fyrirtæki
Shannon MRO er rótgróið fyrir-
tæki og hefur verið starfandi við
flugvöllinn allt frá árinu 1959. Frá
þeim tíma hefur fyrirtækið skipt
nokkrum sinnum um eigendur og
nafn, en lengst af var eigandinn írska
ríkisflugfélagið Aer Lingus, eða frá
árinu 1967 til 1999, þegar UPS tók
við rekstrinum. Ári áður hafði fyr-
irtækið hlotið nafnið Shannon MRO,
en sú nafngift stendur hins vegar að-
eins til vorsins eins og áður greinir.
Þá ætla nýir eigendur að efna til há-
tíðahalda og fagna tímamótunum.
O’Loughlin segir ekkert annað
standa til en að fyrirtækið ætli að
bjóða áfram upp á það sem það
hafi verið þekkt fyrir; hágæða þjón-
ustu og mikla fagþekkingu, hag-
stætt verð og stuttan afgreiðslu-
tíma. Orðsporið sé gott en
Shannon MRO þurfi aðeins að
skerpa á áherslum sínum í mark-
aðsstarfinu, sækja sér fleiri kúnna.
Og það tekur sinn tíma, allt upp
undir tvö ár með endalausum fund-
um hér og þar og símtölum. Skoð-
anir og viðhald flugvéla er mikil ná-
kvæmnisvinna og gríðarmiklar
kröfur gerðar um fagkunnáttu
starfsmanna. Í því skyni starfrækir
fyrirtækið sérstaka kennslumiðstöð
þar sem starfsmenn, bæði nýir og
gamlir, eru þjálfaðir til verka.
O’Loughlin segir þróunina í flug-
heiminum um þessar mundir vera
athyglisverða. Eftir hryðjuverkin 11.
september hafi margt breyst og
mörgum félögum hafi verið að
fatast flugið, þó ekki Atlanta. Hann
segir að nú sé það t.d. óvænt að
gerast að flugfélög eru í auknum
mæli að fjárfesta á ný í viðhalds-
og skoðunarfyrirtækjum. Flug-
félögin sjái sér hag í því, bæði til
sparnaðar í viðhaldi á eigin flug-
flota en einnig til að færa út kví-
arnar og auka veltuna.
Fimm milljóna króna spurning
Að endingu var ein létt
samviskuspurning lögð fyrir Írann, í
ljósi þess að fyrirtækið ætlaði að
ná í aukin viðskipti við önnur flug-
félög. Hún var á þá leið hvort flug-
félagið fengi þjónustu á undan ef
bæði Atlanta og t.d. SAS myndu
hringja og panta með skömmum
fyrirvara vélarskoðun á sama tíma.
„Þetta er fimm milljóna króna
spurning,“ segir O’Loughlin og hlær
en setur síðan í brýrnar. „Ef SAS
byði betur þá yrði félagið tekið á
undan. Nú veit ég ekki hvort Magn-
ús [Þorsteinsson] yrði sammála
mér en ég veit þó að hann er ekki í
þessu bara til að vera með í leikn-
um heldur einnig til að skora,“ seg-
ir hann en bætir loks við diplómat-
ísku svari: „Til að allir verði nú
ánægðir myndum við leita leiða til
að þjónusta bæði félögin. Sam-
keppnin er líka hörð, og á eftir að
harðna enn meir, þannig að við
munum að sjálfsögðu taka hverju
verkefni sem býðst.“
eigenda
MEÐ kaupunum á Shannon MRO á
vesturströnd Írlands á flugfélagið
Atlanta nú tvö dótturfélög á Bret-
landseyjum á sviði viðhalds, við-
gerða og skoðunar á flugvélum. Hitt
nefnist Avia Services Ltd. og er við
Manston-flugvöll á suðausturhluta
Englands. Þar starfa hátt í 60
manns, m.a. nokkrir Íslendingar, og
er framkvæmdastjórinn einnig ís-
lenskur, Þórir Kristinsson. Hefur
Atlanta átt fyrirtækið í bráðum
fimm ár.
Upphaflega ætlaði Atlanta að
byggja upp framtíðarviðhaldsstöð í
Manston, sem er gamall herflug-
völlur, en eftir að áform eigenda
flugvallarins náðu ekki fram að
ganga fór félagið að leita að hent-
ugri aðstöðu fyrir flugvélaflota sinn.
Í kjölfarið beindust sjónir manna að
Shannon og hafa nokkurra mánaða
viðræður nú leitt til fjárfestingar á
Írlandi. Verður rekstrinum í Man-
ston haldið áfram eftir sem áður. Er
fyrirtækjunum, auk tæknideildar
hér á landi, ætlað að þjóna flugflota
Atlanta og annarra félaga. Atlanta
er nú með 32 vélar í verkefnum
víða um heim, þar af 13 í pílagríma-
flugi í Asíu og Afríku. Langflestar
vélanna eru af gerðinni Boeing 747,
eða 21 talsins, en síðan eru á ferð-
inni sjö Boeing 767 og fjórar Boeing
757-vélar.
Tvö dótturfélög á
Bretlandseyjum
! !"
Eigendur Atlanta reikna með að velta fyr-
irtækisins aukist um hálfan milljarð á þessu
ári og fjölga þurfi starfsmönnum um þrjá
tugi, auk fjárfestinga í nýjum búnaði.
bjb@mbl.is
DICK Cheney, varaforseti Banda-
ríkjanna, talar yfirleitt ekki nema
nauðsyn beri til. Hann situr þögull
og hlustar, með báða vísifingur á
vör og horfir yfir
gleraugun. Þeg-
ar hann talar, er
það í hvössum
tón, og stundum
segir hann aðeins
hluta úr setn-
ingu.
„Ég er ein-
rænn að upp-
lagi,“ segir hann.
„Þar sem ég ólst upp, í vestrinu, er
manni kennt að vera ekki með
óþarfa læti.“ Hann hefur enga þörf
fyrir að sýna sig og enga þolinmæði
fyrir kurteisishjal eða smámuna-
semi. „Það eru ekki nógu margar
klukkustundir í sólarhringnum“ er
gömul tugga sem hann hefur yfir
þegar honum finnst tímanum sóað.
Honum líður best í þögn og ein-
veru, það eru bestu aðstæðurnar til
að innbyrða upplýsingar. Hann
ferðast alltaf með græna tösku sem
í eru 20 bækur. Hann hefur yndi af
sagnfræði, sérstaklega umfjöllun
um stríð og hernað.
Cheney er 62 ára og hefur verið
giftur konu sinni Lynne í 39 ár.
Hann þjáist af hjartaveilu og hefur
fengið fjögur hjartaáföll um ævina,
fyrst 37 ára gamall. Hann verður
aldrei vændur um að vera höfð-
ingjasleikja, smjaðrari eða athygl-
issjúkur. Þrátt fyrir það er ekki
hægt að segja að hann taki ekki þátt
í leiknum í Washington og hafi ekki
gaman af. „Ég hef alltaf talið Dick
mjög metnaðargjarnan,“ segir Lee
Hamilton, fyrrverandi þingmaður
demókrata, sem segist vinur Chen-
eys. „Í stjórnmálum er lykilatriði
hvernig þér tekst að fela metnaðinn.
Það er hluti af leiknum. Mér fannst
alltaf, hvað sem mér annars fannst
um hann, Dick vera snillingur í því.“
Cheney er þögull á vinnustað,
stundum þannig að aðrir verða
vandræðalegir. Þeir sem eiga erindi
við hann geta búist við að hann sitji
og lesi þegar þeir koma inn á skrif-
stofuna. Þá er líklegt að gesturinn
þurfi að bíða dálitla stund, kannski
nokkrar sekúndur, áður en Cheney
kemur að kaflaskilum og lítur upp.
Hefur gríðarmikil völd
Hann er að miklu leyti ósýnilegur
almenningi, fellur í skuggann af for-
setanum og hinum svokölluðu
„rokkstjörnum“ stjórnarinnar,
Donald Rumsfeld og Colin Powell.
Hann gefur líka nánast aldrei færi á
viðtölum og er það meðvituð
ákvörðun. Þá er hann þekktur fyrir
að láta sig hverfa og vita fáir hvar
hann heldur sig mestallan tímann.
Hann er þó talinn valdamikill,
Paul O’Neil, fyrrum fjármálaráð-
herra í ríkisstjórn Bush, segir í bók
sinni um árin í stjórninni Cheney
vera hringamiðju valda og áhrifa í
Hvíta húsinu jafnvel þó hann sitji
jafnan þögull og kinki kolli. Fjöl-
miðlaumræða um Cheney hefur
verið neikvæð að undanförnu og
hann sakaður um að hafa ýkt hættu
af gereyðingarvopnum Íraka og lát-
ið Bandaríkjamenn flana út í stríð.
Orkufyrirtækið Halliburton, sem
Cheney stjórnaði til 2000, hefur ver-
ið sakað um okur á Bandaríkja-
stjórn í samningum um dreifingu á
olíu í Írak. Þrátt fyrir að hafa ekki
verið dreginn inn í málið eru tengsl
Cheneys við fyrirtækið jafnan tekin
fram í fréttum.
Talið er að Cheney hafi engan
áhuga á að verða forseti. Hann
íhugaði það þó fyrir kosningarnar
1996. „Skoðaði það mjög vandlega,“
segir hann. „Safnaði peningunum.
Fékk ráðgjöf. Hélt fullt af ræðum.“
Hann ákvað svo að bjóða sig ekki
fram. „Ég vildi ekki gera alla þessa
hluti sem ég hefði þurft að gera til
að vera kosinn,“ segir hann en sum-
ir segja hann skorta þann eiginleika
stjórnmálamanna að þrá að fólki
falli vel við hann.
Ef hann sækist ekki eftir forseta-
embættinu er hann fyrsti varafor-
setinn sem gerir það ekki síðan Nel-
son Rockefeller var varaforseti,
1974–1977. Hann tekur skýrt fram
að hann ætli ekki að bjóða sig fram
2008. „Nei, ég tók þá ákvörðun fyrir
löngu. ... Mín vinna byggist á að for-
setinn viti að ég er hér til að þjóna
honum, sé hluti af hans liði, en ekki
með hugann við hvað ég ætli að gera
í Iowa eða New Hampshire eftir
fimm ár.“
Dick Cheney vill stjórna bak við tjöldin
Þögull og einrænn
lestrarhestur
Um borð Air Force Two. LATWP.
Dick Cheney