Morgunblaðið - 12.03.2004, Síða 1

Morgunblaðið - 12.03.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 71. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Ekta mexikóskur matur. Ljómi æsku- áranna Leikfélagar af Kleppsholtinu rifja upp bernskuminningar | Daglegt líf Hetjudáð sjómanns Raunsæ mynd af sjómannslífi  Lúzífer er fjölhæf lista- og galdra- kona  Músíktilraunir að hefjast Fólkið í dag Liðin eru 20 ár síðan Guðlaugur Frið- þórsson synti 5–6 km til lands | 49 „VIÐ verðum að vera sterk og sam- einuð,“ sagði Jóhann Karl, konung- ur Spánar, er hann ávarpaði þjóð sína í gærkvöld eftir að hryðju- verkamenn höfðu orðið að minnsta kosti 190 manns að bana og sært um 1.400 í 10 sprengingum á þrem- ur lestarstöðvum í Madríd. Yfirvöld á Spáni kváðust viss um það í fyrstu, að basknesku hryðjuverka- samtökin ETA hefðu verið að verki en í gær fundust hvellhettur og ar- abísk hljóðsnælda með versum úr Kóraninum í bíl í Madríd. Þá barst arabísku dagblaði í London yfirlýs- ing þar sem hryðjuverkasamtökin al-Qaeda segjast hafa staðið að ódæðinu. Sprengjurnar sprungu ýmist í lestarvögnum á eða við stöðvarnar Santa Eugenia, Atocha og El Pozo um klukkan hálfátta í gærmorgun, á háannatíma er fólk var á leið til vinnu. Var mannfallið mest á síðast- nefndu stöðinni en þar fórust að minnsta kosti 70 manns. Angel Acebes, innanríkisráðherra Spánar, sagði um miðjan dag í gær, að fullvíst mætti telja, að ETA hefði staðið að baki ódæðinu enda bentu fyrstu rannsóknir á sprengjubún- aðinum og sprengiefninu, sem var dýnamít, til þess. Benti hann á, að ETA hefði reynt svipað hryðjuverk síðastliðinn aðfangadag er tvær sprengjur fundust í lest á leið til Madrídar og 29. febrúar hefði lög- reglan stöðvað bíl á leið til borg- arinnar með 500 kíló af sprengiefni. Hefði þar verið um að ræða dýna- mít af sömu gerð og notað var í gær. Hvellhettur og arabísk snælda Acebes tilkynnti síðan í gær- kvöld, að fundist hefði sendibíll í austurhluta Madrídborgar og í hon- um sjö hvellhettur og segulbands- upptaka með versum úr Kóranin- um. Kvaðst Acebes hafa fyrirskipað rannsókn á þessu máli og lagði áherslu á, að ekki væri hægt að úti- loka, að hryðjuverkasamtök á borð við al-Qaeda hefðu staðið að ódæð- inu. Hann endurtók þó, að ETA væru enn grunuð um að bera ábyrgðina. Sagði hann hugsanlegt, að ETA hefði komið bílnum fyrir í því skyni að villa um fyrir lögregl- unni. Sendibílnum hafði verið stolið í bænum Alcala de Henares, sem er 35 suðvestur af Madríd, en þaðan komu lestirnar, sem urðu fyrir hryðjuverkaárásunum. Yfirlýsing frá al-Qaeda? Arabíska dagblaðinu Al-Quds Al- Arabi í London barst í gær yfirlýs- ing, sem eignuð var al-Qaeda, en í henni segir, að samtökin hafi gert hryðjuverkaárásirnar í Madríd í gær og sjálfsmorðsárásirnar á frímúrarastúku í Istanbúl í Tyrk- landi tveimur dögum áður. Sagði ennfremur, að árásirnar hefðu beinst að „krossferðariddurunum, bandamönnum Bandaríkjanna gegn íslam“. Þá kom fram, að hryðju- verkaárás í Bandaríkjunum væri yf- irvofandi. Ekki er unnt að sann- reyna yfirlýsinguna en al-Qaeda hefur áður sent blaðinu yfirlýsing- ar. Spænska útvarpsstöðin Cadena Ser sagði seint í gærkvöld, að sjálfsmorðsárásarmaður hefði verið í einni lestanna, sem sprengjurnar sprungu í. Hafði hún það eftir ónefndum liðsmanni í spænskum sveitum, sem berjast gegn hryðju- verkum. Talsmaður spænska innan- ríkisráðuneytisins vísaði þessu á bug og sagði, að ekkert benti til sjálfsmorðsárásar. Eins og áður segir sprungu 10 sprengjur en lögreglan fann þrjár sprengjur í bakpokum og gat eytt þeim. Talið er, að þeim hafi verið ætlað að springa er verið væri að vinna að björgunarstörfum eftir fyrri sprengingarnar. Acebes sagði, að um 10 kíló af sprengiefni hefðu verið í hverjum poka eða meira en 100 kíló alls. ETA neitar ábyrgð Arnaldo Otegi, leiðtogi Batasuna, basknesks stjórnmálaflokks, sem hefur verið bannaður vegna tengsla við ETA, neitaði því í gær, að ETA hefði staðið fyrir morðverkunum og kenndi hann „arabískum hryðju- verkamönnum“ um þau. Þingkosningar eru á Spáni á sunnudag en vegna ódæðisins hefur kosningabaráttunni verið aflýst og hafa stjórnvöld lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg í landinu. Ekki er þó annað vitað en kosningarnar fari fram. Í gærkvöld var fjölmennur minningarfundur í Bilbao, höfuð- borg Baskalands, og í kvöld hefur verið boðað til útifunda í Madríd og víða um Spán til að mótmæla voða- verkunum. Aðild al-Qaeda að hryðju- verkunum ekki útilokuð Reuters HLÚÐ var að særðu fólki á braut- arteinunum við Atocha-lestarstöð- ina en þar og á tveimur öðrum lest- arstöðvum týndu um 200 manns lífi í hryðjuverkaárásunum í Madríd í gær. Þá var tala særðra komin yfir 1.400.  Að minnsta kosti 190 manns týndu lífi og um 1.400 særðust  Spánarkonungur hvetur þjóðina til að standa saman  ETA grunuð en arabískt dagblað segir al-Qaeda hafa lýst yfir ábyrgð Madrid. AP, AFP. Á vettvangi hryllingsins  Sjá fréttir á bls. 18, 19, 20 og á miðopnu „Þetta var mikið áfall“ „ÉG fékk hringingu frá Þýskalandi klukkan hálfníu, um það bil klukku- tíma eftir fyrsta tilræðið. Í síman- um var vinkona mín sem hafði heyrt fréttirnar í þýska útvarpinu. Þá fyrst kveikti ég á sjónvarpinu og áttaði mig á því hvað hafði gerst,“ segir Kristín Soffía Þorsteinsdóttir en hún fer daglega um Atocha- lestarstöðina í Madríd, þar sem 10 sprengjur sprungu í gær með skelfilegum afleiðingum. „Ég ætlaði ekki að fara af stað fyrr en klukkan tíu,“ segir hún en sprengjurnar sprungu á Atocha- stöðinni milli 7.30 og 7.55. Kristín býr í Ciudad Real, um 100 km suður af Madrid, ásamt eig- inmanni sínum, Ólafi Stefánssyni handboltakappa, og tveimur börn- um þeirra. Hún kveðst alltaf fara um Atocha-lestarstöðina, mikil um- ferð sé jafnan um þessa lestarstöð, hún tengi saman Madríd og minni borgir skammt undan höfuðborg- inni. Kristín tekur undir að það sé erf- itt að meðtaka að svona atburður skuli hafa getað átt sér stað. „Ég fer þarna um á einmitt þessum tíma,“ segir hún. „Þetta var mikið áfall.“ Og hún bætir við: „Það er smá skjálfti í manni fyrir morgundaginn að fara þessa leið í skólann.“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Kristín Soffía ásamt manni sínum, Ólafi Stefánssyni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.