Morgunblaðið - 12.03.2004, Page 2

Morgunblaðið - 12.03.2004, Page 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ HRYÐJUVERK Í MADRÍD Nærri 200 manns týndu lífi og um 1.400 manns særðust er 10 sprengj- ur sprungu á þremur lestarstöðvum í Madríd á Spáni í gærmorgun. Var í fyrstu talið, að basknesku hryðju- verkasamtökin ETA hefðu verið að verki en í gærkvöld fannst yfirgefinn bíll í Madríd með hvellhettum og ar- abískri hljóðsnældu. Þá barst arab- ísku dagblaði í London yfirlýsing, sem var sögð frá hryðjuverka- samtökunum al-Qaeda, þar sem þau lýstu ábyrgðinni á hendur sér. Vilja spænsk yfirvöld nú ekkert útiloka en segja, að enn liggi ETA undir grun. Mikil reiði ríkir á Spáni vegna ódæð- anna og hefur kosningabaráttunni í landinu verið aflýst en þó búist við, að Spánverjar gangi til kosninga á sunnudag. Tveir játa í l íkfundarmáli Tveir sakborninga í líkfundarmál- inu í Neskaupstað hafa játað aðild sína að málinu, samkvæmt öruggum heimildum Morgunblaðsins. Einn þremenninganna játaði fyrstur og annar játaði nokkru seinna. Þriðji sakborningurinn neitar aðild að mál- inu. Loðnufarminn má losa í sjó Umhverfisráðuneytið heimilaði í gær Samherja, útgerðarfélagi Bald- vins Þorsteinssonar EA 10, að losa loðnufarm skipsins í sjóinn ef á þyrfti að halda við björgun þess af strandstað í Skálarfjöru. Hugs- anlegt er að einnig þurfi að losa hluta olíufarms skipsins í sjó. Björgun skipsins var ekki reynd í gær, en er fyrirhuguð í kvöld. Tryggingafélög borga ekki Rannsókn Samkeppnisstofnunar á meintu samráði Trygginga- miðstöðvarinnar, Sjóvár-Almennra trygginga hf. og VÍS, mun sam- kvæmt heimildum ljúka með nið- urstöðu sem ekki felur í sér sekt- argreiðslu. Rannsóknin hefur staðið í rúm sex ár. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Umræðan 37/39 Viðskipti 12/16 Minningar 40/45 Úr verinu 16/17 Skák 48 Erlent 18/21 Kirkjustarf 48 Minn staður 22 Bréf 50 Höfuðborgin 23 Myndasögur 50 Akureyri 24 Dagbók 52/53 Suðurnes 25 Staksteinar 52 Austurland 26 Brids 53 Landið 27 Íþróttir 54/55 Daglegt líf 28/29 Leikhús 56 Listir 30/36 Fólk 57/61 Forystugrein 32 Bíó 58/61 Þjónusta 35 Ljósvakamiðlar 62 Viðhorf 36 Veður 63 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport- @mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is  Bræðurnir Þórólfur og Árni Páll Árnasynir  Doktor Eyþór Eyjólfsson  Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn  Leiklistin  Beðmál í rútunni  George Michael  Óháð kvikmyndagerð Á SUNNUDAGINN BRÆÐUR ÁRNI PÁLL OG ÞÓRÓLFUR Sunnudagur 14.03.04 „ÞAÐ ER GAMAN AÐ BÚA TIL PENINGA EN RAUNVERULEG VERÐMÆTI ERU MINNINGAR,“ SEGIR EYÞÓR EYJÓLFSSON HÆSTIRÉTTUR hnekkti í gær dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 24. apríl 2002 og sýknaði íslenska ríkið af bótakröfu foreldra sex ára gamallar stúlku vegna meintra mis- taka lækna við fæðingu stúlkunnar. Töldu foreldrarnir að meint mistök hefðu leitt til þess að stúlkan varð fyrir umtalsverðum heilaskemmdum og hlaut 100% varanlega örorku og miska. Héraðsdómur taldi í dómi sínum að ríkið væri bótaskylt og dæmdi stúlkunni 28,5 milljóna króna bætur. Stúlkan fæddist á kvennadeild Landspítalans 5. mars 1998 og var fæðingunni lokið með bráðakeisara- skurði. Við skoðun kom í ljós íferð í lunga og var stúlkan því sett í hita- kassa og gefið súrefni og sett á sýklalyf. Þræddir voru æðaleggir í naflabláæð og naflaslagæð til að fylgjast með sýrustigi, súrefnisinni- haldi og koltvísýringsinnihaldi slag- æðablóðs og blóðþrýstingi. Í ljós kom að sá æðaleggur sem þræddur hafði verið í naflaslagæðina lá inn í meginslagæðina en til móts við brjósthryggjarlið sveigði hann til baka í U-beygju, þannig að endi hans lá til móts við efri hluta lendar- hryggjarliðs. Ákvörðun var tekin um að láta æðalegginn liggja, fyrst um sinn, þar sem í því væri fólgin minni áhætta en í því að færa hann. Höfð í öndunarvél í u.þ.b. eina viku Fjögurra daga gömul veiktist stúlkan hastarlega með krömpum auk einkenna nýrnabilunar og sýndi merki um lélegt blóðflæði og hækk- andi blóðþrýsting. Fór hún til með- ferðar hjá nýrnasérfræðingi og var sett í öndunarvél í um það bil viku þar til henni fór að batna. Þriggja vikna gömul fékk hún gallblöðru- bólgu og var gallblaðran fjarlægð með skurðaðgerð. Rannsóknir sýndu að stúlkan hafði orðið fyrir umtalsverðum heila- skemmdum og var henni vegna þessa metin 100% varanleg örorka og miski. Var í málinu krafist bóta úr hendi ríkisins á þeirri forsendu að líkamstjón stúlkunnar stafaði af mis- tökum starfsmanna Landspítalans við fæðingu hennar og eftirfarandi læknismeðferð. Hæstiréttur komst að þeirri nið- urstöðu, að skemmdir sem komið hefðu fram á heila stúlkunnar sam- ræmdust því að hún hefði orðið fyrir súrefnisskorti en stöfuðu ekki af blóðtappa þeim og háþrýstingi sem hún hefði fengið á fimmta degi eftir fæðingu. Sterkar líkur töldust leidd- ar að því að hún hefði orðið fyrir súr- efnisskorti fyrir fæðingu. Var því ekki talið að orsakasamband væri á milli legu slagæðaleggjarins og heilaskemmda stúlkunnar. Hefði því ekki verið sýnt fram á að tjón stúlk- unnar mætti rekja til mistaka starfs- fólks Landspítalans og var ríkið sýknað af skaðabótakröfu í málinu. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Gunnlaugur Claessen, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Hrafn Bragason og Ingibjörg Bene- diktsdóttir. Guðrún Margrét Árnadóttir hrl. flutti málið fyrir ríkið og Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. fyrir stúlkuna. Hæstiréttur hnekkir dómi héraðsdóms um 28,5 milljóna kr. skaðabætur vegna meintra læknamistaka Mistök starfsfólks spítalans ekki sönnuð ÞAÐ ER venja á hverjum vetri að halda árlegan náttfatadag í Leik- skólanum Undralandi á Flúðum. Þessi sérstaki klæðaburðardagur var haldinn nýlega. Klæðast börnin þá náttfötum sínum til tilbreyt- ingar, léku og sprelluðu auk þess að gera föndrið sitt. Nú eru um 90 börn í hinum nýja leikskóla, leik- skólastjóri er Bettý Grétarsdóttir. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Það er tilbreyting að vera aðeins klæddur náttfötum í leikskólanum. Náttfatadagurinn Hrunamannhreppi. Morgunblaðið. HÆTT hefur verið við þriggja daga skemmtiferð tvö hundruð manna hóps til Madrídar um helgina á veg- um ferðaskrifstofanna Úrvals-Út- sýnar og Plúsferða. Þessi ákvörðun var tekin í ljósi atburðanna í Madr- íd. Að sögn Helga Eysteinssonar, sölu- og markaðsstjóra Úrvals-Út- sýnar, voru málin metin svo að ekki kæmi til greina að sinni að fara í skemmtiferð til Madrídar. Við- skiptavinir fá ferð sína endur- greidda að fullu. „Okkur þykir með öllu óviðeig- andi að fara í skemmtiferð við þess- ar aðstæður. Þetta getur ekki verið skemmtilegt fyrir nokkurn mann. Það er skipulögð önnur ferð í apríl og enn sem komið er hafa ekki ver- ið gerðar neinar breytingar á þeim áætlunum,“ segir Helgi. Laufey Jóhannsdóttir, fram- kvæmdastjóri Plúsferða, segir ferð- inni hafa verið aflýst, þar sem möguleikar á henni séu að engu orðnir í ljósi ástandsins. Madrídar- ferðum aflýst ÓLAFUR Örn Haraldsson, fyrrver- andi alþingismaður, var kjörinn for- seti Ferðafélags Íslands á fundi fé- lagsins í gærkvöld. Ólafur Örn var sjálfkjör- inn í embættið. Haukur Jó- hannesson, sem hefur gegnt emb- ætti forseta síð- ustu sjö ár, hefur setið í stjórn fé- lagsins í níu ár samfleytt og læt- ur af embætti vegna útskiptareglu sem Ferðafélagið hefur, sem kveður svo á að menn geti ekki setið lengur en níu ár samfleytt í stjórn félagsins. Haukur sagði í gær að staða Ferðafélagsins væri sterk, bæði fjár- hagslega og hvað eignir varðar. Alls eru skráðir félagar í FÍ 7.000 talsins. Ólafur Örn forseti FÍ Ólafur Örn Haraldsson ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.