Morgunblaðið - 12.03.2004, Page 6

Morgunblaðið - 12.03.2004, Page 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ edda.is Úr rústum Njálsbrennu Æsispennandi, íslensk teiknimyndasaga byggð á lokaþætti Njáls sögu. Hér lifna þekktar persónur við á glænýjan hátt og þúsund ára gömul átök eru færð í mál og myndir nýrra tíma. DÆMI eru um að yfirlagnir á ein- stökum deildum Landspítala – há- skólasjúkrahúss, þ.e. þegar fleiri sjúkrarúm eru á deild en gert er ráð fyrir, hafi valdið því að rúmum hafi verið komið fyrir við neyðarútganga og brunatæki. Í grein um hringborðs- umræður um mistök í heilbrigðis- þjónustu í nýjasta hefti tímarits hjúkrunarfræðinga kemur fram að dæmi séu um að vaktmenn á tveimur deildum á lyflækningasviði hafi beðið deildarstjóra um að koma hlutunum í lag þar sem von væri á heimsókn frá Vinnueftirlitinu. „Ég veit að einn deildarstjórinn neitaði því. Það má því spyrja, hvaðan fengu vaktmenn fyrirmæli um að koma hlutunum í sæmilegt lag áður en Vinnueftirlitið kæmi?“ spyr Lovísa Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild við Hringbraut og einn þátttakandi í hringborðsumræð- unum. Meðal annarra þátttakenda voru fulltrúar frá Landlæknisemb- ættinu, Vinnueftirlitinu og Félagi ís- lenskra hjúkrunarfræðinga. Fram kemur að ungir nýútskrifað- ir hjúkrunarfræðingar séu oft settir á næturvaktir á erfiðar deildir án þess að gera sér alltaf grein fyrir ábyrgð- inni sem því fylgir. „[Þeir] hafa kannski ekki næga reynslu til að meta hvað ástandið er alvarlegt og taka það oft sem traust og heiður að láta setja sig í vandasöm og ábyrgð- armikil verk eins og að vera einar á næturvakt eða taka marga sjúklinga. En þetta er mjög alvarlegt mál, ekki bara fyrir sjúklinga heldur líka fyrir starfsfólkið,“ segir Lovísa. „Það hefur verið þannig hingað til og við vitum dæmi um að fólk hefur hreinlega misst æruna og sína sálar- heill vegna þess að því hefur verið stillt upp við vegg og sagt: „Þú barst ábyrgð á dauða þessa einstaklings,“ þegar í rauninni var hægt að benda á röð óheppilegra atvika í skipulagi þjónustunnar sem leiddu endanlega til mistakanna. Ég hef áhyggjur af því að hjúkrunarfræðingar séu settir í aðstöðu sem þeir ráða ekki við og það er kraftaverk að þeir geri ekki fleiri mistök en raun ber vitni,“ segir hún. Fram kemur í greininni að mistök í heilbrigðisþjónustu hér á landi séu af mörgum talin vanmetin og mjög illa skráð og m.a. sé reynsla af atvika- skráningu á LSH sú að lítið brot af óhöppum og mistökum sé skráð nið- ur. Sjúkrarúm sett við neyðar- útganga og brunatæki „LOÐNUVERTÍÐIN er öflug innspýting í samfélagið og þýðir auknar tekjur fyrir sveitarfélag- ið,“ segir Steinþór Pétursson, sveitarstjóri Búðahrepps í Fá- skrúðsfirði. Loðnuvinnslan hf. á Fáskrúðsfirði hefur tekið á móti rúmlega 25 þúsund tonnum af loðnu á vertíðinni. „Hér hefur fólk unnið myrkranna á milli við loðnufrystingu og núna hrogna- vinnslu og það hefur vantað fólk í vinnu frekar en hitt. Þetta er vit- anlega mikil sprauta fyrir sveit- arfélagið og skilar sér í auknum útsvarstekjum. Eins nýtur hafn- arsjóður góðs af vertíðinni með auknum hafnargjöldum, afla- gjöldum og vörugjöldum. Stemningin er góð og allir til- búnir að einhenda sér í vinnu tímabundið, enda er loðnu- vertíðin eina eiginlega vertíðin sem eftir er og minnir á gamla tíma. Það má því segja að nú séu margir hér á Fáskrúðsfirði þreyttir en ánægðir því vitanlega hefur pyngjan hjá mörgum þyngst eilítið eftir þessa törn,“ segir Steinþór. Innspýting í samfélagið ÚTFLUTNINGSVERÐMÆTI loðnuafurða á vertíðinni, sem nú sér fyrir endann á, gæti numið hátt í 9 milljörðum króna. Enn er um þriðjungur loðnukvótans óveiddur og litlar líkur á að hann klárist á þessari vertíð. Ætla má að nú þegar sé búið að frysta um 40 þúsund tonn af loðnu fyrir Rússlandsmarkað á vertíðinni, meira en nokkru sinni fyrr, og að út- flutningsverðmæti hennar sé tæpir 1,2 milljarðar króna. Þá mun nú búið að frysta um 8 þúsund tonn af loðnu í landinu fyrir Japansmarkað. Það er mun meira en á síðustu vertíð, þegar fryst voru tæp 2.500 tonn en mest varð Japansfrystingin hér á landi árið 1998 þegar alls voru fryst rúm 22 þús- und tonn. Japansfrystingin hefur verið nokkuð minni nú en vonir stóðu til, þar sem loðnan þykir smá og því hefur stærsti hluti framleiðslunnar far- ið í ódýrari afurðaflokka. Engu að síður má ætla að útflutningsverðmæti Japansloðnunnar sé á bilinu 400 til 500 milljónir króna. Frystingu Jap- ansloðnu hefur verið hætt á þessari vertíð en enn er verið að frysta loðnu á Rússlandsmarkað en í litlum mæli þó. Miðað við að nú sé búið að bræða um 450 þúsund tonn af loðnu á vertíðinni má gera ráð fyrir að búið sé að framleiða um nærri 80 þúsund tonn af mjöli á vertíðinni. Varlega áætlað nemur útflutningsverð- mæti þeirra um 4 milljörð- um króna. Lýsisfram- leiðslan gæti hins vegar verið um 27 þúsund tonn á vertíðinni og verðmæti þeirra um 1,2 milljarðar króna. Framleiðsla á loðnuhrognum gengur vel Framleiðsla á loðnuhrognum hefur gengið vel á vertíðinni og er enn í fullum gangi, þó að vinnsla hafi legið niðri víðast hvar í gær vegna brælu á loðnumiðunum. Ekki er ljóst hversu mikið hefur verið framleitt af hrognum það sem af er en gert var ráð fyrir að framleiðslan gæti orðið 8 til 9 þús- und tonn. Takist það gæti útflutningsverðmæti hrognanna numið 1,5 milljörðum króna. Afli loðnuskipanna á yfirstandandi vertíð er nú orðinn 498 þúsund tonn, samkvæmt upplýsingum Fiskistofu, og eru þá rúm 239 tonn eftir af kvóta ársins. Ljóst er að nú eru fáir dagar eftir af loðnu- vertíðinni og má gera ráð fyrir að veiðum verði að mestu hætt undir lok þessa mánaðar. Á síðustu vertíð voru veidd tæp 764 þúsund tonn af loðnu og var veiðum þá hætt í lok marsmánaðar, enda kvót- inn uppurinn. Það má mikið vera ef tekst að veiða allan loðnu- kvótann á yfirstandandi vertíð. Afkastastageta fiskimjölsverksmiðjanna í landinu er um 17 þús- und tonn á sólarhring og þær yrðu tvær heilar vik- ur að bræða það sem eftir er af kvótanum. Ef það á að takast verður að fara saman mjög góð veiði og hagstætt tíðarfar. Farið að síga á seinni hluta loðnuvertíðar og þriðjungur kvótans óveiddur Verðmæti afurða 9 milljarðar                    ENN sér ekki fyrir endann á sunn- anbrælunni sem skall á aðfaranótt sunnudagsins og hefur hún þegar haft mikil áhrif á veiðar við Suður- ströndina. Á það ekki síst við loðnuna þar sem hver dagur er dýrmætur. Þess sér merki í Vestmannaeyjum því þar liggur stærsti hluti loðnuflot- ans í höfn og nokkur skip liggja í vari undir Eiðinu. Auk þess eru vertíðar- bátar við bryggju. Það eru mörg ár síðan jafnmörg skip hafa sést í höfn- inni í Eyjum og minnir á gömlu dag- ana þegar höfnin var á stundum full af skipum alls staðar að af á landinu. Þetta er engin óskastaða fyrir loðnusjómenn, að liggja í höfn nú þegar hver dagur er dýrmætur og hætt við að mikil verðmæti fari í súg- inn takist ekki að ná loðnukvótanum. Ekki bætir úr að nú stendur taka loðnuhrogna sem hæst en góður markaður er fyrir fryst loðnuhrogn í Japan. Morgunblaðið/Sigurgeir Loðnuflotinn í vari við Vestmannaeyjar Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. ÓLAFUR Jóhann Ólafsson hefur undirritað samning við hið þekkta breska bókaforlag Faber & Faber um útgáfu á skáldsögunni Höll minning- anna. Bókin kemur út nú í sumar þar í landi en áður hefur forlagið gefið út Slóð fiðrildanna eftir Ólaf Jó- hann. Meðal ann- arra höfunda á útgáfulista Fab- er & Faber eru Kazuo Ishiguro, Milan Kundera, Paul Auster og DBC Pierre sem hlaut hin virtu Booker-verðlaun fyrir skemmstu. Höll minninganna kom fyrst út í Bandaríkjunum utan Íslands þar sem viðtökur hafa verið á eina lund. Þá hefur sagan einnig komið út á Ítalíu og er nú væntanleg í Hollandi innan skamms. Samningaviðræður standa yfir við bókaútgáfur í mörg- um löndum um verkið. Ólafur Jóhann semur við Faber & Faber Höll minning- anna kemur út í Bretlandi Ólafur Jóhann Ólafsson AFKOMA sérhæfðra sauðfjárbúa batnaði á árinu 2002 í samanburði við árið 2001. Þetta kemur fram í árs- skýrslu Hagþjónustu landbúnaðarins um afkomu búgreina í landbúnaði. Ekki liggur fyrir uppgjör vegna árs- ins 2003, en það ár var sauðfjárrækt- inni erfitt vegna lækkunar á verði kjöts og hærri útflutningsskyldu. Í skýrslunni kemur fram að hagn- aður sauðfjárbúa árið 2002 fyrir laun eiganda nam 979 þúsund krónum samanborið við 825 þúsund krónur árið 2001. Tölurnar byggjast á upp- gjöri 50 sauðfjárbúa, en innlegg þeirra nemur um 4,8% af innlögðu kjöti. Heildartekjur meðalbús námu 3,6 milljónum, þar af 3,4 milljónir vegna sauðfjárframleiðslu. Skuldir meðalbús námu 4,1 milljón krónum og jukust um 131 þúsund milli ára. Í skýrslunni segir að afkoma kúa- búa hafi verið sú sama árið 2002 og árið 2001. Hagnaður búanna fyrir laun eigenda nam 1.981 þúsund krón- um. Heildartekjur meðalbús námu 12,4 milljónum og jukust um 1,8 millj- ónir milli ára. Greiðslumark var 145.806 lítrar og jókst um 11,5% milli ára. Meðalbú skuldaði í árslok 2002 um 20,8 milljónum króna og jukust skuldir um 2,5 milljónir milli ára. Afkoma sauðfjárbúa batnaði 2002 ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.