Morgunblaðið - 12.03.2004, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 11
SJÁLFSEIGNARSTOFNUN um
frumkvöðlafræðslu á Íslandi var
stofnuð formlega á fundi á Hótel
Sögu í gær. Hlutverk hennar er að
efla frumkvöðlafræðslu, en að sögn
aðstandenda sjálfseignarstofnunar-
innar getur slíkt nám til lengri tíma
stuðlað að bættri samkeppnishæfni
þjóða og til skemmri tíma haft já-
kvæð áhrif á vinnumarkaðinn. Einn-
ig er að þeirra mati hér um að ræða
leið til að vinna gegn atgervisflótta,
hvort sem litið er til einstakra
byggðarlaga eða landsins í heild.
Stofnunin mun verða staðsett á Ný-
heimum í Hornafirði.
Að sjálfseignarstofnuninni standa
meðal annarra Byggðastofnun, Ný-
sköpunarsjóður atvinnulífsins,
Framleiðnisjóður Landbúnaðarins,
Íslandsbanki hf., Atvinnuþróunar-
sjóður Austurlands og Framhalds-
skólinn í Austur-Skaftafellssýslu, en
þessir stofnaðilar undirrituðu með
sér stofnsamning í lok fundarins.
Markmið stofnunarinnar, að sögn
Ágústs Péturssonar, verkefnisstjóra
undirbúningshóps hennar, er að
leggja lóð á vogarskálarnar til að
styrkja íslenskt atvinnulíf með efl-
ingu nýsköpunar og með því að laða
fram frumkvöðlahugsun í nemend-
um. Einnig stuðli nám í frumkvöðla-
fræðum að þróun byggða með því að
skerpa vitund ungu kynslóðarinnar
um möguleika og tækifæri í heima-
byggð. Með læsi á fjármál og með-
ferð peninga aukist einnig sam-
keppnisfærni og sjálfstraust
nemenda og löngun þeirra til að fara
í framhaldsnám til að tileinka sér þá
þekkingu sem þeir þurfa.
Þær leiðir sem farnar verða felast
í fyrsta lagi í því að tryggja að fyrir
hendi sé besta fáanlega námsefnið til
kennslu í grunnskólum og fram-
haldsskólum auk námsefnis sem
hentar utan hefðbundins skólakerf-
is.
Í öðru lagi er stefnt á að þjónusta
vel kennara, því bæði skólastjórn-
endur og nemendur hafa áhuga á ný-
sköpunarkennslu, en Ágúst segir að
mögulega geti slík fræðsla strandað
á því að kennarar njóti ónógs stuðn-
ings. Stofnunin mun því standa fyrir
námskeiðahaldi og hvatningu fyrir
kennara, þróun sérhannaðra náms-
brauta og ýmiss konar ráðgjöf.
Í þriðja lagi verður byggt upp
víðtækt tengslanet hagsmunaaðila.
Verkefnið er unnið í samstarfi við
leiðandi bandaríska aðila á sviði
frumkvöðlafræðslu, „The National
Foundation for Teaching Entre-
preneurship“, sem hefur lengi staðið
að þróun frumkvöðlafræðslu í heim-
inum.
Stofnun um
eflingu frum-
kvöðlafræðslu
Morgunblaðið/Golli
G. Ágúst Pétursson, verkefnisstjóri undirbúningshóps sjálfseignarstofn-
unarinnar, útskýrði helstu hliðar verkefnisins.
Þrír nýir
kjörnir
í stjórn
Bændasam-
takanna
NÝ stjórn Bændasamtaka Íslands
var kosin á búnaðarþingi, en þinginu
lauk í gær. Þrír nýir komu inn í
stjórnina, en hana skipa sjö menn.
Stjórnina skipa Gunnar Sæ-
mundsson, bóndi Hrútatungu í
Hrútafirði, Guðmundur Jónsson,
bóndi Reykjum í Mosfellssveit, Sig-
ríður Bragadóttir, bóndi Síreksstöð-
um í Vopnafirði, Sveinn Ingvarsson,
bóndi Reykjahlíð á Skeiðum, Jó-
hannes Sigfússon, bóndi Gunnars-
stöðum í Þingeyjarsýslu og Sigur-
bjartur Pálsson, bóndi Skarði í
Rangárvallarsýslu. Auk þess situr
Haraldur Benediktsson, bóndi
Vestri-Reyni í Borgarfjarðarsýslu í
stjórninni en hann var kjörinn nýr
formaður samtakanna fyrr í vik-
unni.
Haraldur, Jóhannes og Sigur-
bjartur eru nýir í stjórninni.
Ari Teitsson, fyrrverandi formað-
ur Bændasamtakanna, Eggert Páls-
son, bóndi Kirkjulæk í Fljótshlíð og
Guðmundur Grétar Guðmundsson,
bóndi Kirkjubóli í Dýrafirði, gáfu
ekki kost á sér til endurkjörs.
Talsverð átök urðu á búnaðar-
þingi um stjórnarkjörið og var því
ítrekað frestað meðan unnið var að
því að ná sátt milli þingfulltrúa. Til-
laga uppstillingarnefndar var á end-
anum samþykkt samhljóða.
Ísland
kynnt
í Kína
SENDIRÁÐ Íslands í Peking hefur
hafið markvissa kynningu á Íslandi
sem áfangastað fyrir kínverska
ferðamenn í samstarfi við aðila á
borð við Flugleiðir og Ferðamálaráð
Íslands. Utanríkisráðuneytið segir,
að forsenda kynningarinnar sé vænt-
anlegur svonefndur ADS-samningur
milli Íslands og Kína um ferðamál
sem verði undirritaður á næstu vik-
um. Samningurinn gerir Kínverjum
kleift að ferðast til Íslands í skipu-
lögðum hópum.
Magnús Bjarnason, sem starfar í
sendiráðinu í Kína, og Steinn Lár-
usson, fulltrúi Flugleiða, tóku í febr-
úar þátt í samnorrænni ferðamála-
kynningu í Peking, Shanghæ og
Guangzhou. Á kynningunni voru
Norðurlöndin kynnt sem ákjósan-
legir áfangastaðir fyrir vaxandi
fjölda Kínverja sem kýs að ferðast
utanlands. Ferðamálakynningin var
fyrsta formlega kynningin á Íslandi
innan ferðaþjónustunnar í Kína.
Ferðamannastraumur
frá Kína eykst stöðugt
Í vefriti utanríkisráðuneytisins
segir, að fjöldi kínverskra ferða-
manna í utanlandsferðum sé enn
mjög lítill miðað við íbúafjölda. Á síð-
asta ári voru kínverskir ferðamenn,
sem ferðast utanlands, undir einu
prósenti af fólksfjölda í Kína. Búist
sé við að það breytist í ár þegar fjöldi
kínverskra ferðamanna erlendis
verði meiri en 20 milljónir. Mikil-
vægt sé þó að líta til þess að ferða-
mannastraumur frá Kína aukist
stöðugt ár frá ári og sé sá vöxtur tal-
inn vera á bilinu 15–25%. Vöxturinn
helst í hendur við stækkandi mið-
stétt og bættan efnahag almennings
í Kína. Þannig hefur kínverskum
ferðamönnum fjölgað úr 9,1 milljón á
árinu 1999 í 15,8 milljónir á árinu
2002.
Sendiráð Íslands í Peking hefur
látið prenta kynningarefni um Ís-
land á kínversku og opnar á næst-
unni vefsíðu með upplýsingum um
Ísland fyrir kínverska ferðamenn.
ÓMAR Jóhannsson,
revíuhöfundur og
sagnamaður af Suður-
nesjum, lést á heimili
sínu í Reykjavík þann
10. mars síðastliðinn, á
53. aldursári.
Ómar fæddist á
Seyðisfirði 31. desem-
ber 1951, en flutti í
Garðinn á Suðurnesj-
um þegar hann var níu
ára og bjó á Suðurnesj-
um þar til fyrir tólf ár-
um. Foreldrar hans
voru Jóhann Jónsson
kennari og Anna Birna Björnsdóttir
húsmóðir.
Ómar samdi revíurnar Fréttaveita
Suðurnesja, Sameinaðir stöndum
vér...(sundraðir), Við kynntumst
fyrst í Keflavík og Í bænum okkar er
best að vera, auk gamanleikjanna
Helgin framundan – í beinni útsend-
ingu og Sautjánda júní. Einnig liggja
eftir hann ljóð, ýmsar vísur og smá-
sögur. Ómar var um tíma fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbs Suður-
nesja. Þá var hann
virkur með Knatt-
spyrnufélaginu Víði í
Garðinum og var heið-
ursfélagi Kvenfélags-
ins Gefnar.
Hann starfaði einnig
í fiski, Verslunarbank-
anum í Keflavík, TréX
og Fríhöfninni í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar.
Þá rak hann um tíma
myndbandaleigurnar
Heimabíó og Bónusví-
deó í Funalind. Ómar
varð fyrstur til að vinna
eina milljón króna í þættinum Viltu
vinna milljón á Stöð 2, árið 2001.
Ómar lést af völdum krabbameins
og voru styrktar- og heiðurstón-
leikar haldnir fyrir hann í Stapanum
í Keflavík þann 12. febrúar síðastlið-
inn, þar sem vel á fimmta hundrað
manns mætti til að heiðra hann.
Ómar var kvæntur Guðnýju Reyn-
isdóttur og lætur eftir sig tvö börn.
Áður var hann kvæntur Ingu Stef-
ánsdóttur bankastarfsmanni.
Andlát
ÓMAR
JÓHANNSSON
♦♦♦
KVENNASVIÐ Landspítala – há-
skólasjúkrahúss mun opna allar
deildir sviðsins fyrir almenningi á
laugardag milli 13-15. Er þetta lið-
ur í viðleitni yfirstjórnar sjúkra-
hússins að veita almenningi innsýn
í starfsemi spítalans en fyrir
nokkru var bæklunardeild LSH
kynnt í sama tilgangi. Til stendur
að opna fleiri svið spítalans fyrir
almenning á næstunni.
Kviðsjáraðgerðum
fjölgað jafnt og þétt
„Fólk getur komið og skoðað
deildirnar okkar en ætlunin er að
allir deildarstjórar og yfirlæknar
verði á staðnum og gefi upplýs-
ingar um starfsemina. Þá verða
sýnd á nokkrum deildum mynd-
bönd, m.a. um sónarskoðun,
brjóstagjöf og smásjárglasa-
frjóvgun,“ segir Margrét Hall-
grímsson, sviðsstjóri kvennasviðs
LSH.
Einnig verður sýnt á skurðstofu
myndband af kviðsjáraðgerð en
slíkum aðgerðum hefur fjölgað
jafnt og þétt í kvenlækningum að
undanförnu, m.a. í tengslum við
legnám. Inngrip við slíkar aðgerðir
er mun minna en við hefðbundnar
aðgerðir og konur eru frá vinnu
mun skemur.
Um 160 stöðugildi eru á kvenna-
sviði og er um einum milljarði
króna varið til rekstursins á ári.
Síðustu ár hefur fjöldi fæðinga ver-
ið á bilinu 2.800 - 2.900 á ári. Keis-
aratíðni hefur aukist, hún var í
fyrra 21% en árið á undan 18,5%
allra fæðinga á LSH.
Að sögn Margrétar er tilhneig-
ingin sú sama í löndunum í kring
en ástæðurnar eru m.a. raktar til
þess að konur eiga börn síðar á æv-
inni.
Fleiri konur með gjafaegg
Yfir 60% allra kvenna sem fæða
á kvennasviði LSH eru útskrifaðar
innan næsta sólarhrings frá fæð-
ingu. Áður var mjög algengt að
sængurlegan væri hátt í fimm dag-
ar. „Við höfum breytt einni deild-
inni í fjölskyldudeild þar sem feður
eða nánasti aðstandandi getur ver-
ið með konunni þennan fyrsta sól-
arhring þannig að tengslamyndun
beggja foreldra getur hafist strax
eftir fæðingu. Þessi aðstaða hefur
fengið góð viðbrögð og er vel nýtt.“
Um 300 tæknifrjóvgunarmeð-
ferðir fara fram á kvennasviði á ári
og hefur fjöldinn staðið nokkuð í
stað á síðustu árum. Þá hefur auk-
ist að konur gangi með gjafaegg;
þ.e. egg úr annarri konu sem í til-
vikum er frjóvgað með sæði manns-
ins eða jafnvel sæði annars manns.
Kvennasvið Landspítala –
háskólasjúkrahúss
Morgunblaðið/Ásdís
Sviðsstjórarnir Jón Hilmar Alfreðsson yfirlæknir og Margrét Hallgrímsson,
yfirljósmóðir á kvennasviði Landspítala – háskólasjúkrahúss, taka á móti
gestum og gangandi á kvennasviði LSH á laugardag milli 13–15.
Verður opið almenn-
ingi á laugardag
BORGARYFIRVÖLD hyggjast
ekki mæta fulltrúum Höfuðborgar-
samtakanna og Samtaka um betri
byggð á opnum fundi um færslu
Hringbrautarinnar nema fulltrúar
samtakanna komi fram með spurn-
ingar sem ekki hefur verið svarað.
Þetta segir Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir, formaður Skipulags- og
byggingarnefndar, að hafi komið
fram í bréfi Þórólfs Árnasonar borg-
arstjóra til samtakanna, og segir hún
ekkert hafa breyst síðan það bréf var
sent.
Fulltrúar Höfuðborgarsamtak-
anna og Samtaka um betri byggð
hafa skorað á borgaryfirvöld að
mæta þeim á opnum fundi. Þeir
segja í bréfi til meirihlutans í borg-
arstjórn að fulltrúar borgarinnar
sem sátu fund um málið 29. febrúar
sl. hafi ekki „svarað neinu af því sem
mestu máli skiptir í þessu þungvæga
skipulagsmáli, spurningum sem lúta
að sjálfu umboði hinna kjörnu full-
trúa“.
Borgarfulltrúar erlendis
„Það var haldinn fundur um málið
þar sem fulltrúar borgaryfirvalda
mættu og gerðu grein fyrir okkar
sjónarmiðum. Ef það er eitthvað til
viðbótar sem Höfuðborgarsamtökin
telja að þurfi að svara sem var ósvar-
að á þeim fundi þá mundum við
gjarnan vilja fá það fram áður en tek-
in er ákvörðun um fund,“ segir Stein-
unn.
Hún segir að tveimur vikum fyrir
fundinn hafi verið ljóst að borgar-
fulltrúar yrðu erlendis og kæmust
ekki á fundinn, og beðið hafi verið um
annan fundartíma, sem hafi verið
hafnað. Því hafi skipulagsfulltrúi og
yfirverkfræðingur á verkfræðistofu
setið fundinn fyrir þeirra hönd. Hún
segir svör þeirra hafa verið unnin í
samráði við borgarfulltrúa. Hún seg-
ir að öllum spurningum hafi verið
svarað sem fram komu á þeim fundi
en ekkert sé hægt að gera í því séu
menn ósammála svörunum efnislega.
Ekki fundað meira um
færslu Hringbrautar