Morgunblaðið - 12.03.2004, Side 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SÓKNARFÆRI Flugleiða liggja í
flugrekstri fremur en ferðaþjónustu,
þ.á m. í alþjóðlegu leiguflugi og al-
þjóðlegu fragtflugi. Þetta kom fram í
máli Hannesar Smárasonar, sem
kjörinn hefur verið stjórnarformaður
Flugleiða, á aðalfundi félagsins í gær.
„Frumþekking Flugleiða liggur í
flugrekstri og teljum við þar mikil
tækifæri til sóknar. Því er kannski
rétt að fyrirtækið einbeiti sér meira
að fluginu og ívið minna að öðrum
tengdum rekstri,“ sagði Hannes.
Áhuga nýrra eigenda á félaginu
sagði hann að mætti meðal annars
rekja til þeirra tækifæra sem liggi í
framtíð þess og þau séu fjölmörg.
„Þær breytingar sem gerðar hafa
verið á félaginu nýverið og sú staða
sem félagið er í þeirra vegna, má líta
á sem ákveðinn undirbúning fyrir
framsókn og útrás. [...] Félagið er
fjárhagslega sterkt og hefur á að
skipa góðu fólki. Það er því í höndum
nýrrar stjórnar að spila úr þeim tæki-
færum sem berast í stöðunni og nýta
krafta félagsins með áherslu á hags-
muni hluthafa.“
Hannes nefndi helstu tækifæri til
sóknar í flugrekstri. Áframhaldandi
lækkun framleiðslukostnaðar í al-
þjóðaflugi sagði hann bjóða upp á
mikla möguleika til aukins vaxtar og
arðsemi á alþjóðavettvangi, sem og í
samkeppni. Einnig hefðu Flugleiðir
mikla vaxtarmöguleika í alþjóðlegu
leiguflugi og því væri mikilvægt að ná
góðu samkomulagi við flugmenn fé-
lagsins sem ættu, eins og félagið,
mikið undir því að tækifæri á borð við
leiguflug væru nýtt. Loks væru tæki-
færi til sóknar í alþjóðlegu fragtflugi
þar sem mikil aukning væri í flutn-
ingum til og frá landinu, einkum þó í
flugfragt. Markmiðið sagði hann að
bjóða enn meiri samkeppni við aðrar
flutningaleiðir til og frá landinu, sem
og á alþjóðavettvangi.
„Fyrir utan flugrekstur eru Flug-
leiðir einnig með mikla starfsemi í
ferðaþjónustu. Með þeirri aukningu í
farþegaflutningum sem fyrirsjáanleg
er, þá er ljóst að það verður áfram-
haldandi alþjóðlegur vöxtur í þessum
hluta starfseminnar,“ sagði Hannes
Smárason.
Stefnufastara
en nokkru sinni
Hörður Sigurgestsson, fráfarandi
stjórnarformaður Flugleiða, sagði
fyrirtækið stefnufastara, betur
skipulagt og fjárhagslega öflugra en
nokkru sinni fyrr nú þegar nýir kjöl-
festufjárfestar væru komnir að starf-
seminni.
Hann sagði undanfarin tvö ár
skera sig nokkuð úr rekstrarsögu
Flugleiða enda hefði náðst betri
rekstrarárangur en nokkru sinni fyrr
og arðsemi farið fram úr væntingum.
Meginskýringar á þessum árangri
sagði hann þrjár. „Í fyrsta lagi um-
fangsmikil og fjárfrek uppbygging
félagsins og markaðssókn í mörgum
greinum flugrekstrar og ferðaþjón-
ustu á umliðnum áratug. Í öðru lagi
sá árangur sem náðst hefur í lækkun
rekstrarkostnaðar fyrirtækisins síð-
astliðin tvö ár. Í þriðja lagi sá mikli
sveigjanleiki sem tekist hefur að
byggja inn í reksturinn.“
Kostað blóð,
svita og tár
Hörður sagði stefnu félagsins og
uppbyggingu um margt ólíka því sem
gengur og gerist meðal hefðbundinna
evrópskra flugfélaga. Flugleiðir
hefðu valið sér skipulag og stjórnun-
arform sem ætlað væri að tryggja
skarpa rekstrarlega sýn í öllum þátt-
um starfseminnar og ábyrgð á af-
komu.
Þá sagði hann 75% af tekjum Flug-
leiða verða til á erlendum markaði en
ávinningur útrásar væri tvíþættur.
„Annars vegar stækkar reksturinn
og einingakostnaður lækkar, sem er
heimamarkaðnum til hagsbóta, og
hins vegar byggist upp ný atvinnu-
grein, ný stoð undir íslenskt hagkerfi.
Rekstur Flugleiða hefur sett Ísland í
þjóðbraut.“
Hörður sagði þekkingu og reynslu
í flugrekstri einnig hafa skapað
grundvöll til sóknar á nýjum sviðum
alþjóðaflugs, þ.e. í leiguflugi og frakt-
flugi. „Sú staða sem nú hefur náðst,
hefur kostað blóð, svita og tár.“
Árleg ávöxtun verði 19,5%
Fram kom í máli Harðar að heild-
arávöxtun hluthafa Flugleiða með
arðgreiðslum hefði verið 34% á árinu
og undanfarin tíu ár hafi meðalávöxt-
un fyrir hluthafa verið 20,64%.
„Langmestur hluti þessarar ávöxtun-
ar kemur fram í verðhækkun hluta-
bréfa Flugleiða sem var að jafnaði
18,34% á tímabilinu,“ sagði Hörður
og benti á til samanburðar að hækk-
un hlutabréfa sjávarútvegsfyrir-
tækja hefði á sama tímabili verið
11,4% og meðalávöxtun heildarvísi-
tölu aðallista hafi verið um 19,9%.
Markmið Flugleiða sagði hann
vera að árleg heildarávöxtun hlut-
hafa, þ.e. arður og verðhækkun
hlutabréfa, næstu fimm árin verði
19,5%. Félagið hafi sett sér að borga
út 30–40% af hagnaði eftir skatta yfir
7–10 ára tímabil. Því hafi þótt hæfi-
legt að greiða á þessu ári 30% arð af
nafnverði hlutafjár vegna ársins
2003.
Nátengdar greinar
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, sagði rekstur félagsins fjöl-
þættan. Það starfaði í áætlunarflugi,
leiguflugi, fraktflugi og innanlands-
flugi en starfrækti jafnframt flugvall-
arþjónustu og tækniþjónustu fyrir
flugvélar, ferðaheildsölur og ferða-
skrifstofur auk starfsemi í hótel-
rekstri, bílaleigurekstri og kynnis-
ferðaakstri.
„Vöxtur þessara greina er inn-
byrðis nátengdur og félagið nýtir
þennan fjölþætta rekstur í tvennum
tilgangi. Í fyrsta lagi til þess að skapa
viðunandi stærð og umfang í rekstr-
inum og í öðru lagi til að draga úr
sveiflum í tekjumyndun og afkomu,
sem óhjákvæmilega er fylgifiskur í
stærstu rekstrargreininni, alþjóða
áætlunarflugi.“ Sagði hann mestan
vöxt dótturfélaga á árinu 2003 hafi
verið í leiguflugi Loftleiða Icelandic,
eða 70%. Um 6–10% vöxtur hafi verið
hjá flestum hinna dótturfélaganna en
samdráttur hafi orðið í áætlunarflugi
Icelandair.
Standa á krossgötum
Sigurður sagði Flugleiðir standa á
krossgötum. „Undanfarin ár hefur
félagið unnið að fjárfrekri uppbygg-
ingu alþjóðaflugs og ferðaþjónustu
með Ísland sem hornstein.“ Benti
hann á að síðustu þrjú ár hefðu verið
þeim atvinnugreinum sem félagið
starfar í afar erfið, „en við þau skil-
yrði hefur Flugleiðum tekist að ná
bestu afkomu í sögu fyrirtækisins
með því að nýta sveigjanleika, stýra
framleiðslunni betur í takt við þarfir
markaðar og með því að koma á skil-
virku skipulagi.“
Sigurður sagði Flugleiðir hafa náð
betri tökum á rekstri sínum en áður
og fjárhagslegur styrkleiki hafi vax-
ið. Næsta skref væri að móta stefnu
um arðbæran vöxt til næstu ára. Þar
á meðal nefndi hann 100% aukningu
leiguflugs Loftleiða á þremur árum,
10% árlega aukningu ferðamanna-
flutninga Icelandair og 10–15% ár-
legan vöxt ferðaþjónustu hérlendis.
Stjórnarmönnum fækkað
Aðalfundur samþykkti að fækka
stjórnarmönnum úr níu í sjö. Mikil
umskipti urðu í stjórninni. Nýja
stjórn Flugleiða skipa Hannes
Smárason formaður, Benedikt
Sveinsson, Hreggviður Jónsson, Jón
Ásgeir Jóhannesson, Jón Helgi Guð-
mundsson, Pálmi Haraldsson og
Ragnhildur Geirsdóttir. Úr stjórn-
inni gengu Hörður Sigurgestsson,
Grétar B. Kristjánsson, Einar Þór
Sverrisson, Garðar Halldórsson,
Ingimundur Sigurpálsson og Jón
Ingvarsson.
Sóknarfæri Flugleiða í
leiguflugi og fragtflugi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýr maður í formannsstólinn Stjórn Flugleiða að loknum fyrsta fundi sínum í gær. Frá vinstri: Jón Helgi Guðmundsson, Benedikt Sveinsson, Pálmi Har-
aldsson, Hreggviður Jónsson, Hannes Smárason stjórnarformaður, Jón Ásgeir Jóhannesson, Sigurður Helgason forstjóri og Ragnhildur Geirsdóttir.
GRÉTAR B. Kristjánsson hef-
ur setið í stjórn Flugleiða frá
upphafi eða í 30 ár en lætur
nú af störfum í stjórninni.
Grétar sagðist í samtali við
Morgunblaðið vera ánægður
með að vera að hætta. Hann
hefði hafið störf í þessari at-
vinnugrein árið 1959 og
gengið langan veg með félag-
inu. „Þrjátíu ár eru hverjum
manni nóg. Félagið lýtur
styrkri stjórn. Búið er að
gera marga góða hluti og
möguleikarnir eru miklir.
Auðvitað verður þetta áfram
barátta, þetta hefur alltaf
verið stríð og verður það
áfram,“ sagði Grétar.
„Hefur
alltaf ver-
ið stríð“
GENGIÐ hefur verið frá kaupum
eignarhaldsfélagsins Veritas
Capital ehf. á 20% hlut Pharmaco
hf. í PharmaNor hf. Veritas Capit-
al hefur þar með eignast allt
hlutafé í PharmaNor hf.
Fram kemur í fréttatilkynningu
vegna þessara viðskipta að þau
séu í samræmi við samkomulag
sem gert var á milli Veritas Capit-
al og Pharmaco í júní 2002. Verit-
as Capital keypti þá 80% hlutafjár
í Pharmaco Ísland ehf., sem síðar
hlaut nafnið PharmaNor. Með
þessum viðskiptum lýkur afskipt-
um Pharmaco af innflutningi og
heildsölu lyfja hér á landi.
Veritas Capital er í 75% eigu fé-
lagsins Stormtrés, sem er í eigu
bræðranna Jóhanns og Hreggviðs
Jónssonar (forstjóra Pharma-
Nor), og í 25% eigu félagsins Ares,
sem Jón Helgi Guðmundsson í
Byko á.
Veritas Capital
eignast Pharma-
Nor að fullu
„ÞAÐ hefur verið ævintýri líkast að
hafa átt hlutdeild í þróun flugs og
ferðaþjónustu á Íslandi síðustu 30
árin. Oft hefur blásið á móti, en fé-
lagið hefur ávallt náð til lands. Sá
árangur sem nú hefur náðst var
ekki sjálfgefinn,“ sagði Hörður Sig-
urgestsson í síðasta sinn sem hann
flutti skýrslu stjórnar á aðalfundi
Flugleiða. „Það fylgir því viss sökn-
uður að stíga frá borði.“
Í samtali við Morgunblaðið sagð-
ist Hörður hafa verið tengdur fyr-
irtækinu með einum eða öðrum
hætti í 30 ár og það hafi verið mjög
góður tími. Hann neitar því að erf-
itt sé að láta af hendi stjórnun Flug-
leiða.
„Núna þegar nýir kjarna-
hluthafar koma að fyrirtækinu þá
er meira en tímabært að ég dragi
mig í hlé eftir að hafa setið í stjórn-
inni í 20 ár og þar af verið formað-
ur í 13 ár.“
Hörður kveður Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Hörður Sigur-
gestsson, fráfarandi stjórnarformaður Flugleiða, takast í hendur við upp-
haf aðalfundarins. Steinn Logi Björnsson og Jón Ingvarsson í baksýn.
„Ævintýri líkast“