Morgunblaðið - 12.03.2004, Side 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
BRIM fiskeldi ehf. og Hraðfrysti-
húsið Gunnvör hf. fá úthlutað
mestu af þorski til áframeldis á
þessu ári. Hvort fyrirtæki fær 100
tonn, en samtals fá 12 fyrirtæki út-
hlutað 500 tonnum. Það er sama
heildarmagn og á síðasta ári. Það
er sjávarútvegsráðherra sem út-
hlutar þessum heimildum að fengn-
um tillögum frá AvS rannsóknar-
sjóðnum.
Guðmundur Runólfsson hf. fékk
65 tonn til áframeldis, Veiðibjallan
fékk 5 tonn, Eskja hf. 30 tonn til al-
mennrar skráningar vegna föngun-
ar og vinnslu í áframeldi, Síldar-
vinnslan fékk 30 tonn til áframeldis
og rannsókna á veiðitækni og
vinnslu, Glaður ehf. fékk 5 tonn til
að kanna hringormasýkingu þorsks
í áframeldi, Brim fiskeldi ehf. fékk
100 tonn til áframeldis og rann-
sókna á áhrifum stöðugrar lýsingar
á vöxt og kynþroska, Ásfell ehf.
fékk 10 tonn til að kanna lífslíkur
þorsks eftir línu og handfæraveið-
ar, Vopn-fiskur ehf., fékk 10 tonn til
þróunar og tilrauna á notkun eld-
isgildru, Hraðfrystihúsið Gunnvör
fékk 100 tonn til áframeldis, Kví
ehf. fékk 75 tonn til tilrauna á sjó-
kvíaeldi í Klettsvík og áframeldis,
Oddi hf. fékk 10 tonn til að kanna
áhrif stærðarflokkunar á vöxt
þorsks í áframeldi og Þórsberg hf.
fékk 55 tonn til að kanna hið sama.
Eldisþorski slátrað á Grundarfirði.
Brim fiskeldi
og HG fá mest
Úthlutað til áframeldis á þorski
AFLAHEIMILDIR Húsvíkinga juk-
ust talsvert á dögunum þegar GPG
Fiskverkun ehf. festi kaup á Fisk-
iðjunni Bjargi ehf. á Bakkafirði.
Gunnlaugur Karl Hreinsson fram-
kvæmdastjóri GPG segir tilgang-
inn með þessum kaupum fyrst og
fremst vera lið í því að styrkja hrá-
efnisöflunina hér heima fyrir.
Ásamt aflaheimildum fylgdu
með í kaupunum tveir nýlegir
plastbátar með tilheyrandi búnaði.
Annar þeirra, Sjöfn NS 123 sem er
tæplega 12 brl. að stærð er í afla-
markskerfinu. Aflaheimildir henn-
ar eru alls um 257 þorskígildi, þar
af er þorskur tæp 212 tonn. Bát-
urinn hefur lagt upp afla sinn til
vinnslu hjá fiskverkuninni Gunn-
ólfi á Bakkafirði. Hinn báturinn,
Dodda NS 2, er tæpar 8 brl. að
stærð og er í krókaaflamarks-
kerfinu. Aflaheimildir Doddu sem
gerð hefur verið út frá Þorláks-
höfn undanfarin ár eru tæp 139
þorskígildi og þar af um 95 tonn af
þorski. Alls eru þetta því um 400
þorskígildi sem bætast við þær
aflaheimildir sem fyrir eru á Húsa-
vík og munar um minna.
Þetta mun vera í fyrsta skipti
sem fyrirtækið kaupir afla-
hlutdeild og báta og segir Gunn-
laugur Karl það óvíst hvernig út-
gerð bátanna verði háttað í
framtíðinni. „Ég er að skoða þessi
mál og á von á að þau skýrist fljót-
lega. Það er þó þegar ákveðið að
þeir fara báðir til grásleppuveiða í
vor, Sjöfnin frá Bakkafirði en
Dodda héðan frá Húsavík,“ sagði
Gunnlaugur Karl.
Birgir Ingvarsson, einn eigenda
Fiskiðjunnar Bjargs, segir að í
raun sé ekkert um þetta að segja.
Þeim finnist þó ekkert verra að
bátarnir verði áfram í nágrenninu.
Það séu engin vandræði í gangi og
að bátarnir verði í góðum höndum
hjá GPG.
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Sjöfn NS, annar báturinn sem GPG fiskverkun kaupir frá Bakkafirði.
GPG kaupir tvo
báta frá Bakkafirði
Húsavík. Morgunblaðið.
MAGNÚS Gunnarsson, stjórn-
arformaður Hf. Eimskipafélags Ís-
lands, mun láta af störfum sem
stjórnarformaður hjá félaginu á
aðalfundi þess föstudaginn 19.
mars nk. Magnús hyggst hverfa
aftur til starfa hjá félagi sínu
Capital sem sinnir flugtengdri
starfsemi. Magnús hóf störf hjá
Hf. Eimskipafélagi Íslands 9.
október á síðasta ári eftir að
Björgólfur Guðmundsson, formað-
ur bankaráðs Landsbanka Íslands,
og samstarfsmenn hans höfðu
eignast ráðandi hlut í Eimskip.
„Ég mun láta af störfum sem
stjórnarformaður föstudaginn 19.
mars. Þetta hefur verið umfangs-
mikið viðfangsefni. Það var sam-
komulag með okkur Björgólfi
[Guðmundssyni] þegar ég féllst á
að taka að mér þetta verkefni, að
ég skyldi fara með félagið í gegn-
um þessar breytingar. Það var
alltaf skýrt á milli okkar að ef
þetta gengi eftir
eins og áætlað var
þá myndi ég láta af
störfum þegar því
yrði lokið. Við höf-
um farið í mikla
uppstokkun á
stjórnkerfi félags-
ins, við höfum selt
út úr því miklar
eignir, m.a. sjáv-
arútvegshlutann
Brim, húseign okk-
ar í miðbæ Reykja-
víkur og fleira.
Þetta hefur allt
gengið með ágæt-
um. Í þessum söl-
um hefur myndast
verulegur hagnaður
hjá fyrirtækinu og
það er augljóst að fólk hefur mikla
trú á fyrirtækinu. Gengi bréfa fé-
lagsins hefur hækkað um 40% frá
áramótum, eiginfjárstaðan er
sterk, eiginfjárhlutfall
er um 50% og veltufjár-
hlutfall er yfir 3. Eftir
þessar breytingar
standa svo tvö feikilega
öflug fyrirtæki, Burðar-
ás sem fjárfestingarhluti
starfseminnar og skipa-
félagið Hf. Eimskipa-
félag Íslands, sem verið
hefur að styrkja sig upp
á síðkastið. Bæði þessi
fyrirtæki verða feikna-
öflug ef rétt er að staðið
í áframhaldandi þróun
þeirra á næstu árum,“
sagði Magnús Gunn-
arsson.
Spurður að því hvort
að hann yrði áfram á
hliðarlínunni ef Björg-
ólfur þyrfti á honum að halda aft-
ur sagðist Magnús alltaf vera
tilbúinn til þess að takast á við
áhugaverð verkefni.
Magnús Gunnarsson hættir sem stjórnarformaður Eimskips
Þetta hefur verið um-
fangsmikið verkefni
Hættur Magnús Gunn-
arsson fráfarandi
stjórnarformaður Eim-
skipafélagsins.
MAREL hf. hefur undirritað samn-
ing um kaup á 76% hlutafjár í Póls
hf. á Ísafirði. Í tilkynningu til Kaup-
hallar Íslands í gær segir að mark-
mið Marels með kaupunum sé að
eignast allt hlutafé Póls og mun
Marel gera öðrum hluthöfum tilboð
um kaup á þeirra hlut.
Seljendur eru fjórir stærstu hlut-
hafarnir í Póls, Ingólfur Eggertsson,
synir hans Hörður og Örn og Silfur
ehf., sem er félag í eigu Halldórs
Halldórssonar, framkvæmdastjóra
Póls. Aðrir hluthafar eru samtals 32,
en það eru fyrirtæki og einstaklingar
sem margir eru tengdir þeim feðg-
um fjölskylduböndum.
Kaupverðið er trúnaðarmál og að
hluta árangurstengt til þriggja ára.
Póls var stofnað árið 1966 og hefur
um árabil sérhæft sig í þróun og
framleiðslu voga- og pökkunar-
lausna fyrir fiskvinnslu. Í tilkynning-
unni segir að Marel hyggist ná fram
samlegðaráhrifum í innkaupum og
sölukerfi. Marel muni einnig bjóða
vörur Póls í lausnum sínum fyrir ali-
fugla- og kjötvinnslu. Húsnæði fyrir
áframhaldandi starfsemi Póls á Ísa-
firði hefur verið tryggt með leigu-
samningi.
Velta Póls var um 246 milljónir
króna á síðasta ári og eru starfs-
menn nú 32. Velta Marels-samstæð-
unnar á árinu 2003 var 108 milljónir
evra, um 9,4 milljarðar króna, og
voru starfsmenn í lok ársins 780
talsins.
Víðtækt sölukerfi
um allan heim
Halldór Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Póls, segist líta á
kaupin sem gríðarlegt tækifæri fyrir
bæði félögin og einnig fyrir Ísafjörð.
Félög sem Marel hafi komið að hafi
vaxið og dafnað og allt útlit sé fyrir
að það sama muni eiga við um Póls.
Hann segir það skipta miklu máli
fyrir Póls að komast inn í það víð-
tæka sölukerfi sem Marel hafi yfir að
ráða um allan heim. En Póls hafi vél-
ar sem séu ekki í vörulínu Marels, og
því séu kaupin beggja hagur.
Hörður Arnarson, forstjóri Mar-
els, tekur í svipaðan streng og Hall-
dór og segir að bæði félögin hagnist
á þessum viðskiptum. Vöruúrval fé-
laganna tveggja skarist ekki mikið.
Framleiðsla Póls sé góð viðbót við
framleiðslu Marels og nú verði hægt
að bjóða framleiðsluvörur Póls á
mun stærri markaði en hingað til.
Marel kaupir Póls á Ísafirði
!
"
#
!
$%&
Tækifæri fyrir Póls og Ísafjörð, segir framkvæmdastjóri Póls
GUNNLAUGUR Sævar
Gunnlaugsson, stjórnar-
formaður Tryggingamið-
stöðvarinnar hf., sagði á
aðalfundi félagsins í gær
að vonir standi til þess að
viðunandi niðurstaða náist
varðandi rannsókn Sam-
keppnisstofnunar á
meintu ólögmætu samráði
tryggingafélaganna
Tryggingamiðstöðvarinn-
ar, Sjóvár-Almennra
trygginga hf. og VÍS, sem
nú hefur staðið í rúm sex
ár. „Á síðasta sumri var
opinber umfjöllun um
innihald frumathugunar
stofnunarinnar þar sem
fram komu verulegar ásakanir á TM,
VÍS og Sjóvá og samstarf þeirra inn-
an Samtaka íslenskra trygginga-
félaga, SÍT. Félagið hefur hrakið
ásakanir stofnunar-
innar og telur álykt-
anir hennar um ólög-
mætt samráð
alrangar og ekki á
rökum reistar.
Eftir viðræður
sem forstjóri félags-
ins ásamt fram-
kvæmdastjórum
VÍS, Sjóvá og SÍT
hafa átt með fulltrú-
um Samkeppnis-
stofnunar standa nú
vonir til að ásættan-
leg niðurstaða fáist í
málinu á næstunni,“
sagði Gunnlaugur í
ræðu sinni.
Guðmundur Sigurðsson, yfirmaður
samkeppnismála Samkeppnisstofn-
unar, sagði í samtali við Morgunblað-
ið að stofnunin hefði átt í viðræðum
við forvígismenn tryggingafélaganna
og von væri á niðurstöðu í málið síðar
í þessum mánuði. Hann sagði spurð-
ur að það væri ótímabært að tjá sig
nokkuð um væntanlega niðurstöðu.
TM hyggst minnka
hlutabréfaeign sína
Gunnlaugur Sævar sagði einnig í
ræðu sinni á aðalfundinum að TM
myndi í kjölfarið á nýlegum kaupum
sínum á 12% eignarhluta í Straumi
fjárfestingarbanka minnka aðra
hlutabréfaeign sína á móti.
Á aðalfundinum var samþykkt að
greiða einn milljarð króna í arð til
hluthafa sem voru 492 um síðustu
áramót. Þá var greint frá þeirri
ákvörðun stjórnar að greiða sér-
hverjum starfsmanni í fullu starfi 150
þúsund króna kaupauka. Aðrir
starfsmenn fá kaupauka í samræmi
við starfshlutfall þeirra.
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson á aðalfundi TM
Vongóður Gunnlaugur
Sævar Gunnlaugsson.
Vonir um viðunandi
niðurstöðu í rannsókn
Samkeppnisstofnunar