Morgunblaðið - 12.03.2004, Page 18
SPRENGJUTILRÆÐIN Í MADRÍD
18 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UM tvö hundruð manns létust og
yfir tólf hundruð særðust þegar
tíu sprengjur sprungu í Madríd á
háannatíma í gærmorgun. Spænsk
stjórnvöld fullyrða að um hafi ver-
ið að ræða hryðjuverk unnið af að-
skilnaðarsamtökum Baska, ETA,
en samtökin harðneituðu því síð-
degis í gær að hafa komið þarna
nærri. Alls hafði þrettán sprengj-
um verið komið fyrir á og í grennd
við þrjár lestarstöðvar í borginni.
Þetta er mannskæðasta hryðju-
verk sem unnið hefur verið í sögu
Spánar.
„Þetta er fjöldamorð,“ sagði for-
sætisráðherra Spánar, José Maria
Aznar, og var greinilega mjög
brugðið, eftir neyðarfund ríkis-
stjórnarinnar í kjölfar hryðjuverk-
anna. Hét hann því, að þeir sem
bæru ábyrgðina yrðu fundnir og
eltir uppi. Aznar vottaði enn frem-
ur aðstandendum fórnarlamba
hryðjuverkanna samúð sína. „Ég
finn angist þeirra og kvöl sem
væri hún mín,“ sagði forsætisráð-
herrann.
Sprengjur sprungu
á þremur lestarstöðvum
Sprengjur sprungu í gærmorg-
un um klukkan 7.30 að staðartíma
(6.30 að ísl. tíma) í lest, sem geng-
ur frá útborgum inn í miðborgina,
þegar hún var að koma inn á
Atocha-stöðina, sem er í miðborg
Madrídar, og þar mætast útborg-
arlestir, lestir sem koma lengra að
og lestir í jarðlestarkerfi borgar-
innar. Sprengjur sprungu einnig í
lestum eða á brautarpöllum á
tveim stöðvum á leið útborgarlest-
arinnar til Atocha.
Innanríkisráðherrann sagði að
þrjár hefðu sprungið á Atocha-
stöðinni, fjórar „þar skammt frá“,
ein á Santa Eugenia-stöðinni og
tvær á Pozo-stöðinni. Ráðherrann
sagði enn fremur að lögreglu hefði
tekist að gera þrjár sprengjur til
viðbótar óvirkar. Sprengjurnar
hefðu sprungið með fjögurra til
fimm mínútna millibili, en yfirvöld-
um hefði ekki borist nein viðvörun
áður.
Aznar boðaði ríkisstjórnina þeg-
ar til fundar, og skelltu yfirvöld
skuldinni umsvifalaust á aðskiln-
aðarsamtökin ETA, sem hafa í
þrjátíu og sex ár haldið uppi blóð-
ugri baráttu fyrir sjálfstæði
Baskalands á Norður-Spáni. Áður
en hryðjuverkin voru unnin í gær-
morgun höfðu alls um 800 manns
fallið í valinn í sjálfstæðisbarátt-
unni. Stjórnmálaarmur samtak-
anna, Batasuna, neitaði aftur á
móti aðild að tilræðunum.
ETA hefur gert tilraun
til álíka hryðjuverks
„ETA hefur verið að reyna að
fremja fjöldamorð á Spáni,“ sagði
innanríkisráðherrann, Angel Aceb-
es, eftir að neyðarfundi ríkis-
stjórnarinnar vegna tilræðanna
var lokið, og minnti á að skammt
væri síðan tekist hefði að koma í
veg fyrir að hryðjuverk væru unn-
in í landinu. ETA hefði reynt sl.
aðfangadagskvöld að fremja
hryðjuverk svipað þeim sem fram-
in voru í gærmorgun með því að
koma fyrir sprengjum í tveimur
lestum sem voru á leið til Madr-
ídar.
Ekki er langt síðan stjórnvöld
sögðu að allur vindur væri úr
ETA, en Acebes rifjaði einnig upp,
að 29. febrúar hefði lögreglan
stöðvað sendiferðabíl á leið til
Madrídar og í honum hafi fundist
rúmlega hálft tonn af sprengiefni.
Fullyrt var að þar hafi ETA-menn
verið á ferð. „Það leikur því eng-
inn vafi á því, að hryðjuverka-
samtökin ETA hafa verið að reyna
að gera stórfellda árás. Það eina
sem var öðruvísi núna var á hvaða
lestarstöð var ráðist,“ sagði
Acebes.
AP
Slökkviliðsmenn bera lík út úr flaki lestar á Atocha-lestarstöðinni í miðborg Madrídar í gær.
! " !$ %& '
(')*
+
+','
' %(
&
)
*
+,,
Mannskæðasta
hryðjuverk
í sögu Spánar
Tíu sprengjur
sprungu í Madríd
Madríd. AP, AFP.
AP
Björgunarmenn raða líkum fórnarlamba hryðjuverkanna í gær.
TALSMENN stjórnmálaflokkanna
á Spáni sögðust í gær hafa bundið
enda á kosningabaráttuna fyrir
þingkosningarnar sem verða á
sunnudag. Þriggja daga þjóðarsorg
verður í landinu vegna hryðjuverk-
anna mannskæðu í Madrid í gær-
morgun en þá týndu um 200 manns
lífi.
Orðið „hryllingur“ var víða notað
í síðdegisútgáfum blaðanna til að
lýsa árásinni á þessa sögulegu mið-
stöð stjórnsýslu alls landsins og
stærstu borg landsins. Tilræðunum
var líkt við árásirnar á Bandaríkin
11. september 2001 þar sem um
3.000 manns dóu. „Þetta er okkar
11. september“ sagði í yfirskrift
leiðara blaðsins El Mundo.
„Madrid, hefur líkt og New
York, Jerúsalem, Bagdad og Karb-
ala fengið sinn skerf af hryðju-
verkahelförinni og frá og með þess-
um degi verður ekkert sem fyrr,“
segir meðal annars í blaðinu ABC.
Í dagblöðunum var rætt um árás-
irnar sem fjöldamorð og blóðbað og
ETA, aðskilnaðarsamtök Baska,
sögð ábyrg fyrir tilræðunum. Sú
staðreynd að kosningar eru fram-
undan á Spáni þykir styðja grun-
semdir um að ETA hafi staðið fyrir
tilræðunum.
El Mundo sagði að sprengju-
tilræðin, sem eru einhver hin blóð-
ugustu í sögu Spánar, sýndu sama
virðingarleysi fyrir mannslífum og
áður hefðu einkennt aðgerðir á
vegum ETA. ABC taldi engan mun
vera lengur á ETA og íslömskum
hryðjuverkasamtökum ef litið væri
til vinnubragða þeirra, ekki væri
hikað við að ráðast á saklausa
borgara.
Í blaðinu má greina áhrif frá við-
brögðum George W. Bush Banda-
ríkjaforseta, við árásunum á
Bandaríkin 11. september 2001,
þegar hann lýsti því strax yfir að
Bandaríkin ættu í stríði. „Þetta er
hnattrænt stríð milli lýðræðisins og
fjenda þess og þessir fjendur eru
íslömsk bókstafstrú, þjóðern-
isstefna, ný-stalínismi og gyð-
ingahatur,“ sagði blaðið.
„Þeir eru ekki Baskar“
Juan Jose Ibarretxse, forseti
héraðsstjórnar Baskalands, sagði
Baska þjást í hvert skipti sem ETA
gerði árás. Hann bað fréttamenn
að gæta sín. „Talið endilega ekki
um basknesk hryðjuverk. Það er
ETA sem fremur hryðjuverk ...
Þeir eru ekki Baskar. Þeir eru ein-
faldlega villidýr. Þeir eru bara
morðingjar.“
„Okkar
11. sept-
ember“
Madrid. AP, AFP.
Reuters
Maður sem særðist í sprengjutilræðunum borinn út af Atocha-lestarstöð-
inni. Margir hinna særðu hringdu í ástvini sína til að láta vita af sér. Fólk
var hvatt til að gefa blóð og strætisvagnar voru notaðir til sjúkraflutninga.
Beðið um blóðgjafir