Morgunblaðið - 12.03.2004, Qupperneq 19
SPRENGJUTILRÆÐIN Í MADRÍD
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 19
EVRÓPSKIR stjórnmálaleiðtogar áttu vart
nógu sterk orð til að fordæma hin mannskæðu
hryðjuverk sem áttu sér stað í Madríd í gær.
„Þetta er svívirðileg, óréttmæt og óréttlæt-
anleg árás á spænsku þjóðina og spænskt lýð-
ræði,“ sagði Pat Cox, forseti Evrópuþingsins, á
þingfundi í Strassborg. „Kosningar fara fram á
Spáni á sunnudaginn. Það sem gerðist í dag er
stríðsyfirlýsing á hendur lýðræðinu. Látum
komandi sunnudag sýna okkur að spænskt lýð-
ræði er staðráðið í því að vinna bug á hryðju-
verkaógninni,“ sagði Cox.
„Þessi glórulausu, villimannlegu óhæfuverk
hafa aftur sýnt að alþjóðasamfélagið verður að
snúa bökum saman sem aldrei fyrr í baráttunni
gegn hryðjuverkum,“ sagði Vladimír Pútín, for-
seti Rússlands, í samúðarskeyti til Jóhanns
Karls Spánarkonungs.
Í Dyflinni sagði Bertie Ahern, forsætisráð-
herra Írlands, sem fer með formennskuna í
ESB þetta misserið, að „tímasetning tilræðanna
hefði augljóslega verið hugsuð til að skapa sem
mestan glundroða ... og er ekki hægt að réttlæta
með neinum pólitískum tilgangi“.
Bretar fordæmdu einnig árásina. „Þessi
hryllilega árás undirstrikar hættuna sem við
stöndum áfram frammi fyrir í mörgum löndum
og við verðum öll að vinna saman alþjóðlega til
að verja þjóðir okkar gegn slíkum árásum, og
ráða niðurlögum hryðjuverkastarfsemi,“ sagði í
yfirlýsingu Tony Blairs forsætisráðherra.
Þýzki utanríkisráðherrann Joschka Fischer
lýsti hryllingi sínum yfir fréttunum frá Madríd.
„Þessi fyrirlitlegu hryðjuverk sem hafa kostað
svo marga lífið fylla okkur djúpri hryggð og
reiði,“ sagði Fischer í Berlín.
Danska ríkisstjórnin lýsti „dýpstu samúð með
fórnarlömbunum, aðstandendum þeirra og
spænsku þjóðinni“.
Franski forsetinn Jacques Chirac fordæmdi
„þessar hræðilegu árásir á lestakerfi Madríd-
borgar sem hafa steypt Spáni í sorg“. „Undir
þessum hryllilegu kringumstæðum lýsi ég í
mínu nafni og frönsku þjóðarinnar mínum inni-
legustu samúðaróskum,“ skrifaði Chirac í skeyti
til spænska forsætisráðherrans José Maria
Aznar.
Samstaða með Evrópuþjóðum
Rockwell Schnabel, sendiherra Bandaríkj-
anna hjá Evrópusambandinu, sagði sprengju-
árásirnar í Madríd „klígjuvekjandi“ og lagði
áherzlu á samstöðu Bandaríkjanna með Evrópu
í baráttunni gegn hryðjuverkum. Skilaði Schna-
bel samúðarkveðjum frá George W. Bush
Bandaríkjaforseta og sagði: „Í dag stöndum við
saman með öllum þjóðum Evrópu í sorg, en
einnig í einbeitni að því marki að stöðva slíka
glæpi gegn mannkyninu. Enginn málstaður get-
ur réttlætt hryðjuverk,“ sagði sendiherrann í
yfirlýsingu.
Síðar sagði bandaríski utanríkisráðherrann
Colin Powell: „Bandaríkin standa af staðfestu
með Spáni í baráttunni gegn hryðjuverkum í öll-
um birtingarmyndum og gegn hinni sértæku
ógn sem Spánn stendur frammi fyrir í illsku
hryðjuverka ETA.“ Í sínum viðbrögðum við
ótíðindunum frá spænsku höfuðborginni skor-
aði Ísraelsstjórn á „hinn frjálsa heim“ að sam-
einast andspænis hryðjuverkaógninni. „Hryðju-
verkastarfsemi er þriðja heimsstyrjöldin og
þjóðir hins frjálsa heims ættu að sameinast
gegn henni. Það sem gerðist í Madríd sannar
þetta einu sinni enn,“ sagði Raanan Gissin, tals-
maður ísraelska forsætisráðherrans Ariels
Sharon.
Jóhannes Páll II páfi kallaði árásirnar „and-
styggilegan glæp“. „Hans heilagleiki ítrekar
einarða og algjöra fordæmingu sína á slíkum
gerðum sem móðga Guð, brjóta grundvallar-
réttinn til lífs og grafa undan friðsamlegu sam-
lífi manna,“ segir í skeyti frá Páfagarði til yf-
irstjórnar kaþólsku kirkjunnar á Spáni.
Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins, sagði: „Fyrir hönd
alls bandalagsins fordæmi ég með eins afger-
andi hætti og mögulegt er þessi glórulausu verk
grimmdar og villimennsku.“
Talsmenn Írska lýðveldishersins, IRA, sem
hefur stutt baráttu basknesku aðskilnaðarsam-
takanna ETA, fordæmdu árásirnar einnig.
„Þetta eru skelfileg óhæfuverk. Þau eru röng og
þeir sem tengjast þeim ættu að hætta því,“ sagði
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, pólitísks arms
IRA, en sá flokkur er í nánum tengslum við
Herri Batasuna, pólitískan arm ETA.
„Óréttlætanleg
árás á spænskt
lýðræði“
Leiðtogar heims fordæma tilræðin einum rómi
Lundúnum, Brussel. AP, AFP.
TALSMAÐUR Batasuna, stjórn-
málaflokks baskneskra aðskilnaðar-
sinna, fordæmdi hryðjuverkin í
Madríd í gær og neitaði því að að-
skilnaðarsamtök Baska, ETA, hefðu
staðið fyrir þeim.
„Aðskilnaðarsinnaðir baskneskir
vinstrimenn geta ekki ímyndað sér að
fræðilegur möguleiki sé á því að ETA
geti staðið á bak við það sem gerðist í
Madríd,“ sagði Arnaldo Otegi, tals-
maður Batasuna. Flokknum var
bannað að taka þátt í þingkosningun-
um á Spáni á sunnudaginn kemur
vegna meintra tengsla við ETA. Þetta
er í fyrsta skipti sem Batasuna for-
dæmir tilræði sem ETA er kennt um.
Fyrir hryðjuverkin í gær höfðu
nær 850 manns beðið bana í árásum
ETA á 36 árum. Mannfallið í gær var
miklu meira en í mannskæðustu árás
ETA til þessa, en hún var gerð í
Barcelona í júní 1987. 21 lét þá lífið og
45 særðust þegar sprengja sprakk í
bifreið á bílastæði verslunarmiðstöðv-
ar í borginni.
Segir tilræðin verk „arabískra
andspyrnumanna“
„Aðskilnaðarsinnaðir baskneskir
vinstrimenn hafna algjörlega því sem
gerðist í Madríd og tilgangslausum
aðgerðum gegn saklausum borgurum
og launþegum á leið til vinnu,“ sagði
Otegi við fréttamenn í baskneska
strandbænum San Sebastian.
„Hvorki skotmörkin né aðferðin sem
beitt var benda til þess að ETA hafi
staðið á bak við þetta.“
Otegi sagði fyrr um daginn í út-
varpsviðtali að „arabískir andspyrnu-
menn“ hefðu staðið fyrir hryðjuverk-
unum og benti á að spænskir
hermenn eru enn í Írak. „Við megum
ekki gleyma því að spænska stjórnin
ber ábyrgð á stríðinu í Írak,“ sagði
hann.
Fyrir stríðið voru Spánverjar
helstu stuðningsmenn Bandaríkja-
manna og Breta í deilunni um hvort
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ætti
að heimila innrás í Írak.
Otegi sagði að ETA hefði alltaf var-
að fyrirfram við sprengjuárásum og
engin ástæða væri til að ætla að varað
hefði verið við tilræðunum í gær. Inn-
anríkisráðherra Spánar, Angel Ace-
bes, hafnaði fullyrðingum Otegis.
Ráðherrann sagði á blaðamannafundi
að „enginn vafi“ léki á því að ETA
bæri ábyrgð á tilræðunum og það
væri „svívirðilegt“ að reyna að koma
sökinni á aðra.
Einangraðist eftir
dauða Francos
Aðskilnaðarsamtökin voru stofnuð
árið 1959 þegar Francisco Franco
einræðisherra var við völd á Spáni.
Baskar sættu þá kúgun og ETA naut
talsverðrar virðingar meðal
spænskra lýðræðissinna á valdatíma
Francos.
Aðskilnaðarsamtökin einangruðust
hins vegar eftir að Franco lést 1975
þar sem þau héldu ofbeldisverkunum
áfram. Yfir 90% fórnarlamba samtak-
anna biðu bana eftir að lýðræði var
komið á.
Heimildarmenn úr röðum bask-
neskra aðskilnaðarsinna segja að 200
liðsmenn ETA hafi beðið bana frá því
að samtökin hófu vopnaða baráttu
sína í júní 1968 með því að skjóta 25
ára herlögreglumann til bana í
Baskalandi. Fimm árum síðar lét
spænski aðmírállinn Luis Carrero
Blanco lífið þegar öflug sprengja
sprakk undir bíl hans í Madríd. Hann
var leiðtogi stjórnarinnar og talinn
líklegur arftaki Francos á þeim tíma.
Auk hryðjuverksins í Barcelona,
sem kostaði 21 mann lífið, gerðu sam-
tökin meðal annars árás á veitingahús
í Madrid í september 1974 og tólf
óbreyttir borgarar létu lífið.
Samtökin reyndu að ráða José
Maria Aznar af dögum í Madríd 1995,
árið áður en hann varð forsætisráð-
herra. Sama ár voru þrír liðsmenn
ETA handteknir á Mallorca og talið
var að þeir hefðu ætlað að myrða Jó-
hann Karl Spánarkonung.
ETA lýsti yfir vopnahléi sem hófst í
september 1998 en því lauk rúmum
fjórtán mánuðum síðar.
Vísað á bug að ETA-
liðar hafi verið að verki
-
! .
!
+/(0
% 1 0
2+$
!!
%
*&
% 3!
+/(*&
&' *
" 4555
-
$
.
/
0
1
2
4
344
*
#
5
$
& 6 7
0 879
,& 0:79
#
2
$%
19
;$1<<(
21,=
366
9
. ' 9 0
1&
4
4
7
8
494
&
'
# >
?
*
@ @
&
4
4
4
:
4:
Madríd. AFP.
’Yfir 90% fórnar-lamba ETA biðu
bana eftir að lýðræði
var komið á.‘
;
%@
'
@
, ( :@
8(;
<! ;
AB4
*
@
CDEA!
*
F: %*
@ @ G
*
( ;
.1
@
*
:@ ' %
'
%& (
*
%
:@
?
&
::
.1
;
'
% *@
'
?&
.1
C4
&
F
?
*
344C
:
%
F
@
3443
= %;
CID
*
* .1
344J!
*
EB4
@
3444
+
( ;+/(
6<->?>6
.
&% +/(0
%1 0*
.
2
@&
1 0 ! '
+/(
K 277 "FL K 05
M
'K 04
2
M
,& K 0:
2
M
;
& K 08
2
+,,
&
B4
*
'F
A
'
'
F
&
'
;
&
'
@
:@ :
'
,& Talsmaður stjórnmálaflokks baskneskra aðskilnaðarsinna
ið vera við það að bugast. „Einn lestarvagn-
inn var í tætlum. Fólk lá eins og hráviði um
allan brautarpallinn. Ég sá fótleggi og hand-
leggi. Ég mun aldrei geta gleymt þessu. Ég sá
hryllinginn.“
HJÚKRUNARFÓLK hugar að særðum manni
á vettvangi sprengjutilræðisins á Santa Eug-
enia-lestarstöðinni í Madríd í gærmorgun.
Enrique Sanches, ökumaður sjúkrabíls sem
flutti særða frá stöðinni, sagði hjúkrunarfólk-
Reuters
Hjúkrunarfólkið bugað