Morgunblaðið - 12.03.2004, Qupperneq 22
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Vaknaði við veltuna | Bílvelta varð á
Biskupstungnabraut í Grímsnesi, ofan við
Kerið, rétt fyrir klukkan þrjú aðfaranótt
miðvikudagsins. Að sögn lögreglu á Sel-
fossi sofnaði ökumaður undir stýri og
vaknaði ekki fyrr en jeppinn sem hann ók
hafði oltið utan vegar. Ökumaðurinn var í
bílbelti og slapp ómeiddur. Bifreiðin var
nokkuð skemmd og var fjarlægð með
kranabíl.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Álfasteinn bætir við | Álfasteinn ehf.
hefur keypt sögunar- og slípunarverk-
smiðju af Flatey ehf. í Hornafirði. Álfa-
steinn hefur jafnframt leigt húsnæði og
aðra aðstöðu fyrir verksmiðjuna af ábúend-
um jarðarinnar Flatey í Hornafirði. Ekki er
gert ráð fyrir að hefja starfsemi í verk-
smiðjunni fyrr en í sumarbyrjun á næsta
ári, en tímann fram að því á að nýta til að
yfirfara búnað og þróa vöruframleiðslu.
Álfasteinn hyggur á markaðssókn í leg-
steinasölu og vörum tengdum bygg-
ingamarkaði, s.s. húsaklæðningu, flísum,
hleðslusteinum og stéttasteini. Ætlar fyr-
irtækið að vera með rekstur sinn á þremur
stöðum; á Borgarfirði eystri, í Flatey og
Reykjavík, þar sem opna á söludeild annað
haust. Frá þessu greinir í fréttatilkynn-
ingu.
Opnaður hefur veriðvefur um lista-manninn Ríkarð
Jónsson. Þar er að finna
umfjöllun um ævi Ríkarðs,
sem varð kunnur m.a. af
listfengum útskurði trém-
una og brjóst- og lág-
myndir af merkum ein-
staklingum. Á vefnum má
einnig sjá dæmi um verk
Ríkarðs, kennsluefni, dag-
bókarbrot og kveðskap
sem hann lét eftir sig. Vef-
urinn var opnaður af Þor-
gerði Katrínu Gunn-
arsdóttur menntamála-
ráðherra. Slóðin er
www.rikardssafn.is.
Ríkarður fæddist í
Tungu í Fáskrúðsfirði 20.
september 1888. For-
eldrar hans voru Ólöf
Finnsdóttir og Jón Þór-
arinsson.
rikardssafn.is
Þessir reykvískukrakkar fundu ádögunum köttinn
Dísu sem villst hafði að
heiman. Ljósmyndari
blaðsins rakst á þau á
Miklubrautinni er þau
gengu galvösk með kisu
heim á leið. Vissu ber-
sýnilega hvar hún á
heima og voru ekki að tví-
nóna við hlutina heldur
vildu koma henni þangað
sem fyrst.
Morgunblaðið/Eggert
Týndur köttur á heimleið
Í tilefni af afmæli Þór-bergs Þórðarsonarverður Þórbergsþing
í dag í Norræna húsinu.
Þegar Þórbergur var bú-
inn að raka sig á efri árum
orti hann fyrir framan
spegilinn:
Nú er ég bæði fínn og fagur,
fárra manna jafni,
ekki feitur og ekki magur
með eilíft líf fyrir stafni.
Þórbergur sneri vísunni
svo á þessa lund:
Nú er ég bæði fínn og fagur,
fáum mönnum líkur,
ekki feitur og ekki magur
aldrei fæðist slíkur.
Svo barst hugvekja um
e-kortið nýja:
Illa er farið vitið vort
virðist trufla þankann
alsælunnar eyðslukort
indælt fyrir bankann.
Eyðslan verður spil og sport
sparnaður ekki kemst á kort
Þig skælbrosandi hengir á
skuldahankann.
Af Þórbergi
pebl@mbl.is
Reykjavík | Það verður seint að
fullu skilið hvað það er sem
veldur hinni erfiðu sambúð
hunda og katta. Í máli okkar má
finna fjöldann allan af mynd-
hverfingum og samlíkingum
sem vísa í stormasamt samband
þeirra. Það má segja að ljúfustu
dýr taki hreinlega hamskiptum
þegar þau hitta eintak af hinni
tegundinni. Hér mættust þau í
dyrunum á gæludýrabúð einni í
miðbæ höfuðborgarinnar, þessi
labradorhundur og grábrönd-
ótta læðan og var ekki annað að
sjá en hefðbundinn tegunda-
rígur réði enn ríkjum í sam-
skiptum þeirra.
Morgunblaðið/Heiðar þór
Þú ert ekki velkomin: Við viljum ekki þína líka hér, gæti hundurinn verið að segja við kattarræksnið.
„Eins og hundur og köttur“
Sambúð
SKIPTA þurfti um hluta af áhöfn á varð-
skipinu Ægi á mánudag eftir að átta
skipverjar af átján höfðu veikst af
skæðri magapest,
og voru álitnir
óstarfhæfir sök-
um veikinda.
Aðspurð um
málið staðfesti
Dagmar Sigurð-
ardóttir, upplýs-
ingafulltrúi Land-
helgisgæslu
Íslands, að veik-
indin hefðu komið upp. Hún segir að tal-
ið sé að veikindin séu af völdum víruss,
en segir það vera í rannsókn.
Skipið var statt úti fyrir Suðurlandi
þegar ljóst var að í óefni stefndi og
margir úr áhöfninni væru orðnir veikir.
Skipinu var þá siglt í næstu höfn í Vest-
mannaeyjum og skipverjar sendir til
læknis. Læknirinn sagði fimm af mönn-
unum ekki færa til að sinna störfum sín-
um í þessu ásigkomulagi, og var þá siglt
til Reykjavíkur með mennina, og kom
Ægir til hafnar í Reykjavík á mánudag.
Þar fóru fimm skipverjar í land, en þrír
aðrir sem höfðu veikst voru þá farnir að
jafna sig. Skipið fór út aftur samdægurs.
Aðspurð segist Dagmar ekki muna til
þess að annað álíka tilvik hafi komið upp
á skipum Landhelgisgæslunnar undan-
farin ár, en tekur fram að aldrei hafi
verið nein hætta á ferðum.
Skæð maga-
pest í varð-
skipinu Ægi
Þingeyri | Hafnar eru endurbætur innan-
dyra á Þingeyrarkirkju og er stefnt að því
að þeim ljúki fyrir hvítasunnu. Fram
kemur á vefnum thingeyri.com, að búið er
að fjarlægja bekki og hreinsa allt ofan af
gólfbitum, en lagfæra þarf gólfbitana og
skipta um suma. Stoðir hafa sigið og þarf
að lyfta þeim upp og rétta gólfið af. Sett
verða ný gólfborð og einangrað undir
þeim, en engin einangrun var undir gamla
gólfinu.
Endurnýja á hitakerfið, gamla kerfið
undir bekkjunum hefur verið fjarlægt og
verður ekki á þeim stað aftur. Fyrirhugað
er að breyta hitakerfinu og setja upp
sambyggt loftræsti- og hitunarkerfi. Raf-
lagnir verða einnig endurnýjaðar. Þá er
einnig er unnið að viðgerð uppi á söng-
lofti.
Unnið að
endurbótum á
Þingeyrarkirkju
♦♦♦
Heimsókn í Nautastöð BÍ | Nem-
endur í valgreininni nautgriparækt II við
Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri fóru
á miðvikudaginn í
heimsókn í Nauta-
stöð Bænda-
samtaka Íslands,
sem einmitt er
staðsett á Hvann-
eyri. Frá þessu er
greint á vefnum
landbunadur.is.
Þar segir að Sveinbjörn Eyjólfsson for-
stöðumaður og Ingimar Einarsson hafi
tekið vel á móti hópnum.
„Sveinbjörn fræddi hópinn um hlut-
verk nautastöðvarinnar varðandi kyn-
bótastarfið í nautgriparæktinni, en sæð-
ingastarfsemin er þar einn af horn-
steinum. Síðan voru nautin skoðuð og
voru nemendur sérstaklega áhugasamir
um að skoða naut úr sínu heimahéraði.
Einn af nemendunum átti meira að segja
nánast hálfbróður og a.m.k. nafna á ein-
um básnum, hinn hörgdælska Hjaltalín.
Heimsókn í nautastöðina er fastur liður í
kennslu í nautgriparækt II við bænda-
deild og er hópnum alltaf tekið opnum
örmum,“ segir í fréttinni.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn