Morgunblaðið - 12.03.2004, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 33
Spáni og
a fram um
un“, annað
er að baki
TA er sök-
ð að lýsa
lduðu.
yrir Eusk-
m þýðir
ka“ á máli
am á sjö-
á einkum
m barðist
æðisherr-
Samtökin
manns á
i er mikill
urinn þar,
ráðandi í
hafnar því
eitt til að
efur enda
r einræð-
leið undir
ð 1975 var
menning Baska við það að þurrkast
út. Mál þeirra var flestum gleymt og
notkun þess bundin við afskekkt
sveitaþorp. Bókmenntir voru engar
til. Þjóðin hafði sætt skipulegri kúg-
un.
Á síðustu 30 árum hefur verið
unnið gífurlega merkilegt menning-
arlegt viðreisnarstarf í Baskalandi.
Um 15% þjóðarinnar tala nú tungu-
málið sem viðurkennt er sem opin-
bert mál ásamt spænsku og hefur
sömu stöðu og hún. Sá hluti þjóð-
arinnar sem styður baráttu ETA-
samtakanna, þar gæti verið um að
ræða 5-10%, hafnar hins vegar lýð-
ræðinu og treystir þess í stað á að-
ferðir ógnarstjórnar sem nánast
gekk af menningu þjóðarinnar
dauðri; einræði ógnarinnar.
„Harðlínustefna“
Útlit er fyrir að spænski Þjóðar-
flokkurinn (Partido Popular) fari
með sigur af hólmi í kosningunum á
sunnudag. Eining spænska ríkisins
er fylgismönnum þessa flokks nán-
ast trúaratriði. Síðustu fjögur árin
hafa spænskir hægri menn haft
hreinan meirihluta á þinginu í Madr-
íd. Þetta hefur gert leiðtoga þeirra,
José María Aznar, fráfarandi for-
sætisráðherra, kleift að hundsa með
öllu kröfur þjóðernissinna víða á
Spáni um aukna sjálfsstjórn.
Spánn skiptist í 17 sjálfsstjórnar-
svæði sem að vísu njóta mismunandi
yfirráða í eigin málum. Öflugust er
sjálfsstjórnin í Katalóníu, Baska-
landi og Galisíu. Spænsk stjórnmál
snúast ekki síst um viðvarandi
valdatogstreitu á milli miðstjórnar-
innar í Madríd og ráðamanna í
sjálfsstjórnarhéruðunum.
José María Aznar hefur sem áður
sagði verið öldungis ófáanlegur síð-
ustu árin til að verða að nokkru leyti
við kröfum þjóðernissinna (Á fyrra
kjörtímabili sínu 1996-2000 neyddist
hann til að semja við þá þar eð flokk-
ur hans hafði ekki meirihluta á
þingi). Hafa ber í huga að öflugir
stjórnmálaflokkar í Katalóníu og
Baskalandi hafa á stefnuskrá sinni
að öðlast sjálfstæði frá Spáni. Þann-
ig fer á hverjum degi fram barátta á
Spáni sem í huga mjög margra snýst
í raun um einingu ríkisins. Aznar
hefur vart haldið ræðu á síðustu ár-
um án þess að minnast á þá grund-
vallarskoðun sína að ekki komi til
greina að heimila þjóðernissinnum
að hafa stjórnarskrá Spánar að engu
með því að sundra einingu ríkisins.
Þessi „harðlínustefna“ forsætis-
ráðherrans hefur ekki verið óum-
deild.
Aznar lætur af embætti forsætis-
ráðherra eftir kosningarnar á
sunnudag. Fjöldamorðið í Madríd í
gær má því skoða sem „yfirlýsingu“
ETA þess efnis að stefna hans hafi
hvorki verið fallin til að tryggja ein-
ingu ríkisins né öryggi þegnanna.
Og vitanlega fela árásirnar í höfuð-
borginni jafnframt í sér þau „skila-
boð“ að ETA hyggist hvergi gefa
eftir; hafa ber í huga að Mariano
Rajoy, eftirmaður Aznars og líklega
verðandi forsætisráðherra Spánar,
hefur lýst yfir því að hann muni
hvergi hvika frá „harðlínustefnu“
forvera síns. Og ETA-hreyfingin
verði upprætt. Rajoy hefur enn-
fremur gjört kunnugt að spænsk
stjórnvöld hyggist á engan veg bila í
stuðningi sínum við Bandaríkja-
menn, sem aftur hlýtur að vekja upp
vangaveltur um að hugsanlega hafi
alþjóðlegir hryðjuverkamenn verið
að verki eða komið nærri ódæðinu á
einhvern veg.
Aðstoð frá útlöndum?
Því skal spáð hér að grunsemdir
um að ETA-samtökin hafi notið að-
stoðar erlendra hryðjuverkamanna
muni magnast á næstu dögum. Í
ljósi sögunnar er umfang og skipu-
lag ódæðisins með þeim hætti að
furðu vekur að ETA-hreyfingin
skuli hafa skipulagt slíka árás og
reynst fær um að hrinda henni í
framkvæmd.
Þeir sem utan atburðarásarinnar
standa fá ekki greint að hugsjónir og
hugmyndafræði hafi verið ráðandi
innan samtakanna á undanliðnum
áratugum. Þvert á móti hafa ETA-
samtökin fengið á sig mynd heldur
fámenns hóps atvinnuglæpamanna
og morðingja sem nýta sér „þjóð-
frelsisbaráttuna“ til að réttlæta eig-
in tilveru. Þótt samtökin hafi gengist
fyrir hroðalegum glæpaverkum og
sé í raun trúandi til alls er því ekki
að neita að fjöldamorðið í Madríd er
á öðru stigi en áður hefur þekkst á
Spáni. Mannskæðasta hryðjuverk
samtakanna til þessa var framið í
Barcelona í júnímánuði árið 1987. Þá
lét 21 maður lífið.
En eðli hryðjuverkaógnarinnar
birtist í þessu glæpaverki; ógnin er
viðvarandi og óáþreifanleg. Enginn
veit hvenær og hvar hryðjuverka-
menn láta næst til skarar skríða. Og
í huga þeirra er ógnin, sjálfur „terr-
orinn“, vísast fullkomnuð þegar
óvissa ríkir um hverjir verið hafi að
verki.
gnarinnar
AP
md um heim allan í gær og víða á Spáni safn-
og ETA, aðskilnaðarsamtökum Baska, sem
kona hvern hug hún ber til ETA-manna.
Reuters
isráðherra Spánar, ávarpar þjóðina í gær. Að
nn og svartur sorgarborði festur við hann.
asv@mbl.is
Einstaklingurinn, tækifærihans og velferð í sam-félaginu eru leiðarljósstefnu ríkisstjórnarinnar
um upplýsingasamfélagið 2004-2007,
sem kynnt var í gær. Stefnan ber yf-
irskriftina Auðlindir í allra þágu þar
sem upplýsingatæknin veitir ein-
staklingum, atvinnulífi og opinberri
þjónustu tækifæri til að nýta sér þær
auðlindir sem felast í upplýsingum,
þekkingu og nýsköpun, eins og segir,
en stefnan nú byggist á endurskoðun
stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum
efnum frá árinu 1996.
Fram kemur að á upplýsinga-
tækni beri fyrst og fremst að líta á
sem verkfæri sem nýta megi til þess
að ná auknum lífsgæðum fyrir alla
landsmenn og alla samfélagshópa
um landið allt.
„Upplýsingasamfélagið er hugtak
sem notað hefur verið um samfélags-
gerð okkar. Þetta samfélag einkenn-
ist af því að öllum almenningi hefur
opnast aðgangur að gífurlegu magni
upplýsinga og þjónustu sem þekkir
engin landamæri. Samskipti manna í
millum eru fjölbreyttari, auðveldari
og ódýrari en nokkru sinni fyrr. Í
kjölfar upplýsingasamfélagsins hef-
ur mikilvægi þekkingar og þekking-
ariðnaðar í hagkerfum vaxið jafnt og
þétt. Þekking er varðveitt, gerð að-
gengileg og notuð til nýsköpunar.
Hún vex eftir því sem af henni er
tekið og verður mikilvægasta auð-
lind fyrirtækja og einstaklinga jafnt
sem þjóða. Hún er forsenda þekk-
ingariðnaðarins, og á henni byggist
næsta stig í þróun upplýsingasam-
félagsins, sem nefnt hefur verið
þekkingarsamfélag,“ segir ennfrem-
ur.
Fjögur lykilatriði
Stefnan byggist á fjórum lykilat-
riðum. Í fyrsta lagi á að auka tæki-
færi einstaklinga og fyrirtækja til að
miðla og sækja þekkingu, eiga sam-
skipti og stunda viðskipti hvar sem
er og hvenær sem er.
Í öðru lagi að forustumenn á öllum
sviðum samfélagsins axli ábyrgð og
vinni saman að því að upplýsinga-
tæknin verði nýtt í þágu borgaranna
og að ólíkir einstaklingar geti fært
sér hana í nyt.
Í þriðja lagi að tryggður verði að-
gangur fólks og fyrirtækja að
traustu háhraðaneti á samkeppnis-
hæfu verði og öryggi upplýsinga og
friðhelgi einkalífs verði höfð að leið-
arljósi í þróun upplýsingasamfélags-
ins.
Í fjórða lagi að stuðlað verði að
auknum lífsgæðum og auðugra
mannlífi með því að nýta möguleika
upplýsingatækninnar í menntun,
menningu, heilbrigðismálum og á
öðrum sviðum samfélagsins.
Stefnan er útfærð nánar á grund-
velli þessara lykilatriða og bera ein-
stök ráðuneyti, eitt eða fleiri, ábyrgð
á framkvæmd stefnunnar í hverju
tilviki fyrir sig.
Bent er á að hægt sé að styrkja
lýðræðislega stjórnarhætti enn frek-
ar með þeim möguleikum sem ný
tækni bjóði upp á og stuðla að aukn-
um gæðum í stjórnsýslu hins opin-
bera. Stjórnkerfið þurfi að laga sig
að breyttum aðstæðum og áherslum
í samfélaginu með það að markmiði
að bæta þjónustu við einstaklinga og
auka sveigjanleika, hagræðingu og
skilvirkni. Með því aukist tækifæri
einstaklinga til að miðla og sækja
þekkingu, eiga samskipti og sækja
opinbera þjónustu hvar og hvenær
sem er.
Umræðutorg
Meðal verkefna á þessu sviði má
nefna að lögð er áhersla á að ríki og
sveitarfélög leggi áherslu á rafræn
viðskipti og rafræna stjórnsýslu og
að komið verði upp rafrænni þjón-
ustuveitu, sem gegni lykilhlutverki í
miðlun upplýsinga og rafrænnar
stjórnsýslu.
Þá á að kanna á þessu og næsta ári
hvernig og á hvaða sviðum megi
auka samráð og samskipti milli al-
mennings og opinberra aðila. Gerðar
verði meðal annars tilraunir með
uppsetningu umræðutorga, þar sem
fram fari skoðanaskipti um afmörk-
uð málefni. Segir að slík umræðu-
torg falli vel að hugmyndum um
íbúalýðræði og aukinni þáttöku al-
mennings í að móta sitt nánasta um-
hverfi og verða sveitarfélög, ráðu-
neyti og ríkisstofnanir hvött til þess
að koma upp slíkum umræðutorgum.
Þá á að vinna að undirbúningi mið-
lægrar kjörskrár til notkunar í sveit-
arstjórnar-, og alþingiskosningum
með það að markmiði að kjósandi
geti mætt á hvaða kjörstað sem er til
þess að kjósa og að hægt verði að
nota upplýsingatæknina við sjálfa
kosninguna. Er lagt til að dóms- og
félagsmálaráðuneytið vinni sameig-
inlega að tilraunaverkefni á þessu
sviði við næstu sveitarstjórnarkosn-
ingar árið 2006.
Þá á að tryggja gott aðgengi allra
að upplýsinga- og þekkingarbrunn-
um með góðum aðgangi að tölvum og
netinu í skólum og bókasöfnum og
koma á upp þráðlausu neti á öllum
bókasöfnum landsins. Huga á sér-
staklega að velferð barna og foreldr-
ar og skólar hvattir til þess að axla
ábyrgð á tölvu-, net-, og símanotkun
barna sinna, auk þess sem stuðla á að
rannsóknum á áhrifum á tölvuleikja
á börn og ungmenni.
Þá kemur fram að aðgengi að há-
hraðatengingum og greiðri og
öruggri fjarskiptaþjónustu sé lykil-
atriði fyrir þróun upplýsingasam-
félags og byggðar í landinu. „Það er
langtímamarkmið að allir lands-
menn, sem þess óska, eigi möguleika
á háhraðatengingu til að geta sem
best nýtt sér kosti upplýsingasam-
félagsins,“ segir ennfremur.
Fram kemur að móta á framtíð-
arstefnu um fjarskiptamál á Íslandi í
ár og að bæta í aðgang að farsíma-
þjónustu á þjóðvegum landsins. Gert
er ráð fyrir að Vegagerð ríkisins
vinni að þessu verkefni í samráði við
símafélög og á verkefninu að ljúka á
næsta ári. Þá á að stuðla að upp-
byggingu stafræns sjónvarps sem
nái til landsins alls.
Öryggismál
Þá er gert ráð fyrir að skipuð
verði nefnd til að fjalla um verka-
skiptingu milli opinberra aðila varð-
andi öryggismál í tengslum við notk-
un upplýsinga- og fjarskiptatækni,
varnir gegn rafrænum hryðjuverk-
um, ruslpóst, neytendavernd og sið-
ferðileg úrlausnarefni, eins og ósið-
legt efni á netinu og fleira. Nefndin á
einnig að koma með ábendingar
varðandi þörf á endurskoðun laga
vegna samþættingar upplýsinga-
tækni, fjarskipta og fjölmiðlunar og
á nefndin að ljúka störfum eigi síðar
en á næsta ári.
Jafnframt á að auka þátttöku Ís-
lendinga í erlendu samráði um ör-
yggismál og koma á fót viðbragðs-
hópi sem hafi það hlutverk með
höndum að bregðast við utanaðkom-
andi truflunum á virkni net- og upp-
lýsingakerfa.
Fram kemur að til að tryggja að
lífsgæði haldi áfram að aukast þurfi
Íslendingar að tileinka sér upplýs-
ingatækni og hugsunarhátt þekking-
arsamfélagsins. Síaukin alþjóðavæð-
ing kalli á að Íslendingar leggi rækt
við menningararf sinn og tryggi að
komandi kynslóðir verði meðvitaðar
um menningarlega og sögulega sér-
stöðu sína í samfélagi þjóðanna. Í
þeirri sérstöðu sé einnig að finna
tækifæri til nýsköpunar sem geti
nýst atvinnulífi til framtíðar. „Sá
mannauður sem er fólginn í vel
menntuðum og hæfum einstakling-
um er forsenda fyrir því að hægt sé
að nýta þau tækifæri sem bjóðast og
skapa ný verðmæti,“ segir einnig í
stefnunni.
Í nefnd þeirri sem undirbjó
stefnumótunina áttu sæti Ásdís
Halla Bragadóttir, bæjarstjóri, Sig-
fús Ingi Sigfússon, markaðsstjóri,
Svava Garðarsdóttir, kerfisfræðing-
ur, Þór Sigfússon, framkvæmda-
stjóri og Guðbjörg Sigurðardóttir,
verkefnisstjóri í forsætisráðuneyt-
inu, sem jafnframt var formaður.
Nefndin hafði samband og samráð
við fjölmarga aðila við stefnumótun-
arvinnuna auk þess sem sérstakur
samráðshópur var henni til ráðu-
neytis.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra kynnti stefnuna fyrir hönd ríkisstjórnarinnar á opnum fundi í gær.
Upplýsingatæknin
verkfæri til að ná
auknum lífsgæðum