Morgunblaðið - 12.03.2004, Síða 48

Morgunblaðið - 12.03.2004, Síða 48
KIRKJUSTARF 48 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímskirkja. Eldri borgara starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Háteigskirkja. Eldri borgara starf. Brids- aðstoð kl. 13. Kaffi kl. 15. Langholtskirkja. Lestur Passíusálma kl. 18 í Guðbrandsstofu í anddyri Langholts- kirkju. Allir velkomnir. Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–12. Kaffi og spjall. Grafarvogskirkja. Lestur Passíusálma kl. 18.15. 13. sálmur. Um falsvitnin og Kafías dóm. Kolbeinn Óttarsson Proppé les. Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15 yngri deildarstarf Lindakirkju og KFUM&K í húsinu á Sléttunni, Uppsölum 3. Krakkar á aldrinum 8–12 ára velkomnir. Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunnar, Kirkjukrakkar, er í Lágafellsskóla. Hveragerðiskirkja. Kl. 20 – Kristur og Hollywood – Trú í kvikmyndum. Kristur og trúin birtast með ýmsu móti á hvíta tjald- inu og skírskotun til trúararfs kristninnar og Biblíunnar er margvísleg þó að okkur bíógestum sé það ekki alltaf ljóst. Þorkell Á. Óttarsson sýnir dæmi úr kvik- myndum og ræðir um Krist í Hollywood. Á morgun laugardag: Kl. 10–17 – Opin sýning. Síðdegis eru æfingar fyrir tónleika á sunnudagskvöld. Hádegisbænir og kvöldbænir eru alla virka daga kl. 12.15 og kl. 18. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam- komur alla laugardaga kl. 11. Bæna- stund alla þriðjudaga kl. 20. Biblíu- fræðsla allan sólarhringinn á Útvarpi Boðun, FM 105,5. Allir velkomnir. Fríkirkjan Kefas. 10–12 ára starf kl. 19.30. Samvera, fræðsla og fjör. Allir 10–12 ára velkomnir. Nánari upplýsingar á www.kefas.is. Akureyrarkirkja. Á morgun laugardag 13. mars verða hádegistónleikar kl. 12. Björn Steinar Sólbergsson flytur verk eftir Brahms og Mendelssohn. Sigrún Arna Arngrímsdótt- ir syngur sálmalög við texta Jörgs Zink. Lesari: Guðmundur Árnason. Léttur há- degisverður á vægu verði í safnaðarheim- ili að tónleikunum loknum. ,,Segðu mér hvert“ kl. 13. Dagskrá um þýska guð- fræðinginn og rithöfundinn Jörg Zink. Um- sjón: María Eiríksdóttir, kennari í Hafn- arfirði. Glerárkirkja. Á morgun, laugardag, Kirkjuskóli fyrir 1–4. bekk kl. 11. Bibl- íusögur, söngur, leikir og lofgjörð til upp- byggingar og þroska fyrir börnin. TTT-starf kl 13. Sérstök samvera í kirkjunni fyrir tíu til tólf ára. Fræðsla, leikir og lofgjörð. Börn á þessum aldri hvött til að koma. Kirkjuskólinn í Mýrdal. Munið samveru Kirkjuskólans í Mýrdal næsta laugardag, 13. mars, kl. 11.15–12 í Víkurskóla. Rebbi refur heldur áfram að fræðast um kristna trú í brúðuleikhúsinu. Söngur, saga og litastund. Verið dugleg að mæta. Prestur og starfsfólk kirkjuskólans. Kirkja sjöunda dags aðventista: Laug- ardagur: Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dómkirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18. Alla virka daga: Messa kl. 18. Á laug- ardögum: Barnamessa kl. 14 að trú- fræðslu lokinni. Kirkjan er öllum opin á daginn frá kl. 8 til 18.30. Alla föstudaga í lönguföstu: Krossferilsbæn kl. 17.30. Reykjavík, Maríukirkja við Raufarsel: Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16. Miðvikudaga kl. 20. Hafnarfjörður, Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Miðviku- daga: Messa kl. 18.30. Alla virka daga frá 11. til 19. mars er messa á hverjum degi kl. 18.30 í tilefni nóvenu til heilags Jósefs. Föstudaginn 19. mars: Jósefs- messa, stórhátíð. Hátíðarmessa kl. 18.30. Alla föstudaga í lönguföstu: Krossferilsbæn kl. 18 og messa kl. 18.30. Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl. 8.30. Virka daga: Messa kl. 8. Keflavík, Barbörukapella, Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14. Alla fimmtudaga: Rósakransbæn kl. 20. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnu- daga: Messa kl. 10. Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11. Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18. Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16. Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19. Akureyri, Kaþólska kirkjan, Péturs- kirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11. Safnaðarstarf Krossferils- bæn í Landakoti ALLA föstudaga í lönguföstu er krossferilsbæn beðin kl. 17.30 í Kristskirkju í Landakoti. Krossfer- ilsbæn eða krossferilsgangan er gömul bæn sem á rót sína að rekja til þeirrar venju að ganga Via Dolo- rosa í Jerúsalem þar sem 14 „við- stöður“ minna á allt það sem gerðist frá því að Jesús hélt burt frá dóm- stóli Pontíusar Pílatusar og þangað til hann var lagður í gröfina. Í hverri kaþólskri kirkju hanga myndir af viðstöðunum 14 og fólk fer frá einni viðstöðu til annarrar og íhugar þjáningar Drottins og dauða og biður um miskunn hans og fyr- irgefningu. Aðalsafnaðarfundur Hafnarfjarð- arkirkju Aðalsafnaðarfundur Hafn- arfjarðarkirkju fer fram í Hásölum Strandbergs eftir messu kl. 11 sunnudaginn 14. mars nk. Efni m.a.: Gerð grein fyrir starfsemi og rekstri kirkjunnar á liðnu starfsári, kosning aðal- og varamanna í sókn- arnefnd. Harmonikkuball í Vídalínskirkju HARMONIKKUBALL fyrir eldri borgara í Kirkjuhvoli Garðabæ í dag kl. 14:00-17:00 Eldborgarkvintettinn leikur fyrir dansi. Ásta Bjarnadóttir og Þorleifur Einarsson Íslands- meistarar í samkvæmisdönsum í flokki 16-18 ára sýna dans. Kristskirkja. FJÓRAR umferðir hafa verið tefldar á Reykjavíkurskákmótinu, þegar þetta er ritað. Þrír stórmeist- arar deila forystunni, með 3½ vinn- ing, Drejev (Rússlandi), Luther (Þýskalandi) og Erenburg (Ísrael). Efstir af Íslendingum eru stór- meistararnir Helgi Ólafsson og Hannes Hlífar Stefánsson og alþjóð- legu meistararnir Bragi Þorfinnsson og Stefán Kristjánsson, með 2½ v. hver, í 18.–34. sæti. Norski undradrengurinn Magnus Carlsen hefur ekki náð sér á strik, hefur 2 vinninga. Keppnin hefur verið skemmtileg og öll aðstaða í Ráðhúsinu hin besta. Fjórar skákir eru sýndar á tjaldi í skáksalnum, auk þess sem þekktir skákmeistarar skýra skákirnar fyrir áhorfendum á hverju kvöldi. Skák- áhugamenn ættu ekki að láta þetta skemmtilega mót fara fram hjá sér. Í hópi hinna erlendu gesta er ísr- aelski stórmeistarinn, Emil Su- tovsky. Hann er þekktur fyrir að tefla ávallt stíft til vinnings og eru jafntefli eitur í hans beinum. Hann á örugglega eftir að leggj- ast þungt á árar í seinni hluta móts- ins, því að hann hefur orðið að sætta sig við tvö jafntefli á mótinu í fjórum fyrstu umferðunum. Hér á eftir sjáum við skák hans við Þröst Þór- hallsson stórmeistara í fjórðu um- ferð. Hvítt: Sutovsky Svart: Þröstur Þórhallsson Frönsk vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. Bg5 Be7 5. e5 Rfd7 6. Bxe7 Dxe7 7. f4 a6 8. Rf3 c5 9. dxc5 Rc6 10. Bd3 Dxc5 11. Dd2 b5 12. 0–0–0 b4 13. Ra4 Da5 14. b3 Rc5 15. Rxc5 Dxc5 16. g4 – Nýr leikur. Þekkt er 16. De2 Bd7 17. Kb1 Re7 18. g4 a5 19. f5 a4 20. f6 Rc6 21. fxg7 Hg8 22. g5 Hxg7 23. Hhe1 Hc8 24. De3 Ra7 25. h4 Dxe3 26. Hxe3 Bb5 27. bxa4 Bxa4 28. h5 Rb5 29. h6 Rc3+ 30. Kc1 Hg8, með jafntefli síðar (Pein-Soffer, Tel Aviv 1989). 16. … a5 17. f5 a4 18. Kb1 Bd7 19. Hhf1 h6 Eftir skákina rannsökuðu kepp- endur eftirfarandi framhald: 19. … Dc3 20. fxe6 fxe6 21. bxa4! Hxa4 22. Bb5 Ha3 23. Bxc6 Dxc6 (23. --Bxc624. Rd4 Dxd2 25. Hxd2 Bd7 26. Rb3 Bb5 27. Hf4 Bc4 28. Hdf2) 24. Dxb4 og fundu ekkert nægilega gott framhald fyrir svart. Eftir 24. -- Db5!? 25. Dxb5 Bxb5 26. Kb2 Ha4 (26. … Bxf1 27. Kxa3 Be2 28. Hb1 0–0 29. Rd4 Ha8+ 30. Kb2 Bxg4 31. Ha1 Ha4 32. c3 Kf7 33. Kb3 Ha6 34. a4) 27. Hg1 Ke7 28. Rd4 Hb8 29. h3 Be2+ 30. Kc1 Bxd1 31. Rc6+ Ke8 32. Rxb8 Be2 33. Kd2 Bc4 34. Hb1 Kd8 35. Rc6+ Kc8 36. Rb4 stendur hvítur betur. 20. fxe6 Bxe6 21. g5 -- 21. … hxg5? Eftir þennan leik lendir svartur í vandræðum, sem hann finnur enga lausn á. Eftir 21. … Ha7!? 22. gxh6 Hxh6 kemur upp vandmetin staða, þar sem hvítur á ýmsa möguleika, en verður ávallt að vera á varðbergi gegn hótun svarts, a4-a3, ásamt Dc5-c3. 22. Rxg5 Hh6 23. Bf5! Re7? Afleikur, sem einfaldar vinning- inn fyrir hvít. Eftir 23. … Bxf5 24. Hxf5 Rd8, t.d. 25. bxa4 Hxa4 26. Re4 Dc4 27. Dxd5 Dxd5 28. Hxd5 á hvítur peð yfir og betra tafl. 24. Bxe6 fxe6 25. Re4! Da5 Riddarinn friðhelgur, vegna 26. Dd7+ mát. 26. Rd6+ Kd7 27. Hf7 Hh5 28. Hdf1 axb3 29. cxb3 Da6 Ekki gengur 29. … Hxe5 30. Rc4. 30. Dc2 Db6 31. De2 Da6 32. Dc2 Db6 33. Hxe7+ Kxe7 34. Hf7+ Kd8 35. Hxg7 Hb8 Eftir 35. … Hh3 36. Rb7+ Dxb7 (36. … Ke8 37. Dg6+ Kf8 38. Df7+ mát) 37. Hxb7 vinnur hvítur auð- veldlega. 36. Dg6 og svartur gafst upp, því að hann á enga vörn við tveimur máthótun- um hvíts, 37. De8+, eða 37. Df6+. Jafnt og spennandi Reykjavíkurskákmót Bragi Kristjánsson SKÁK XXI. Reykjavíkurskákmótið – Ráðhús Reykjavíkur 7.–16. mars 2004 ÍSRAELSKI stórmeistarinn Emil Sutovsky fæddist í Baku í Adzerbasj- an 19. september 1977, en fluttist til Ísrael árið 1991. Hann varð alþjóð- legur meistari árið 1992 og stór- meistari þremur árum síðar. Sutovsky er í 31. sæti á stigalista alþjóðaskáksambandsins, FIDE. Sutovsky hefur unnið mörg al- þjóðleg skákmót, m.a. Heimsmeist- aramót unglinga, yngri en 20 ára, árið 1996 og Evrópumót árið 2001, þar sem hann vann Ponomarjov, heimsmeistara FIDE, í úrslitaeinvígi 1½-½. Sutovsky var í silfurliði Ísraels- manna á Evrópumóti landsliða 2003, og hlut að auki verðlaun fyrir besta árangur allra keppenda á mótinu. Sutovsky lærði mannganginn 4 ára, og aðaláhugamál hans, utan skákarinnar, er sígild tónlist. Hann er góður bassa-barítónsöngvari, sem hefur m.a. komið fram á tónleikum í Englandi, Hollandi, Þýskalandi, á Spáni og í Svíþjóð. Á efnisskrá hans eru óperuaríur (Mozart, Verdi og Borodin í uppá- haldi), Napólísöngvar og rússneskar rómönsur. Þetta er í annað skiptið, sem Sut- ovsky kemur til Íslands til að tefla. Hann kom í fyrra og tefldi á miklu alþjóðlegu atskákmóti í minningu Guðmundar J. Guðmundssonar. Í þeirri heimsókn hélt Sutovsky fjög- urra daga námskeið, á vegum Skák- skóla Íslands og Skáksambandsins, fyrir sterkari skákmenn Íslands og var gerður góður rómur að kennslu hans. Syngur og teflir af mikilli list Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.