Morgunblaðið - 12.03.2004, Page 50
50 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í DV þann 4. mars sl. birtist grein
með svohljóðandi fyrirsögn: „Mar-
tröð í paradís, Í fýlu til Jamaica“. Við
hjónin erum nýkomin úr frábærri
ferð til Jamaica á vegum ferðaskrif-
stofu Heimsferða og varð ég því veru-
lega undrandi er ég las greinina.
Greinin inniheldur óánægju aðeins
fárra farþega, og lýsir ekki á nokkurn
hátt umræddri ferð að okkar mati.
Einnig er hreinlega farið með rangt
mál í sumum tilvikum.
Satt er að undirskriftalisti var lát-
inn ganga um vélina vegna seinkunar
á fluginu og undirrituðu margir far-
þeganna, en rangt er farið með inni-
hald listans. Hann innihélt ekki
„harða gagnrýni á skipulagningu og
framferði farastjóra“. Þar er einungis
óskað eftir skýringu á seinkun flugs-
ins og hvort Heimsferðir hygðust
bæta farþegum upp þessa klukku-
tíma sem töpuðust.
Fjórum dögum fyrir brottför kom í
ljós að 2 tíma seinkun yrði og var þá
hringt í okkur og við látin vita.
Meiri seinkun var svo óhjákvæmi-
leg vegna þess hvað vélin kom seint
kvöldinu áður til landsins úr öðru
flugi. Af öryggisástæðum er lögboð-
inn hvíldartími áhafnar 12 klukku-
stundir. Seinkunin var þegar komin á
Textavarpið kvöldið fyrir brottför.
Við höfum mikið flogið í gegnum
tíðina með ýmsum flugfélögum og þá
sértaklega um tveggja ára tímabil er
við bjuggum í Indónesíu. Munum við
varla til þess að ekki hafi verið ein-
hverjar seinkanir, allt frá klukkutíma
til sólarhrings langar, og aldrei hefur
okkur verið tilkynnt um það sérstak-
lega eða okkur boðnar skaðabætur!
Persónulega kjósum við hjónin
frekar öruggt flug, nokkurra klukku-
stunda styttingu á ferðinni og að kom-
ast heil á áfangastað.
Varðandi lendinguna í Halifax urð-
um við ekki vör við að áhöfnin væri að
spóka sig á flugvellinum sér til
ánægju heldur til að sinna okkar þörf-
um. Ferma þurfti vélina og sækja
meiri bjór fyrir verulega þyrsta Ís-
lendinga. Þar sem ekki er lúgusjoppa
á flugvellinum voru tveir starfsmenn
með í för sem sáu um verkið ásamt
starfsmönnum vallarinns. Stoppið í
Halifax varð lengra en tilkynnt hafði
verið í ljósi þess að vegna ísingarskil-
yrða varð að úða véina fyrir flugtak
með afísingarefnum, enn og aftur, af
öryggisástæðum við okkur farþeg-
ana. Ég vil þakka skipuleggjendum
ferðarinnar sérstaklega fyrir þá fyr-
irhyggjusemi að bjóða ekki upp á
sterka drykki í vélinni.
Þegar við komum á hótelið var búið
að gera ráðstafanir vegna þess hve
seint við komum og var innskráning
farþega á hótelið skipulega unnin og á
móti okkur tekið með léttu miðnæt-
urhlaðborði og cocktail að siði Jam-
aicabúa. Daginn eftir heimkomu
barst okkur bréf frá Heimsferðum
þar sem við erum beðin velvirðingar á
þessari töf, sem að okkar mati var
ekki á valdi Heimsferða. Þegar farið
er í hagstætt pakkaflug eru oftast
notaðar leiguvélar og eru forsendur
þessháttar ferða aðrar en þegar farið
er í áætlunarflug. En eitt er þó aldrei
fyrirsjáanlegt, hvort heldur ferðast er
á business-class eða almenningi, og
það eru seinkanir á vélunum.
Alla ferðina lögðust fararstjórarnir
á eitt um að gera farþegunum dvölina
á Jamaica eins ánægjulega og
skemmtilega og kostur var.
Okkur langar að þakka því frábæra
leiðsögufólki Heimsferða, sem með
okkur var, ákaflega ánægjulega og
fróðlega ferð, fyrir mjög skemmtileg-
ar skoðunarferðir, góða pistla um
land og þjóð, þ.e. öll ártölin, og góða
viðkynningu að öllu leyti.
Arie mon! (Ærí man.)
AÐALHEIÐUR BJARNA-
DÓTTIR og KRISTJÁN ÞÓR
INGVARSSON,
Æsuborgum 15,
112 Reykjavík.
Frábær ferð
til Jamaica
Frá Aðalheiði Bjarnadóttur og
Kristjáni Þór Ingvarssyni:
MIG langar til að fjalla um þennan
merkilega stað, sem gerir kraftaverk
á fólki. Fyrir 4 árum lenti ég í 2 bíl-
slysum, sem ollu því að ég varð að
hætta að vinna vegna áverka sem af
hlutust, ég fór til sérfræðinga, sem
gátu lítið annað gert en sprautað mig
og gefið mér verkjastillandi lyf.
Einnig fór ég í sjúkraþjálfun, sem að
mínu mati var, nú eftir að vera búinn
að vera 8 vikur á Reykjalundi, ekki
að gera mér neitt gagn. Ég hafði það
alltaf á tilfinningunni, að alltof stíft
væri bókað í tímana og höfðu sjúkra-
þjálfararnir ekki þann tíma fyrir
mann sem maður þurfti svo sannar-
lega á að halda. En víkjum nú aftur
að Reykjalundi, þar skeði kraftaverk
fyrir mig, því þar fer einvala lið, sem
leggur hart að sér til að hver og einn
sjúklingur fái það besta úr veru sinni
þar, og það fékk ég svo sannarlega
og verð ævinlega þakklát þessu
starfsfólki og læknum. Ég lærði að
lifa með verkjunum, ég lærði allt upp
á nýtt, t.d. hvernig ég á að standa
rétt, lyfta rétt, og margt fleira. Áður
en ég fór uppá Reykjalund, hafði ég
ekki mikla vitneskju um þennan
stað, né hvað hann gerði fyrir fólk,
enda er biðlistinn þarna um 2 ár.
Þarna eru 9 svið, þ.e.a.s. verkjasvið,
hjartasvið, gigtarsvið svo eitthvað sé
nefnt. En eitt stingur í stúf fyrir
þennan mikla bjargvætt, og það er
að sum tæki sem notuð eru, eru orðin
gömul og þarfnast endurnýjunar, má
ég þá nefna blóðþrýstingstæki,
bekki í sjúkraþjálfun, nýjar dýnur og
rúm svo eitthvað sé nefnt. Ég hvet
félagasamtök, eða banka með mikla
eigin fjárstöðu að láta eitthvað rakna
til Reykjalundar, því þar er svo
sannarlega þörf fyrir þessa hluti. Að
lokum vil ég enn og aftur þakka fyrir
mig, ég geymi alla þá visku sem mér
var kennd um ókomna tíð. Hafið
þökk fyrir allt, kæra teymi.
VIGDÍS KR. PÁLSDÓTTIR,
Hæðargarði 54,
Reykjavík.
Reykjalundur –
kraftaverkastaður
Frá Vigdísi Kr. Pálsdóttur
Beini
Svínið mitt
OJ!
NEI, NEI
OG NEI
© DARGAUD
© Le Lombard
HÉR KEMUR PRINSESAN
ALVEG EINS OG Í
ÆVINTÝRUNUM
OH!!
NEI,
EKKI!
JOUHOU! ABRAKADABRA! ABRAKADABRA!
NÚ BREYSTIST ÞÚ FROSKUR Í UNDURSAM-
LEGANN PRINS OG VIÐ VERÐUM
HAMINGJUSÖM TIL ÆVILOKA
ÞVÍLÍKUR
AULI!!
HVER EIGINLEGA SKRIFAÐI ÞETTA
FÍFLALEGA ÆVINTÝRI, OFSALEG FYNDIÐ ...
ENDIR!
VÆÆÆÆLLLL!!
ÞÚ FÆRÐ EKKI
AÐ FARA MEÐ
SVÍNIÐ ÞITT Í
RÚMIÐ
SJÁÐU BLÁA
BANGSANN ÞINN ER
HANN EKKI
SÆTUR
ÁFRAM UPP Í
RÚM NÚ FERÐ
ÞÚ AÐ SOFA
SVÍNIÐ
MITT!!
VÆÆÆLLLL!
UFF!
MORGUNINN EFTIR
ELSKAN KOMDU!!
HVAÐ
NÚ!!
ADDA !! ADDA ER
HORFINN! RÚMIÐ
HENNAR ER
ÓHREYFT!!
HÚN HEFUR FARIÐ AÐ HEIMAN.
ÞETTA ER ALLT MÉR AÐ KENNA.
ÉG VAR ALLTOF HÖRÐ VIÐ HANA
ELSKAN!
ÉG ER BÚINN AÐ FINNA
HANA!!
SVÍNIÐ!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.