Morgunblaðið - 12.03.2004, Side 52
DAGBÓK
52 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hvað þýðir
sóprenna?
Í MORGUNBLAÐINU
þriðjudaginn 9. mars sl. er
verið að gagnrýna leikritið
Þrjár Maríur. Þar segir í
texta: „Hefði þó kosið að
hún léti vera að búa sér til
hreim til að flytja ráðlegg-
ingar sóprennunnar um
börn sem hraðahindranir á
framabrautinni.“ Hvað
þýðir sóprenna? Það eru ef-
laust margir sem vildu fá
útskýringu á þessu.
Torfi.
Til hamingju,
Orkuveita
MIG langar að óska Orku-
veitunni til hamingju með
frábæran starfsmann, konu
sem heitir Dóróthea. Hún
vinnur við reikninga fyrir
verktaka. Hún er einstak-
lega hjálpleg og vinnur
störf sín af mikilli alúð.
Verktaki.
70 mínútur
á Popptíví
ÞÓR hafði samband við
Velvakanda og vildi koma
því á framfæri við forráða-
menn 70 mínútna á Popp-
tíví hvort ekki væri hægt að
færa útsendinguna framar
á kvöldin, t.d. til kl. 20.
Honum finnst þátturinn
vera sýndur allt of seint á
kvöldin. Hann er mikill
aðdáandi þáttarins og von-
ar að forráðamenn 70 mín-
útna á Popptíví taki þessa
ábendingu til athugunar.
Sammála
ÉG er svo innilega sam-
mála Birtu sem skrifaði í
Velvakanda 8. mars sl.
grein sem heitir Fjölmiðla-
umfjöllun um þunglyndis-
lyf.
Ég hef þjáðst af þung-
lyndi og hef þurft að taka
þunglyndislyf og þau hafa
gerbreytt mínu lífi, sam-
bandi mínu við mína nán-
ustu fjölskyldu, eiginmann
minn, börnin mín og allri
minni líðan.
Það er hræðilegt þegar
neikvæð umræða um þung-
lyndislyf fer í gang, því lyf-
in hafa gerbreytt lífi
margra Íslendinga og eiga
vonandi eftir að gera það
um ókomin ár.
Kona.
Tapað/fundið
Kvengleraugu
týndust
KVENGLERAUGU í
brúnni plastumgjörð töp-
uðust í eða við TBR-húsið
við Álfheima, mánudaginn
8. mars sl. Skilvís finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 897-
5045.
Armband tapaðist
GULLARMBAND tapað-
ist fyrir helgina, sennilega
á Laugaveginum.
Armbandið er mjó, flétt-
uð keðja og er eigandanum
afar kært. Skilvís finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 848-
9085.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ottó
N. Þorláksson kemur í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Arklow Wave kemur í
dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og jóga,
kl. 14 bingó. Hársnyrt-
ing, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16,30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag í
mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 bað, kl. 9–12 vefn-
aður, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 13–16 vefn-
aður og frjálst að spilað
í sal.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9 bað og hár-
greiðslustofan opin, kl.
14 söngstund.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Opin vinnu-
stofa, kl. 9–16.30,
gönguhópur, kl. 9.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 opið hús,
spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Fótaaðgerða-
stofa Hrafnhildar, tíma-
pantanir í síma
899 4223.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
FEBK verður með Op-
ið hús fyrir félagsmenn
og gesti þeirra kl. 14 í
Félagsmiðstöðinni Gjá-
bakka laugardaginn 13.
mars. Dagskrá:
Don Felex frá Spáni
leikur á gítar og syng-
ur. Ragna S. Gunnars-
dóttir verður með efni í
léttum dúr. Kaffi.
Guðrún Lilja Guð-
mundsdóttir o.fl. leiða
fjöldasöng og spila und-
ir á gítar. Félagar fjöl-
mennið og takið með
ykkur gesti.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, tréútskurður og
brids kl. 13, billjard kl.
13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Snúður og
Snælda sýna „Rapp og
rennilása“ í dag kl. 14.
Næsta sýning sunnu-
dag kl. 15.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10 létt ganga,
frá hádegi spilasalur
opinn, kl. 15 kóræfing
ath breyttur tími. s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 myndvefnaður,
kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bókband.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 glerlist, kl. 10
ganga, kl. 13 brids-
kennsla, kl. 14 bingó.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
baðþjónusta, fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
11 spurt og spjallað, kl.
14 bingó.
Hvassaleiti 58–60.
Fótaaðgerðir virka
daga, hársnyrting
þriðjudag til föstudags.
Norðurbrún 1. Kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl.10–11
kántrídans.
Vitatorg. Kl. 8. 45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og myndlist, kl. 9. 30
bókband og morgun-
stund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl.
12. 30 leir, kl. 13. 30
bingó.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið frá
kl. 10–14.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Framsóknarfélag Mos-
fellsbæjar. Félagsvist í
kvöld í Framsóknar-
salnum í Mosfellsbæ,
Háholti 14, 2. hæð, kl.
20.30. Tekin verða sam-
an 5 efstu kvöldin af 8
(frá 13. feb. til 2. apríl)
og fyrir þau veittur
ferðavinningur.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga. Austfirðir: Birgir
Hallvarðs., Botnahlíð
14, Seyðisfirði, s.
472 1173 Blómabær,
Miðvangi, Egilsstöðum,
s. 471 2230 Nesbær
ehf., Egilsbraut 5, Nes-
kaupstað, s. 477 1115
Gréta Friðriksd.,
Brekkugötu 13, Reyð-
arfirði, s. 474 1177 Að-
alheiður Ingimundard.,
Bleiksárhlíð 57, Eski-
firði, s. 476 1223 María
Óskarsd., Hlíðargötu
26, Fáskrúðsfirði, s.
475 1273, Sigríður
Magnúsd., Heiðmörk
11, Stöðvarfirði, s.
475 8854.
Í dag er föstudagur 12. mars,
72. dagur ársins 2004, Gregor-
íusmessa. Orð dagsins: Lögmál
lífsins anda hefur í Kristi Jesú
frelsað þig frá lögmáli synd-
arinnar og dauðans.
(Rm. 8, 2.)
Pawel Bartoszekfjallar um beint lýð-
ræði í pistli sínum á vef-
ritinu Deiglunni. „Mun-
urinn á beinu lýðræði
og fulltrúalýðræði er sá,
eins og flestir vita, að í
beinu lýðræði kjósa allir
kosningabærir menn
beint um málin á meðan
í fulltrúalýðræði kjósa
þeir fulltrúa sína sem
síðan ráðstafa atkvæð-
um sínum í þar til gerð-
um þingum og ráðum,“
segir Pawel. „Í beinu
lýðræði felst að venju-
legir borgarar geti kom-
ið sínum málum á fram-
færi milliliðalaust. Í
beinu lýðræði felst einn-
ig réttur til að leggja
fram eigin tillögur, en
ekki bara að veita
stjórnmálamönnum
syndaaflausn með því að
samþykkja hugmyndir
sem þeir þora ekki að
taka ábyrgð á sjálfir.
Einhvern veginn virð-ast sumir menn hafa
það á tilfinningunni að
ef menn hafi of mikið
frelsi til að leggja fram
tillögur þá mundi það
allt enda í einhverri vit-
leysu (já, Svisslend-
ingar, þeir hafa nú
sleppt sér). Þetta er
sama skoðun og heldur
áfenginu í ríkinu og hélt
ljósvakamiðlum í hönd-
um hins opinbera. Menn
óttast að allt of mikið
frelsi geti gert menn
bókstaflega brjálaða;
menn leyfi allt og kunni
sér hvergi hóf. Aðrir
óttast á hinn bóginn að
fámennir en aktífir hóp-
ar muni geta komið
öfgafullum hugmyndum
sínum á framfæri, þjóð-
nýtt fallvötnin og bann-
að kjötát þvert á skoð-
anir hins þögla
meirihluta sem er
kannski ekki jafn æstur
út af málinu og kýs því
kannski ekki.
Þetta er hvort sem eralltaf að gerast nú
þegar. Til dæmis er
landbúnaðarmálum
áreiðanlega ekki stjórn-
að í takt við meirihluta
vilja landsmanna, þeim
er stýrt samkvæmt
meirihluta þeirra sem
láta þau sig einhverju
varða, þ.e. bænda. Til
viðbótar má segja að ef
„hinn þögli meirihluti“
er svona ofboðslega
þögull að hann nennir
ekki einu sinni að kjósa,
þá er hann auðvitað
enginn meirihluti.
Ég held að þegar ölluer á botninn hvolft
mundi það ekki breyta
svo miklu að hafa hér
virkt beint lýðræði. Ein-
hver getur þá spurt til
hvers að vera að standa
í þessu öllu saman, með
öllum tilheyrandi til-
kostnaði ef að
niðurstaðan á svo að
vera nákvæmlega sú
sama? Ég svara þeirri
spurningu með spurn-
ingu pólsks jaðar-
hægrimanns: „Til hvers
að láta konur kjósa?
Þær kjósa hvort sem er
alveg eins og menn-
irnir!““ segir Pawel að
lokum.
STAKSTEINAR
Óttinn við beint lýðræði
Víkverji skrifar...
Víkverja ofbýður stundum eins ogsjálfsagt ýmsum öðrum gíf-
uryrðin og dellan, sem veður uppi á
hinum svokölluðu umræðuvefjum á
Netinu. Þingflokksformaður Frjáls-
lynda flokksins hefur nú gert garð-
inn frægan með því að láta ósmekk-
leg ummæli falla um pólitíska
andstæðinga sína á einum slíkum
vef. Ein afleiðing þessara umræðu-
hátta þingmannsins var að Sigurður
Ingi Jónsson, einn af helztu fram-
bjóðendum Frjálslynda flokksins í
síðustu kosningum, sagði sig úr hon-
um.
x x x
Í pistli á vefnum Deiglunni tekurUnnur Brá Konráðsdóttir upp
sjónarmið Morgunblaðsins í málinu
og skrifar: „Morgunblaðið veltir upp
þeirri spurningu hvort þau viðbrögð
Sigurðar Inga Jónssonar að segja
sig úr Frjálslynda flokknum vegna
óánægju með tjáningarform vara-
formanns flokksins og viðurkenn-
ingu forystu flokksins á því tjáning-
arformi, séu vísbending um að
hinum almenna borgara sé að verða
nóg boðið. Þá kastar blaðið fram
þeirri spurningu hvort tímabært sé
að stjórnmálamenn, fjölmiðlar og
aðrir sem taki þátt í opinberum um-
ræðum, taki höndum saman um að
bæta umgengnishætti sína hver við
annan að þessu leyti. Ég verð að
taka undir þessi sjónarmið Morg-
unblaðsins og hrósa Sigurði Inga
fyrir að kjósa að sætta sig ekki við
þessi vinnubrögð forystu flokksins.
Ég sem áhugamaður um pólitíska
umræðu nenni ekki lengur að láta
bjóða mér að þurfa að lesa í gegnum
eða hlusta á neikvæð gífuryrði og
svívirðingar um nafngreinda ein-
staklinga áður en greinarhöfundur/
ræðumaður/nafnlaus höfundur kem-
ur sér að kjarna málsins þ.e. ef það
er þá einhver kjarni yfir höfuð.“
x x x
Þessar umræður minna Víkverja áþað, sem haft var hér í blaðinu á
dögunum eftir bandaríska fræði-
manninum Steven Clift, sérfræðing í
rafrænu lýðræði. Clift segir að 99%
af pólitískri umræðu á Netinu sé
bull. Hann telur sig hins vegar hafa
getað takmarkað bullið á vefnum E-
Democracy.Org, sem hann tók þátt í
að setja upp: „Við höfum búið til
reglur sem gilda um umræðu á þess-
um vettvangi. Fyrsta reglan er sú að
þú skrifir undir nafni. Í öðru lagi fær
hver og einn bara að senda tvö inn-
legg á dag. Með þessu komum við í
veg fyrir að tveir vitleysingar deili
sín á milli allan daginn og geri okkur
hin brjáluð.“
Þessar ráðleggingar finnst Vík-
verja að íslenzkir umræðuvefir ættu
að taka til sín.
Morgunblaðið/Kristinn
99% af öllu, sem skrifað er um póli-
tík á Netið, er bull!
LÁRÉTT
1 heimsku, 8 ólyfjan, 9
gefa koss, 10 umfram, 11
sárar, 13 út, 15 mat-
arsamtíningur, 18 vegna,
21 aula, 22 hvinur, 23 áa,
24 föt.
LÓÐRÉTT
2 viðurkennum, 3 líkams-
hlutar, 4 poka, 5 sleifin, 6
skynja, 7 hafði upp á, 12
for, 14 askur, 15 frásögn,
16 stétt, 17 landið, 18 sjá
eftir, 19 þekktu, 20 sefar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 fámál, 4 fágæt, 7 látin, 8 ólmar, 9 dýr, 11 iðra,
13 gróa, 14 undin, 15 harm, 17 álar, 20 enn, 22 lyfið, 23
ertan, 24 tunna, 25 tuðra.
Lóðrétt: 1 fálki, 2 mátar, 3 lund, 4 flór, 5 gómar, 6 terta,
10 ýldan, 12 aum, 13 Gná, 15 hollt, 16 rifan, 18 látið, 19
renna, 20 eðla, 21 nekt.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html