Morgunblaðið - 12.03.2004, Page 55
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 55
ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, segir að þrátt fyrir
að liðið hafi tryggt sér sæti í átta
liða úrslitum Meistaradeildarinnar
séu spænska liðið Real Madrid og
ríkjandi Evrópumeistarar, AC Mil-
an, líklegust til afreka í keppninni.
Wenger er ekki sammála veðbönk-
um á Englandi sem telja að Arsenal
sé líklegast til þess að vinna Meist-
aradeildina í ár, en staðan er þessi
5-2 Arsenal, 13-5 Real Madrid, 5-1
AC Milan, 6-1 Chelsea, 13-2 Depor-
tivo La Coruna, 12-1 Porto, 18-1
Lyon og Mónakó.
„Það þarf ekki annað en að skoða
verðlaunasafn þessara liða til þess
að sjá hvar þau standa. Real Madrid
hefur níu sinnum orðið Evrópu-
meistari og Milan sex sinnum. Ars-
enal hefur aldrei unnið Evr-
ópumeistaratitil og því tel ég að
þessi tvö lið séu líklegust til þess að
blanda sér í baráttuna. Ég hef ekki
hugmynd um hve langt við náum í
að þessu sinni en við höfum verið að
ná okkur á strik eftir að hafa byrjað
illa í riðlakeppninni,“ segir Wenger
en Arsenal hefur unnið fimm leiki í
röð í Meistaradeildinni.
Þegar dregið verður í dag verða
nöfn liðanna átta í sama hatti, þann-
ig það lið frá sama landi geta dreg-
ist saman og einnig lið sem léku
saman í riðli í byrjun keppninnar.
Eftir dráttinn verður einnig ljóst
hvaða lið koma til með að mætast í
undanúrslitum.
Wenger telur Milan og
Real sigurstranglegust
FÓLK
RAGNA Ingólfsdóttir féll úr leik
í 1. umferð á All England mótinu í
badminton í gær þegar hún beið
ósigur fyrir Miu Tjiptawan frá Hol-
landi í tveimur lotum, 11:5 og 11:5.
CARLO Cudicini braut bein í
hægri handlegg á æfingu í gær og
er líklegt að hann verði frá æfing-
um og keppni um tíma, hversu lengi
lá ekki fyrir í gærkvöldi. Neil Sul-
livan leikur því í marki Chelsea
gegn Bolton um helgina.
JOHN Terry, fyrirliði enska úr-
valsdeildarliðsins Chelsea, segir við
BBC að hann óski eftir því að
stjórnendur félagsins taki af allan
vafa um framtíð knattspyrnustjóra
liðsins, Claudio Ranieri. Enski
landsliðsmaðurinn segir að það sé
ekki viðunandi að alla daga sé því
velt upp í enskum fjölmiðlum að
Ranieri muni hverfa á braut næsta
sumar og að Sven Göran Eriksson,
þjálfari enska landsliðsins, muni
taka við starfinu.
PETER Kenyon, stjórnarformað-
ur Chelsea, hefur sagt að vinni liðið
ekki titil á leiktíðinni muni tímabilið
vera misheppnað en Terry segir að
slíkar væntingar séu óraunhæfar
þar sem að sigur í Meistaradeild-
inni sé raunhæfasti möguleiki
Chelsea þessa stundina, þar sem
forskot Arsenal í deildarkeppninni
sé of mikið. „Claudio hefur gert frá-
bæra hluti hjá Chelsea og það
myndi hjálpa mikið ef stjórn félags-
ins lýsti yfir stuðningi við hann.
Vonandi verður það gert fljótlega
þannig að allir geti einbeitt sér að
því að spila knattspyrnu,“ segir
Terry og bætir því við að Ranieri
eyði nánast öllum sínum tíma í
starfið og sé ávallt að hugsa um hag
leikmanna í starfi sínu.
TRACY McGrady, framherji Or-
lando Magic, skoraði 62 stig í sigri
liðsins gegn Washington Wizards í
fyrrinótt og er það þriðja mesta
stigaskor leikmanns í NBA-deild-
inni á sl. 12 árum. David Robinson
skoraði 71 stig fyrir San Antonio
Spurs og Michael Jordan 63 stig í
úrslitakeppninni fyrir Chicago
Bulls gegn Boston Celtics.
RENATE Götschl frá Austurríki
sigraði í samanlögðum árangri á
heimsbikarmótum vetrarins í risa-
svigi á móti sem fram fór í Sestr-
iere á Ítalíu í gær. Nadia Styger
frá Sviss sigraði á mótinu í Sestr-
iere, Þjóðverjinn Maria Riesch varð
önnur og Michaela Dorfmeister frá
Austurríki varð þriðja. Götschl
varð sjöunda í risasviginu í gær en
það nægði henni til þess að landa
heimsbikartitlinum í risasvigi en
hún sigraði einnig í samanlögðum
árangri á brunmótum vetrarins.
ÞRÍR leikmenn Leicester sem
hafa setið í fangelsi á Spáni í viku
er lausir úr prísundinni, þeir voru
leystir úr haldi gegn tryggingu ár-
degis í dag.
Í upphafi annars fjórðungs komstHamar yfir í annað skipti leiknum
í stöðunni 21:23, en eftir þetta hafði
Snæfell yfirhöndina
það sem eftir var.
Munurinn í leikhléi
var sjö stig, 48:41,
Snæfelli í vil, var
mest fyrir tilstilli Dondrells Whit-
more að heimamenn höfðu forystu,
en hann átti afar góðan leik og hafði
skorað 22 stig í fyrri hálfleik. Í upp-
hafi fjórða fjórðungs skiptu heima-
menn um gír í vörninni og tókst þann-
ig að skora 13 stig gegn 4 á fjögurra
mínútna kafla, þar með voru úrslitin
ráðin í þessum leik. Þó heimamenn
hafi unnið nokkuð sannfærandi sigur
þá vantaði eitthvað upp á einbeit-
inguna.
Í lið Snæfells átti Dondrell Whit-
more afar góðan leik, er gríðarlega
öflugur í vörninni, stal nokkrum bolt-
um og skoraði grimmt eða alls 39 stig.
Hlynur Bæringsson er engum líkur,
þó stigaskorið hafi ekki verið hátt hjá
honum þá tók hann alls 18 fráköst,
þar af tíu sóknarfráköst og var mjög
vinnusamur í vörninni. Sigurður Á.
Þorvaldsson kom sterkur til leiks og
var með sinn besta leik um allnokkra
hríð. Corey Dickerson lék þennan
leik á annan hátt en hann hefur gert
oft áður, þ.e. lét boltann ganga mikið
meira og þar með kom mun betra
flæði í sóknarleik Snæfells. Hafþór I.
Gunnarsson skilaði sínu hlutverki
mjög vel eins og honum er einum lag-
ið. Edward Dotson varð fyrir því að fá
höfuðhögg snemma í leiknum og lék
því lítið í fyrri hálfleik en kom nokkuð
sterkur í þann síðari. Lýður Vignis-
son og Andrés Heiðarsson áttu ágæt-
ar innkomur í leikinn.
Hjá gestunum lék Lárus Jónsson
mjög vel, hraðinn hans kemur að góð-
um notum í varnarleiknum, stjórnar
sóknarleik liðsins vel og er síðan ógn-
andi í skotum sínum. Marvin Valdi-
marsson lék afar vel þegar á leikinn
leið. Svavar Pálsson var mjög sterkur
framan af leik en lenti í villuvandræð-
um í síðari hálfleik. Chris Dade var
lengi í gang en var mjög ógnandi þeg-
ar á leikinn leið, en var samt eins og
hann gengi ekki á öllum. Faheem
Nelson og Lavell Owens, stóru menn-
irnir í liðinu, skiluðu sínu ágætlega,
sérstaklega þó í fráköstunum. Einnig
átti Hallgrímur Brynjólfsson ágætar
innkomur.
Snæfell
sterkara
DEILDARMEISTARAR Snæfells
fögnuðu sigri á Hamar í fyrsta
leik liðanna í 8 liða úrslita-
keppni um Íslandsmeistaratit-
ilinn í gærkvöldi í Stykkishólmi,
99:86. Það var hátt spennustig-
ið á leikmönnum beggja liða
framan af leik og augljóst að
bæði lið ætluðu sér mikið nú
þegar komið er í úrslitakeppn-
ina. Snæfell var þó í við sterkara
liðið lengi framan af fyrsta leik-
hluta og náð mest átta stiga for-
ystu um miðjan leikhlutann.
Ríkharður
Hrafnkelsson
skrifar
SVEN Göran Eriksson, landsliðs-
þjálfari Englendinga í knattspyrnu,
hefur gefið forsvarsmönnum Knatt-
spyrnuspyrnu Akademíu Íslands
grænt ljós á að verða ráðgjafi
knattspyrnuskólans sem Arnór
Guðjohnsen stofnaði fyrir ári. Er-
iksson verður Akademíunni innan
handar á ýmsum sviðum. Hann hef-
ur ritað formála að stefnumótun
skólans og þjálfarar hans og for-
ráðamenn hafa fengið vilyrði frá
Eriksson um að geta leitað til hans
með ráðleggingar. Arnór Guðjohn-
sen segir vel mögulegt að Eriksson
komi til Íslands í haust og verði við-
staddur þegar afreksþjálfun verði
hleypt af stokkunum hjá skólanum.
Gríðarleg ásókn hefur verið í skól-
ann. 700 nemendur voru í fyrra og
það sem af er þessu ári hafa 400
nemendur sótt skólann sem starfar
á ársgrundvelli.
„Þar sem við töldum skólann fara
vel af stað og þá afreksstefnu sem
við erum með í kollinum þá fannst
okkur við þurfa ráðgjöf og vildum
helst af öllu fá stórt nafn til liðs við
okkur. Upp kom hugmynd að ræða
við Eriksson. Hann tók vel í þetta
en vildi heyra betur hvað við vær-
um að hugsa, hann bauð okkur á
sinn fund í desember. Hann þurfti
eðlilega að fá sinn tíma til að svara
okkur vegna samnings síns við
enska knattspyrnusambandið en
fyrir nokkrum dögum barst okkur
svar frá honum þar sem hann sagð-
ist reiðubúinn að aðstoða okkur á
allan hátt,“ sagði Arnór Guðjohn-
sen við Morgunblaðið.
Með Arnóri í Knattspyrnu Aka-
demíu Íslands eru fyrrverandi at-
vinnumenn og lykilmenn í íslenska
landsliðinu á árum áður, Guðni
Bergsson, Eyjólfur Sverrisson og
Sigurður Jónsson, en yfirþjálfari
skólans er Þorlákur Árnason, þjálf-
ari Fylkis, og með honum starfa
valinkunnir og mjög hæfir þjálf-
arar.
Sven Göran
til liðs
við Arnór
Í byrjun annars leikhluta skoruðuleikmenn Keflavíkur 14 stig gegn
aðeins 3 stigum Tindastólsmanna á
aðeins þremur mín-
útum. Tindastóll tók
þá leikhlé og fór bet-
ur yfir sín mál. Kefl-
víkingar gáfu þá
meira í og skoruðu þrettán stig í röð,
á þeim kafla varði Gunnar Einarsson
troðslu frá Svavari Birgissyni og náði
aftur boltanum og sendi á Derrick Al-
len, sem tróð svo boltanum með til-
þrifum, allt ætlaði um koll að keyra á
Sunnubrautinni og Tindastólsmenn
neyddust til að taka leikhlé aftur.
Keflvíkingar voru hreint út sagt
miklu betri aðilinn í fyrri hálfleik og
vakti það mikla undrun að Tindastóll
skyldi spila 2:3 svæðisvörn gegn
Keflavík en sú vörn opnar mikið fyrir
skotmennina fyrir utan og Keflavík-
ingar nýttu það vel og gengu til leik-
hlés með þægilega 26 stiga forystu
57:31. Tindastóll mættu í seinni hálf-
leik miklu ákveðnari og voru búnir að
skipta úr svæðisvörn yfir í maður á
mann og gekk það mjög vel. Þeir
skoruðu tíu fyrstu stig seinni hálf-
leiks á aðeins fjögurra mínútna kafla.
Clifton Cook og David Sanders voru
hreint út sagt óstöðvandi í sókninni
hjá Tindastól. Á þessum kafla réð
Tindastóll algjörlega gangi leiksins
og allt virtist stefna í það að þetta
yrði allt í einu leikur að nýju en ekki
leikur kattarins að músinni. Keflvík-
ingar tóku þá leikhlé og breyttu þeir
skipulagi síns leiks og fóru að leita
meira inní teig á þá Fannar Ólafsson
og Derrick Allen. Þegar leið á fjórða
leikhluta virtist allt púður vera búið
hjá Tindastól enda fór mikil orka í
það að vinna upp 26 stiga forystu en
lið mega alls ekki hleypa Keflvíking-
um í þannig stöðu og hvað þá á sínum
heimavelli á Sunnubrautinni. Svæð-
isvörn Tindastóls í fyrri hálfleik fór
gjörsamlega með þá og komust Kefl-
víkingar mest í 30 stiga forystu, en
Tindastóll náði að minnka muninn
mest niðrí 9 stig en lengra komust
þeir ekki. Bestu menn vallarins voru
Derrick Allen, Gunnar Einarsson,
Clifton Cook og David Sanders sem
átti tilþrif leiksins þegar hann tróð
knettinum gjörsamlega yfir Jón N.
Hafsteinsson.
„Við byrjuðum leikinn ágætlega en
eftir fyrsta leikhluta kom kafli hjá
Keflavík þegar þeir rúlluðu gjörsam-
lega yfir okkur, á þessum kafla náð-
um við ekki að róa leikinn heldur
hleyptum við honum í algjört ráða-
leysi hjá okkur og Keflavík nýtti sér
það,“ sagði Kristinn Geir Friðriksson
þjálfari Tindastóls.
„Við byrjuðum mjög sterkt og náð-
um fljótt þægilegri forystu. En aftur
á móti í seinni hálfleik fórum við að
slaka á og spiluðum á tíma lélega
vörn og þá vorum við meðmjög léleg
skot,“ sagði Fannar Ólafsson leik-
maður Keflavíkur.
Morgunblaðið/Hilmar Bragi
Derrick Allen átti stórleik og treður hann hér knettinum í körf-
una hjá Tindastól með tilþrifum við mikinn fögnuð áhorfenda.
Hann skoraði 20 stig fyrir Keflavík.
Auðvelt hjá
Keflavík
KEFLVÍKINGAR lögðu Tindastólsmenn auðveldlega að velli í fyrsta
leik þeirra í 8-liða úrslitum úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik í
Keflavík í gærkvöldi, 98:81. Leikurinn fór hægt af stað og var mikið
af mistökum á upphafskaflanum. Tindastólsmenn lögðu leikinn
þannig upp að þeir spiluðu 2:3 svæðisvörn í þeirri von að hægja á
Keflvíkingum. Þessi vörn var mjög gloppótt og nýttu Keflvíkingar
sér það og fengu mikið af opnum skotum. Keflvíkingar spiluðu góða
vörn og neyddu Tindastólsmenn í erfið skot.
Davíð Páll
Viðarsson
skrifar