Morgunblaðið - 12.03.2004, Page 58

Morgunblaðið - 12.03.2004, Page 58
58 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hvernig leysir þú morðmál þegar öll vitnin og allar vísbendingar benda á þig? Óskarsverðlaunahafinn Denzel Washington MÖGNUÐ SPENNUMYND! Sýnd kl. 10.10. B.i. 16. Jack Black fer á kostum í geggjaðri grínmynd sem rokkar! Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20.  SV Mbl  Skonrokk HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Fleiri börn...meiri vandræði! 11 Óskarsverðlaun þar á meðal besta myndin, besti leikstjóri og besta handrit kl. 5 og 9. Yfir 94.000 gestir Sýnd kl. 4 . B.i. 12. Síðustu sýningar Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 16 ára.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16 ára. Hvernig leysir þú morðmál þegar öll vitnin og allar vísbendingar benda á þig? Óskarsverðlaunahafinn Denzel Washington MÖGNUÐ SPENNUMYND! Frábær gamanmynd frá leikstjóra There´s Something About Mary og Shallow Hal ´ Sýnd kl. 4 og 6. Með íslenskum texta PÍSLARSAGA Krists, kvikmynd Mels Gibsons um síðustu tólf stund- irnar í lífi Krists er tvímælalaust einn athyglisverðasti kvikmyndavið- burður ársins, þótt lengra væri litið, þar sem þetta langtíma sérvisku- verkefni leikarans, sem flestir töldu að yrði of listrænt sinnuð til að vekja mikla athygli, hefur bæði dregið að sér metaðsókn í Banda- ríkjunum og þyrlað upp miklum fjölmiðla- og umræðustormi. Ýmislegt kom umtalinu af stað, fyrir utan frægð Gibsons og nær óhindrað aðgengi hans að kynning- arvélum fjölmiðlanna. Áhyggju- raddir um að myndin kynni að ýta undir Gyðingahatur tóku að heyrast í nóvember og ekki vakti það minni athygli þegar spurnir bárust af því að páfinn hefði fengið að sjá mynd- ina og sagt um hana: „Það er eins og það var“. Ummælin fengust að vísu ekki staðfest frá Vatíkaninu, og ekki heldur hrakin, en auglýs- ingaslagorðið fór engu að síður í loftið. Mel Gibson sagðist sjálfur hafa haft það að leiðarljósi að draga upp sem nákvæmasta mynd af Písl- arsögunni og stuðst þar við texta guðspjallanna og heimildir og ráð- gjöf guðspekinga og fræðimanna, auk þess sem hin fornu tungumál arameíska og latína eru töluð í myndinni. Þá lýsti Gibson því yfir í viðtali að heilagur andi hefði unnið í gegnum sig við leikstjórnina. Gagnrýni þeirra sem óttast að kvikmyndin ýti undir þá gamal- grónu forsendu Gyðingafordóma, að Gyðingar hafi borið ábyrgð á dauða Krists, hefur Gibson því vísað á bug, bæði með því að benda á að Jesús hafi dáið fyrir syndir mann- kynsins alls, og að það sem fram komi í myndinni standi þegar svart á hvítu í Nýja-Testamentinu. Hér er þó nauðsynlegt að hafa í huga að texti Biblíunnar sem og aðrir trúar- textar, eru háðir túlkunum og mati, sem mótast af ríkjandi viðhorfum hvers tíma og ólíkum áherslum milli hópa. Þá á Biblían sér flókna rit- unar- og varðveislusögu, og þó svo að textar guðspjallanna fjögurra séu byggðir á raunverulegum at- burðum, verður ekki loku fyrir það skotið að framsetning þess sem skráði atburðina hafi mótast af að- stæðum og ákveðinni sannfæringu. Framsetning Mels Gibsons á Písl- arsögu Krists er háð enn frekari túlkun og mati, því hér er stokkað saman, valið og hafnað úr texta guð- spjallanna fjögurra, stundum er smurt á það sem fyrir er, skáldað í stöku eyður, atburðir dram- atíseraðir, andrúmsloft búið til og persónur útfærðar í útliti, fram- komu og fasi, sem gefur orðum þeirra auka merkingu. Sú hugmynd að myndin tjái hér hina einu sönnu Píslarsögu, er því ekki aðeins vill- andi og dæmd til að mistakast, held- ur einnig varhugaverð ef menn taka upp á að túlka hana bókstaflega, því vissulega er Gyðingaelítan og múg- urinn á bak við hana dregin hér upp í neikvæðu og grimmu ljósi, líkt og reyndar fleiri í myndinni, s.s. hinir grimmu rómversku hermenn sem framfylgja treglega veittri aftöku- skipun Pontíusar Pílatusar að beiðni æðstuprestanna og múgsins. Pílatus er dreginn upp í mun mild- ara ljósi en sagnfræðin gefur tilefni til, og jafnvel firrtur ábyrgð á þeim miklu misþyrmingum sem undir- menn hans beita Jesúm, og persóna djöfulsins í myndinni virðist hafa áhrif á. Einhliða persónusköpun, þar sem svipljót illmenni og „vondir kallar“ ráðast gegn hugprúðum fulltrúum hins góða stingur í stúf við hina vönduðu umgjörð og til- komumikinn sjónrænan heim mynd- arinnar, sem á þó sínar áhrifaríku stundir. Það er einkum í góðu per- sónunum sem rúm er gefið til per- sónusköpunar, og þar eru það helst María mey (Maia Morgenstern) og Jesús sem ná hvað sterkastri nær- veru. Jim Caviezel gæðir Jesúm innilegum kærleika, en nokkuð vantar upp á áhrifamátt hans þegar hann ávarpar lærisveina sína og áheyrendur í stuttum endurlitsat- riðum út í gegnum frásögnina. Mel Gibson nálgast Píslarsöguna út frá bæði persónulegu og opin- beru trúarviðhorfi, sem strangtrú- aður fylgismaður kaþólsks aðskiln- aðarhóps frá umbótum Vatíkansins. Mótast hann þar af trúarskilningi sem á rætur að rekja til miðalda- kirkjunnar, og leggur áherslu á hugleiðingu um píslir og þjáningar Krists sem leið til bjargræðis. Gib- son sagðist sjálfur hafa greitt úr mikilli sálarangist í gegnum gerð myndarinnar, ástundað hugleiðingu um píslir Krists til að vinna bug á erfiðleikum í lífinu. Í þessu ljósi má segja að Gibson takist að hluta það sem hann ætlar sér með þessari kvikmynd. Að draga fram þær lík- amlegu þjáningar sem Kristur leið fyrir aðra en um leið að segja mjög túlkunarlega lokaða píslarsögu. Frásögnin lýsir því þegar Kristur er staddur í Getsemanegarðinum, bíður þess sem verða vill, er hand- tekinn og færður til yfirheyrslu undir stjórn Kaífasar æðstaprests og síðan til Pontíusar Pílatusar, er hýddur, dæmdur til krossfestingar, látinn bera krossinn upp að Gol- gatahæð og er þar krossfestur og rís að lokum upp. Leikstjórinn leggur megináherslu á að skapa áþreifanlega tilfinningu með áhorfandanum fyrir hverju höggi sem dynur á líkama Jesú og verður smásmugulega útfært hýð- ingaratriðið t.d. einn af meginköfl- um myndarinnar. Næg eru ráð til þess að draga fram tilfinningu fyrir holdlegum píslum þar sem kvik- myndamiðillinn er annars vegar og er það áberandi þáttur í Píslarsögu Krists hversu óspart þau eru notuð. Áhrifahljóð ýkja upp högg, sárs- aukaviðbrögð eru sýnd hægt og tón- list notuð óspart til að túlka drunga, þjáningar, hugrekki eða kærleika. Að mínu mati gleymir leikstjórinn sér í kvalalosta hýðingaratriðisins, og gengur of langt í grafísku ofbeld- inu. Þá strax er mælirinn fylltur hjá bæði Jesú og áhorfandanum. Með atriðinu er þegar búið að ganga fram af áhorfandanum, sem er ann- að hvort orðinn dofinn af hryllingi eða farinn að fjarlægja sig sögu- heiminum (með því minna sig á að þetta sé bara latex, gerviblóð og leikarar). Nema þá að hann hafi þeim mun meiri ánægju af blóð- ugum og ofbeldisfullum myndum en þá er hann farinn að upplifa Písl- arsöguna á röngum forsendum. Hvað ímynd Jesú Krists varðar er í raun búið að ganga frá honum við hýðinguna, eftir það er hann aðeins úrvinda og deyjandi maður, ekki frelsari að taka lokaskrefin í átt að óhjákvæmilegri fórn sinni með til- heyrandi viljastyrk og innri átökum. Þannig er einblínt á líkama Krists á kostnað andans og þeirra hug- mynda sem hann boðaði. Kvik- myndin skapar sterka tilfinningu fyrir píslum Krists en veika tilfinn- ingu fyrir því hvað fórn hans merkti og hvers vegna valdhafar töldu hann svo alvarlega ógn. Maður ósk- ar þess bara að þessu ljúki í stað þess að fylgja frelsaranum skref fyrir skref. Píslarsaga, án greinis „Kvikmyndin skapar sterka tilfinningu fyrir píslum Krists en veika tilfinn- ingu fyrir því hvað fórn hans merkti og hvers vegna valdhafar töldu hann svo alvarlega ógn,“ segir m.a. í dómnum. Hér má sjá Símon frá Kýrene hjálpa Jesú með krossinn. KVIKMYNDIR Smárabíó, Regnboginn, Laug- arásbíó og Borgarbíó Akureyri. Leikstjórn: Mel Gibson. Handrit: Mel Gib- son og Benedict Fitzgerald. Kvikmynda- taka: Caleb Deschandel. Tónlist: John Debney. Aðalhlutverk: Jim Caviezel, Maia Morgenstern, Monica Belluci, Hirsto Shopov, Francesco De Vito. Lengd: 127 mín. Bandaríkin. Newmarket Films, 2004. PÍSLARSAGA KRISTS/ THE PASSION OF THE CHRIST Heiða Jóhannsdóttir Píslarsaga Krists verður frum- sýnd 19. mars í áðurgreindum kvikmyndahúsum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.