Morgunblaðið - 28.03.2004, Side 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
30 ÁRA BANN TIL VANSA
Reynir Jónsson, yfirtannlæknir
Tryggingastofnunar ríkisins, sagði á
málþingi um tannheilsu barna í gær
að tímabært væri að auka þátttöku
sjúkratrygginga í kostnaði við tann-
læknaþjónustu ellilífeyrisþega. Gild-
andi almannatryggingalög heimiluðu
ekki að elli- og örorkulífeyrisþegum
væri veitt boðleg tannlæknaþjónusta
á kostnað sjúkratrygginga. Þó að tal-
ið hafi verið eðlilegt árið 1974 að
banna greiðslur sjúkratrygginga fyr-
ir krónur og brýr væri það til vansa
að þetta ákvæði skyldi enn standa
óbreytt þrjátíu árum síðar. Næstu
skref ættu svo að vera að hækka end-
urgreiðslualdurinn sem fyrst í 20 ár
til samræmis við önnur Norðurlönd.
Spurst fyrir um búskipti
Vart hefur orðið við aukinn fjölda
fyrirspurna um skipti á dánarbúum
að undanförnu hjá embætti sýslu-
mannsins í Reykjavík í framhaldi af
gildistöku nýrra laga um erfða-
fjárskatt og umfjöllun um þau. Rúnar
Guðjónsson sýslumaður segir meira
um fyrirspurnir síðustu daga en áður
og einnig væri meira um að pantaðir
væru tímar vegna skipta. Um 450–
550 eignaskipti fara um hendur emb-
ættisins á hverju ári.
Calidris selur hugbúnað
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið
Calidris og flugfélagið Emirates hafa
gengið frá samningi um kaup Em-
irates á hugbúnaðinum „Revenue
Integrity“, sem ætlað er að auka
tekjur flugfélaga m.a. með því að
auka gæði bókana og sætanýtingu.
Framkvæmdastjóri Calidris segir
samninginn skipta verulegu máli
fyrir fyrirtækið.
Vilja aðskilnað
Serbíuþing samþykkti á föstudag
að Kosovo væri óaðskiljanlegur hluti
af Serbíu en einnig er gert ráð fyrir
að Serbar í héraðinu fái sjálfstjórn.
Sagði Vojislav Kostunica, forsætis-
ráðherra Serbíu, að allt tal um fjöl-
þjóðlega paradís í Kosovo væri út í
hött en hann hefur áður lagt til að
héraðinu verði skipt upp í kantónur
að svissneskri fyrirmynd.
Y f i r l i t
Kynningar – Með Morgunblaðinu í
dag fylgir auglýsingablaðið Haust-
ævintýri Heimsferða.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í dag
Sigmund 8 Hugsað upphátt 60
Listir 34/40 Myndasögur 62
Af listum 34 Dagbók 62
Reykjavíkurbréf 38 Hugvekja 67
Minningar 41/45 Leikhús 68
Skoðun 46/49 Fólk 68/73
Bréf 48/49 Bíó 71/73
Þjónusta 49 Sjónvarp 74
Umræðan 50/53 Veður 75
* * *
ÓBYGGÐANEFND hefur ritað
fjármálaráðherra bréf og tilkynnt
honum að nýtt svæði, Norðaust-
urland, hafi verið tekið til með-
ferðar hjá nefndinni. Hefur sveit-
arfélögum og sýslumanns-
embættum á svæðinu jafnframt
verið tilkynnt um þetta. Fjármála-
ráðherra hefur fyrir hönd ríkisins
frest til 1. ágúst nk. að lýsa kröfum
um þjóðlendur á umræddu svæði,
sem er hið fimmta í röðinni sem
óbyggðanefnd tekur fyrir.
Á meðfylgjandi korti sést nánar
staða mála hjá nefndinni. Sem
kunnugt er hefur fjármálaráðherra
nýlega lýst kröfum sínum á Suð-
vesturlandi í landnámi Ingólfs og
þá er úrskurðar að vænta frá
óbyggðanefnd um þjóðlendumörk í
Rangárvallasýslu og V-Skaftafells-
sýslu. Fyrstu úrskurðir voru kveðn-
ir upp um uppsveitir Árnessýslu í
mars árið 2002 og síðan í sveitarfé-
laginu Hornafirði undir lok síðasta
árs.
Svæðið Norðausturland afmark-
ast að vestan af meginfarvegi Jök-
ulsár á Fjöllum allt frá Jökulsárósi
í Öxarfirði að aðalupptökum árinn-
ar í Dyngjujökli. Að austan afmark-
ast svæðið af farvegi Lagarfljóts
allt frá ósum þess á Héraðssandi
þangað sem Selfjót rennur í það.
Síðan fylgja mörk svæðisins Gilsá
og austurmörkum Fljótsdalshrepps
við A-Hérað, Djúpavogshrepp og
sveitarfélagið Hornafjörð.
Í bréfi óbyggðanefndar til fjár-
málaráðherra segir að framan-
greind afmörkun til austurs endi í
Geldingafelli. Þaðan er dregin lína
til suðvesturs inn á Vatnajökul, yfir
hnjúk í 1.483 m hæð og áfram í
Grendil, þaðan í nafnlausan hnjúk
skammt sunnan Grendils, áfram yf-
ir Goðahnjúka og í miðja Breiða-
bungu og loks á stefnu á Svíahnjúk
eystri til skurðar við framangreind
vesturmörk.
Norðausturland næsta
svæði óbyggðanefndar
"
!!
"
#
Frestur til að
lýsa kröfum til
1. ágúst
NÝJASTA herskip hollenska flot-
ans de Ruyter, kom í kurteis-
isheimsókn til Reykjavíkur á föstu-
dag og verður við Miðbakka í
Reykjavíkurhöfn til mánudags.
Skipið er nú á reynslusiglingu um
Norðursjó og Atlantshaf þar sem
ekki síst á að prófa það í stór-
viðrum. Ætlunin er að hollenski
flotinn taki það í notkun í apríl.
Skipið er 6250 tonn og 144 metra
langt og í áhöfn eru 173 manns.
Hollenskt herskip í heimsókn
VERSLANIR Whole Foods í
Bandaríkjunum sem munu hafa ís-
lenskt lambakjöt á boðstólum verða
120 næsta haust og fjölgar um 23. Í
fyrra hófst sala á íslenska lambakjöt-
inu í Texas, Colorado, Nýju Mexíkó
og Louisiana en í ár bætast við sum
miðríki Bandaríkjanna. Fyrir var
kjötið selt á allri austurströndinni.
Þá hefur sölutímabilið lengst úr fjór-
um vikum í sextán og að sögn Bald-
vins Jónssonar, framkvæmdastjóra
Áforms, er gert ráð fyrir að kjötið
verði fáanlegt í 20 vikur á næsta ári.
73% sögðu bragðið frábært
Hann nefnir að verslanirnar hafi
látið fara fram óháða könnun í fyrra
á meðal tæplega 2.900 viðskiptavina
á íslenska lambakjötinu. „Þar kemur
meðal annars fram að 73% aðspurðra
töldu bragðið af kjötinu vera frábært
og 27% að það væri fyrir ofan með-
allag,“ segir Baldvin. „Þetta er eins-
dæmi í bragðkönnun af þessu tagi að
sögn starfsmanna verslananna. Þá
virtist sem fólk væri nokkuð ánægt
með verðið jafnvel þó svo að það væri
frekar hátt og má geta þess að kíló af
hryggjum kostaði kr. 2.400. Það kom
samt ekki á óvart að vöruvitund var
ekki nægilega mikil og er því stefnt
að því að auka hana með markvissum
hætti. Niðurstaða þessarar könnun-
ar hefur leitt til þess að mikill áhugi
er fyrir því að koma kjötinu sem
fyrst inn í allar verslanir Whole
Foods,“ segir Baldvin.
Íslenskt lambakjöt
selt í 120 verslunum
Whole Foods
TVÖ ný sveitarfélög munu á næst-
unni eignast hlut í Hitaveitu Suður-
nesja hf. og það þriðja eykur hlut
sinn. Eru þetta sveitarfélögin sem
eftir stóðu í eigendahópi Jarðlindar
hf. sem lét bora háhitaholu á Trölla-
dyngjusvæðinu en Hitaveitan eign-
ast fyrirtækið nú að fullu.
Fjögur sveitarfélög stofnuðu Jarð-
lind hf. á sínum tíma ásamt Hitaveitu
Suðurnesja og Jarðborunum hf. Fé-
lagið lét bora háhitaholu í rannsókn-
arskyni á Trölladyngjusvæðinu 2001.
Jók hlut sinn smám saman
Hitaveitan hefur smám saman ver-
ið að eignast stærri og stærri hlut í
fyrirtækinu með því að leggja því til
aukið hlutafé. Á síðasta ári óskaði
Garðabær eftir að selja sinn hlut og
keypti Hitaveitan hann og átti þá
82,5% hlutabréfanna. Nú hefur verið
ákveðið að Hitaveitan eignist fyrir-
tækið að fullu og sameini það rekstri
sínum. Júlíus Jónsson, forstjóri Hita-
veitunnar, segir að menn hafi gefist
upp á því að hafa sérstakt félag um
þetta verkefni. Hlutur Hitaveitunnar
hafi sífellt verið að aukast. Þá standi
menn frammi fyrir því að ekki fáist
lengur endurgreiddur virðisauka-
skattur vegna borana og rannsókna
hjá þessu félagi vegna þess að það
hafi enn sem komið er engar tekjur.
Gengið hefur verið frá kaupum á
hlut Jarðborana hf. Hafnarfjarðar-
bær, Kópavogsbær og Bessastaða-
hreppur fá hins vegar um hálfs pró-
sents eignarhlut í Hitaveitu
Suðurnesja, hvert sveitarfélag fyrir
sig, fyrir hlutabréfin í Jarðlind.
Hafnarfjarðarbær átti fyrir hlut í
fyrirtækinu en Kópavogsbær og
Bessastaðahreppur eru nýir eignar-
aðilar. Á aðalfundinum í fyrradag var
samþykkt hlutafjáraukning til að
hrinda þessum áformum í fram-
kvæmd.
Jarðlind verður
sameinuð Hitaveitu
Suðurnesja
Tveir nýir
hluthafar í
Hitaveitunni
MORGUNBLAÐIÐ barst
áskrifendum sínum seint í gær-
morgun vegna bilunar í prent-
smiðju blaðsins. Blaðið biður
lesendur velvirðingar á þeim
óþægindum, sem af þessu hlut-
ust.
Morgunblaðið
seint vegna
bilunar