Morgunblaðið - 28.03.2004, Side 64
DAGBÓK
64 SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Vestmannaey kemur í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Green Frost, Karach-
arova, Tsefey og Kaz-
an koma í dag.
Fréttir
Fjölskylduhjálp Ís-
lands Eskihlíð 2–4 í
fjósinu við Miklatorg.
Móttaka á vörum og
fatnaði, mánudaga kl.
13–17. Úthlutun mat-
væla og fatnaðar,
þriðjudaga kl. 14–17.
Sími skrifstofu er
551 3360, netfang dal-
ros@islandia.is, gsm
hjá formanni 897 1016
Mannamót
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Leiksýning
Snúðs og Snældu
„Rapp og rennilásar“
fellur niður í dag,
næsta sýning á
miðvikudag 31. mars
kl. 14. Dansleikur í
kvöld kl. 20, Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið er opið virka
daga frá kl. 9–17, alltaf
heitt kaffi á könnuni.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Mosfellsbæ. Pútt-
kennsla í Íþtóttahúsinu
Varmá, á sunnudögum
kl. 11–12.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Skráning
stendur yfir í ferð á
söng- og gamanleik
leikfélagsins Snúðs og
Snældu sem farið verð-
ur í föstudaginn 2. apríl
kl. 14. Hljómsveitina
Garðagaul vantar fleiri
meðlimi, upplýsingar í
síma 820 8553. Fótaað-
gerðastofa Hrafnhild-
ar, tímapantanir í síma
899 4223
Gerðuberg, félags-
starf. Fjölbreytt dag-
skrá hvern virkan dag
frá 9–16.30, m.a. vinnu-
stofur opnar og spila-
salur og áhugahópar s.
575 7720.
Vesturgata 7. Mið-
vikudaginn 31.marz
kl.13 verður páska-
bingó, kl.15 syngur kór
fjölmenntunar Hug-
hrif, undirleikari
Tryggvi Ragnarsson
kórstjóri Laufey Geir-
laugsdóttir, rjómaterta
í kaffitímanum.
Kvenfélag Hreyfils.
Fundurinn verður
þriðjudaginn 30. mars
kl. 20, páskaföndur.
Kristniboðsfélag
karla. Fundur verður í
Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58–60,
mánudaginn 29. mars
kl. 20. Helgi Hró-
bjartsson sér um fund-
arefnið. Allir karlmenn
velkomnir.
NA (Ónefndir fíklar).
Neyðar- og upplýs-
ingasími 661 2915.
Opnir fundir kl. 21 á
þriðjudögum í Héðins-
húsinu og á fimmtu-
dögum í KFUM&K,
Austurstræti.
Félag kennara á eft-
irlaunum. Skákhópur
FKE hittist í Kenn-
arahúsinu við Lauf-
ásveg miðvikudaginn
31. mars klukkan 14.
Bókmenntahópur
FKE fundar í Kenn-
arahúsinu við Lauf-
ásveg fimmtudaginn 1.
apríl klukkan 14.
Fræðslu- og skemmti-
fundur FKE verður
laugardaginn 3. apríl í
Húnabúð, Skeifunni
11, og hefst klukkan
13.30.
Minningarkort
Minningarkort Graf-
arvogskirkju. Minn-
ingarkort Grafarvogs-
kirkju eru til sölu í
kirkjunni í s. 587 9070
eða 587 9080. Einnig er
hægt að nálgast kortin
í Kirkjuhúsinu,
Laugavegi 31, Reykja-
vík.
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í s. 588 7555 og
588 7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrif-
stofu félagsins í Suð-
urgötu 10 (bakhúsi) 2.
hæð, s. 552 2154. Skrif-
stofan er opin mið-
vikud. og föstud. kl.
16–18 en utan skrif-
stofutíma er símsvari.
Minningarkort MS fé-
lags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103
Rvk.Skrifstofan er op-
in mán.-fim. kl.10-15.
S. 568 8620. Bréfs.
568 8621. Tölvupóstur
ms@msfelag.is.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimer-
sjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd
alla daga í s. 533 1088
eða í bréfs. 533 1086.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eft-
irtöldum stöðum: í s.
588 9220 (gíró) Holts-
apóteki, Vesturbæj-
arapóteki, Hafn-
arfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elías-
dóttur, Ísafirði.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í s. 565 5727.
Í dag er sunnudagur 28. mars,
88. dagur ársins 2004. Orð dags-
ins: Lítið til fugla himinsins.
Hvorki sá þeir né uppskera né
safna í hlöður og faðir yðar him-
neskur fæðir þá. Eruð þér ekki
miklu fremri þeim?
(Mt. 6, 20.)
Torfi Kristjánsson skrif-ar um milliliðalaust
lýðræði í pistli í Deigl-
unni í gær.
„Umræður um svokall-
að „beint lýðræði“ eða
„milliliðalaust lýðræði“
hafa verið nokkuð í um-
ræðunni á undanförnum
misserum. Við fyrstu sýn
er hér um hið besta mál
að ræða, að allur almenn-
ingur geti aukið áhrif sín
með beinum hætti, en er
allt sem sýnist í þessum
efnum? Margir gagnrýn-
endur vilja til að mynda
meina að slíkt fyr-
irkomulag geti snúist upp
í hálfgert skrílræði þar
sem sterkir hags-
munahópar munu ráða
enn meiru en þeir gera í
dag við núverandi kerfi,“
skrifar Torfi.
Fremstir í flokki þeirrasem talað hafa fyrir
þessum málstað eru
nokkrir þingmenn Sam-
fylkingarinnar og rit-
stjórn Morgunblaðsins. Í
febrúar síðastliðnum
lögðu þessir þingmenn
Samfylkingarinnar fram
þingsályktunartillögu um
milliliðalaust lýðræði. Í
greinargerð með með til-
lögunni segir m.a.:
„Nú hefur þorri al-
mennings aðstæður og
upplýsingar til að taka
sjálfur stærri ákvarðanir
um hagi sína og líf.“
Hér er á ferðinni ein af
helstu röksemdum þeirra
sem aðhyllast beint lýð-
ræði, þ.e.a.s. að fólk hafi
almennt aðgang að nán-
ast sömu upplýsingum og
kjörnir fulltrúar fólksins
og geti því auðveldlega
tekið ákvarðanir til jafns
við þá.
Í pistli sem undirritaðurskrifaði í febrúar á síð-
asta ári er bent á veik-
leika þessarar röksemdar
en þar segir:
„Almannavalsfræðin
benda þó á einn aug-
ljósan veikleika við þessa
röksemd sem er sá að
einstakir kjósendur vita
að niðurstaða kosninga
veltur yfirleitt ekki á
einu atkvæði og því hafa
þeir lítinn hvata til þess
að afla sér upplýsinga
(fórnarkostnaður of hár)
um málefni til þess að
geta framkvæmt upplýst
val. Þetta er kölluð
„skynsamleg vanþekk-
ing“, þ.e.a.s. kjósandinn
bregst skynsamlega við
hagrænum hvötum. Ann-
ar alvarlegur veikleiki er
sá að rannsóknir hafa
sýnt fram á það að fátæk-
ara fólk tekur síður þátt í
þjóðaratkvæðagreiðslum
og hlýtur það að skekkja
niðurstöðuna verulega.“
Annað atriði sem veik-
ir fyrr greinda rök-
semdafærslu er það að
sárafá mál eru nægj-
anlega einföld og afdrátt-
arlaus, svo að hægt sé
með einhverjum skyn-
samlegum hætti að setja
fram skýra valkosti í al-
mennri atkvæðagreiðslu.
Allt regluverk samfélags-
ins hangir saman og ein-
staka breytingar geta
haft víðtæk áhrif, langt
út fyrir það sem eðlilegt
væri að ætlast til að allur
almenningur hefði yf-
irsýn yfir.“
STAKSTEINAR
Beint lýðræði og yfirsýn
almennings
Ættarmót á
Snorrastöðum
AFKOMENDUR hjón-
anna Magnúsar Magnús-
sonar og Sigríðar Herdísar
Hallsdóttur frá Hallkels-
staðahlíð í Kolbeins-
staðahreppi, efna til ættar-
móts að Snorrastöðum í
Kolbeinsstaðahreppi
helgina 11.–13. júní 2004.
Þátttökutilkynningar ber-
ist til undirritaðra fyrir 15.
maí nk.
Gylfi Vilberg Árnason,
588-0165, Borghildur Jós-
úadóttir, 431-3034, Mar-
grét Magnúsdóttir, 554-
3152, Olga Bjartmarsdótt-
ir, 482-3536 og Sveinn Flosi
Jóhannsson, 486-6789.
Geitungastríðið
NÚ nálgast óðfluga sá tími
þegar geitungarnir fara að
láta á sér kræla á ný. Það
er ljóst að þessir nýliðar í
fánu Íslands eru komnir til
að vera. Fæstir Íslending-
ar hafa alist upp við þenn-
an ófögnuð og kunna því
lítt að umgangast þá og
sýna sterkari hræðsluvið-
brögð og taugaveiklun í
nærveru þeirra en íbúar
annarra landa. Oft liggur
við slysum af þeirra völd-
um, ekki bara vegna
stungna, heldur einnig
þegar þeir komast inn í bíla
sem eru á ferð, trufla
stjórnendur ýmissa tækja
eða jafnvel bara fólk við
eldamennsku.
Því vaknar sú spurning
hvort það sé ekkert sem við
getum gert til að stemma
stigu við þessu ástandi, er
stríðið tapað?
Ef almenningur og fjöl-
miðlar tækju höndum sam-
an og ákvæðu að búa til
einn (jafnvel tvo) alveg sér-
stakan „geitungadag“ væri
hægt að höggva stór skörð
í geitungastofnana í þétt-
býli.
Það er tiltölulega mjög
auðvelt að koma auga á
geitungabú, ef maður er að
leita að því. Það þarf bara
að hafa augun hjá sér og
athyglisgáfuna í lagi. Ef
hver og einn tæki það að
sér að grandskoða sinn eig-
in garð og/eða nánasta um-
hverfi, á einum og sama
deginum, væri hægt að
kortleggja mjög stóran
hluta búanna. Menn myndu
svo hringja í tiltekið „geit-
unganúmer“ og tilkynna
nákvæma staðsetningu
búsins. Sveitarfélögin
myndu svo kosta og sjá um
að eyða búunum.
Vissulega eru geitungar
komnir til að vera, því mið-
ur. En það er langt frá því
að „stríðið“ sé tapað og
ekkert sem við getum gert
í málinu. Með því að raun-
gera hugmyndina um
„geitungadaginn“ (dag-
ana?) getum við haldið
þessum ófögnuði í skefjum
og endurheimt þá afslöpp-
uðu íslensku sumarstemn-
ingu sem flest okkar ólust
upp við.
Einn geitungafælinn.
Dýrahald
Grár og hvítur
högni týndur
EINS árs högni, innikisa,
grár og hvítur og ómerkt-
ur, týndist frá Túngötu í
vesturbæ Reykjavíkur sl.
þriðjudag, 23. mars. Þeir
sem hafa orðið hans varir
hafi samband í síma
869 5992 og 562 1643.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 smáspölur, 8 drekkur, 9
gufuhreinsar, 10 kraftur,
11 magrar, 13 happið,
15 nagdýrs, 18 tagl, 21
elska, 22 linu, 23 end-
urtekið, 24 bílnum.
LÓÐRÉTT
2 glatar, 3 sér eftir, 4
högg, 5 vesælan, 6 reyk-
ir, 7 veiðidýr, 12 skel,
14 stefna, 15 blanda, 16
skæld, 17 á litinn, 18
kjaftæði, 19 stríðin, 20
lifa.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hjarn, 4 kulna, 7 Aðils, 8 rofin, 9 afl, 11 agni,
13 saur, 14 löngu,
15 bull, 17 máni, 20 bak, 22 gutla, 23 ærinn, 24 ræðin, 25
agnar.
Lóðrétt: 1 hjara, 2 arinn, 3 nusa, 4 kurl, 5 lyfta, 6 Arnar,
10 fanga, 12 ill, 13 sum,
15 bágur, 16 látið, 18 ásinn, 19 iðnir, 20 bann, 21 kæpa.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
MIKIÐ hefur verið rætt um aðhugmyndir gerist ekki heldur
verði að veruleika, í kjölfar auglýs-
ingaherferðar Símans. Það væri að
bera í bakkafullan lækinn færi Vík-
verji að blanda sér í þá málfarslegu
umræðu nú, en hann verður þó að
geta þess að umrætt fyrirtæki hefur
hvorki hjálpað hugmyndum Vík-
verja að gerast né verða að veru-
leika.
Þannig er að farsími sem Víkverji
festi kaup á í einni af verslunum
Símans bilaði nokkrum mánuðum
eftir kaupin og þar sem ábyrgðin var
ekki útrunnin fór Víkverji með sím-
ann í bilanaþjónustu Símans.
x x x
Þegar Víkverji spurði hvort hægtværi að fá lánssíma meðan á við-
gerðinni stæði spurði konan fýld á
svip „Ertu hjá Og Vodafone?“ Vissu-
lega var það rétt, eftir að hafa gert
verðkönnun ákvað Víkverji að flytja
öll sín viðskipti þangað. Fannst hon-
um þetta þó vera undarleg spurning,
síminn var jú keyptur hjá Símanum.
Víkverja fannst þetta vera svolítið
eins og ef matvöruverslun sem seldi
blandara spyrði hvort eingöngu
hefðu verið notaðar appelsínur úr
sömu verslun ef komið væri með
blandarann í viðgerð.
Víkverji fékk sem sagt ekki láns-
síma og svo leið og beið. Sem betur
fer miskunnaði systir Víkverja sig
yfir hann og lánaði honum gamlan
síma sem hún var löngu hætt að
nota. Annars er nú hætt við að hug-
myndir Víkverja hefðu dáið drottni
sínum án þess að hægt hefði verið að
hrinda þeim í framkvæmd.
Rúmum tveimur mánuðum síðar,
eftir að hafa nokkrum sinnum spurt
um afdrif símans, hringdi Víkverji
enn í Símann til að spyrja hverju
sætti. Þá var síminn kominn frá
Þýskalandi, þangað sem hann var
sendur í viðgerð, og búinn að vera í
nokkra daga á lagernum hjá Síman-
um án þess að tilkynnt væri um að
hægt væri að ná í hann.
x x x
Víkverja fannst þetta reyndar svo-lítið fyndið, því að þegar síminn
var keyptur hafði hann ákveðna teg-
und í huga, þá algengustu á Íslandi.
Sölumaður Símans sannfærði Vík-
verja þó um að það væri langbest að
kaupa aðra tegund, því bilanaþjón-
usta fyrir umrætt merki væri fyrir
neðan allar hellur. Víkverja finnst þó
ólíklegt að finna megi verri bil-
anaþjónustu en þetta.
Síminn virkar reyndar enn ekki
alveg eins og skyldi, en Víkverji er
að velta því fyrir sér að kaupa bara
nýjan síma, því ekki nennir hann að
reyna að láta gera við farsímann
sinn aftur. Þetta er kannski ástæðan
fyrir því hversu léleg viðgerðarþjón-
ustan er, þannig eru viðskiptavinir
hvattir til að henda þeim gamla um
leið og hann virkar ekki sem skyldi
og fjárfesta í nýju símtæki.
Morgunblaðið/Arnaldur
Farsími Víkverja virkar enn ekki
sem skyldi, en hann er búinn að gef-
ast upp á bilanaþjónustunni og ætl-
ar að fjárfesta í nýjum síma.