Morgunblaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Alllangt er liðið síðan góð-vinur minn, Ásgeir Guð-mundsson sagnfræðing-ur, lét mér í té ljósrit afteiknaðri myndasögu,
sem birst hafði í austurrísku blaði,
Das kleine Volksblatt. Þar var skráð
ferða- og framhaldssaga rituð af
blaðamanni sem kallaði sig Onkel
Freddy og hafði ferðast um Ísland
þvert og endilangt sumarið 1930. Á
teikningum þeim sem birtust með
framhaldssögunni mátti sjá ýmis
góðkunn andlit, sem maður kannað-
ist við frá æsku- og unglingsárum.
Höfundurinn, Onkel Freddy, mun
hafa verið Theo Henning, ungur
Austurríkismaður sem hingað kom
Alþingishátíðarsumarið 1930. Með
hverri mynd sem birtist með frá-
sögninni er birt vísa, sem skýrir efn-
ið. Þar sem rúm það sem mér er
skammtað í Morgunblaðinu er tak-
markað verður að láta nægja að
birta aðeins fáar myndir af öllum
þeim fjölda sem fylgja frásögn höf-
undarins.
Læknirinn
Gunnlaugur Einarsson, háls-, nef-
og eyrnalæknir, var nafnkunnur
maður í Reykjavík á sinni tíð. Hann
setti höfðinglegan og stórmannlegan
svip á mannlíf í Reykjavík allt frá því
er hann settist hér að sem starfandi
læknir í byrjun þriðja áratugar til
þess dags er hann féll frá árið 1944.
Á þessu má sjá að sumum mönnum
nægja tæp 15 ár til þess að verða
samtíðinni minnisstæðir. Gætir þar
margs, útlits, framkomu, fé-
lagsstarfa og trúnaðarstarfa í þágu
almennings. Það kemur fram í riti
Vilmundar Jónssonar landlæknis að
Gunnlaugur Einarsson hefir dvalist í
Noregi um skeið. Ljósmynd birtist í
bók Vilmundar af Gunnlaugi þar sem
hann situr við borð með Vilmundi og
konu hans, Kristínu Ólafsdóttur á
læknastofu. Svo er einnig mynd, sem
Gunnlaugur er talinn hafa tekið af
Vilmundi og Kristínu konu hans.
Gunnlaugur nam læknisfræði víða
á Norðurlöndum. Einnig stundaði
hann sérnám í Vínarborg og Nürn-
berg. Í Vínarborg mun hann hafa
kynnst Theo Henning, höfundi og
teiknara ferðasögu Onkel Freddys.
Gunnlaugur var félagslyndur
maður og blandaði víða geði við
menn. Einkum voru honum hugleik-
in málefni þar sem hann gat látið
gott af sér leiða. Má nefna Rauða
kross Íslands, en þar var hann for-
maður. Þá sat hann í stjórn Ferða-
félags Íslands, var formaður Golf-
klúbbsins, formaður Sænsku
vikunnar og félagsins Ísland-Sví-
þjóð, heiðursfélagi Stúdentakóra-
sambandsins í Stokkhólmi.
Gunnlaugur var sæmdur ýmsum
heiðursmerkjum. Hann ritaði grein-
ar um læknisfræðileg efni. (Heimild-
ir: Ísl. æviskrár, PE001. V. bindi).
Kona Gunnlaugs var Anna Guðrún
Kristjánsdóttir. Þau eignuðust son,
Kristján Eystein, og dóttur, Unni
Dóru. Anna Guðrún giftist síðar
Ragnari Ófeigssyni presti í Fells-
múla á Landi.
Svo sem sjá má á ferðasögu „On-
kel Freddys“ þá leitar austurríski
ferðagarpurinn til Gunnlaugs lækn-
is. Mynd sú er hann dregur upp af
Gunnlaugi er ótrúlega lík honum.
Greinarhöfundi þykir hafa tekist
einkar vel að ná svipnum. Er einnig
minnisstætt að sjá Gunnlaug lækni
bera „starfstákn“ sitt, höfuðgjörð
með spegli. Þannig gekk hann að
jafnaði um á stofu sinni við Sóleyj-
argötu. Slíkt hið sama munu þeir oft
hafa gert þeir Ólafur Þorsteinsson,
Jens Jóhannesson og Eyþór Gunn-
arsson, sem allir voru læknar um
þessar mundir.
Teiknimyndasagan
Hyggjum nú að myndunum sem
fylgdu frásögninni:
17. ágúst 1930 birtist í barnablaði
Freddys frænda teikning af Gunn-
laugi. Hann er þar sagður læknir í
Reykjavík. Heldur á dagblaðinu
Wiener Zeitung og les það brosleit-
ur. Á næstu mynd (nr. 2) er Gunn-
laugur glaðbeittur á gönguferð við
Reykjavíkurhöfn. Þar er hann
nefndur Doktor Einarsson. Býður
hann gestum að gista hjá sér: „Ser-
vus Nazi“.
Íslandsfarinn þakkar og efnir til
vináttu við son Gunnlaugs læknis.
Þeir félagar bregða svo á leik. Á
fimmtu myndinni eru heilabrot um
tímann og klukkuna.
Á sjöttu mynd verður Vínarbúan-
um hugsað heim. Sólin gengur aldrei
til viðar hér á norðurslóð. Geislarnir
lýsa og ljóma á lofti. Hann fórnar
höndum til himins.
Viku síðar, 24. ágúst, er ferðalang-
urinn staddur við vegamót. Skiltið
þar sem vegir skiptast sýnir Laug-
ardalur – Geysir.
Textinn fjallar um stolt Íslands.
Svo hefir Íslandsfaranum tekist að
verða sér úti um reiðskjóta og skellir
á skeið. Kristján, sem höfundur
tengir lækninum, situr hér á hest-
baki. Vandséð er við hvern er átt.
Kristján Eysteinn sonur Gunnlaugs
og Önnu er smádrengur um þessar
mundir. Kristjánsnafnið er annars
algengt í ættinni. Þeir félagar ríða í
átt til hveranna. Á fjórðu myndinni
varar Kristján ferðafélagann við
hættum. Skipar honum að halda
kyrru fyrir. Strókur mikill rís og
teygir sig til himins á næstu mynd.
Svo hrópar Vínarbúinn skelfdur:
„Hjálpaðu mér Kristján. Ég soðna.“
Hann er þá kominn efst á gossúluna
eða strókinn, sem spýtist sjóðbull-
andi hátt í loft.
Morgunblaðið/Ásdís
Ferðasaga
„Onkel
Freddy“
Gunnlaugur Einarsson, háls-, nef- og eyrnalækn-
ir, var nafnkunnur maður í Reykjavík á sinni tíð
og rataði meira að segja í teiknimyndaformi á
síður austurríska blaðsins Das kleine Volksblatt.
Pétur Pétursson rifjar upp söguna.
Málverk eftir Theo Henning í eigu tengdadóttur Gunnlaugs læknis,
Helgu Þórðardóttur.
Höfundur er þulur.
Morgunblaðið/Ásdís
Málverk eftir Theo Henning í eigu
tengdadóttur Gunnlaugs læknis,
Helgu Þórðardóttur.