Morgunblaðið - 28.03.2004, Síða 37

Morgunblaðið - 28.03.2004, Síða 37
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 37 www.thjodmenning.is Skáld mánaðarins - aldamótaskáld Dagskrá tileinkuð aldamótaskáldum verður sunnudaginn 28. mars kl. 14:00. Þórunn Valdimarsdóttir segir frá Matthíasi Jochumssyni ungum. Ólafur Kjartan Sigurðarson og Jónas Ingimundarson flytja lög við ljóð aldamótaskálda. Ókeypis aðgangur MATTHÍAS JOCHUMSSON Kynntu þér tilboð okkar á bílaleigubílum Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað Það borgar sig – Hringdu til AVIS í síma 591-4000 Við erum í 170 löndum 5000 stöðum T.d. Reykjavík, London, Kaupmannahöfn, Frankfurt, Milano, Alicante ... AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 – Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is – Heimasíða www.avis.is Minnum á Visa afsláttinn í sýninguna gegnum Egil Ingibergs- son, en þeir unnu fyrst saman í Meist- aranum og Margarítu sem frumsýnd var núna um áramótin,“ segir Felix. „Gideon er alveg einstakur og er að vinna hluti með tölvutækninni sem enginn hér á Íslandi hefur menntun til. Með tölvum og sýningarvélum skapar hann hreyfimyndir og ljósa- stemningar sem kallast á við ljóðin. Með því að taka myndbandstæknina í þjónustu leiksýningarinnar má segja að við séum að vissu leyti að vinna okkur yfir landamæri listgreina,“ seg- ir Kolbrún. „En allt frá okkar fyrstu uppfærslu, þ.e. Hinum fullkomna jafningja, hefur það verið nokkurs konar „manifesto“ hópsins að nýta tæknina á spennandi og nýstárlegan máta í leikhúsvinnu okkar,“ segir Fel- ix. Sjálfstæðu leikhóparnir auðga leiklistina Nýverið gerði leikhópurinn Á sen- unni samstarfssamning við Reykja- víkurborg til næstu þriggja ára. Að- spurð hvaða þýðingu samningur á borð við þennan hafi fyrir leikhópinn svarar Felix um hæl: „Hann hefur alla þýðingu, því með þessu erum við komin með traustari grunn í starfi okkar. Þetta þýðir líka að við getum farið að búa til einhver framtíðar- plön,“ segir Kolbrún. „Styrkurinn frá Reykjavíkurborg skilar okkur einni uppsetningu á ári. Auk styrksins frá menntamálaráðuneytinu sjáum við fram á að geta sett upp eina til tvær sýningar á ári næstu tvö árin og á sama tíma haldið fyrri sýningum lif- andi. Að mínu mati eru samstarfs- samningar framtíðin og vænlegasta leiðin fyrir ríkið til að koma betur að starfi sjálfstæðu leikhópanna, auk þess að styrkja einstök verkefni. Vissulega kostar þetta peninga, en þetta skilar líka afskaplega miklu inn í menningarlífið,“ segir Felix. Kolbrún tekur undir þetta og bend- ir á hve mikilvægt sé að tryggja sjálf- stæðu leikhópunum lengri líftíma. „Það skiptir svo miklu máli að við fáum tækifæri til að þroska okkar hugmyndir, vegna þess að því meira sem leikhóparnir fá tækifæri til að þroska hugmyndir sínar því betur skila þær hugmyndir og nýjungar sér síðan inn í hágróðurinn, þ.e. stofnana- leikhúsin. Í raun er þáttur sjálfstæðu leikhúsanna kominn á það stig að við finnum hvernig sjálfstæðu leikhúsin auðga leiklistina,“ segir Kolbrún að lokum. silja@mbl.is Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.