Morgunblaðið - 28.03.2004, Side 42

Morgunblaðið - 28.03.2004, Side 42
MINNINGAR 42 SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Vilborg Þórðar-dóttir fæddist 25. mars 1924. Hún lést á Landspítalanum 16. mars síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna í Vatns- nesi, Þórðar Jóns- sonar, f. 1. apríl 1889, d. 26. október 1972, og Sigrúnar Guðjónsdóttur, f. 26. júní 1900, d. 2. febr- úar 1996. Þórður var frá Alviðru, einn tólf systkina, en Sigrún frá Laugabökkum og voru systkini hennar fimm, báðir þessir bæir í Ölfushreppi. Vilborg var elst fjögurra barna Sig- rúnar og Þórðar, hin eru Guðríður, f. 14. jan. 1926, Þur- íður Eygló, f. 2. ág. 1927, og Hjálmar, f. 27. apríl 1929. Vilborg gekk 8. janúar 1964 að eiga Magnús Þorsteins- son frá Húsafelli, f. 15. mars 1921. Son- ur þeirra er Þor- steinn, f. 8. janúar 1965. Útför Vilborgar var gerð frá Selfosskirkju 23. mars. Þórður og Sigrún voru sitt fyrsta búskaparár í Reykjavík en fluttu síð- an 1924 að Hvítanesi í Hvalfirði og bjuggu þar í tvíbýli og varð Þórður að vera á togara til að vinna fyrir fjölskyldunni. Búskapurinn í Hval- firði varð stuttur, landið lítið, jörðin rýr. Þau keyptu jörðina Vatnsnes í Grímsnesi 1925 og fluttu þangað um vorið með Vilborgu ársgamla. Vatns- nes er mikil ágætisjörð en byggingar allar ófullkomnar þegar hjónin flutt- ust þangað. Þau voru góðir bændur og húsuðu vel jörðina og gerðu að miklu góðbýli. Vilborg stundaði nám á héraðs- skólanum á Laugarvatni 1941–1943. Þar þótti hún siðprúður nemandi og eftir því sem Þórður Kristleifsson kennari sagði var hún leiðandi í góðri hegðun meðal stúlknanna. Ekki hefði langskólanám orðið Vilborgu torvelt, hún var næm á alla hluti at- hugul bæði á tæknilega hluti og nátt- úruna, en búskapur og landið laðaði hana að sér. Hún settist að hjá for- eldrum sínum í Vatnsnesi og sneri sér að búskapnum með frábærum dugnaði. Tvö ár var hún ráðskona á skólanum við Ljósafoss og kenndi handavinnu og var það henni einkar vel lagið. Hún var afar lagin við sjúk- ar skepnur og hugsunarsöm við menn og dýr. Árið 1964 giftist Vilborg Magnúsi Þorsteinssyni frá Húsafelli og bjuggu þau síðan í Vatnsnesi til árs- ins 1999 en þá tók Þorsteinn sonur þeirra við búinu og unnu þau hjón honum síðan í Vatnsnesi. Þau voru samhent í að rækta bæði gróður og búfé. Stóran skógarlund ræktaði Vil- borg og túnið þandist út í búskap þeirra. Geta Vilborgar til að skilja menn og málleysingja gerðu hana einkar hæfa til að umgangast unglinga. Margir skyldir og vandalausir unnu hjá þeim á sumrin. Þar lærðu þeir að vinna án þess að þeim væri á nokk- urn hátt of mikið boðið og hjónin urðu félagar þeirra og sumir létu svo um mælt að þarna hefðu þeir komist í þann besta skóla í lífi sínu jafnvel þótt þeir síðar hefðu stundað langt nám í háskóla. Fyrir 4 árum fór Vilborg að kenna sjúkleika sem nú hefur dregið hana til dauða. Hún lést í Landspítalnum hinn 16. mars síðastliðinn. Með Vilborgu er gengin mikil hæfileikakona sem bætti og fegraði land sitt og var mörgum hollur upp- alandi. Þorsteinn Þorsteinsson. Bogga móðursystir mín er eftir- minnileg kona. Hún var ábúðarmikil og afgerandi í allri framgöngu og hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum. Bogga beindi gjarnan rökum fyrir máli sínu í annan farveg en viðtekið var en í samræmi við lífs- gildi hennar og sannfæringu. Það gerði það að verkum að hún var skemmtileg í allri samræðu og skoð- anir hennar krydduðu tilveruna. Bogga var af þessum sökum bæði virt og vinsæl meðal samferðamanna sinna. Þeir sem þekktu Boggu vissu að bak við ábúðarmikið fasið sló göfugt hjarta raungóðrar konu. Sýndi það sig þegar hún annaðist háaldraða, heilsuveila móður sína af mikilli ósérhlífni. Ekki síður sýndi Bogga kærleika sinn í verki er hún á sínum tíma skaut skjólshúsi yfir mann sem búið hafði við ómannsæmandi að- stæður og var af þeim sökum heilsu- veill. Bogga annaðist hann af um- hyggju og virðingu og náði maðurinn góðri heilsu á stuttum tíma. Minn- ingin um þennan mannkærleika sem Bogga sýndi í verki gagnvart sínum minnsta bróður er greypt í huga þeirra sem urðu vitni að. Augljóst er að virðing mannsins og væntum- þykja á Boggu ristir djúpt. Undirritaður átti því láni að fagna að dvelja sem barn í sjö sumur á heimili Boggu. Það var ánægjulegur og lærdómsríkur skóli sem hafði djúp áhrif á sálarlíf ungs drengs. Bogga var ætíð mild og raungóð í garð barna, næm á þarfir þeirra og mætti þeim af hjartahlýju. Í lok hvers sumars umbunaði Bogga framlag allra sem hönd höfðu lagt á plóginn á ærlegan og eftirminnileg- an hátt. Ég er þakklátur Boggu fyrir svo margt og ekki síst þann áhuga sem hún hafði á dætrum mínum tveimur. Hún gladdist mjög yfir fæðingu dótt- ursonar míns og var einlæg gleði hennar dýrmæt gjöf til allrar fjöl- skyldunnar. Boggu verður minnst sem konu sem setti svip sinn á samtímann með vasklegri framgöngu, en þó ekki síð- ur vegna hjartahlýju og göfug- mennsku. Þórður Óskarsson. VILBORG ÞÓRÐARDÓTTIR Senn mun bjalla kveldsins kalla kyssir fjallablærinn rótt. Degi hallar, daggir falla dreymir alla – góða nótt. (Jón Árnason.) Með kærri þökk fyrir allt. Haraldur Eyjólfsson og systkini. HINSTA KVEÐJA Pabbi er farinn, eng- inn ræður sínum næt- urstað. Hann háði harða baráttu við krabbamein en aldrei sagði hann æðruorð, heldur hélt sínum þrautseiga vilja og gekk teinréttur meðan stætt var. Hann var meitlaður af stórbrotnu um- hverfi sem hann ólst upp við í nálægð jökla, straumvatna og náttúrufeg- urðar Svínafells í Hornafirði. Pabbi var grandvar og fumlaus að eðlisfari, flanaði ekki að neinu, hugs- aði allt vel, var þá þögull. Hann dreymdi fyrir daglátum og sagði gjarnan, þarna kemur þá fram draumurinn minn. Fyrr á árum fannst mér oft erfitt að ná sambandi, en ég var mikil pabbastelpa og minn- ingarnar birtast ein af annarri. Pabbi var þolinmóður að hafa mig með sér, leiddi mig ávallt þó að ég hafi vitanlega tafið störfin. Ég átti minn fasta stað í bílnum, sætið fyrir aftan hann og við hlið hans við mat- arborðið. Þegar lagt var upp í ferð sagði hann „maður verður að ætla SIGURJÓN SIGURBERGSSON ✝ Sigurjón Sigur-bergsson, bóndi í Hamrahlíð í Skaga- firði, fæddist í Svína- felli í Nesjum 28. mars 1931. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks aðfara- nótt 24. febrúar síð- astliðinn. Útför Sig- urjóns var gerð frá Reykjakirkju 4. mars. sér af,“ hafa þrek af- lögu til að ná heim á hverju sem gekk. Pabbi var mikill fjár- maður, þær báru það með sér ærnar að þær áttu góðan að. Ef hjörðin skilaði sér ekki af fjalli sá hann fljótt hvaða ær vantaði og hafði hugmynd um hvar væri vænlegt að leita. Hann var snyrti- legur, kenndi okkur að gefa þannig að ekki slæddist á leiðinni eða yfir ærnar sem teygðu sig í heyið. Fóðurgangurinn var rak- aður og aldrei stigið beint úr kró upp í garðann án þess að þurrka vel af sér. Hann fór vel með vélar og tæki, gerði við sjálfur. Pabbi glímdi. Að gefast upp á því sem hann tók sér fyrir hendur eða vann að, kom ekki til mála. Hann var glöggur á tölur og reikningshald, hafði gaman af slíku og talaði þá gjarnan um að glíma. Hann glímdi við að ná kindum úr klettum, olíu- stíflum úr vélum og svo mætti lengi telja. Hans dýrmætasta glíma í lífinu var vafalaust þegar hann hitti mömmu og vann ástir hennar, heimasætunnar á Reykjum. Eins og í ævintýrunum lifðu þau hamingjusöm upp frá því, drottning og kóngur í ríki sínu, Heiða og Sig- urjón í Hamrahlíð og eiga nú 50 ára hjúskap að baki. Eins og hjá öðrum skiptust þó á skin og skúrir. Veikindi mömmu í blóma lífsins reyndu þau mjög, en þau hvöttu hvort annað til dáða, að ég held ómeðvitað svo ein- lægt var þeirra samband. Þau sungu saman í kórum og seinni árin voru þau dugleg að ferðast erlendis og komu endurnærð úr þeim ferðum. Séra Ólafur orðaði það svo fallega á kveðjustund að þau komu honum ávallt fyrir sjónir sem nýtrúlofuð. Elsku pabbi minn, ég vil að lokum þakka þér fyrir allan góða tímann sem við áttum saman. Megi ljósið ei- lífa lýsa þér. Þín dóttir Elín Helga. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Elskuleg konan mín, MAGNEA KRISTÍN FRIÐBJÖRNSDÓTTIR frá Vopnafirði, Háteigsvegi 13, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánu- daginn 29. mars kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Fyrir hönd vandamanna, Daníel Gunnar Sigurðsson. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLDÓRU MARGRÉTAR JÓNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við öllu starfsfólki og heimilisfólki í Seljahlíð fyrir elskulega umönnun, vináttu og hlýhug. Sigríður Jóna Kjartansdóttir, Björn Kristmundsson, Halldór Kjartan Kjartansson, Margrét Gunnarsdóttir, María Ólöf Kjartansdóttir, Einar Guðmundsson, barnabörn og langömmubörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JENS MARKÚSSONAR, Hlíf I, Ísafirði. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði fyrir góða og hlýja umönnun. Halldóra Jensdóttir, Jóhann Marinósson, Guðmunda Jensdóttir, Halldór Halldórsson, Ásgerður Jensdóttir, Guðmundur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. UNA COLLINS búninga- og leikmyndahönnuður, lést á heimilinu sínu í Islington, London, sunnudaginn 21. mars. Sophie Wolchover. Fyrir hönd vina og samstarfsfólks á Íslandi, Elísabet Þorsteinsdóttir, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Vala Kristjánsson, Þórhildur Þorleifsdóttir. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR B. GUÐMUNDSSON, Vesturhópshólum, Álagranda 23, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Þórarins Gíslasonar, læknis. Guð blessi ykkur öll. Lára Hjaltadóttir Cooke, Kevin Cooke, Guðmundur Hjaltason, Elísabet Kristbergsdóttir, Bára Hjaltadóttir, Sigurgeir Tómasson, Ásta Hjaltadóttir, Halldór Teitsson, Úlfar B. Hjaltason, barnabörn og barnabarnabarn. MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds- laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að til- greina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima- síma). Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgun- blaðsins Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Birting afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.