Morgunblaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 9 Skógarhlíð 18, sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslend- inga sem fara nú þangað í þúsundatali á hverju ári með Heims- ferðum. Í apríl er vorið komið og fegursti tími ársins fer í hönd í Prag enda er þetta vinsælasti tími ferðamanna til að heimsækja borgina. Fararstjórar Heimsferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menn- ingu. Góð hótel í hjarta Prag, frá- bærir veitinga- og skemmtistaðir. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 36.550 Flugsæti til Prag með sköttum. Verð kr. 49.950 Flug og hótel í 7 nætur, hótel ILF, m.v. 2 í tveggja manna herbergi. Flug, gisting, skattar. Bókunargjald kr. 2.000. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Síðustu sætin Páskar í Prag 8. apríl frá kr. 36.550 Grípið tækifærið! Markaðurinn Rauðagerði 25 (Kælitæknihúsinu, hægra megin) Síðasta vikan • lýkur 3. apríl Þrenns konar verð í gangi: 500 - 1.000 og 2.000 kr. OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 14-18 Úrval af kvenfatnaði Enn er hægt að gera góð kaup í stórum og litlum stærðum Hér erum við STÍFLURÉTT í Fljótum er gjöró- nýt að mati tæknifræðings Sveitar- félagsins Skagafjarðar sem skoðaði hana á dögunum. Þetta hefur orðið ljósara eftir því sem snjórinn við réttina hefur minnkað, en snjóflóð sem eyðilagði sumarbústað í Fljót- um í janúar sl. fór þá yfir réttina. Heimamenn lifðu í voninni fyrst eftir snjóflóðið að réttin hefði verið komin á kaf í snjó og sloppið að mestu við skemmdir en strax var ljóst að flóðið fór að talsverðum hluta yfir hana. Nú er hins vegar komið í ljós að allir veggir eru meira og minna brotnir og hafa bútar úr þeim borist um 100 metra niður fyrir réttina en spýtur og moldarhnausar hafa farið borist um 250 metra niður á sléttlendi sem þarna er. Réttin, sem upphaflega var byggð árið 1959, var steinsteypt og stóð við Ólafsfjarðarveg í landi jarðarinnar Lundar. Almenningur sem rúmaði um þúsund fjár var í miðju og dilkar 15 talsins utanmeð. Enginn dilkanna er alveg óskemmdur eftir flóðið og allir útveggir eru skemmdir en minnst sá sem er næstur veginum og hefur hann lílega verið alveg á kafi í snjó þegar flóðið reið yfir. Ekkert er afráðið enn hvað verður gert varðandi aðra rétt á þessum slóðum og raunar ekki ljóst hvort sveitarfélagið mun bera skaðann bótalaust. Vegna staðsetningar réttarinnar var þar oftast fjölmenni á réttardaginn og kom fólk um langan veg bæði til að taka þátt í smölun og ekki síður til að gleðjast með heimafólki. Þarna var rekið inn og réttað fé sem kom af fremsta hluta Austur-Fljótanna. Stíflurétt í Austur-Fljótum í rúst Fljótum. Morgunblaðið Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Hér virðir Auðunn Steingrímsson, bóndi í Stóra-Holti, fyrir sér skemmdirnar á réttinni. ÁSKRIFENDUM Morgun- blaðsins er í dag boðið að skoða sýningu Ólafs Elíassonar, Frost Activity, í Listasafni Reykjavíkur. Húsið verður opið milli kl. 10 og 17 og fengu áskrifendur boðskort sent með blaðinu á föstudag sem þeir eru beðnir að hafa með sér. Veitt verður leiðsögn um sýninguna kl. 12, 13, 14 og 15 og listsmiðja verður opin allan daginn milli kl. 10 og 17. Þar gefst gestum kostur á að útbúa áhöld til eigin tilrauna með speglun og blekkingar augans. Einnig verður efnt til vís- bendingaleiks kl. 10.30, 12.30 og 14.30. Börn og fullorðnir geta þá skoðað sýninguna, fá leiðsögn og taka um leið þátt í vísbendingaleiknum. Áskrifend- um boðið í Listasafn Reykjavíkur UNA Collins, búninga- og leikmyndahönnuð- ur, sem vann við ís- lenskt leikhús í áratugi, lést á heimili sínu í London 21. mars, 68 ára að aldri. Collins fæddist í Isl- ington í London 31. ág 1935 og nam við háskól- ann í Bristol. Hún átti langan og merkan feril sem búninga- og leik- myndahönnuður í Evr- ópu og hóf ferilinn á sjötta áratugnum. Vann hún með helstu leikstjórum Breta, svo sem Peter Brook og Peter Hall. Þá vann hún við m.a. Glenborough Opera, Royal Shakespeare Company og Theatre Workshop auk þess sem hún hannaði búninga við frumuppfærslur á öllum verkum Brendans Behan og mörg- um verka Harolds Pin- ter. Collins kom fyrst hingað til lands árið 1966 og var um tíma fastráðin hjá Þjóðleik- húsinu. Hún hélt tryggð við íslenskt leik- hús upp frá því og vann við tugi leiksýninga hjá Þjóðleikhúsinu, Leik- félagi Reykjavíkur og Leikfélagi Akureyrar. Þá vann hún við á ann- an tug sýninga hjá Ís- lensku óperunni. Síð- ustu leiksýningar hennar hérlendis voru Pétur Pan og Mávahlátur hjá LR 1998–1999. Síð- ustu árin vann hún í leikhúsum og sjónvarpi í Evrópu, einkum Þýska- landi. Una Collins lætur eftir sig tvær dætur. Andlát UNA COLLINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.