Morgunblaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 50
UMRÆÐAN
50 SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Vátryggingafélag Íslands hf. býður til málþings um öryggi í umferð á þjóðvegum landsins á Nordica hóteli,
miðvikudaginn 31. mars kl. 13.00–16.00.
Dagskrá og frummælendur
Setning
Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS.
Hvers vegna farast hlutfallslega fleiri í umferðinni á þjóðvegum en í þéttbýli?
Ágúst Mogensen, framkvæmdastjóri Rannsóknarnefndar umferðarslysa.
Hvernig stuðlar Vegagerðin að auknu umferðaröryggi?
Rögnvaldur Jónsson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Vegagerðarinnar.
Merkingar og vegrið: hjálpartæki eða handvömm?
Ólafur K. Guðmundsson, stjórnarmaður í Landssambandi íslenskra aksturs-
íþróttafélaga og áhugamaður um aukið umferðaröryggi.
Komið upp um hættulegar beygjur á þjóðvegi 1 með SAGA ökurita
Friðgeir Jónsson, framkvæmdastjóri ND á Íslandi.
Á ferð og flugi um landið
Sjónarhorn Ómars Ragnarssonar, fréttamanns og ferðalangs.
Samantekt og ráðstefnuslit
Ragnheiður Davíðsdóttir, forvarnafulltrúi VÍS.
Málþingsstjóri: Óli H. Þórðarson, formaður Umferðarráðs.
Vinsamlegast staðfestið þátttöku með tölvupósti á malthing@vis.is eða í síma 560 5226
fyrir kl. 14 þann 30. mars. Enginn aðgangseyrir.
Ármúla 3, 108 Reykjavík, www.vis.is
Úti að aka?
Málþing VÍS um umferðaröryggismál 31. mars
Alvarlegum slysum fjölgar á þjóðvegum.
Hvers vegna?
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
9
0
8
3
Upplýsingar í síma 588 8899 og á www.kfum.is Vatnaskógur – sumarbúðir fyrir hressa stráka
– úr harðsperrum eftir viðburðaríkan dag í Vatnaskógi
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
1
1
7
0
3
•
s
ia
.i
s
Skráning hefst 31.
mars kl. 8.00
Alveg að drepast
hafa ný samkeppnislög
frá árinu 2000 komið til
þar sem bannákvæði
samkeppnislaganna
voru styrkt til muna.
En það virðist ekki
skipta félagið neinu
máli, það ætlar ekki að
fara að landslögum,
ekki frekar en þeir ein-
staklingar innan félags-
ins sem á undanförnum
misserum hafa verið
dæmdir eða bíða dóms
vegna fjárdráttar frá
viðskiptavinum sínum. Ef hér er
um einlægan brotavilja Félags
fasteignasala að ræða þá er það
mjög alvarlegt. Þetta er félagið
sem skylda á okkur sem utan þess
standa að ganga í þegar ný lög um
fasteignasala taka gildi. En hvers
vegna vegur félagið svona að utan-
félagsmönnum? – Jú, það er aðeins
ein ástæða fyrir því. Tvær fast-
eignasölur bjóða seljendum um-
talsvert lægri söluþóknun en al-
mennt tíðkast á markaðnum. Til að
halda einingu innan félagsins og
hver og ein fasteignasala fari ekki
að svara þessari samkeppni á eigin
forsendum er ákveðið að félagið
sjálft breytist í eins konar verka-
lýðsfélag sem ætlar að verja launa-
kjör félagsmanna sinna með því að
ráðast á aðra sem voga sér að
vinna gegn lægri þóknun. Og ekk-
ert virðist heilagt fyrir Verkalýðs-
félagi fasteignasala, nauðsyn brýt-
ur lög! Og það er nauðsynlegt að
verja kjör stéttarinnar með öllum
tiltækum meðölum þó svo að engin
stétt hafi hlotið jafnmikla launa-
hækkun á síðustu árum og fast-
eignasalar en kjör þeirra hafa
hækkað langt umfram almennar
launahækkanir annarra stétta. Það
skýrist af því að laun fasteignasala
eru tengd fasteignaverði og það
hefur hækkað gríðarlega á und-
anförnum árum. En hvernig eru
þá þessar auglýsingar frá Félagi
fasteignasala kann einhver að
spyrja. Hér kemur sýnishorn:
1. „Er þinn fasteignasali í Félagi
fasteignasala?“
2. „Ekki taka óþarfa áhættu – er
þinn fasteignasali í FF?“
3. „FF fyrir ábyrgt fólk í fast-
eignaviðskiptum“
4. „Annast fagmaður þín við-
skipti?“
5. „Er þinn fasteignasali í Félagi
fasteignasala? Vandaðu valið,
veldu reynslu og þekkingu“
6. „Gerðu kröfur – veldu fast-
eignasala í Félagi fasteignasala“
Þessar auglýsingar hafa birtst á
undanförnum mánudögum í fast-
eignablaði Morgunblaðsins. Nú
skulum við skoða nánar þessar
auglýsingar. „Ekki taka óþarfa
áhættu – er þinn fasteignasali í
FF?“ Hér er beinlínis verið að ýja
að því að fólk sem versli við aðra
en þá sem eru í Félagi fast-
eignasala sé að taka áhættu! Ég
spyr þá, hvers lags áhættu? Ég
hef ekki ennþá fengið skýringu á
því. Nú eru allar starfandi fast-
UNDANFARNA mánudaga
hafa birtst í fasteignablaði Morg-
unblaðsins auglýsingar frá Félagi
fasteignasala þar sem vegið er að
mati undirritaðs með ólögmætum
og afar villandi hætti að starfsemi
þeirra fasteignasala sem kjósa að
starfa utan við félagið. Auglýsing-
arnar eru að mati undirritaðs brot
á 10. og 12. gr. samkeppnislaga og
með ólíkindum að félagið skuli fara
fram með þessum hætti í ljósi þess
að það hefur áður verið kært til
Samkeppnisstofnunar fyrir svipaða
herferð árið 1997. Reyndar slapp
félagið þá fyrir horn eftir að hafa
skotið niðurstöðu Samkeppnisráðs
til áfrýjunarnefndar samkeppn-
ismála. Félagið þótti hins vegar
fara alveg út á brún með þessar
auglýsingar sínar en þær voru
hvergi nærri jafnyfirgengilegar og
þær sem nú eru birtar. Að auki
eignasölur með
sömu lögboðnu
tryggingar og allir
þeir sem eru
ábyrgðaraðilar að
rekstri þeirra eru
með löggildingu frá
dómsmálaráðuneyt-
inu. Hvað er það
sem gerir viðskipti
við utanfélagsmenn
áhættusamari en
viðskipti við fé-
lagsmenn? „FF fyr-
ir ábyrgt fólk í fast-
eignaviðskiptum“. Hér er beinlínis
sagt, að versli fólk ekki við fast-
eignasölur í Félagi fasteignasala
þá sé það einfaldlega ekki ábyrgt.
Þetta eru þung orð í garð almenn-
ings. Hvað segir þá Félag fast-
eignsala við það fólk sem hefur
valið að skipta við fasteignasölur
innan félagsins og tapað milljónum
á því þar sem það hefur verið svik-
ið? Hvar var FF gæðastimpillinn
þá? eða eins og einn viðskiptavinur
sagði sem lenti í því að tapa millj-
ónum vegna viðskipta við einn fé-
lagsmann „ég treysti þessum
manni fullkomlega, uppi á vegg hjá
honum héngu plögg sem sýndu að
hann hafði löggildingu frá dóms-
málaráðherra og að hann væri í
Félagi fasteignasala“. „Annast fag-
maður þín viðskipti?“ Hér er látið
að því liggja að fagmenn séu ein-
vörðungu þeir sem eru í Félagi
fasteignasala. Það skiptir þá engu
máli hvaða maður er tekinn inn af
götunni og gerður að sölumanni –
ef hann starfar hjá fasteignasölu
sem er í Félagi fasteignasala þá er
hann fagmaður strax frá fyrsta
degi. Þegar ég starfaði hjá fast-
eignasölu sem var í Félagi fast-
eignasala þá taldist ég sem sagt
fagmaður þrátt fyrir enga und-
anfarandi reynslu né menntun.
Núna fáum árum seinna og með
meiri reynslu og menntun í faginu
telst ég ekki fagmaður. Veit Félag
fasteignasala nokkuð yfir höfuð
hvað reynsla er? Alla vega eru
þær ansi hjákátlegar auglýsingar
þeirra um samanlagða starfs-
reynslu starfsmanna. Ég held að
metið sé 150 ár á einni fasteigna-
sölunni! Þetta er svipað og ég og
konan mín segðumst hafa sam-
anlagða 14 ára hjónabandsreynslu
af því við höfum bæði verið gift í 7
ár! – hvort öðru svo það fari ekki
milli mála. Eða þá að knatt-
spyrnulið sem hefði verið eitt ár í
efstu deild en leikmennirnir segðu
að þeir hefðu samanlagt 22 ára
reynslu í efstu deild! Ég skil vel að
menn hafi áhyggjur af slælegri
menntun innan greinarinnar og ég
skil reyndar nú af hverju menn
eru almennt svona lítið menntaðir
innan stéttarinnar. „Er þinn fast-
eignasali í Félagi fasteignasala? –
Vandaðu valið, veldu reynslu og
þekkingu“. Það þarf ekki að fjöl-
yrða meira um þessa auglýsingu,
ég bendi bara á Holtsmálið og
Frónsmálið og svo á dómasafn
Hæstaréttar þar sem er að finna
Brýtur Félag fasteigna-
sala vísvitandi lög?
Ragnar Thorarensen fjallar
um samkeppnina á fast-
eignamarkaði
Ragnar Thorarensen