Morgunblaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 66
AUÐLESIÐ EFNI 66 SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ HLJÓMSVEITIN Deep Purple heldur tónleika á Íslandi 24. júní í sumar. Hljómsveitin er ein af frægustu þungarokksveitum sögunnar og hefur áður spilað á Íslandi, árið 1971. Þrír af þeim liðsmönnum í Deep Purple sem léku þá verða einnig með á tónleikunum að þessu sinni, Ian Gillan, Ian Paice og Roger Glover en í stað þeirra Richie Blackmores og Jons Lords eru komnir Steve Morse og Don Airey. Góðar líkur eru á því að rokksveitin Uriah Heep, sem er af sömu kynslóð og Deep Purple, leiki einnig á tónleikunum. Miðasala hefst næsta föstudag, 2. apríl, en sölustaðir verða nánar auglýstir síðar. Þá hófst miðasala á tvenna aðra tónleika, með þýsku hljósveitinni Kraftwerk og bandarísku sveitinni Pixies, í vikunni. Seldust miðar upp á klukkustund á Pixies en ennþá er hægt að fá miða á Kraftwerk. Tónleikar Kraftwerk eru 5. maí en Pixies spila 26. maí. Einnig birtist frétt um það annars staðar í blaðinu að sveitasöngvarinn Kris Kristofferson mun halda tónleika hér á landi í sumar. Deep Purple til Íslands Deep Purple heldur tónleika á Íslandi í sumar. LIÐ Snæfells í Stykkishólmi leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla. Snæfell vann Njarðvíkinga í undanúrslitum í þremur leikjum án þess að Suðurnesjamönnum tækist að vinna einn leik. Ekki er enn ljóst hvort það verður Grindavík eða Keflavík sem mætir Snæfelli í úrslitum en rimma Grindavíkur og Keflavíkur er enn óútkljáð. Snæfellingar hafa komið mjög á óvart í körfuknattleiknum í vetur. Fyrirfram var ekki reiknað með að þeir myndu ógna veldi Suðurnesjaliðanna þriggja sem hafa svo gott sem verið einráð á Íslandsmótinu undanfarin ár. Lið Snæfells vann úrvalsdeildina, skellti síðan Hamri úr Hveragerði á snarpan hátt í tveimur leikjum í 8-liða úrslitum. Þeir voru ekki hræddir við að mæta Njarðvíkum í undanúrslitum þótt Njarðvíkur-liðið væri hokið af reynslu. Snæfell vann fyrsta leikinn og vann svo ævintýralegan sigur í „Ljónagryfjunni“ í Njarðvík um síðustu helgi. Þessu var síðan fylgt eftir með vinningi á heimavelli á fimmtudagskvöldið, 91:89. Það blés ekki byrlega fyrir Snæfelli að loknum fyrri hálfleik því þá voru þeir 21 stigi undir, 50:29, og enn 20 stigum undir þegar fjórði og síðasti leikhluti hófst. Með baráttu, leikgleði og vel studdir áhorfendum tókst leikmönnum Snæfells að vinna upp muninn og sigra. Snæfell leikur til úrslita MORÐ Ísraela á Ahmed Yassin, stofnanda og andlegum leiðtoga Hamas-samtakanna, vakti mikla ólgu meðal Palestínumanna og í öllum ríkjum múslíma. Hefur nýr leiðtogi Hamas, Khaled Meshaal, hótað grimmilegum hefndum og meðal annars, að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, verði ráðinn af dögum. Ísraelar skutu eldflaug á Yassin, sem var hálfblindur og hefur verið lamaður frá 12 ára aldri, fyrir utan mosku í Gaza-borg og urðu þá einnig nokkrum öðrum mönnum að bana, þar á meðal óbreyttum borgurum. Talið er, að með morðinu, sem Sharon stýrði sjálfur, hafi hann meðal annars viljað hressa upp á vinsældir sínar meðal ísraelskra kjósenda og sýna fram á, að fyrirhugaður brottflutningur ísraelsks herliðs frá Gaza væri ekki veikleikamerki. Hefur morðið á Yassin verið fordæmt víða um heim, í ríkjum múslíma, í Evrópu, Rússlandi og Kína, en Bandaríkjastjórn lét nægja að lýsa yfir „miklum áhyggjum“. Ísraelar hafa hins vegar hótað að drepa alla foringja Hamas-samtakanna og ráðherra í Ísraelsstjórn hefur krafist þess, að Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, verði rekinn í útlegð. Arabaríki kröfðust þess, að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi morðið á Yassin en Bandaríkjastjórn kom í veg fyrir það. Hafa Ísraelar þakkað henni fyrir staðfestuna. Hóta að hefna morðsins á Yassin Komið í veg fyrir for- dæmingu í öryggisráði AP Morðið á Yassin hefur kynt undir ólgu í öllum ríkjum múslíma en myndin er frá mótmælagöngu í Pakistan. MILDI þykir að Sigurbergur Konráðsson, einn af eigendum verktakafyrirtækisins Arnarfells, skyldi sleppa lifandi þegar 50 tonna beltagrafa sem hann vann í hrapaði niður snarbrattar hlíðar Fremri-Kárahnjúks á þriðjudagskvöld. Sigurbergur var að vinna í um 110 metra hæð í Kárahnjúknum þegar grafan tók að renna í átt að gilbrúninni. Hann náði að henda sér út, en grafan stöðvaðist á ystu nöf neðst í hlíðinni eftir að hafa runnið rúma 60 metra og oltið einu sinni. Um fimmtíu metra fall er niður í gilbotninn þangað sem grafan staðnæmdist. Sigurbergur segir að í gær hafi aðstæður verið skoðaðar og niðurstaðan sé að grafan hafi færst til vegna þess að boltar, sem héldu níu tonna ballest aftan á vélinni, hafi slitnað. Sigurbergur segist ekki hafa verið í mikilli hættu, því grafan hafi farið hægt af stað og nægur tími verið til að sjá það sem koma skyldi og fara úr tækinu. Hann er heill heilsu og segir hvorki á sér mar né skrámu. Starfsmenn Arnarfells sem Morgunblaðið hitti í Kárahnjúkum í gær, segja það hafa orðið Sigurbergi til lífs hversu reyndur hann sé og hafi mikla tilfinningu fyrir tækjunum sem hann vinnur á. Beltagröfur hafi áður skrikað til í gljúfrinu, en aldrei staðið eins tæpt og í fyrrakvöld. „Það er engin tilviljun að ég er í þessu sjálfur,“ segir Sigurbergur. „Maður veit svo sem aldrei hvenær eitthvað gerist og þennan hlut er erfitt að varast. En við höldum bara áfram þar sem frá var horfið, þetta hrekkir mig ekki neitt.“ Grafa hrapaði 60 metra Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Beltagrafan hrapaði um 60 metra niður hlíðina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.