Morgunblaðið - 28.03.2004, Síða 23

Morgunblaðið - 28.03.2004, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 23 var skyggni þá sæmilegt. Hópurinn áði á jöklinum í ca 1.050 metra hæð í kvosinni austanverðri og þar náðum við NMT-sambandi við Bjarna Skarphéðin og létum vita af ferðum okkar. Því næst var farið fram á brúnina við Axarfellsjökul þar sem hann skríður fram úr kvosinni. Kom þá í ljós að sú leið er með öllu ófær niður. Var því nauðsynlegt að finna Norðurlambatungur og ármót Lam- batungnaár og Jökulsár til þess að komast á áfangastað. Þar sem við vorum komin niður í ca 800 metra hæð urðum við að fikra okkur uppávið í þessu landslagi þar sem skiptast á skaflar og móbergs- hjallar. Var þetta bæði tafsamt og erf- itt á móti austanhríðinni. Ferðin sótt- ist hægt og um kl. 11 að kvöldi voru allir orðnir nokkuð þreyttir þegar við heyrðum allt í einu árnið. Drógum við þá ályktun að þetta hlyti að vera Jök- ulsá í Lóni og að ármótin væru skammt undan. Var því ákveðið að fara niður mikinn skafl sem þarna var fyrir framan okkur. Gekk það greið- lega, en þegar niður kom áttuðum við okkur á því að við vorum innarlega í gljúfri Lambatungnaár um 3 km frá ármótunum. Gljúfrið reyndist auk þess ófært með öllu. Nú var klukkan hálfeitt um nótt, veður að vísu þokkalegt og tunglskin en ferðalangar orðnir þreyttir. Eftir nokkra umræðu var ákveðið að halda ferðinni áfram og koma okkur í skál- ann. Þurftum við nú að hækka okkur um 500–600 metra upp á háhrygg Norðurlambatungna áður en við gát- um tekið stefnuna aftur á ármótin. Sóttist ferðin nú ágætlega undan hall- anum. Þessi næturganga í tunglskin- inu verður okkur vafalaust ógleym- anleg. Kærkomin hvíld Við komum að Lambatungnaá rétt ofan við ármótin um klukkan hálffjög- ur um nóttina og óðum hana án telj- andi vandræða en þá er stutt eftir í skálann þar sem okkar beið kærkom- in hvíld og vistir sem félagar úr Ferðafélagi Austur-Skaftfellinga höfðu flutt fyrir okkur um veturinn. Allt erfiðið var þess virði þegar búið var að elda matinn og hópurinn naut hvíldar í þessum ágæta skála. Við dvöldum þarna um daginn og hvíldum okkur en héldum að morgni næsta dags fram með Jökulsá upp Illakamb á Kjarrdalsheiði eins og áætun gerði ráð fyrir. Fyrirfram var búist við því að við gætum þrætt veg- inn en þegar við komum upp í 500 metra hæð hvarf hann að mestu í snjóskafla. Nú var komið suðvestan- rok og rigning og lítið skyggni. Brátt fór okkur að gruna að við værum ekki á réttri leið. Var þá sest niður og tekið upp kort til að finna GPS-punkta sem myndu skila okkur á áfangastað. Þetta gekk eftir og reyndist auðvelt að þræða þessa punkta yfir heiðina en þar beið okkar Bjarni Skarphéðinn og ferjaði okkur til byggða. Gangan yfir Kjarrdalsheiði tók um 6 tíma og var erfið og engin skemmtun í slæmu skyggni. Næsta ár á eftir fór jöklaklúbbur- inn aðra ferð á þessar slóðir í miðjum maímánuði og voru nú í för með okkur Brynjólfur Mogensen og Björn Mar- teinsson. Að þessu sinni var heiðskírt og glampandi sólskin í Goðahnjúkum og gafst okkur þá tækifæri til að skoða okkur um þar, ganga á Grendil og næsthæsta tindinn sem liggur suð- vestan við Grendil sem nefndur er Deilir á kortum en við kusum að nefna Hnátu vegna lögunar sinnar. Við slíkar aðstæður er óviðjafnanleg náttúrufegurð og útsýni sem blasir við til allra átta og ferð á Goðahnjúka því vel áhættunnar virði. Að þessu sinni var okkur ljóst frá byrjun hver besta leiðin væri frá Goðahnjúkum í Múlaskála. Þegar komið er niður í kvosina við Grendil er mikilvægt að halda hæð og ganga út hlíðina til hægri áleiðis að Norð- urlambatungum í u.þ.b. 1.100 metra hæð. Með því móti er komið beint á hábungu Norðurlambatungna og því greið leið niður að ármótunum. Höfundur hefur í fórum sínum nokkra GPS-punkta á þessari leið fyr- ir áhugasama. Höfundur er læknir.Mokað frá skáladyrunum. Til hægri sjást Austfjarðafjöll í fjarska.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.