Morgunblaðið - 28.03.2004, Side 36
Þ
að ríkir sannarlega frönsk
stemning á Litla sviði
Borgarleikhússins um
þessar mundir því í kvöld
frumsýnir leikhópurinn
Á senunni kabarettinn Paris at night.
Sýningin samanstendur af ljóðum
franska ljóðskáldsins Jacques Prév-
erts úr ljóðasafni hans Paroles sem
út kom árið 1945 og í íslenskri þýð-
ingu Sigurðar Pálssonar árið 1987
undir heitinu Ljóð í mæltu máli.
Ljóðin í sýningunni eru ýmist flutt
eða sungin, á bæði íslensku og
frönsku, en öll lögin í sýningunni, ut-
an eitt, eru eftir Joseph Kosma sem
var góður vinur Préverts og sam-
starfsmaður hans á sviði kvikmynda-
listarinnar.
„Mér hefur alltaf fundist saga
Préverts mjög merkileg,“ segir Kol-
brún Halldórsdóttir leikstjóri. „Hann
var fæddur aldamótaárið 1900 og því
aðeins fjórtán ára þegar heimsstyrj-
öldin fyrri skall á. Það má í raun
segja að unglingsárin, þessi ár þegar
þú ert að vakna til vitundar um ást-
ina, lífið og tilveruna, hafi verið hrifs-
uð af honum í brjálæðan ófrið í álf-
unni, því hann var í raun orðinn
fullveðja maður þegar fyrri heims-
styrjöldinni loks lauk. Mörg ljóðanna
í bókinni Ljóð í mæltu máli eru skrif-
uð á hinum svokallaða geggjaða ára-
tug, þ.e. á árunum milli 1930–40, þeg-
ar enginn vissi hvað framtíðin bæri í
skauti sér og hvort það væri yfirleitt
einhver framtíð í vændum.
Raunar er afar merkilegt að skoða
hvað það er sem skiptir fólk mestu
máli og það metur að verðleikum á
þessari ögurstundu milli stríða,“ seg-
ir Kolbrún. „Í mörgum tilfellum er
það hversdagurinn, augnablikið, and-
artakið,“ segir Felix Bergsson leik-
ari. „Kannski eru þetta ágæt skilaboð
til okkar í dag, þegar við lifum í ver-
öld sem er í allsherjar stríði gegn
hryðjuverkum,“ segir Kolbrún. „Og
virðist brjáluð,“ bætir Felix við. „Ef
til vill þyrftum við öll, hvar sem er í
heiminum í dag, að staldra við, horfa
aðeins inn á við og leyfa þessum
hversdagslegu hlutum í tilverunni að
fá sitt pláss,“ segir Kolbrún.
Reynum að fá hjörtu
áhorfenda til að slá örar
Í ljóðum Préverts rekumst við á
hinar ólíkustu frásagnir, fræðumst
t.d. um hvernig mála skuli mynd af
fugli, heyrum af ferð tveggja snigla á
leið í jarðarför fölnaðs laufblaðs og
um mann sem leikur á lírukassa en
leikur sér að hnífum líka. Að sögn
Felix er ástarminnið þó mest áber-
andi í ljóðum Préverts og þess vegna
ákvað hópurinn að láta ljóðið um
Barböru ramma inn sýninguna, en í
því ljóði lætur ljóðmælandinn hugann
reika til stúlkunnar Barböru sem
hann mætti eitt sinn í borginni Brest,
sem jöfnuð var við jörðu í síðari
heimsstyrjöldinni. „Út frá þessu ljóði
liggur leið okkar inn í heim minning-
anna. Allt frá æskuminningum úr
skólastofunni, súrrealískum lýs-
ingum af blómum, sólinni, járnbraut-
arlestum og skrýtnum kafbátum sem
leita ígulkerja, yfir í sárar minningar
um unglingsárin og ást sem glat-
aðist,“ segir Felix.
„Ljóð Préverts eru svo stórkost-
leg, ekki síst vegna þess að þau segja
okkur mjög mikið um hvað hvers-
dagsleikinn og þetta litla, hljóðláta í
tilverunni skiptir miklu máli og er
kannski miklum mun dýrmætara en
allt „spektalið“. Að þessu leyti held
ég að sýningin falli mjög vel að upp-
runalegum markmiðum leikhópsins,
því þegar við Felix stofnuðum Á sen-
unni fyrir rúmum fimm árum var það
ákveðinn ásetningur hjá okkur að
setja upp sýningar sem fá hjörtu
áhorfenda til að slá örar á sama tíma
og þær eigi erindi við áhorfandann,
þ.e. segi eitthvað um líf fólks,“ segir
Kolbrún.
Spurð hvernig þau hafi valið ljóðin
í sýningunni svarar Felix því til að í
raun hafi ljóðin valið sig sjálf. „Valið
tók sérstaklega mið af því við hvaða
ljóð Kosma hefur samið tónlist.
Vissulega hafa margir samið tónlist
við ljóð Préverts í gegnum tíðina, en
við völdum að nota lög Kosmas þar
sem okkur fannst hann skapa ein-
hvern tón eða stemningu sem við
vildum fanga. Auk þess sem lögin
hans eru afar leikhúsleg, hann kann
nefnilega þá list að nota tónlistina til
að segja sögu. Við stelumst reyndar
til að setja inn eitt lag eftir Christiane
Verger, bara til að brjóta regluna,“
segir Felix. „Kosma starfaði um tíma
í Berlín og vann þar náið með mönn-
um á borð við Hanns Eisler og Kurt
Weil. Hann var ungverskur að upp-
runa og sækir greinilega í gamla ung-
verska trúbadúrahefð, þannig að lög-
in hans eru á margan hátt afar
óhefðbundin og ólík mörgu því sem
við þekkjum,“ segir Kolbrún. „Tón-
list hans snertir mann á einhvern ein-
stakan hátt,“ segir Felix og Kolbrún
bætir við: „Það er hreinlega einhver
tilfinningaleg „magía“ í þessum lög-
um og textum sem hitta mann beint í
hjartastað.“
Draumur verður að veruleika
Að sögn Felix hefur það lengi verið
draumur hjá þeim Kolbrúnu að setja
upp sýningu byggða á ljóðum Jac-
ques Préverts. „Kolla gaf mér bókina
fyrir rúmum tíu árum og ég féll gjör-
samlega kylliflatur fyrir textanum. Í
kjölfarið strengdum við þess heit að
vinna kabarettsýningu byggða á ljóð-
unum, en það er fyrst núna sem
draumurinn er að verða að veru-
leika,“ segir Felix. „Þannig að þetta
hefur verið langt ferli,“ segir Kol-
brún. „Sem helgast náttúrlega af því
að við í Á senunni viljum gera það
sem okkar listræna sýn býður okk-
ur,“ segir Felix. „Og í raun felst
styrkur sjálfstæðu leikhópanna ein-
mitt í því að við getum valið okkar
eigin verk, fundið upp okkar eigin að-
ferðir og gert hlutina á okkar tíma.
Þegar hugmynd eins og þessi er orð-
in fullþroska og við komin með styrki
þá er hægt að koma henni á svið,“
segir Kolbrún. „Ég tala nú ekki um
þegar við erum líka búin að finna
listamennina til að vinna verkið með
okkur,“ segir Felix og hrósar happi
yfir því frábæru listafólki sem þau
hafi fengið til liðs við sig.
„Við vorum t.d. svo heppin að fá
Gideon Kiers, sjónlistamann frá Hol-
landi, til liðs við okkur. Hann kom inn
Hið dýrmæta
í hversdags-
leikanum
Leikhópurinn Á senunni frumsýnir í kvöld
kabarettinn Paris at night á Litla sviði
Borgarleikhússins. Silja Björk Huldudóttir
hitti stofnendur hópsins, þau Felix Bergs-
son leikara og Kolbrúnu Halldórsdóttur
leikstjóra, að máli.
Morgunblaðið/Ásdís
Í Paris at night flytja Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Felix Bergsson ljóð Jacques Préverts í tali og tónum.
LISTIR
36 SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hjá okkur getur þú treyst á áratuga reynslu og þekkingu í fasteignaviðskiptum.
Ekki fædd í gær!
Ábyrg þjónusta örugg viðskipti
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
EI
G
23
55
4
Síðumúla 21 sími 588 90 90 www.eignamidlun.is
kabarett byggður á ljóðum
Jacques Préverts.
Þýðing: Sigurður Pálsson.
Leikstjóri: Kolbrún
Halldórsdóttir.
Leikmynd og búningar: Elín
Edda Árnadóttir.
Lýsing: Egill Ingibergsson.
Myndbandstækni: Gideon
Kiers.
Hljómsveitarstjóri: Karl
Olgeirsson.
Hljómsveit: Karl Olgeirsson,
Róbert Þórhallsson og Stefán
Már Magnússon.
Leikarar: Felix Bergsson og
Jóhanna Vigdís Arnardóttir.
Paris at night