Morgunblaðið - 28.03.2004, Qupperneq 62
62 SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
YOGA •YOGA • YOGA
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, sími 588 5711 og 694 6103
www.yogaheilsa.is
Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla.
Morguntímar, hádegistímar, síðdegistímar og kvöldtímar.
Nýtt í yogastöðinni Heilsubót - KRAFT YOGA
Sértímar fyrir byrjendur og barnshafandi konur
Beini
© DARGAUD
Grettir
Smáfólk
Smáfólk
SÆLL
JÓN!
MATURINN
ER BÚINN
GÆTI ÉG NOKKUÐ FENGIÐ NÝJAN
JÓN HINGAÐ INN?
VILTU
ÁKVEÐA
ÞIG?
SEGÐU MÉR AÐ ÞÚ ELSKIR
MIG, KYSSTU MIG Á NEFIÐ
OG TAKTU MIG Í FANGIÐ!
VARÚÐ! ÉG ÆTLA AÐ
VERA LEIÐINLEG Í
ALLAN DAG!!
ÉG ELSKA ÞIG KÖTTUR!
ÞÚ ERT BESTI
KÖTTUR Í
HEIMI!
VILTU
GIFTAST MÉR?
Á ÉG AÐ
LÁNA ÞÉR
PENING?
ÞÚ ERT ELSKULEGUR OG ÞAÐ HEILLAR MIG HVAÐ ÞÚ TALAR
ROSALEGA HEIMSKULEGA. ER ÞETTA EINHVER NÁÐARGÁFA
SEM ÞÚ BÝRÐ YFIR? HRÍFANDI!
ÉG SKAL SKO SÝNA HONUM HVAÐ
KATTAMATUR ER!
ÉG GET ÞAÐ EKKI! ÉG GET EKKI GERT
ÞETTA Á AFMÆLISDAGINN MINN.
KÖTTURINN ER ANDSTYGGILEGUR EN
ÉG VERÐ AÐ HEMJA MIG Í DAG
HVAÐ SEGIRÐU KÆRI NÁGRANNI?
ÁTTU AFMÆLI Í DAG?
RÉTT ER ÞAÐ!
TIL HAMINGJU MEÐ
DAGINN KÆRI NÁGRANNI!!
ÞAKKA ÞÉR FYRIR KÆRI AULI!
EFTIR ÞETTA ATVIK VERÐUR ÞÚ
ÁLITINN VERA VONDA TEIKNIMYNDA-
PERSÓNAN. ÞAÐ TEKUR MÖRG ÁR
AÐ HREINSA ÞAÐ AF SÉR! ÉG VÆRI
TIL Í AÐ KYSSA ÞIG!
ÞETTA ER EKKERT! KÖTTURINN VAR BARA AÐ
ÓSKA MÉR TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
UNDANFARNAR vikur hafa mál
stúdenta við Háskóla Íslands verið í
kastljósinu, enda ekki að furða reiði
stúdenta og margra annarra gagn-
vart því skrefi aftur á bak, að taka
‘hugsanlega’ upp skólagjöld við HÍ.
Það er þó ekki tilefni þessara
skrifa.
Nú í mars barst okkur stúdentum
hins vegar bréf frá nemendaskrá
HÍ. Þar stóð, í stuttu máli, að nýtt
fyrirkomulag yrði tekið upp við
skráningu í skólann. Stúdentar sem
hygðu á endurskráningu (ætluðu að
halda áfram námi næsta vetur) yrðu
nú að skrá sig 22.–26. mars og
greiða skráingargjald, rúmar 32.000
kr.
Ekki voru það aurarnir sem fóru
fyrir brjóstið á mörgum, heldur
greiðslutíminn. Jú, það á að stað-
greiða hjá nemendaskrá, borga með
kredidkorti ef stúdentar skrá sig
gegnum Netið – eða fá sendan
greiðsluseðil, með gjalddaga 2. maí.
Tekið var sérstaklega fram að eng-
ar undanþágur verði veittar frá
þessu fyrirkomulagi.
Þetta innritunargjald hefur lengi
verið til staðar, en verið greitt á
sumrin, í síðasta lagi í ágúst, þegar
flestir stúdentar hafa orðið sér úti
einhverjar tekjur og sjá fram á að
hafa efni á að halda áfram námi
næsta vetur.
Af hverju skyldi þetta vera tekið
fram? Kannski hefur háskólaráð
haft einhverja óljósa hugmynd um
það að stúdentar eiga ekki bót fyrir
rassinn á sér yfir veturinn og berj-
ast við að láta enda ná saman og fá
flestir yfirdrátt hjá bönkum lands-
ins til að brúa erfiðustu bilin. Já,
stúdentar eru stór viðskiptahópur
bankanna, en eiga þar ekki annað
en skuldir.
Stúdentar lifa á námslánum, sem
greidd eru út eftir próf hverrar
annar. Til að hafa eitthvað milli
handanna á önninni taka þeir yf-
irdrátt (á u.þ.b. 8% vöxtum, en
venjulegir vextir eru um 15%), fyrir
láninu hjá sínum viðskiptabanka,
sem þeir svo greiða þegar þeir fá
sitt lán frá LÍN greitt. Lánið er á
mánuði um 77.000 kr, en þar er
hængur á: Ef stúdent er duglegur
yfir sumarið og vinnur sér inn
meira en 300.000 kr. lækkar lánið
niður í rúmar 60.000 kr. á mánuði,
ef búið er í leiguhúsnæði.
Leiga á stúdentagörðum er rúm-
ar 30.000 kr. fyrir einstaklingsíbúð
og þá eru eftir þessir vanalegu
reikningar heimilanna, sjónvarp,
sími o.s.frv. Nú sér glöggur lesandi
að ekki er mikið eftir til að kaupa
mat, hvað þá námsbækur.
Hvað gera stúdentar þá? – Þeir
taka aukayfirdrátt sem þeir berjast
svo við að reyna að borga niður á
sumrin. Þar með skerða þeir náms-
lánin um leið og þeir vinna sér inn
tekjur umfram 300.000 kr. og sitja
svo fastir í þessum vítahring ár eftir
ár. Ég gæti haft þessa upptalningu
mun lengri og tekið dæmi af mér
sjálfri, nú með tvær milljónir í
námslán og fer hækkandi og auka-
yfirdráttinn sem ég lemst við að
halda niðri. En ég veit þess dæmi
að nemar eru með allt að og yfir
milljón í aukayfirdrátt.
Af þeim 9.000 stúdentum sem
stunda nám í HÍ, er gert ráð fyrir
að u.þ.b. 7.500 þeirra haldi áfram á
næsta ári. Þetta bréf frá nemenda-
skrá fengu allir þessir stúdentar og
hafa e.t.v. setið eins og ég, þrumu
lostnir með ekkert í vasanum nema
göt og gula miða.
Sem betur fer eiga e.t.v. einhverj-
ir fyrir þessari greiðslu, aðrir geta
kannski fengið lán hjá mömmu og
pabba, en meiri hluti þessara 7.500
stúdenta streymir nú í þessari viku
og aftur í lok apríl í viðskiptabanka
sinn, þar sem þeir biðja um enn
einn aukayfirdráttinn til að brúa
þetta bil með tilheyrandi vöxtum.
Ég skora því eindregið á banka-
stofnanir landsins að láta eitthvað
af hendi rakna, af því sem þær
auðgast af, af þeirri féþúfu sem
stúdentar eru þeim. Eins og lána-
kerfi stúdenta er í dag er nokkuð
öruggt að þeir muni áfram taka yf-
irdrátt og aukayfirdrátt og því vera
eins og gangandi skuldabréf, sem
bankarnir eiga hvert bein í. Þó að
Guð sjái um sína, væri ekki út vegi
að aðstoða hann við það og hverjum
er þá málið skyldara en þeim sem
ráða í musterum Mammons.
HILDUR INGA
RÚNARSDÓTTIR,
Hólabraut 18,
Skagaströnd.
Er ekki kominn
tími til að tengja?
Frá Hildi Ingu Rúnarsdóttur
stúdent í guðfræðideild HÍ:
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is