Morgunblaðið - 28.03.2004, Side 63
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 63
MT stofan, Síðumúla 37, býður upp á hóptíma
í æfingasal stofunnar.
Einstaklingsmiðuð þjálfun.
Fáir í hverjum tíma.
Sértæk styrktarþjálfun sem eykur stöðugleika mjóbaks.
Þjálfað samkvæmt nýjustu aðferðum.
Fyrir viðkvæm ofhreyfanleg bök (instabilitet).
Eftir tognanir.
Eftir brjósklosaðgerðir.
Eftir brjóskþófaröskun.
Við slitgigt.
7 vikna þjálfun. Hádegis- og eftirmiðdagstímar.
Æft tvisvar sinnum í viku — möguleiki á fleiri skiptum.
Skráning hefst 29. mars.
Leiðbeinandi: Oddný Sigsteinsdóttir, sjúkraþjálfari.
Upplýsingar og skráning á MT stofunni í símum 568 3660 og 568 3748.
Bakþjálfun
Þjálfun stöðugleika mjóbaks
Spilakvöld Varðar
sunnudaginn 28. mars
Vörður – Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Hið árlega spilakvöld Varðar verður haldið í Súlnasal
Hótels Sögu í dag, sunnudaginn 28. mars, kl. 20.30.
Glæsilegir spilavinningar að vanda.
Meðal annars : Utanlandsferðir, bækur, matarkörfur
og fleira.
Gestur kvöldsins: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.
Aðgangseyrir er kr. 800.
Allir velkomnir!
Fyrirtæki til sölu
Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma
Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því
ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og
kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur.
Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er
hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is .
Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en
við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:
Stórt iðnfyrirtæki með 400 m. kr. ársveltu.
Fasteignasala í fullum rekstri. Gott húsnæði og allur búnaður. Þrír sölu-
menn og stækkunarmöguleikar.
Veitingahúsið Pasta Basta við Klapparstíg til sölu eða leigu.
Vitum af mörgum sérverslunum, heildverslunum og iðnfyrirtækjum í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.
Tvær litlar tískuverslanir í Kringlunni.
Þekkt lítið framleiðslufyrirt. í matvælag. Hentugt til sameiningar.
Matvöruverslun, bensínsala og veitingarekstur í Búðardal. Eigið hús-
næði. Ársvelta er nú tæpar 200 m. kr. og hefur farið vaxandi með hverju
ári. Góður hagnaður um margra ára skeið og mjög heilbrigður rekstur.
Sérstaklega hentugt fyrir stóra fjölskyldu eða tvenn hjón.
Rekstrarleiga með kauprétti. Þekkt dekurstofa. Nudd, Eurowave, hljóð-
bylgjutæki, leirpottur, ljós, naglaborð. Góð staðsetning.
Þekkt fyrirtæki í kvenfatnaði.
Flottur sportbar í góðu hverfi með nýjum innréttingum og tækjum, m.a.
þrjú breiðtjöld. Velta 2-3 m. kr. á mánuði. Tilvalið fyrir samhent hjón.
Lítið og arðbært sjálfsalafyrirtæki. Hentugt sem aukavinna eða með
öðrum rekstri. Góðir vaxtarmöguleikar.
Söluturninn Hagamel. Auðveld kaup.
Álgluggaverksmiðja með miklum tækjakosti. Tilvalið til sameiningar.
Meðeign kemur til greina.
Arðbært þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði með góða verkefnastöðu.
Ársvelta 60 m. kr. Tilvalið til sameiningar við fyrirtæki tengd bygging-
ariðnaði.
Söluturn í tengslum við bensínstöð í Grafarvogi. Mikil grillsala.
Rekstrarleiga með kauprétti. Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur
með góðri aðstöðu fyrir dansleiki, veislur og fundi. Ársvelta 30 m. kr.
Gott tækifæri fyrir fagmenn.
Maraþon í Kringlunni. Sportvöruverslun með þekkt merki og mikla sölu.
Rekstrarhagnaður 11 m. kr. á ári.
Þekkt vefnaðarvöruverslun. Ársvelta 60 m. kr. Góð framlegð. Tilvalið fyr-
ir „saumakonur“ með góðar hugmyndir.
Gallery bón. Lítil bónstöð í Skeifunni. Gott byrjendafyrirtæki. Auðveld
kaup.
Lítið landflutningafyrirtæki með föst viðskipti um fiskflutninga. Heppileg
viðbót við annað álíka.
Lítil rótgróin prentsmiðja með góð tæki og föst verkefni. Tilvalið til sam-
einingar eða fyrir duglega menn sem vilja vinna sjálfstætt. Auðveld
kaup.
Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu
fyrirtækjadeildar: www.husid.is .
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen),
sími 533 4300, GSM 820 8658.
Færeyjarferð 26. maí – 4. júní
10 daga ferð til Færeyja.
Siglt með Norrænu.
Jóhanna Traustadóttir
leiðsögumaður tekur á móti
hópnum í Færeyjum.
Skoðunarferðir til
Kirkjubæjar, Austureyjar og
Vogeyjar, siglt til Klakksvíkur.
Skráning og innborgun á skrifstofu
FEB eigi síðar en 5. apríl nk.
Nánari upplýsingar eru veittar
á skrifstofunni í síma 588 2111.
Háteigskirkja, eldri borgarar Eldri borg-
arar. Félagsvist á morgun í Setrinu kl.
13. Skráning í síma 511 5405.
Seltjarnarneskirkja. Æskulýðsfélagið
kl. 20–22 (fyrir 8.–10. bekk).
Árbæjarkirkja. Kl. 20 Lúkas, æskulýðs-
félag Árbæjarsafnaðar, með fundi í
safnaðarheimilinu.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20.
Tekið er við bænarefnum alla virka daga
frá kl. 9–17 í síma 587 9070.
Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 9. og
10. bekk kl. 20. Mánudagur: Æskulýðs-
félag fyrir 8. bekk kl. 20.
Bessastaðasókn. Sunnudagaskólinn er
í sal Álftanesskóla kl. 11. umsjón með
sunnudagaskólanum hafa Kristjana og
Ásgeir Páll. Allir velkomnir.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnu-
dag kl. 19.30.
Krossinn. Almenn samkoma í Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti 601.
Í dag er samkoma kl. 14. Sigrún Ein-
arsdóttir talar. Lofgjörð og fyrirbænir.
Tvískipt barnastarf fyrir 1–6 ára og 7–
12 ára börn á samkomutíma. Kaffi og
samfélag eftir samkomu. Allir velkomn-
ir. Nánari upplýsingar á www.kefas.is
Fíladelfía. Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Vörður Leví Traustason.
Gospelkór Fíladelfíu leiðir í söng. Fyr-
irbæn í lok samkomu. Barnakirkja á
sama tíma. Miðvikudaginn 31. mars kl.
18–20 er fjölskyldusamvera með léttri
máltíð. Allir velkomnir. Fimmtudaginn 1.
apríl kl. 15 er samvera eldri borgara.
Allir eldri borgarar velkomnir. Bæna-
stundir alla virka morgna kl. 06.
www.gospel.is
KFUM & KFUK, Holtavegi. Samkoma
kl. 17. Hann fann mig. Vitnisburðarsam-
koma. Undraland fyrir börnin meðan á
samkomu stendur. Matur á fjölskyldu-
vænu verði eftir samkomuna. Allir vel-
komnir.
Safnaðarstarf
Tómasarmessa í
Breiðholtskirkju
ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar
Tómasarmessur efnir til sjöttu
messunnar á þessum vetri í
Breiðholtskirkju í Mjódd í kvöld,
sunnudaginn 28. mars, kl. 20.
Tómasarmessan hefur vakið
mikla ánægju þeirra sem þátt
hafa tekið og virðist hafa unnið
sér fastan sess í kirkjulífi borg-
arinnar, en slík messa hefur verið
haldin í Breiðholtskirkju í Mjódd
síðasta sunnudag í mánuði, frá
hausti til vors, síðustu sex árin.
Framkvæmdaaðilar að þessu
messuhaldi eru Breiðholtskirkja,
Kristilega skólahreyfingin, Félag
guðfræðinema og hópur presta
og djákna.
Heiti Tómasarmessunnar er
dregið af postulanum Tómasi,
sem ekki vildi trúa upprisu Drott-
ins nema hann fengi sjálfur að
sjá hann upprisinn og þreifa á
sárum hans. Markmið messunnar
er öðru fremur að leitast við að
gera nútímamanninum auðveld-
ara að skynja návist Drottins,
einkum í máltíðinni sem hann
stofnaði og í bænaþjónustu og
sálgæslu, en mikil áhersla er lögð
á fyrirbænarþjónustu. Þá ein-
kennist messan af fjölbreytilegum
söng og tónlist og sömuleiðis af
virkri þátttöku leikmanna. Stór
hópur fólks tekur jafnan þátt í
undirbúningi og framkvæmd
Tómasarmessunnar bæði leik-
menn, djáknar og prestar. Það er
von okkar, sem að messunni
stöndum, að þær góðu móttökur
sem Tómasarmessan hefur hlotið
hingað til gefi tóninn um fram-
haldið og að hún megi áfram
verða mörgum til blessunar og
starfi íslensku kirkjunnar til efl-
ingar.
Alfa-námskeið
og námskeið um
náðargjafirnar
BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg
efnir til Alfa-námskeiðs nú á vor-
dögum. Hefst það með kynning-
arkvöldi þriðjudaginn 30. mars
kl. 20 í húsi KFUM og KFUK á
horni Holtavegar og Sunnuvegar
í Reykjavík. Verður síðan kennt
alla þriðjudaga í apríl og maí.
Þátttaka á kynningarkvöldinu er
án allra skuldbindinga. Um leið
verður kynnt námskeið um náð-
argjafirnar sem Willow Creek
kirkjan í Bandaríkjunum hefur
þróað og er kennt víða um heim.
Miðar það að virkari þátttöku
safnaðarfólks í starfi kirkjunnar.
Kennt verður á sama stað og
tíma og Alfa-námskeiðið, en nám-
skeiðin hefjast hvert kvöld með
léttri máltíð kl. 19. Kynning-
arkvöldið er öllum opið og stend-
ur yfir í um klukkustund.
Morgunblaðið/Arnaldur
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is