Morgunblaðið - 28.03.2004, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 65
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert sjálfstæð/ur og heið-
arleg/ur. Þú býrð yfir dugn-
aði og vinnusemi og átt erfitt
með að standast hvers konar
áskoranir.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er hætt við að spenna sem
hefur verið að safnast upp í þér
að undanförnu brjótist fram í
dag. Reyndu að hugsa áður en
þú talar, sérstaklega í sam-
skiptum við systkini þín og ná-
granna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú gætir fallið í þá freistni að
kaupa þér eitthvað í hreinum
leiðindum í dag. Reyndu að
standast freistinguna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Farðu sérlega varlega í dag.
Þú ert eitthvað strekkt/ur á
taugum og því er þér hættara
við slysum en ella. Þetta getur
líka gert það að verkum að þú
segir eitthvað sem þú átt eftir
að sjá eftir síðar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú leggur mikið upp úr því að
hafa þínar eigin skoðanir á
hlutunum og vilt því ekki láta
aðra segja þér hvað eða hvern-
ig þú átt að hugsa.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú gætir misst þolinmæðina
gagnvart vini þínum eða kunn-
ingja í dag. Þetta tengist því
hugsanlega hvernig sameig-
inlegri ábyrgð er skipt á milli
ykkar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú munt hugsanlega gera ein-
hvers konar uppreisn gegn yf-
irmönnum þínum í dag. Láttu
skoðun þína í ljós. Það er óþarfi
að bíða eftir því að hlutirnir
versni enn frekar. Gættu þess
þó að sýna kurteisi og sann-
girni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú finnur fyrir vaxandi þörf
fyrir breytingar í lífi þínu.
Þetta getur jafnvel verið upp-
hafið að stórfelldri hugarfars-
breytingu. Þú þarft að gera
það upp við þig hvað skiptir þig
raunverulegu máli í lífinu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er hætt við að þér finnist
þú axla meira en þinn skerf af
sameiginlegri ábyrgð á börn-
unum. Hvað sem þú gerir í
málinu máttu ekki gleyma því
að hagsmunir barnanna verða
að vera í fyrirrúmi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Frelsi þitt skiptir þig gríð-
arlega miklu máli. Reyndu þó
að forðast deilur vegna af-
skiptasemi foreldra þinna.
Farðu heldur í göngutúr og
komdu aftur þegar þú hefur
róast dálítið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú hefur næga orku til að
stuðla að umbótum í vinnunni í
dag. Vertu opin/n fyrir nýjum
aðferðum til að gera hlutina.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú gætir upplifað ást við fyrstu
sýn í dag eða eitthvað mjög
skrýtið. Þú þarft á fríi og til-
breytingu að halda.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Deilur á heimilinu geta slegið
þig út af laginu í dag. Það er
einnig hætta á einhvers konar
slysum á heimilinu. Reyndu að
sýna sérstaka aðgát.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LÓAN
Lóan er komin að kveða burt snjóinn,
að kveða burt leiðindin, það getur hún.
Hún hefir sagt mér, að senn komi spóinn,
sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefir sagt mér til syndanna minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót.
Hún hefir sagt mér að vakna og vinna
og vonglaður taka nú sumrinu mót.
Páll Ólafsson
LJÓÐABROT
HLUTAVELTA
80 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 28.
mars, er áttræð Guðrún
Valdimarsdóttir, Miðvangi
41, Hafnarfirði. Hún er að
heiman á afmælisdaginn.
„ÉG SÁ hann! Ég sá hann með eigin
augum.“ Jean Besse var mikið niðri
fyrir þegar hann kom út úr spilasaln-
um og hljóp beint í flasið á Jose Le
Dentu: „Ég hafði hann innan seilingar
en missi tökin í lokin,“ sagði Besse og
var gráti nær.
Norður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ÁG93
♥963
♦D76
♣754
Vestur Austur
♠D5 ♠872
♥ÁK872 ♥D5
♦93 ♦KG1052
♣Á1098 ♣632
Suður
♠K1064
♥G104
♦Á84
♣KDG
Þessi atburður átti sér stað fyrir 40
árum, á móti í Frakklandi. Báðar
sögupersónurnar eru farnar yfir móð-
una miklu, hinn litríki spilari Sviss-
lendinga, Jean Besse, og franski spil-
arinn og bridshöfundurinn Jose Le
Dentu.
En hvað var það sem Besse sá sem
vakti hjá honum slíka geðshræringu?
Fljúgandi diskur? Risafiskur? Ein-
hyrningur?
Ekkert af þessu, þótt hið síðast-
nefnda sé ekki með öllu óskylt. Le
Dentu tók upp pennann og skrásetti
spilið. Besse varð sagnhafi í tveimur
spöðum eftir þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
Messina Bernasconi Bianchi Besse
– Pass Pass 1 spaði
2 hjörtu 2 spaðar Allir pass
Mótherjarnir voru Ítalir og vestur
hóf vörnina með ÁK í hjarta og þriðja
hjartanu, sem austur trompaði. Lauf
kom til baka á ásinn og meira lauf.
Kannski ekki besta vörnin, en eðlileg.
Besse toppaði spaðann, tók síðasta
laufslaginn og annan trompslag:
Norður
♠9
♥–
♦D76
♣–
Vestur Austur
♠– ♠–
♥87 ♥–
♦93 ♦KG105
♣– ♣–
Suður
♠K
♥–
♦Á84
♣–
Besse íhugaði málið vandlega í þess-
ari stöðu. En ákvað svo að spila tígli að
drottningunni. Vestur stakk upp níunni
og þar með hlaut vörnin að fá tvo tíg-
ulslagi.
En Besse var fljótur að átta sig á
vinningsleiðinni. Ef síðasta trompinu er
spilað þvingast austur í EINUM lit.
Segjum að austur hendi tígulfimmu. Þá
má dúkka til hans tígul. Og ef austur
kastar millitígli og vestur fer upp með
níuna verður áttan slagur með svín-
ingu.
Slík einlitaþvingun er jafnfágæt við
spilaborðið og einhyrningur í nátt-
úrunni.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3
e5 7. Rb3 Be7 8. f3 Be6 9.
Dd2 O-O 10. O-O-O a5 11.
De1 Dc8 12. a4 Rc6 13. g4
Rb4 14. g5 Rh5 15. Kb1 Dc7
16. Df2 Rf4 17. Rb5 Db8 18.
Bxf4 exf4 19. R3d4
Bd7 20. Hg1 g6 21.
Bc4 Dc8 22. Bb3 Dc5
23. Dd2 De5 24. h4
Hac8 25. h5 Kg7 26.
Dh2 Bxg5 27. Rxd6
Bf6 28. hxg6 fxg6
Á hverju ári fer
fram mjög öflugt
skákmót í Mónakó
sem hollenski auð-
kýfingurinn Van
Oosterom stendur
fyrir. Mótið er með
sérstöku sniði þar
sem tefld er annars
vegar atskák og
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik
hinsvegar blindskák. Staðan
kom upp í blindskák þeirra
Viswanathan Anands
(2766) og Spánverjans
Fransicso Pons Vallejo
(2663). 29. R6f5+ Kh8 30.
Dxh7+! Snotur drottning-
arfórn er leiðir til máts.
30...Kxh7 31. Hh1+ og
svartur gafst upp enda verð-
ur hann mát eftir 31... Bh4
32. Hxh4#.
„Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið.“
Meðvirkni
Fyrirlestrar um meðvirkni,
samskipti, tjáskipti og tilfinningar
verða haldnir föstudagskvöld 2.
apríl kl. 20.00-22.00 og framhaldið
laugardaginn 3. apríl kl. 9.30–16.00 í
Kórkjallara Hallgrímskirkju.
Föstudagskvöld 2. apríl kl. 20.00–22.00.
• Hvað er meðvirkni? Jákvætt og neikvætt.
Stefán Jóhannsson, fjölskylduráðgjafi.
• Kvikmyndin „Mirror of a Child“ um meðvirka fjölskyldu.
Laugardagur 3. apríl kl. 9.30–16.00.
Tilfinningar. Ef þú stjórnar ekki tilfinningum þínum, þá
stjórna þær þér.
Stefán Jóhannsson, fjölskylduráðgjafi.
Frá væntingum til veruleika.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, fjölskylduráðgjafi.
Tjáskipti. Tölum við sama tungumálið?
Stefán Jóhannsson, fjölskylduráðgjafi.
Samskipti. Er þetta ég og þú, eða VIÐ?
Stefán Jóhannsson, fjölskylduráðgjafi.
Hvað er ofbeldi?
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, fjölskylduráðgjafi.
Innifalið er vinnublöð, kaffi og meðlæti.
Skráning fer fram í síma 553 8800
Stefán
Jóhannsson,
fjölskyldu-
ráðgjafi.
Jóhanna
Guðrún
Jónsdóttir,
fjölskyldu-
ráðgjafi.
Óþolsgreining
Hómópatinn og grasalæknirinn
Roger Dyson
verður staddur í Reykjavík
dagana 31.-7. apríl.
Upplýsingar og tímapantanir í síma
588 3077 eða 897 3077.
LESANDI þessara þátta
sendi mér eftirfarandi til-
kynningu frá banka, þar
sem honum þótti orðalag-
ið óíslenzkulegt í meira
lagi. Hún var á þessa leið
með eðlilegum stytting-
um: Þann 09.03.2004
klukkan 12:19 fram-
kvæmdi NN eftirfarandi
innborgun o.s.frv. Viðtak-
andi bréfsins hnaut hér að
vonum um orðalagið að
framkvæma innborgun. Á
venjulegu máli má orða
þetta á þessa leið: NN
innti þennan dag af hendi
eftirfarandi greiðslu eða
líka: Eftirfarandi fjárhæð
hefur verið greidd inn á
reikning númer Š. Vel má
vera, að bankamenn tali
um að framkvæma inn-
borgun eða greiðslu, en
það fer ekki vel í máli
okkar og er, að ég held,
komið í málið fyrir ensk
áhrif. Er hér á ferðinni
svonefndur nafnorðastíll,
sem virðist allágengur í
máli okkar, bæði töluðu
og rituðu. Ég held menn
hljóti að finna, hversu
eðlilegra sé að tala um að
greiða eða borga ein-
hverja fjárhæð en að
framkvæma greiðsluna
eða borgunina. Þá nota
menn eitt sagnorð í stað
so. að framkvæma með
nafnorði. Mig minnir fast-
lega, að ég hafi einhvern
tímann séð eða heyrt tal-
að um að framkvæma at-
kvæðagreiðslu í stað þess
að tala um að greiða at-
kvæði. Vissulega má nota
so. að framkvæma í mörg-
um samböndum. Menn
framkvæma ákveðið verk
eða gerning eða jafnvel
rannsókn, þótt í síðasta
dæminu fari að mínum
dómi betur að nota so. að
rannsaka: rannsaka mál í
stað þess að framkvæma
rannsókn málsins. Ég
vona, að flestir geti verið
sammála mér og viðtak-
anda ofangreinds bréfs
um þetta. Sjálfsagt er að
vekja athygli banka-
manna og annarra á þess-
ari notkun so. að fram-
kvæma, sem virðist vera
að læðast inn í mál okkar
í þessu sambandi úr
ensku máli. – En hvað
segja lesendur um þetta?
Sími 557 4977 og tölvu-
fang jaj@simnet.is -
J.A.J.
ORÐABÓKIN
Framkvæma
Ljósmyndastofa Erlings
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 28. júní 2003 í Lágafells-
kirkju af sr. Sigfúsi Ingvarssyni þau Ísabella Theódórs-
dóttir og Sigurgeir Gíslason.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
SMÆLKI
Hann Jónas yfirlæknir er
upptekinn við hjarta-
skiptaaðgerð. Er erindið
mikilvægt?
ATVINNA mbl.is
FASTEIGNIR mbl.is