Morgunblaðið - 28.03.2004, Side 69

Morgunblaðið - 28.03.2004, Side 69
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 69 ÞÓRIR Baldursson, tónlistarvirtúós með meiru, verður sextugur á morgun. Hann ætlar að fagna áfanganum með tónleikum sem fram fara í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem Stórsveit Reykjavíkur verður honum til halds og trausts. Hefjast þeir klukkan 20.00 og er frítt inn á meðan húsrúm leyfir. Sérstakir gestir Þóris verða Hljóm- ar, Andrea Gylfadóttir, Savanna- tríóið og Björgvin Halldórsson. Blaðamaður sló á þráðinn til af- mælisbarnsins og spurði hvernig honum litist á þessa sex tugi sem að baki væru. „Mér líst bara vel á það,“ segir Þórir. „Ég er býsna ánægður með mitt hlutskipti og á maður ekki að vera þakklátur fyrir að hafa enn heilsu og hreinlega vera á lífi? En mér fannst alltént gaman að staldra aðeins við og líta yfir farinn veg af tilefninu og það er það sem við er- um að gera með þessum tónleikum.“ Þórir segist aðspurður líta sáttur um öxl þegar hann hugsar um tón- listarferillinn. Flest finnist honum vel heppnað þó að hann hafi vissu- lega misstigið sig líka. „Ég hef aldrei gert neitt annað en þetta. Ég geng ekki svo langt að segja að tónlistin sé líf mitt enda svo margt sem skiptir mann máli, fjölskyldan t.a.m. En það væri ansi tómlegt hjá mér ef ég hefði ekki tónlistina. Þórir er alltaf að í tónlistinni, annaðhvort spilamennska eða kennsla. Nú er t.d. nýbúið að ráða hann í Brimkló, þar sem hann sér um hljómborðsleik. Og það þykir Þóri ekki handónýtt. „Brimkló er hörkuband og það er mjög gaman að taka þátt í dans- leikjum með þeim. Bjöggi hefur mjög góð tök á gestunum og þetta er virkilega skemmtilegt,“ segir hann. Þórir segir að spiluð verði lög eft- ir hann og aðra. „Í gamla daga var alltaf verið að setja allt í syrpur og ég gerði eina plötu með þannig syrpum fyrir Svavar Gests árið 1971. Ég ætla að taka tvær af þessum syrpum. Svo ætla ég að leika lög af plötu sem ég gaf út fyrir nokkrum árum og til- einkaði föður mínum. Hammond- molar heitir hún. Svo ætlum við gömlu félagarnir í Savannatríóinu að spreyta okkur á gömlum lögum líka.“ Þórir segir almennt mjög mikið að gera hjá sér. Hann segir að það hafi aukist mjög að fólk leiti til hans með að útsetja fyrir sig og svo er hann einnig í hálfu starfi að kenna tónlist. „Mér finnst það alltaf verða betra og betra,“ segir hann að lokum. „Eftir því sem þú ert lengur í þessu verður þú leiknari og þar með verð- ur meira gaman að þessu. Í raun er ég sá nemandi sem hef lært mest í skólanum!“ Þórir Baldursson fagnar sextugsafmæli Án tónlistar væri tómlegt Þórir Baldursson ætlar að líta tónlistarlega um öxl í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun. Morgunblaðið/Kristinn sínu með Stórsveit Reykjavíkur á morgun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.