Morgunblaðið - 14.05.2004, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 14.05.2004, Qupperneq 19
UM 80% Íraka treysta ekki her- námsstjórninni í Írak og 82% eru á móti hernámsliðinu, ef marka má niðurstöður nýlegrar skoðanakönn- unar. Donald Hamilton, ráðgjafi Pauls Bremers, bandaríska landstjórans í Írak, sagði að könnunin benti til þess að andstaðan við hernámið hefði aukist. Bandarískir embættismenn telja niðurstöður könnunarinnar áhyggjuefni þar sem þær bendi til þess að Bandaríkjamönnum hafi ekki tekist vinna íraskan almenning á sitt band. Mikill stuðningur við Sadr Könnunin var gerð í mars og byrjun apríl, skömmu áður en liðs- menn sjíaklerksins Muqtada Sadr hófu mannskæða uppreisn gegn hernámsliðinu og fimm vikum áður en ill meðferð á íröskum föngum komst í hámæli. Könnunin var gerð í Bagdad, borginni Mosul í Norður- Írak og þremur borgum í sunnan- verðu landinu, Basra, Nasiriyah og Karbala. Um 45% aðspurðra í Bagdad og 67% í Basra sögðust styðja al-Sadr. Þessar tölur þykja athyglisverðar í ljósi þess að hernámsstjórnin hefur lýst því yfir að hún vilji að sjíaklerk- urinn verði annaðhvort drepinn eða handtekinn. Áður hafði verið skýrt frá því að önnur könnun, sem gerð var á sama tíma, benti til þess að 57% Íraka vildu að hernámsliðið færi þegar í stað frá Írak. Um 80% Íraka á móti her- námsliðinu Washington. The Washington Post. Reuters Moqdata Sadr ræðir við fréttamenn í Najaf á miðvikudag. ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2004 19 framan hermenn. Ennfremur sáust nokkur lík Íraka en þingmennirnir sögðu að ekki hefði verið útskýrt hvað varð Írökunum að bana. Nokkrir þingmannanna sögðu að myndirnar sýndu að fangar hefðu verið neyddir til að fróa sér eða eiga mök hver við annan. Aðrir sögðu hins vegar að myndirnar MARGIR bandarískir þingmenn fylltust viðbjóði þegar þeim voru sýndar óbirtar myndir af íröskum föngum sem sættu illri meðferð bandarískra fangavarða og voru niðurlægðir kynferðislega. Þingmönnum beggja deilda Bandaríkjaþings voru sýndar um það bil 1.600 myndir og mynd- bandsupptökur í fyrradag og einn þeirra, demókratinn Ron Wyden, sagði að þær hefðu verið „margfalt viðbjóðslegri“ en hann hefði búist við. Repúblikaninn Jim Talent sagði hins vegar að þótt myndirnar væru skelfilegar væru þær ekki mjög ólíkar þeim myndum sem fjöl- miðlar hafa þegar birt. Á óbirtu myndunum sáust meðal annars konur sem virtust hafa ver- ið neyddar til að afklæða sig fyrir væru svo óskýrar að erfitt væri átta sig á því sem gerðist. „Grimmilegar pyntingar“ Þingmennirnir sögðu að á mynd- unum sæjust fámennir hópar her- manna kvelja og niðurlægja fanga. Margir hermannanna hefðu sést á myndum sem bandarískir fjöl- miðlar hafa þegar birt. Ekki var ljóst hvort myndirnar voru allar teknar í Abu Ghraib-fangelsinu, nálægt Bagdad, eða hvort sumar þeirra voru teknar í öðrum fang- elsum í Írak. „Ég sá grimmilegar pyntingar sem einkenndust af kvalalosta,“ sagði Jane Harman, demókrati í fulltrúadeild þingsins. Repúblikan- inn Tom DeLay, leiðtogi meirihlut- ans í fulltrúadeildinni, sagði hins vegar að andstæðingar stríðsins í Írak hefðu brugðist of hart við myndunum. „Fólkið sem er á móti stríðinu notfærir sér þetta í póli- tískum tilgangi,“ sagði hann. Þingmennina greindi á um hvort birta ætti myndirnar og líklegt er að stjórn George W. Bush forseta verði látin um að ákveða það. Nokkrir þingmannanna sögðu að birting myndanna myndi aðeins magna reiðina sem málið hefur vakið út um allan heim. Aðrir töldu hins vegar að birting myndanna myndi sýna að Bandaríkin væru opið samfélag og minnka skaðann sem hernámsliðið hefur orðið fyrir vegna mynda sem hefur smám saman verið lekið í fjölmiðla. Þingmönnum bauð við óbirtu myndunum Myndir af íröskum föngum sýndar á Bandaríkjaþingi Washington. AP, Los Angeles Times.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.