Morgunblaðið - 14.05.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 14.05.2004, Blaðsíða 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2004 41 Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG SVEINBJÖRNSDÓTTIR, Hvanneyrarbraut 28b, Siglufirði, sem lést föstudaginn 7. maí, verður jarðsung- in frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 15. maí kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Kvenfélag Sjúkrahúss Siglu- fjarðar. Ingvi Svavarsson, Hulda Gunnþórsdóttir, Sigurður Jónsson, Sigrún Ólafsdóttir, Sveinbjörn Jónsson, Björg Hjartardóttir, Skúli Jónsson, Þórunn Kristinsdóttir, Sævar Jónsson, Álfheiður Sigurjónsdóttir, Oddfríður Jónsdóttir, Sigfús Tómasson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SIGFINNUR KARLSSON, Hlíðargötu 23, Neskaupstað, verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju laugar- daginn 15. maí kl. 14.00. Valgerður Ólafsdóttir, Viggó Sigfinnsson, Edda Clausen, Óla Helga Sigfinnsdóttir, Guðmundur Lýðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur bróðir minn og mágur, GUÐMUNDUR BRAGI JAFETSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 11. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Halldóra Jafetsdóttir, Ingvi Guðmundsson. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ALMA ODDGEIRSDÓTTIR, Svalbarði, Grenivík, verður jarðsungin frá Grenivíkurkirkju laugar- daginn 15. maí kl. 14:00. Oddgeir Ísaksson, Margrét S. Jóhannsdóttir, Hjördís Ísaksdóttir, Erhard Joensen, Sjöfn Ísaksdóttir, Þórður Magnússon, Guðrún Kristín Ísaksdóttir, Gunnar Sigurðsson, Vilhjálmur Ísaksson, Guðríður E. Guðmundsdóttir, Sveinn Þór Ísaksson, Alda H. Demusdóttir, Borghildur Ásta Ísaksdóttir, Gísli F. Jóhannsson, Sóley Ísaksdóttir, Þorsteinn Ágúst Harðarson, Haukur V. Gunnarsson, Halla B. Harðardóttir, ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við and- lát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, MAGNÚSAR JÓNSSONAR húsgagnasmíðameistara, Kirkjusandi 5, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A-7 Landspítala í Fossvogi. Valgerður Einarsdóttir, Soffía Helga Magnúsdóttir, Sigurður Stefánsson, Örn Guðmundsson, Hafdís Valdimarsdóttir, Gunnfríður Magnúsdóttir, Sophus Magnússon, Sigríður Rósa Magnúsdóttir, Richard Hansen, Bára Jensdóttir, Eiríkur Gunnarsson, Einar V. Arnarsson, Helen Everett, Ingibjörg Þóra Arnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ljóð Ómars Ragn- arsson um íslensku konuna kom upp í hug- ann þegar ég heyrði af andláti Höllu Eyjólfs- dóttur, móður Eyfa vinar míns. Hugurinn leitaði ósjálfrátt heim til Ólafsvíkur þar sem við sprikluð- um saman á unglingsárunum, í fót- bolta á ganginum heima hjá Höllu, í frystihúsinu, í skólanum eða úti í guðsgrænni náttúrunni. Halla var ein af okkar yndislegu konum/ mæðrum sem Ómar lýsir af hjartans einlægni í ljóðinu. Hún var alltaf til staðar, umhyggjusöm og hlý, og vann sitt starf möglunarlaust. Traust eiginkona, móðir og amma. Ég votta Herði, Eyjólfi, systkin- um hans og fjölskyldum þeirra sam- úð vegna fráfalls Höllu. Fögur minning um íslensku konuna mun lifa. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði’að sér. Hún heitast þig elskaði’og fyrirgaf þér. Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan, sem ól þig og þér helgar sitt líf. Með landnemum sigldi’hún um svarrandi haf. Hún sefaði harma. Hún vakti’er hún svaf. Hún þerraði tárin. Hún þerraði blóð. Hún var íslenska konan, sem allt á að þakka vor þjóð. Ó! Hún var ambáttin hljóð. Hún var ástkonan rjóð. Hún var amma, svo fróð. Ó! Athvarf umrenningsins, inntak hjálpræðisins, líkn frá kyni til kyns. Hún þraukaði hallæri, hungur og fár. Hún hjúkraði’og stritaði gleðisnauð ár. Hún enn í dag fórna sér endalaust má. Hún er íslenska konan, sem gefur þér allt sem hún á. Ó! Hún er brúður sem skín. Hún er barnsmóðir þín. Hún er björt sólarsýn. Ó! Hún er ást, hrein og tær. Hún er alvaldi kær eins og Guðsmóðir skær. Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla’á fold. Þú veist, hver var skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. En sólin, hún hnígur, – og sólin, hún rís, – og sjá: Þér við hlið er þín hamingjudís, sem ávallt er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf: Það er íslenska konan, – tákn trúar og vonar, sem ann þér og helgar sitt líf. (Ómar Ragnarsson.) Þorgrímur Þráinsson. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Úr Spámanninum. K.G.) Ég á erfitt með að skilja að mín ástkæra frænka og vinkona sé dáin og að við eigum aldrei eftir að sjást eða tala saman. Undanfarin mörg ár HALLA EYJÓLFSDÓTTIR ✝ Halla Eyjólfs-dóttir fæddist í Ólafsvík 5. mars 1941. Hún lést í Reykjavík 5. maí síð- astliðinn og var útför hennar gerð frá Garðakirkju 13. maí. höfum við talað saman næstum daglega, oft bæði kvölds og morgna, og alltaf höfð- um við svo mikið að segja hvor annarri. Ég á bágt með að trúa því að ég eigi aldrei eftir að heyra glaðlegu röddina hennar eða fá hana í heimsókn með sitt bjarta bros og hressileg orð á vörum. Tómarúmið er mikið sem hún skilur eftir í huga mínum. Minningarnar eru margar frá góðu æskuárunum í Ólafsvík. Við vorum systkinadætur, móðir mín og faðir hennar voru systkini, og áttu þau bæði heimili sín í Ólafsvík. Það var gott og kærleiks- ríkt samband á milli heimilanna. Ég hafði verið eina barnabarn ömmu og afa í sjö ár, utan nokkurra mánaða, sem litli bróðir hennar fékk að lifa. Sorgin var mikil þegar hann dó, en gleðin var líka mikil þegar Halla fæddist og fannst mér eins og ég hefði eignast litla systur. Fjórum árum seinna fæddist Guðmunda systir hennar. Þá var orðin breyting á, amma Guðmunda dáin og afi flutt- ur til Önnu og frænda. Fjölskyldu- böndin voru sterk og náin og við þrjár afastelpurnar vorum nánast alltaf saman. Árin liðu og nú reikar hugurinn 45 ár aftur í tímann. Það voru miklir gleðidagar um hvítasunnuhelgina í Ólafsvík 16. og 17. maí 1959. Það var haldin stór veisla þegar Halla og Hörður kærasti hennar giftu sig hinn 16. maí, á 55. afmælisdegi Önnu móður hennar. Daginn eftir var Guðmunda fermd og Eyjólfur Valgeir, frumburður Höllu og Harð- ar, var skírður. Halla og Hörður byggðu sér hús á Grundarbraut 30 í Ólafsvík og áttu þar fallegt heimili með börnunum sínum fjórum sem upp komust. Heimilislífið var glaðlegt og skemmtilegt og alltaf var mikið um að vera og þangað voru allir vel- komnir. Börnin voru með tvo til þrjá félaga hvert heima hjá sér. Stund- um var eldri sonurinn með heila hljómsveit að æfa í kjallaranum, systurnar með vinkonurnar hjá sér í sínum herbergjum og yngri sonur- inn að tefla við eldhúsborðið. Allt gekk þetta eins og í sögu og mamma var alltaf tilbúin að gefa að borða og sinna þörfum allra. Heimilið var alltaf jafn huggulegt, enda hjónin mjög samtaka í öllum sínum gjörð- um. Öll árin sem þau bjuggu í Ólafs- vík átti ég hjá þeim öruggan sama- stað, þegar ég kom vestur, og eru stundirnar hjá þeim meðal minna kærustu minninga. Á árunum í Ólafsvík tók frænka mín virkan þátt í félagsmálum og einkenndi það hana hve hjálpsöm hún var og félagslynd og fljót að bregðast við ef á þurfti að halda. Þar af leiðandi lenti hún í ýmsum nefnd- um og ráðum og þau Hörður voru vinmörg. Frá 1989 áttu þau heimili sitt í Reykjavík og eftir það leið ekki sá dagur að við hittumst ekki eða töl- uðum saman. Mesta stolt og gleði hennar frænku minnar voru börnin hennar og svo ekki síður fallegur barna- barnahópurinn, sem alls eru níu. Þau voru hennar stolt og gleði. Tal- aði hún oft um hvað þau Hörður væru rík. Kom ríkidæmið líka best í ljós í hinum snörpu og erfiðu veik- indum hennar, hve þau önnuðust hana vel og veittu henni mikla að- stoð, öll börnin og barnabörnin. Stærstur var þó þáttur Harðar sem hugsaði um hana hverja stund. Í veikindum hennar vakti hann yf- ir henni á spítalanum og eftir að þróttur hennar jókst og hún fékk að fara heim í helgarleyfi af spítalanum tók hann á móti gestum með sitt góða skap og glaða bros. Þá var hann allt í senn í hlutverkum hjúkr- unar, umönnunar, snyrtingar og eldamennsku. Leysti hann þetta allt jafn vel af hendi. Þessa síðustu daga ríkti mikil bjartsýni og von um bata, enda dag- legar framfarir. Kallið kom því óvænt þegar hún leið út af við hlið mannsins síns. Að lokum viljum við Guttormur þakka þér, elsku Halla, fyrir allar góðu stundirnar sem við fengum að njóta saman og gott er að ylja sér við minningar um þær. Elsku Hörð- ur, Eyjólfur og Þrúða, Hulda, Ann Sess, Óli og barnabörnin öll. Við vottum ykkur innilega samúð okkar. Megi minningin um góða konu lifa með okkur öllum. Blessuð sé minning hennar. Guðrún frænka. Höllu kynntist ég þegar ég byrj- aði að vinna hjá Póstinum. Hún var yndisleg kona og kom okkur mjög vel saman. Það var gott að vinna með Höllu og lærði ég margt af henni. Við fluttum saman á milli pósthúsa og það var ekki nóg með það heldur fluttum við báðar í sama hverfið á svipuðum tíma. Þannig að það má segja að leiðir okkar hafi legið saman. Ég gleymi ekki hvað það var gaman að sjá og heyra hvað Halla var ánægð þegar hún og Hörður fluttu í Safamýrina, henni fannst þetta minna sig á gamla heimilið þeirra í Ólafsvík. Já, hún sagði margar skemmtilegar sögur frá því hún bjó þar. Við skemmtum okkur oft svo vel í kaffitímanum, töl- uðum mikið um fjölskyldur okkar beggja og skiptumst á sögum sem voru hver annarri fyndnari. Oft töl- uðum við hin um það við hana að það væri nú gaman að vera fluga á vegg í fjölskylduboðum hjá henni, alltaf svo mikið fjör og hlegið. Það lýsir Höllu mjög vel. Hún hélt vel utan um sína fjölskyldu sem er afar sam- rýnd. Minningu um þessa einstöku konu mun ég geyma í hjarta mínu. Jóhanna Fríður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.