Morgunblaðið - 14.05.2004, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 14.05.2004, Blaðsíða 50
DAGBÓK 50 FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein- takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Skipin Reykjavíkurhöfn: Árni Friðriksson og Ice Bird fara í dag. Venus, Akraberg, Arnarfell, Vilhelm Þorsteinsson, Ak- ureyrin og Dettifoss fara í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, bað og jóga, kl. 14 bingó. Hár- snyrting, fótaaðgerð. Skráning í dagsferð 26. maí er hafin. Farið verður í Strand- arkirkju og hún skoðuð undir leiðsögn Baldurs Kristjánssonar. Ekið að Ölfusárósum, léttur hádegisverður á Haf- inu bláa. Draugasafnið á Stokkseyri heimsótt. Farið frá Aflagranda kl. 9.30. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 13– 16.30 smíðar. Bingó spilað 2. og 4. föstudag í mánuði. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 8.30–12.30 bað, kl. 9–16 handavinna, kl. 10 helgistund, sr Kristín Pálsdóttir, kl. 13–16 vefnaður og frjálst að spila í sal, kl. 13.30 fé- lagsvist. Sími 535 2760. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 bað og hárgreiðslustofan opin. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 handavinnustofan op- in, kl. 10–13 verslunin opin. Félagsstarfið Furu- gerði 1. Kl. 9 aðstoð við böðun og smíðar og út- skurður, kl. 14 sagan. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Opin vinnu- stofa kl. 9–16.30, gönguhópur kl. 9.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13 opið hús, spilað á spil. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Opið í Garðabergi kl. 13–17. Blöðin liggja frammi og kaffi á könnunni. Fótsnyrtistofa Hrafn- hildar, tímapantanir í síma 899 4223. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Kl. 11.30 leikfimi, kl. 13 brids og útskurður. Kóramót fimm kóra eldri borgara verður haldið í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði laug- ardaginn 15. maí kl. 17. Pútt á Hrafnistuvelli kl. 14–16. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10 ganga, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 13.30 kóræfing. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 myndvefnaður, kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 13 bók- band. Í dag er síðasti dagur til að skila mun- um á vorsýninguna. Gullsmári, Gullsmára 13. Félagsþjónustan er opin kl. 9–17 virka daga. Alltaf heitt á könnunni. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, út- skurður, baðþjónusta, fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 11 spurt og spjallað, kl. 14 bingó. Hvassaleiti 58–60. Kl. 13 markaður, pönnu- kökur með kaffinu. Fótaaðgerðir virka daga, hársnyrting þriðjud.–föstud. Norðurbrún 1. Kl. 9– 17 hárgreiðsla, kl. 10– 11 boccia, kl. 14 leik- fimi. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–14.30 handavinna, kl. 10–11 kántrýdans. Kl. 13–17 leikur Viðar Jónsson tónlistarmaður á hljómborð fyrir söng og dansi. Handverks- sýning hefst kl. 13. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla og myndlist, kl. 9.30 bókband og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og leikfimi, kl. 12.30 leir, kl. 13.30 bingó. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Opið frá kl. 10–14. Félag eldri borgara í Gjábakka. Spilað brids kl. 19 þriðjud. og kl. 13.15 föstud. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka kl. 10. Félag einhleypra. Fundurinn fellur niður á morgun laugardag. Munið gönguna mánu- og fimmtudaga. Kvenfélagið Hrönn Vorferð félagsins að Laugarvatni verður laugardaginn 15. maí. Brottför kl. 10 frá Um- ferðarmiðstöð. Í dag er föstudagur 14. maí, 135. dagur ársins 2004, Vinnuhjúaskil- dagi. Orð dagsins: Og nú fel ég yður Guði og orði náðar hans, sem máttugt er að uppbyggja yður og gefa yður arfleifð með öllum þeim, sem helgaðir eru. (Post. 20, 32.)     Ekkert gott er hægt aðsegja um þau vinnu- brögð sem hafa verið við- höfð í fjölmiðlamálinu af hálfu Framsóknarflokks- ins og Sjálfstæðisflokks- ins,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í pistli á heimasíðu sinni.     Hér er að ferðinni al-varlegt inngrip í markaðinn með ómál- efnalegum tilgangi og óhóflegum leiðum. Verði frumvarpið samþykkt mun Ísland búa við ströngustu löggjöf á sviði fjölmiðlamarkaðar á Vesturlöndum. Allt sem kallast meðalhóf er þver- brotið og alvarlegar at- hugasemdir um stjórn- arskrárbrot og brot á EES-samningnum eru hundsaðar.     Tilgangurinn er einnigannarlegur hjá stjórn- arflokkunum og hefur orðið enn grímulausari eftir að breytingartillög- urnar voru kynntar. Eina stundina segja þeir að þetta frumvarp sé al- menns eðlis og tengist ekkert einstökum fyr- irtækjum en hina stund- ina kalla þeir (lesist Davíð Oddsson) þá sem setja spurningamerki við málið málpípur Baugs.     Nú hafa fjölmargir ráð-herrar og þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins dottið í þann pytt að nefna máli sínu til stuðn- ings efni í viðkomandi fjölmiðlum. Þeir segja í pontu Alþingis að „þetta þurfi að stöðva“ á sama tíma og þeir halda á lofti viðkomandi blöðum. Þeir benda á „stríðsfyr- irsagnir“ og „allan frétta- flutning“ í umræddum blöðum máli sínu til stuðnings.     Með þessu kemst hinnbrenglaði tilgangur stjórnarflokkanna upp á borðið. Frumvarpið er einfaldlega viðbrögð við fréttaflutningi. Og þá er- um við komin á mjög hál- an ís. Ís ritskoðunar. Fjöl- miðlar hafa heilagan rétt til að gagnrýna stjórn- völd og stjórnmálamenn og gera grín að þeim. Stjórnvöld mega ekki komast upp með að geta sett lög á þá sem þeim er illa við. Um þetta snýst málið.     Einn maður í landinu,með stuðningi 32 ann- arra manna á þingi sem sitja hljóðir og hlýðnir í kringum hann, er að koma á ólögum,“ segir Ágúst Ólafur að lokum. „Allir þeir eru ábyrgir fyrir þessum ólögum enda þarf ekki nema tvo einstaklinga á öllu þinginu til viðbótar til að koma í veg fyrir að þetta verði að lögum. Hvaða tveir einstaklingar í stjórnarflokkunum sem er ráða örlögum þessa máls. Hverjir ættu það að vera?“ STAKSTEINAR Ritskoðun í höndum tveggja þingmanna Víkverji skrifar... Víkverji vill hafa vaðið fyrir neð-an sig og finnst því mikilvægt að tryggja sig og sína nánustu fyrir þeim skakkaföllum og óhöppum sem upp geta komið. Víkverji hefur verið að endur- skoða sín tryggingamál og lesa vel og rækilega skilmála í þeim tryggingum sem hann hefur keypt. Eitt af því sem Víkverji er tryggður gagnvart er útlimamiss- ir. Tryggingafélög hafa orð á sér fyrir að reyna að komast hjá því í lengstu lög að greiða út bætur og spurði Víkverji fyrir rælni hversu stóran hluta af t.d. hendinni mað- ur þyrfti að missa til að missirinn væri skilgreindur sem útlima- missir og þar af leiðandi bættur. Ekki stóð á svarinu. Hönd verður að taka af fyrir ofan úlnlið og fót fyrir ofan ökkla. „Svo verð- ur fólk að missa tvo útlimi til að það fái bætur. Þetta er nefnilega útlimAtrygging,“ sagði tryggingasalinn afsakandi. Það er sem sagt ekki nema fólk missi tvo fætur, tvær hendur, eða eitt af hvoru sem fólk, sem þó hefur keypt sér útlimamissistryggingu, fær einhverjar bætur greiddar! Og meira um útlimi. Víkverji varheldur betur argur þegar hann fór fýluferð í verslunina Intersport á dögunum. Daginn áður hafði kom- ið inn um bréfalúgu Víkverja aug- lýsingabæklingur þar sem greint var frá tilboðum í versluninni. Hné-, olnboga- og úlnliðahlífar voru meðal þess sem var á tilboði og áttu að kosta 990 krónur. Verslanir Intersport eru ekki í al- faraleið Víkverja, þ.e. í Smáralind, Húsgagnahöllinni og Selfossi. Vík- verji ákvað þó að fara í bíltúr upp á Ártúnshöfða til að tryggja sér hlífar fyrir sumarið, því hann vill ekki vera með hrufluð hné og olnboga. Víkverji var langt frá því að vera kátur þegar hann komst að því eftir langan bíltúr í Húsgagnahöllina að hlífarnar atarna voru eingöngu til í barnastærðum. Víkverji snerist á hæl og strunsaði út úr versluninni hlífalaus. Þegar heim var komið rýndi hann betur í auglýsinguna, en sá ekkert sem gaf til kynna að um barnahlífar væri að ræða. Það var ekki fyrr en eftir góða stund sem hann kom loks auga á á skammstöf- unina jr. fyrir aftan tegundarheitið 3-DEL Leisure jr, sem ritað var með smáu letri. Víkverji er nokkuð sleipur í ensku og veit að jr. stendur fyrir junior, sem þýðir að umrædd vara sé ætluð fyrir yngri kynslóðina, en tók engan veginn eftir þessu þrátt fyrir að hafa grandskoðað myndina af hlíf- unum áður en hann lagði af stað í bíltúrinn. Er Víkverji hræddur um að fleiri áhugamenn um línu- skautaíþróttina hafi getað farið í fýluferð í þeim tilgangi að reyna að verja útlimi sína. Morgunblaðið/Þorkell Það er ógaman að þurfa að ganga við einn svona. Hvað þá ef maður kemst að því að þrátt fyrir að hafa keypt tryggingu við útlimamissi fá- ist missir eins útlims ekki bættur. Sýnum dýrum tillitssemi FIMMTUDAGINN 6. maí sl. sáum við grein eftir konu í Velvakanda („Ein óánægð“) sem sagði að hún vildi ekki sjá hunda niðri í miðbæ. Hún sagði einnig að hún hefði séð hunda á Aust- urvelli og börn sem væru hrædd við hundana. Er ekki á ábyrgð foreldr- anna að gæta barnanna? Okkur finnst hundar og hundaeigendur eiga rétt á því að vera þar sem þeir vilja. Það er búið að banna hunda á nánast öllum stöð- um. En hundar þurfa stór- an og góðan stað til að leika sér og hlaupa um á. Af hverju að banna hunda á öllum stöðum vegna þess að örfá börn (sem eru á ábyrgð foreldranna) hræð- ast þá? Ætti þá ekki að banna veiku fólki að vera á almannafæri ef ske kynni að börnin yrðu hrædd við það? Undanfarna mánuði höfum við séð ansi margar greinar um dýr og óánægju fólks með dýrin. T.d. um konu sem þolir ekki þegar kettir gera þarfir sínar í garðinn hennar. Og fangar þá í búr og kallar á mein- dýraeyði. Af hverju nær hún sér ekki bara í plast- poka og þrífur garðinn sinn sjálf? Vildum bara koma þessu áleiðis og biðjum fólk um að sýna dýrum og dýreigend- um meiri tillitssemi. Benta og Terry (14 ára). Tapað/fundið Göngustafur týndist VANDAÐUR rauðbrúnn göngustafur með kork- handfangi týndist nýlega í Hagkaupum í Skeifunni. finnandi vinsamlegast hringi í síma 568 7215 eða 891 9804. Gyllt armband í óskilum GYLLT armband fannst á bílastæði Smáralindar ný- lega. Ef einhver kannast við að hafa týnt gylltu arm- bandi á þessum slóðum þá getur viðkomandi hringt í síma 554 2248. Bensínlok týndist BENSÍNLOK gleymdist á dælu Atlantsolíu í Hafnar- firði 11. maí. Það var horfið hálftíma síðar. Skilvís finn- andi vinsamlega hringi í síma 698 8277. Í óskilum á Hlemmi Í ÓSKILUM á Hlemmi er m.a. lítill barnaskór, mjúk- ur með loðkanti, og ljósgrár með dökkbláarri rönd að neðan, myndavél og tvær videóspólur. Upplýsingar í miðasöl- unni á Hlemmi. Óskilamunir í Svalbarða Í VERSLUNINNI Sval- barða, Framnesvegi 54, eru nokkrir hlutir í óskilum, þ.m.t. myndavélastandur í leðurtösku og litlir bleikir barnaskór. Upplýsingar á staðnum og í síma 551 2783. Barnahúfa í óskilum DUMBRAUÐ barnahúfa með tveimur skottum frá 66 gráðum norður merkt með tveimur stelpunöfnum fannst við Sæviðarsund fyrir 2–3 vikum. Upplýs- ingar í síma 896 3361. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 ræma, 8 landið, 9 un- aðar, 10 miskunn, 11 líf- færa, 13 hinn, 15 höf- uðfats, 18 styrk, 21 málmur, 22 afla, 23 alda, 24 sýknar. LÓÐRÉTT 2 deilur, 3 kona, 4 þvinga, 5 sárið, 6 bráð- um, 7 hæðir, 12 veið- arfæri, 14 tangi, 15 sjáv- ar, 16 rýja, 17 staut, 18 flönuðu, 19 öndunarfæri, 20 vegg. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 hopar, 4 búkur, 7 molla, 8 rófan, 9 róm, 11 aurs, 13 eira, 14 ótukt, 15 segl, 17 afar, 20 odd, 22 brýnt, 23 æskan, 24 aktar, 25 draga. Lóðrétt: 1 hemja, 2 pólar, 3 róar, 4 barm, 5 kafli, 6 ranga, 10 ólund, 12 sól, 13 eta, 15 subba, 16 grýtt, 18 fokka, 19 renna, 20 otar, 21 dæld. Krossgáta   Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.