Morgunblaðið - 14.05.2004, Side 55
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2004 55
FORRÁÐAMENNN
enska 2. deildarliðsins
Blackpool ræddu við
Guðjón Þórðarson, fyrr-
verandi landsliðsþjálfara
í knattspyrnu, með form-
legum hætti á þriðjudag
og buðu honum að taka
að sér knattspyrnustjóra-
stöðuna hjá liðinu.
„Þeir ræddu við mig
og ég skoðaði málið
gaumgæfilega. Við munum ræða
meira saman á næstu dögum en ég
tel að ég sé með betri valkost í stöð-
unni eins og hún er í dag,“ sagði
Guðjón en vildi ekki gefa það upp
hvaða lið væri um að ræða.
„Ég er með mörg járn í eldinum
og það er mitt mat að Blackpool sé
ekki besti kosturinn fyrir
mig eins og er. Það kem-
ur í ljós á næstu dögum
hver niðurstaðan verð-
ur,“ sagði Guðjón sem
rifti viðræðum við skoska
úrvalsdeildarliðið Hib-
ernian á dögunum, en
samningar virtust vera í
höfn á þeim tíma.
Blackpool er sem
stendur í 16. sæti 2.
deildar en núverandi knattspyrnu-
stjóri liðsins er fyrrverandi stjarna
Liverpool á miðjunni, Steve
McMahon, sem fer frá félaginu í lok
leiktíðar. Skotinn Colin Hendry
hefur einnig verið orðaður við
Blackpool, en hann lék í með liðinu
á síðustu leiktíð.
„Blackpool er ekki
besti kosturinn“
Guðjón
GUÐLAUG Jónsdóttir, lands-
liðskona í knattspyrnu úr KR,
meiddist á æfingu með lands-
liðinu í Englandi í gærmorg-
un. Hún verður því ekki með í
vináttulandsleiknum gegn
Englendingum sem fram fer í
Peterborough í kvöld.
Í stað hennar var Dóra
María Lárusdóttir úr Val valin
í hópinn og fór hún til Eng-
lands síðdegis í gær. Dóra
María hefur spilað tvo A-
landsleiki, þann síðari gegn
Skotum í Egilshöllinni í mars.
Leikur þjóðanna hefst
klukkan 18.30 að íslenskum
tíma á London Road, heima-
velli Peterborough.
Guðlaug
ekki með
Þetta var fimmti Íslandsmeistara-titill Hafnarfjarðarliðsins, sá
annar í röð og fjórði á síðustu fimm
árum en upphafið að
sigurgöngu Hauka
var 1999 þegar Guð-
mundur Karlsson
stýrði Haukunum til
sigurs eftir úrslitaeinvígi gegn
Fram. Haukar höfðu þá beðið í 53 ár
eftir Íslandsbikarnum, en nú árið
2004 eru Haukar stórveldi í íslensk-
um handknattleik.
Leikurinn á Ásvöllum í gær þróað-
ist ekki ósvipað og fyrstu tveir leik-
irnir. Valsmenn héldu vel í við
Hauka í fyrri hálfleik en í þeim síðari
sýndu Haukar mátt sinn og megin og
sýndu og sönnuðu að þeir eru ein-
faldlega með betra lið en Valur og
það besta á landinu. Vendipunktur
leiksins verður að teljast markvarsla
Birkis Ívars Guðmundssonar í marki
Haukanna en hann sýndi frábær til-
þrif í síðari hálfleik og það reið
baggamuninn í leiknum. Birkir sneri
leiknum á band Hauka með frábærri
markvörslu og félagar hans í liðinu,
og þá einkum og sér í lagi Ásgeir Örn
Hallgrímsson, tóku heldur betur við
sér. Eftir jafnan fyrri hálfleik þar
sem Valsmenn sýndu á köflum mjög
góð tilþrif, með Heimi Örn Árnason
og Markús Mána sem bestu menn,
héldu Valsmenn í við Hauka í byrjun
þess síðari allt þar til Birkir Ívar
skellti Haukamarkinu í lás. Hauk-
arnir sigu hægt og bítandi fram úr.
Þeir náðu fjögurra marka forskoti
eftir 12 mínútna leik og þó svo að
þeir misstu hinn geysiöfluga Vigni
Svavarsson með rautt spjald vegna
þriggja brottvísana eftir 17 mínútna
leik í síðari hálfleik var það aðeins til
að stappa stálinu í leikmenn Hauka.
Haukar náðu mest sjö marka for-
skoti og voru farnir að fagna löngu
áður en leiktíminn var úti og það
varð til þess að Valsmenn náðu að
klóra í bakkann.
Haukaliðið á lof skilið fyrir frá-
bæra frammistöðu í úrslitaeinvíginu.
Það lék eins og sannir meistarar og
það verður bara að segjast eins og er
að Valur átti aldrei möguleika gegn
Hafnarfjarðarliðinu. Haukar eru
meistarar á geysiöflugri liðsheild og
afar breiðum og góðum leikmanna-
hópi en ekki verður hjá því komist að
nefna tvo leikmenn sem sköruðu svo
sannarlega fram úr í leikjunum gegn
Val. Það voru þeir Birkir Ívar og Ás-
geir Örn sem fóru á kostum í leikj-
unum þremur. Ásgeir skoraði sam-
tals 27 mörk í leikjunum þremur, átti
fjölda stoðsendinga og var ómetan-
legur í sóknarleik sinna manna.
Birkir Ívar lokaði marki sínu á
löngum köflum og frammistaða hans
virkaði sem vítamínsprauta á félaga
hans í liðinu. Vignir Svavarsson,
Þorkell Magnússon og Halldór Ing-
ólfsson áttu stórgóðan leik í gær og
varla var veikan hlekk að finna í
mögnuðu liði Haukanna. Þá er ekki
lítill þáttur Páls Ólafssonar, en hann
tók við af Viggó Sigurðssyni þegar
allt fór upp í loft hjá Viggó og stjórn
félagsins. Páll náði að kveikja neist-
ann í sínum mönnum og með mikilli
samheldni og samstöðu náðu Hauk-
ar að vinna sig út úr erfiðleikunum
og standa uppi sem sigurvegarar,
bæði í úrvalsdeildinni og í úrslita-
keppninni.
Valsmenn geta þrátt fyrir allt ver-
ið sáttir við frammistöðu sína í vetur.
Þeir gengu í gegnum miklar hremm-
ingar vegna meiðsla lykilmanna og
þegar tekið er mið af því er ekki
hægt að segja annað en það hafi ver-
ið vel gert hjá Valsmönnum að kom-
ast alla leið í úrslitaleikinn. Þar
mættu þeir hins vegar ofjörlum sín-
um. Markús Máni Michaelsson
kvaddi félaga sína með stórleik en
hann heldur sem kunnugt er í at-
vinnumennsku til Þýskalands í sum-
ar. Heimir Örn Árnason átti einnig
mjög góðan leik en því miður fyrir
Val náðu aðrir leikmenn liðsins sér
ekki á strik.
Morgunblaðið/ÞÖK
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Halldór Ingólfsson fallast í faðma á Ásvöllum í gærkvöld.
Fjórði meistaratitill
Hauka á fimm árum
HAUKAR eru svo sannarlega
verðugir Íslandsmeistarar í
handknattleik karla en Haukar
gerðu út um einvígið gegn Val
um Íslandsmeistaratitilinn í
þriðja úrslitaleik bræðraliðanna
að Ásvöllum í gærkvöld. Haukar
höfðu betur, 33:31, og þetta frá-
bæra lið skrifaði nafn sitt í sögu
úrslitakeppninnar en frá því hún
var tekin upp urðu Haukar fyrst-
ir til að vinna úrslitaeinvígið
með fullu húsi, eða 3:0.
Fyrirliðarnir takast í hendur. Markús Máni Michaelsson, fyr-
irliði Vals, óskar Halldóri Ingólfssyni til hamingju.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
HELENA Ólafsdóttir landsliðs-
þjálfari kvenna í knattspyrnu valdi í
gærkvöldi byrjunarlið Íslands sem
leikur gegn Englendingum í Peter-
borough í dag.
ÞÓRA B. Helgadóttir er mark-
vörður. Íris Andrésdóttir, Björg
Ástra Þórðardóttir, Erla Hendriks-
dóttir og Guðrún Sóley Gunnar-
dóttir verða í öftustu vörn. Á miðj-
unni leika: Edda Garðarsdóttir,
Erna B. Sigurðardóttir, Hólmfríð-
ur Magnúsdóttir, Margrét Lára
Viðarsdóttir og Laufey Ólafsdóttir.
Í fremstu víglínu verður Olga Fær-
seth.
ALLAN Borgvardt, danski fram-
herjinn hjá FH-ingum, er ekki kvið-
slitinn eins og óttast var í fyrstu. Við
skoðun hefur komið í ljós að um sýk-
ingu er að ræða í nára og þarf hann
að fara í sprautumeðferð. Borg-
vardt, sem var útnefndur leikmaður
ársins í fyrra, missir örugglega af
fyrstu leikjum FH sem eru gegn KR
og Fylki.
PÉTUR Hafliði Marteinsson og
samherjar hans hjá Hammarby
unnu langþráðan sigur í sænsku 1.
deildarkeppninni í gærkvöldi –
lögðu AIK í Stokkhólmsslagnum á
útivelli, 1:0. Pétur lék allan leikinn.
TRYGGVI Guðmundsson lék all-
an leikinn með Örgryte, sem tapaði
í Helsingborg, 3:0. Jóhann B. Guð-
mundsson var í byrjunarliði Ör-
gryte, en var skipt útaf á 55 mín.
HELGI Sigurðsson var í liði AGF
sem tapaði fyrir Mydtjylland, 5:2, í
dönsku úrvalsdeildinni í gær. Helgi
og félagar komust í 2:0 eftir 13 mín-
útur en heimamenn svöruðu með
fimm mörkum.
ALLT bendir til þess að Teddy
Sheringham muni yfirgefa herbúðir
Portsmouth í lok leiktíðarinnar en
hinn 38 ára gamli framherji fær ekki
nýjan samning við félagið. BBC tel-
ur líkur á því að hann fari til Katar á
næstu leiktíð, líkt og fjölmargir aðr-
ir leikmenn á hans aldri hafa gert á
undanförnum árum.
SHERINGHAM byrjaði leiktíðina
af miklum krafti, skoraði sex mörk í
fyrstu níu leikjum liðsins, en hefur
verið á varamannbekknum í undan-
förnum leikjum. Lomana LuaLua
og Aiyegbeni Yakubu hafa verið í
fremstu víglínu nýliðanna frá
Portsmouth að undanförnu.
FORSVARSMENN enska knatt-
spyrnuliðsins Leeds United ætla sér
ekki að selja framherjann James
Milner frá liðinu en hann er aðeins
18 ára gamall. Tottenham bauð
„gríðarlega vel“ í leikmanninn eins
og forsvarsmaður Leeds orðaði það
við enska fjölmiðla í gær. Milner
skrifaði undir nýjan samning við
Leeds fyrir þremur mánuðum og
hefur hug á því að leika með liðinu
sem er fallið í 1. deild.
FÓLK