Morgunblaðið - 23.09.2004, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 259. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
BYGGIR MEÐ ÞÉR
Komdu við í sýningarsal BYKO Breidd
Glæsilegur
bæklingur er
kominn út!
Treður upp
í fríinu
Damien Rice leikur á NASA í annað
skipti á þessu ári Menning
Viðskipti | Liðkað fyrir lyfjakaupum Áhrif evru að mestu
jákvæð Úr verinu | Lífið um borð í línubát Lífrænt sækir á
Íþróttir | Willum hættir með KR Njáll hættur hjá Val
HÆTTAN á að hryðjuverkamenn
komist yfir kjarnorkusprengju er
raunveruleg, að sögn Lauru Hol-
gate, bandarísks sérfræðings í mál-
um varðandi útbreiðslu gereyðingar-
vopna. Hún ræddi við fréttamenn á
fundi Alþjóðakjarnorkumálastofn-
unarinnar í Vín í gær. Holgate segir
að reyndur kjarnorkuverkfræðingur
geti notað kjarnakleyft efni á stærð
við appelsínu til að smíða sprengju
sem komist fyrir í sendibíl.
Holgate sagði að hryðjuverka-
menn myndu ekki endilega þurfa að-
stoð mjög hæfra vísindamanna til að
smíða sprengju er gæti valdið dauða
milljóna manna. Búnað og efni til
smíðinnar væri að finna í tugum
landa. Holgate sagði að á sl. átta ár-
um hefði stofnun í Rússlandi vitað
um 23 tilraunir til að stela þar búnaði
sem nota mætti í kjarnorkuvopn.
„Við vitum að þær mistókust. Við vit-
um ekki hve margar heppnuðust án
þess að nokkur tæki eftir því.“
Holgate minnti á að árið 1993
hefðu hermdarverkamenn komist
með sendibíl, hlaðinn dýnamíti, inn í
kjallara World Trade Center í New
York og sprengt hann.
Bandaríkin og Sovétríkin gáfu á
sjötta og sjöunda áratugnum mörg-
um þjóðum alls um 20 tonn af auðg-
uðu úrani sem nota átti til friðsam-
legrar hagnýtingar kjarnorku en
hægt er að nota í sprengjur. „Mjög
erfitt er að kanna hvað varð um
hvert einasta kílógramm af þessu
úrani,“ sagði Holgate.
Gætu smíðað sprengju
Vín. AFP.
ÍRANSKIR bloggarar, sem taldir eru vera
allt að 15.000, hafa nú fundið aðferð til að
gera klerkastjórninni gramt í geði, að sögn
fréttavefjar BBC. Þeir mótmæla ritskoðun
stjórnvalda með því að gefa bloggsíðum sín-
um sömu heiti og blöð og vefsíður sem hafa
verið bönnuð.
Hossein Derakhshan, íranskur háskóla-
nemi í Toronto í Kanada, fékk hugmyndina.
Hann segir að um táknræna aðgerð sé að
ræða en hann hafi viljað sýna stjórninni í
Teheran fram á að hún geti ekki jafnauð-
veldlega ritskoðað Netið og fjölmiðlana. Og
viðbrögðin hafi verið stórkostleg. Fjöl-
miðlar harðlínumanna í Íran hafi ráðist
harkalega á sig „sem sannar að yfirvöld
hafa áhyggjur af mótmælum bloggara“.
Talið er að stjórnvöld íhugi nú að koma
upp sérírönsku neti sem þau geti stýrt bet-
ur og yrði ekki tengt alþjóðlega kerfinu. En
Derakhshan segir að hann og fleiri blogg-
arar séu að vinna að mótleik og ætli að nota
þjónustufyrirtæki á sviði tölvupósts.
Bloggað
gegn rit-
skoðun
SNORRI Sturluson er aðalsöguhetja sögu-
legrar skáldsögu eftir norska rithöfundinn
Thorvald Steen, sem kemur út í íslenskri
þýðingu í dag, en í
dag eru liðin 763
ár frá því að
Snorri var veginn
í Reykholti. Í bók-
inni er dregin upp
nýstárleg mynd af
höfðingjanum,
meðal annars sem
stjórnmálamanni
sem hrærðist í al-
þjóðlegu sam-
hengi.
„Snorri var
drepinn af norska
konunginum, með
mafíuaðferðum myndi ég segja, vegna þess
að hann neitaði að selja Ísland undir Noreg.
Á sama tíma vildi páfinn gera norska kon-
unginn að hinum nýja germansk-rómanska
keisara. Þessi alþjóðlega tenging vill oft
gleymast í samhengi við hvers vegna Snorri
var veginn,“ segir Steen meðal annars í við-
tali við Morgunblaðið.
Snorri
höggvinn að
hætti mafíósa
Áhersla á Snorra/43
♦♦♦
Gull og silfur á Ólympíumótinu
Jón Oddur Halldórsson, t.v., með silfurverðlaunapeninginn um hálsinn og
þjálfarann, Kára Jónsson, sér við hlið.
Erum í sjöunda himni/B1Kristín Rós Hákonardóttir sundkona með gullið í Aþenu í gær.
ÍSLENSKIR íþróttamenn unnu til
tvennra verðlauna á Ólympíumóti
fatlaðra í Aþenu í gær. Kristín Rós
Hákonardóttir sigraði í 100 metra
baksundi í fötlunarflokki S7 og setti
um leið heimsmet og Jón Oddur
Halldórsson hreppti silfurverðlaun í
100 m hlaupi í fötlunarflokki T35.
Kristín Rós bætti eigið heimsmet
um nærri því þriðjung úr sekúndu,
synti á 1.25,56 mínútum og var tæp-
um fjórum sekúndum á undan næsta
keppanda. Hún vann silfurverðlaun í
100 metra skriðsundi í fyrradag. „Ég
var vonsvikin með að hafa ekki unnið
100 metra skriðsundið og því var ég
staðráðin í að kýla af alvöru á þetta
núna,“ sagði Kristín Rós sigri hrós-
andi í samtali við Morgunblaðið í gær
en hún á nú 12 verðlaunapeninga frá
fjórum Ólympíumótum, þar af eru
sex úr gulli.
Jón Oddur, sem verður 22 ára á
morgun og keppir í fyrsta sinn á
Ólympíumóti, var 31/100 úr sekúndu
á eftir Tehobo Mokgalagadi frá Suð-
ur-Afríku sem kom fyrstur í mark á
heimsmeti, 13,05. „Með þessum ár-
angri hef ég farið fram úr eigin von-
um fyrir mótið,“ sagði Jón Oddur.
BRESK stjórnvöld sögðust í gær gera allt sem í
þeirra valdi stæði til þess að reyna að fá Breta,
sem er í haldi mannræningja í Írak, leystan úr
haldi. Birt var myndband á íslamskri vefsíðu í
gærkvöldi og sagt vera frá hryðjuverkahópi
Jórdanans Abu Musab al-Zarqawis í Írak. Þar
sést maður er gæti verið breski gíslinn, Kenneth
Bigley, sárbæna Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, um að bjarga lífi sínu. „Ég vil ekki
deyja...Ég bið þig, ég bið þig að sleppa kvenföng-
unum sem haldið er í íröskum fangelsum,“ segir
röddin og síðan brestur maðurinn í grát.
Talsmaður George W. Bush Bandaríkjafor-
seta, Scott McClellan, fordæmdi í gær „villi-
mannlegar“ aðgerðir uppreisnarmanna í Írak.
„Hryðjuverkamenn vilja brjóta niður viljastyrk
slík áform. Colin Powell utanríkisráðherra sagði
að ekki kæmi til mála að semja við hryðjuverka-
mennina. Tók talsmaður breskra stjórnvalda í
sama streng í gærkvöldi.
Ræningjarnir tóku Bigley og tvo Bandaríkja-
menn, Eugene Armstrong og Jack Hensley,
höndum í Bagdad í síðustu viku. Bandaríkja-
mennirnir voru teknir af lífi með sveðju og birti
hópurinn myndbönd af aftökunum. Það seinna,
sem var af Hensley, var sýnt á vefsíðu íslamista í
gær. Sendiráð Bandaríkjamanna í Bagdad fékk í
gær afhent lík Hensleys. Hann var tölvufræð-
ingur og starfaði fyrir byggingafyrirtæki í eigu
manna í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
okkar en þeim mun ekki tak-
ast það,“ sagði McClellan.
Ræningjarnir krefjast þess
að konur í fangelsum Banda-
ríkjamanna í Írak verði látnar
lausar. Bandaríkjamenn
segja að um sé að ræða tvær
konur, Rihab Rashid Taha og
Huda Salih Mahdi Ammash
en báðar munu þær hafa unn-
ið að smíði efna- og sýkla-
vopna fyrir stjórn Saddams
Husseins. Taha gekk undir auknefninu dr. Sýkill.
Íraskir ráðherrar sögðu í gærmorgun að til
greina kæmi að konurnar yrðu látnar lausar en
Bandaríkjamenn sögðust ekki kannast við nein
Grátbiður Blair um hjálp
Bagdad, London, Washington. AFP, AP.
Mannfall/14
Kenneth Bigley á
myndbandinu.
Viðskipti, Ver og Íþróttir