Morgunblaðið - 23.09.2004, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 23.09.2004, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004 47 TÓNLEIKAGESTIR í Klink og Bank síðasta föstudagskvöld urðu ekki sviknir af tónleikum Orgel- kvartettsins Apparats. Þetta voru fyrstu tónleikar sveitarinnar í Reykjavík um alllangt skeið og eft- irvæntingin því nokkur. Öll umgjörðin í kringum tón- leikana var skemmtileg. Gestum var boðið upp á sérkennilegt hunangs- vodka við komuna og DJ 6BOMB, sem var enginn annar en Óttarr Proppé, sá um að koma fólki í stuð- ið. Guðlaugur Falk gítarleikari var með upphitunaratriði og tók magn- að gítarsóló sem var melódískt og fjölbreytt. Í upphafi átti þetta að vera gítarsólóeinvígi en það er greinilega enginn sem stenst Guð- laugi snúning. Fimmmenningarnir í Apparati stigu svo á svið klukkan hálfellefu og léku í einn og hálfan tíma með rífandi uppklappi. Þeir spiluðu mörg sín þekktustu lög eins og „Global Capital“, „Romantika“ og „Stereo Rock & Roll“. Var þeim vel tekið sem og nýju lögunum, sem voru alls fimm talsins. Þrjú hafa fengið vinnuheiti, „1, 2, 3, 4Ever“, „Polynesia“ og „Cargo-Frakt“ og svo voru spiluð tvö glæný lög, sem enn heita ekki neitt. Ekki kemur á óvart að gömlu slagararnir hafi fengið bestu viðbrögðin frá áhorf- endum, sem þó voru greinilega þyrstir í meira frá Apparati. Flutningur sveitarinnar var sér- lega kraftmikill og er flott að fylgj- ast með þeim á sviði. Það er ótrú- legt hvað þeir geta gert við orgelin sín og er trommuleikur Arnars Geirs Ómarssonar frábær. Tónlistin er melódísk, á stundum þung, sér- lega dansvæn en samt líka fyrir mestu rokkhunda. Apparat er á sviði eins og blanda af Kraftwerk og Ham, stílhreinir og glysgjarnir á sama tíma. Ef einhver er í hlutverki aðalgítarleikara sveitarinnar þá er það Jóhann Jóhannsson og ef mað- ur ætlar á annað borð að vera með orgelkvartett þá er það fengur að hafa organista úr Grafarvogskirkju innanborðs. Reyndar koma allir meðlimir Apparats vel fyrir og vinna vel saman á sviði. Margt við framkvæmd tón- leikanna var til fyrirmyndir. Fólk tíndist á staðinn upp úr níu og gat notið gæðatónlistar fyrir miðnætti. Það er lenska hér að allir tónleikar byrji seint en það er hvokri hagur áhorfenda né tónlistarmanna. Til að auka við upplifun tónleika Apparats sá Magnús Helgason kvikmyndagerðarmaður um sjón- rænar útfærslur en svart-hvítar myndir voru sýndar í bakgrunni. Svo má ekki gleyma sápukúluvél- inni, sem gerði sitt fyrir stemn- inguna. Allt þetta hjálpaðist að til að gera tónleikana að fyrirtaks upplifun og vonandi að enginn láti næstu tón- leika Orgelkvartettsins Apparats framhjá sér fara. Organdi rokk og ról TÓNLIST Austurbær Tónleikar í Klink og Bank föstudaginn 17. september. Fram kom Orgelkvartett- inn Apparat og Guðlaugur Falk tók gít- arsóló. DJ 6BOMB hitaði upp. Orgelkvartettinn Apparat  Morgunblaðið/Kristinn Organistarnir Hörður og Jóhann. Apparat spilaði fimm ný lög á tónleikunum. Inga Rún Sigurðardóttir Sýnd kl. 4 B.i. 12 ára. Sýnd kl. 4 Sýnd kl. 4 Sýnd kl. 4 Verkfallsbíó Aðeins 300 kr. miðinn á eftirfarandi myndir M jáum st í bíó! Verkfallsbíó kl. 2 og 4 • Tilboð 300 • Spiderman 2, Madditt2 og Grettir Sýnd kl. 7 og 10. Hverfisgötu ☎ 551 9000 Nýr og betri Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 9. B.i. 16 ára. óvenjulega venjuleg stelpa NOTEBOOK Sýnd kl. 6, 8 og 10.15. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Frumsýnd 24. sept. . . NOTEBOOK Hann gerði allt til að verja hana Nú gerir hann allt til að bjarga henni Mögnuð spennumynd með Denzel Washington í fantaformi i ll il j i ll il j i l i í i Frá leikstjóra Crimsome Tide, Enemy of the State og Spy Games Fór beint á toppinn í USA l i j i i , f i i í Hann gerði allt til að verja hana Nú gerir hann allt til að bjarga henni Mögnuð spennumynd með Denzel Washington í fantaformi r i l t til v rj rir l t til j r i s y z l s i t í f t f r i Frá leikstjóra Crimsome Tide, Enemy of the State og Spy Games Fór beint á l i j i i , f i toppinn í USA Uppáhalds köttur allrar fjölskyldunnar er kominn í bíó! Yfir 28.000 gestir! Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl tal „Myndir á borð við þessar segja meira en þúsund orð.“ HJ. MBL „Drepfyndin“ Ó.Ö.H. DV S.K., Skonrokk Ó.H.T Rás2 Sýnd kl. 2 og 4. DENZEL WASHINGTON DENZEL WASHINGTON www.regnboginn.is NOTEBOOK Myrkraöflin eru með okkur! Mögnuð ævintýra-spennumynd! Ný íslensk mynd gerð eftirsamnefndri metsölubók, í leikstjórn Silju Hauksdóttur, Sýnd kl. 8 og 10.30. Sýnd kl. 10.15. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 4. B.i. 12 ára.Sýnd kl. 4. Sýnd kl. 4 og 6.Sýnd kl. 4. M jáum st í bíó! Aðeins 300 kr. klukkan 4  Kvikmyndir.comi i Á einfaldari tímum þurfti einfaldari mann til að færa okkur fréttirnar GEGGJUÐ GRÍNMYND Forsýnd kl. 8 COLLATERAL TOM CRUSEJAMIE FOXX

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.