Morgunblaðið - 23.09.2004, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.09.2004, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10.Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 5.40. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Lífið er bið Frábær og eftirminnileg kvikmynd eftir meistaraleikstjórann, Steven Spielberg. Með Óskarsverðlaunahöfunum Tom Hanks og Catherine Zeta Jones. r r ftir i il i ftir i t r l i tj r , t i l r . r r l f t ri t J . Tom HanksTo anks Catherine Zeta Jonesi S.V. Mbl.  S.V. Mbl.  DV  Ó.H.T. Rás 2  S.V. Mbl.  DV  Ó.H.T. Rás 2  HP. Kvikmyndir.com  Ó.H.T Rás 3. Sýnd kl. 5.40 og 8 . B.i 14 ára. Sýnd kl. 10. B.i 12 ára. Frábær og eftirminnileg kvikmynd eftir meistaraleikstjórann, Steven Spielberg. Með Óskarsverðlaunahöfunum Tom Hanks og Catherine Zeta Jones. Lífið er bið r r ftir i il i ftir ist r l i tj r , t i l r . s r r l f t ri t J . Super Size Me Sýnd kl. 6. Before sunset Sýnd kl. 8. Ken Park Sýnd kl. 10.20  H.I. Mbl. S.V. Mbl.  Ó.Ó.H. DV  Ó.Ó.H. DV S.G. Mbl.  D.V .Ó.H.T. Rás 2  Kvikmyndir.com  Tom Hanks Catherine Zeta Jonest ri Z t J s FRAMHALD AF BANDARÍSKUM „INDÍ“ BÍÓDÖGUM GEGGJUÐ GRÍNMYND  Kvikmyndir.comvi y ir.c Rómantísk spennumynd af bestu gerð í f Ástríða sem deyr aldrei ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Coffee & Cigaretts Sýnd kl. 10.10  S.V. Mbl.  Ó.Ó.H. DV HLJÓMSVEITIN Hudson Wayne heldur tónleika á Grandrokki í kvöld í tilefni útgáfu smáskífunnar Senti- mental Sweater. Sjötomman gefur forsmekkinn að því sem koma skal á væntanlegri breiðskífu hljómsveit- arinnar, sem kemur út á vegum 12 tóna í febrúar á næsta ári. Sveitin, sem hefur starfað frá árinu 2002, hefur áður gefið út tvær stuttskífur við ágætar viðtökur, Slightly out of Hank og I’m a fox. „Það verða tvö ný lög á smáskíf- unni, annað verður á plötunni og hitt er aukalag,“ segir Birgir Viðarsson, gítarleikari í Hudson Wayne, og er fyrrnefnda lagið samnefnt smáskíf- unni. „Við erum búnir að taka upp drög að fullt af lögum en höfum ekki full- klárað neitt nema þetta eina lag,“ segir hann. Hljómsveitin er á leið til Parísar í lok mánaðarins en heldur svo áfram upptökum eftir utanför- ina. Hudson Wayne er að fara að spila á tónleikum í Pompidou-miðstöðinni í tengslum við Íslandskynningu, sem þar er að hefjast. „Okkur var boðið þetta eftir síðustu Airwaves,“ segir Birgir en hljómsveitin spilar líka á Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni í ár. „Þetta er í annað skipti sem við förum út, við fórum síðasta haust til Belgíu. Það er frábært að fara út að spila,“ segir hann. Tónlist Hudson Wayne hefur ver- ið lýst sem angurværri og höfga- kenndri nýbylgju. „Við erum búnir að vera að þróa okkar eigin stíl. Fyrsta platan var meira djók. Breið- skífan verður meira okkar eigin stíll og vandaðari tónlist en áður.“ Tónlist | Hudson Wayne gefur út smá- skífu og heldur tónleika Tilfinninganæm peysa Hudson Wayne og Bob Justman (sólóverkefni Kristins Gunnars Blöndal) á Grandrokki kl. 21.30 í kvöld. Aðgangseyrir 500 kr. og verður nýja sjötomman til sölu á 500 kr. ingarun@mbl.is Hljómsveitin Bang Gang,sem Barði Jóhannssonleiðir, hefur haft í mörguað snúast í sumar og spilaði nýverið á hátíðinni Kals’Art á Sikiley. „Það var æðislegt. Ég átti ekki von á neinu nema mafíunni. En það er alveg ótrúlega fallegt þarna,“ segir Barði en flugfélagið Iceland Express styrkir Bang Gang og segir Barði það koma sér einstaklega vel. „Landslagið er eins og í Vík í Mýrdal nema sandur í staðinn fyrir mosa og gras. Það eru mjög svipuð fjöll þarna nema þau eru ekki svört heldur brún. Það er mjög gaman að koma þarna,“ segir Barði en hátíðin stóð í nokkra daga og m.a. spiluðu einnig hljómsveitinar Arab Strap, Liars og Kings of Convenience. Betri smekkur S-Evrópubúa Bang Gang hefur jafnan fengið góðar viðtökur í suðrænum Evr- ópulöndum eins og Frakklandi og Ítalíu og kann Barði skýringu á því. „Fólk er örugglega með góðan mús- íksmekk þarna, betri en aðrar þjóð- ir. Ég held það sé helsta skýringin á þessu.“ Bang Gang spilaði á fjórum stórum hátíðum í sumar, í Sviss, Belgíu og tvisvar á Ítalíu. Barði seg- ir það gaman að spila á svona hátíð- um, þær séu vel skipulagðar og vel séð um fólk. Bang Gang spilaði m.a. með hljómsveitum á borð við Divine Comedy, Cypress Hill og Black Rebel Motorcycle Club. „Þeir voru bara borðandi græn- meti þarna allan tímann,“ segir Barði aðspurður um Cypress Hill. „Líka Black Rebel, maður hefði get- að haldið að þeir væru eitthvað skrautlegir. Þeir voru með fullt af viskíi upp á skraut í herberginu sínu en það var lítið búið að drekka af því,“ segir hann. „Það halda flestir að svona tón- leikaferðir séu bara sukk en flest bönd taka þetta mjög alvarlega. Þú stendur ekkert uppi á sviði dag eftir dag fyrir framan fullt af fólki og ert alltaf þunnur eða fullur, allavega ekki í langan tíma.“ Barði var líka að skrifa undir nýj- an útgáfusamning við Discograph um Evrópu utan Bretlands en fyr- irtækið keypti samninginn frá Re- call. „Þetta breytir engu nema ég er hjá öruggara fyrirtæki.“ Stuttmynd fyrir Pompidou Barði var staddur úti í París þeg- ar samtalið átti sér stað að vinna að 15 mínútna stuttmynd, sem frum- sýnd verður í Centre Pompidou hinn 30. september. Auk þess að vera annar leikstjóri myndarinnar og skrifa handritið semur Barði tón- Tónlist | Bang Gang spilaði á mörgum hátíðum í sumar Franskur Barði Bang Gang á sviði á Sikiley. Amerískir dagar í Hagkaupum kort www.ekort.is 10%AFSLÁTTUR AF MATVÖRU! F í t o n / S Í A F I 0 1 0 6 0 2 listina í myndinni sem verður flutt af strengjakvart- ett á frumsýning- unni sem er hald- in í tengslum við íslenska viku. „Ég var beðinn að spila á tón- leikum en mig langaði að gera stuttmynd,“ segir Barði sem fékk jákvæð viðbrögð frá Pompidou. Hann hefur reynt að það er ekki alltaf auðvelt að vera spámaður í eigin föðurlandi. „Það er fullt af fólki að hjálpa mér að gera þetta hérna í París. Ég reyndi að sækja um hjá Kvikmyndasjóði en þeim leist ekki á þetta þar þannig að ég treysti á útlendingana. Það virðist vera stemningin hjá mér að það er auðveldara að fá allt úti en heima,“ segir Barði. „Það eru tíu aðalleikarar í mynd- inni en 20–30 statistar. Vinkona mín sem er málari lánaði mér vinnuað- stöðuna sína og við tökum þetta þar,“ segir hann en landar hans koma nú eitthvað að myndinni. „Ís- lendingar klippa myndina en svo virðist vera auðveldara að fá fólk til að hjálpa sér hérna.“ Þetta hefur gengið svo langt að segja má að Frakkar hafi eignað sér Barða. „Það er að koma út diskur hérna í Frakklandi, útflutnings- diskur ætlaður til að kynna franska tónlist. Ég er þar með eitt lag og er eini útlendingurinn á þessum diski.“ Akureyri á föstudag Bang Gang verður með tónleika í Sjallanum á Akureyri á föstudaginn í tilefni útgáfu breiðskífunnar Something Wrong í Bretlandi. Með í tónleikaförinni verður franski plötusnúðurinn PAPA Z sem mun þeyta skífum eftir tón- leikana. Erlendir fjölmiðlar hafa sýnt plötunni og tón- leikunum mikinn áhuga og fara 15 er- lendir blaðamenn til Akureyrar til að vera viðstaddir. Barði ingarun@mbl.is www.banggang.net

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.